Tíminn - 13.05.1995, Page 10

Tíminn - 13.05.1995, Page 10
10 Laugardagur 13. maí 1995 Flóbgátt Flóaáveitunnar er mikib mannvirki og ótrúlega vel á sig komib, þrátt fyrir háan aldur. Vibgeröir ab hefjast á flóbgátt Flóaáveitunnar, sem verbur sjötíu ára á nœstunni: Áveitumannvirkin endurbætt Starfsmenn Ræktunarsam- bands Flóa og Skeiba hf. byrj- ubu í fyrradag vibgerbir á flót>- gátt Flóaáveitunnar á Brúna- stabaflötum í Hraungerbis- hreppi. Tekinn var upp loku- búnabur, en þetta er hluti af enn stærri vibgerbum sem stefnt er ab því ab gera á flób- gáttinni í tilefni af 70 ára af- mæli hennar, sem er eftir tvö ár. Blabamabur Tímans slóst í för með Ólafi Snorrasyni, fram- kvæmdastjóra Ræktunarsambands- ins, þegar viðgerðir hófust, en um- sjón mb áveitunni er jafnframt í verkahring Ólafs og hans manna. Áveitukerfið er enn notað í þeim tilgangi að flytja vatn um skurði í bithaga búfjár í nebanverðum Flóa. Upphaflegi tilgangur áveitunnar, sem var að veita jökulvatni á engj- ar og úthaga, lagðist hinsvegar að mestu leyti af í kringum 1950, enda þótt einstaka menn hafi allt fram á síðustu ár notað þá aðferð. „Áveitan er í dag ab mestu leyti notuö til að veita vatni um skurði, sem aftur er notað sem drykkjar- vatn búfjár. Það eru alltaf nokkrar ferðir hjá okkur á sumri hverju ab líta hér eftir flóðgáttinni og athuga lokubúnaö og fleira," sagði Ólafur Snorrason. Mjólkurbúib skilgetið afkvæmi Flóaáveitu Það var vorið 192Í? sem Flóa- áveitan var fyrst tekin í notkun. Að gerð hennar og greftri skurða hafði þá verið unnið í nokkur ár þar á undan. Jón Þorláksson, landverk- fræðingur og síðar forsætisráð- herra, kom nokkuð nærri hönnun áveitunnar — og ekki síður lagöi hann gjörva hönd að verki, þegar ákveðið var að hefjast handa um byggingu Mjólkurbús Flóamanna. Það er skilgetið afkvæmi Flóaáveit- unnar — en MBF tók til starfa síöla árs 1929. Sveitarfélög í Flóa hafa með sér svonefnt Flóaáveitufélag, sem kem- ur saman til fundar að minnsta kosti einu sinni á ári. Formaður fé- lagsins er Stefán Guðmundsson, bóndi í Túni í Hraungerðishreppi og fyrrverandi oddviti sveitar sinn- ar. Rekstur félagsins er nokkur; sveitarfélögin greiða árlega fjárhæö í samræmi við jarðarþúsund og sú fjárhæð er notuö til reksturs áveitu- kerfisins, sem er sá sem hér að framan greinir. Ab gera sér glaban dag Að sögn Ólafs Snorrasonar stefna menn að því aö gera sér glaðan dag með hátíðlegri athöfn þegar Flóa- áveitan verður sjötíu ára eftir tvö ár. Sótt hefur verið eftir fjárstuðn- ingi til ýmissa aðila til að kosta við- gerðir á flóðgáttinni við Brúna- staöi. Fyrst og síðast þarf að gera við lokubúnað, en flóðgáttin sjálf og steypa í henni er enn traust og að mestu laus við skemmdir, Áhugi er fyrir því að koma gáttinni á minjaskrá — enda þykir til þess full ástæða, að mati margra. -SBS, Selfossi Þessa mynd var tekin þegar fyrsta lokan í flóbgáttinni var tekin upp og farib meb hana í vibgerb. Þetta er hluti af endurbótum á flóbgátt- inni, sem gera á fyrir sjötíu ára af- mœli hennar eftir sjö ár. Tímamyndir: Siguröur Bogi Sœvarsson Vibgerbarmenn á vettvangi. Frá vinstri talib: Birgir Sigfússon, Ólafur Snorrason og Tryggvi Magnússon. Skortur á vöruþróun land- búnabarafurða og þá eink- um lambakjötsins heyrist oft nefndur þegar raett er um samdrátt í sölu afurba. Því er haldib fram ab vinnslan svari ekki breyti- legum kröfum neytenda á hverjum tíma. Þá er einnig rætt um ab slátrunar- og vinnsluþátturinn hafi setib eftir í þeirri endurskipulagn- ingu sem þegar hefur átt sér stab í landbúnabi, en hag- ræbingarabgerbirnar eink- um náb til bænda. Eflaust má finna rök meb slíkum fullyrbingum, en einnig ber ab geta þess sem vel hefur verib gert. Á undanförnum árum hafa vaxiö upp fyrirtæki sem hafa sérhæft sig í vinnslu landbún- aðarafurða og öbrum matvæla- ibnaði hér á landi og í raun unnið ákveðið brautryðjenda- starf á þessum vettvangi. Eitt þeirra er Kjarnafæði á Akureyri, en um þessar mundir eru liðin 10 ár frá stofnun þess. Fyrirtæk- ib byrjaði smátt; í fyrstu voru aöeins framleiddar pizzur, en fljótlega tók starfsemin að aukast og nú framleiðir Kjarna- fæði fjölbreyttar tegundir mat- væla, auk þess að stunda um- fangsmikla vöruþróun. Eiður Gunnlaugsson, annar stofn- enda og framkvæmdastjóra fyr- irtækisins, ræðir hér um land- búnabarframleiðsluna og mat- vælaiðnaðinn út frá reynslu þess manns, sem byggt hefur upp og starfað við úrvinnslu í áratug. Þegar Kjarnafæði var sett á stofn fyrir 10 árum, var minna um sjálfstæða atvinnurekendur er stunduðu úrvinnslu land- búnaðarafurða og matvælaiðn- að. Menn voru lítið farnir að huga að slíkri atvinnustarfsemi, en hvernig stóð á því að tveir bræður frá Svalbarðseyri hófu ab þróa matvælaiðnaö? Eiður segir ab stofnun Kjarnafæbis hafi borið að með þeim hætti, að hann og Hreinn bróðir hans hafi verið atvinnu- lausir og erfitt að fá vinnu. Því hafi þeir farið að athuga hvort þeir gætu ekki hafið sjálfstæðan atvinnurekstur og eftir miklar vangaveltur ákveðið að hefja framleiðslu á svokölluðum pizzum. „Ég segi svokölluðum, vegna þess að orðib pizza var ekki á hvers manns vörum í þá daga, að minnsta kosti ekki hér fyrir norðan. Þessi framleiðsla líkaði strax vel og sjálfstraust okkar sem matvælaframleiðendur óx að sama skapi. Á eftir pizzun- um hófum við að búa til hrásal- at og líkaði það einnig mjög vel. Með tilliti til atvinnuá- standsins má því segja ab nauð- syn hafi rekið okkur út í að hefja þennan atvinnurekstur." Hakkib var óþarf- lega dýrt — Hvemis lýsir þú þróunintii ncestu árin? „Viö gerðum okkur fljótlega grein fyrir því ab hakkið, sem við keyptum tilbúiö í fyrstu, var óþarflega dýrt og vakti upp þá spurningu, hvort vib gætum ekki keypt heila gripi og unniö úr þeim sjálfir. Við hófum því ab gera það, þar sem vib höfb- um bæði menntun og starfs- réttindi til þess. Það leiddi síð- an af sér framleiöslu og frekari úrvinnslu á hinum ýmsu kjöt- vörum, sem þróaöist stig af stigi næstu árin. Oft réb hreint nýtingarsjónarmib því hvort

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.