Tíminn - 19.05.1995, Blaðsíða 6
6
. Föstudagur 19. maí 1995
Cóö bylgja fyrir„okkar mann" íbrekkunni.
Fjölmennt Reykjavíkurmót
Edda Rún Ragnarsdóttir sigraöi í tölti ungmenna.
Ljósm.: C.T.K.
Hanna Rúna, Iris Halla og Hildur á góöri stund í Menntasmiöju kvenna á Ak-
ureyri. Aö baki þeim má sjá myndverk unnin af Hönnu Rúnu. Tímamynd Þórbur
Námiö veitir
okkur styrk til að
feta nýjar brautir
í framtíöinni
Met skráning var á Reykjavík-
urmeistaramóti íþróttadeild-
ar Fáks um síöustu helgi. Nú
geta fullor&nir mætt og keppt
í sínum styrkleikaflokki án
þess ab lenda í atvinnumönn-
unum, sem loksins hafa sinn
eigin flokk. Þá er eftirtektar-
vert hversu óvægnir dómarar
eru vi& keppendur og halda
sig aö bókstafnum í fram-
kvæmd keppni. Þannig var
Erling Sigurösyni vísaö frá
keppni vegna þess aö hann
festi ekki hökubandiö á reiö-
hjálmi sínum, enda gengur
þetta band ekki undir ööru
nafni meöal gárunganna en
Ellaband.
í A tölti fulloröinna sigraði
Sveinn Ragnarsson á Tindi og í
B töltinu sigraði Ólöf Guð-
mundsdóttir á Kveik.
í A fjórgangi sigraði Sigur-
björn Bárðarson á Kolskeggi og
í B fjórgangi sigraöi Ólöf Guð-
mundsdóttir á Kveik. í A fimm-
gangi sigraði Hulda Gústafs-
dóttir á Stefni en í B fimmgangi
sigraði Magnús Arngrímsson á
Grími.
Gæðingaskeiðið sigraði Hin-
rik Bragason á Uglu, Hindruna-
stökkið Sigurbjörn Bárðarson á
Hæringi og Hlýöniæfingarnar
hafði Sigurbjörn á Hæringi.
Stigahæstur fullorðinna varð
Sigurbjörn Bárðarson og sigraði
einnig í ólympískri tvíkeppni.
Islenska tvíkeppni sigraði
Sveinn Ragnarsson ásamt skeið-
tvíkeppnina.
Tölt ungmenna sigraði Edda
Rún Ragnarsdóttir á Litla-Leist,
Sigurður Matthíasson hafði
fjórganginn á Galdri og einnig
fimmganginn á Hugin. Hann
sigraði svo bæði í hlýðniæfing-
um ungmenna og hindrunar-
stökki, ásamt íslenskri tví-
keppni og ólympískri tví-
keppni.
Tölt unglinga sigraði Styrmir
Sigurbjörnsson á Hauki, en fjór-
ganginn sigraði Davíð Matthí-
asson á Vin ásamt hlýðniæfing-
unum og íslenskri tvíkeppni.
Guðrún Berndsen sigraði í
hindrunarstökkinu ásamt
ólympískri tvíkeppni, en stiga-
hæstur unglinga varð Davíð
Jónsson.
í tölti barna sigraði Sylvía Sig-
urbjörnsdóttir og varð líka
stigahæst ásamt því ab sigra í
fjórgangskeppninni. G.T.K.
Frá Þórbi Ingimarssyni, fréttaritara
Tímans á Akureyri:
Hanna Rúna Jóhannsdóttir,
íris Halla Sigurðardóttir og
Hildur Helgadóttir hafa
stundað nám á vorönn
Menntasmiðju kvenna á Ak-
ureyri. Af hverju tóku þær
þátt í náminu? Voru þær í at-
vinnuleit eða starfandi sem
heimavinnandi húsmæður og
hvernig hafa þær upplifað
þetta tímabil? Finnst þeim
þær betur búnar undir að
takast á við daglegt líf og ef til
vill ný störf en fyrir 16 vikum,
er þær innrituðust á önnina?
Hanna Rúna: „Ég hef verið
heimavinnandi með sex
manna fjölskyldu undanfarin
ár og ekkert sérstaklega verib
að leita eftir vinnu. En mér
fannst þetta mjög spennandi
tækifæri og sé ekki eftir að
hafa tekið þátt í því."
Hildur: „Ég hef einnig verib
heimavinnandi. Eiginmaður
minn er sjómaður, þannig að
ég er oft ein og fannst því til-
valið að taka þátt í þessu verk-
efni þegar það bauðst. Ég veit
aldrei nema að ég skelli mér í
atvinnulífið á eftir."
íris Halla: „Menntunarkröf-
urnar fara vaxandi og þar
mega konurnar ekki láta sitt
eftir liggja. Þegar þessi mögu-
leiki var fyrir hendi, fannst
mér sjálfsagt aö nýta hann."
Hildur: „Þetta hefur styrkt
okkur, bæði hvað sjálfar okk-
ur varðar og einnig í sam-
skiptum við annað fólk. Kon-
ur búa yfir ýmsum hæfileik-
um, sem ef til vill hafa ekki
alltaf fengið að njóta sín."
íris Halla: „Þetta hefur
kennt okkur að vera við sjálf-
ar. Hér í Menntasmiðjunni
lesum við til dæmis upp okk-
ar verk fyrir framan allar hin-
ar og þá er ekkert spurt um
hvað þeim finnst, hvort þær
gagnrýna mann eða hvetja.
Ég held að nálægðin við hina
þátttakendurna skipti miklu
máli og vegna hennar fær
maður aukinn kjark."
Hanna Rúna: „Fjöldi kvenna
er hæfileikaríkur og ástæða til
að koma þeim á framfæri. í
þessu námi höfum við fengið
tækifæri til þess að kynnast
ýmsu og ekki síður að reyna á
okkur sjálfar. Öll vinna fer
fram í skólanum og þar fáum
við ef til vill nokkrar mínútur
til þess að ljúka verkefnunum,
þannig að við verðum ab
vinna hratt úr því sem við
erum að fást við. Þannig höf-
um við fengið fjölmörg tæki-
færi til þess að þroska okkur
og þjálfa."
Hildur: „Ég held að þjálfun-
in í því að koma fram og tjá
sig geti skipt miklu máli, ekki
síður en sú hagnýta menntun
sem við hljótum. Við höfum
orðið að reyna á okkur á ýms-
an máta og við búum vissu-
lega að því."
Hanna Rúna: „Ég álít þab
kost ab við höfum unniö öll
verkefni okkar í skólanum; í
þessu samfélagi sem Mennta-
smiðjan myndar. Árangurinn
hefði ef til vill ekki orðið sá
sami, ef við hefðum unnið
hluta efnisins sem heimaverk-
efni."
Hildur: „Ég held að mest um
vert sé, að í þessu námi höf-
um við tekist á við hluti sem
við höfum ekki fengist vib
áður, og það veiti okkur á-
kveðinn styrk til þess að feta
nýjar brautir í framtíðinni."
Siguröur V.
Matthíasson
sigraöi allt sem
hann kom ná-
lœgt í ung-
mennaflokknum
nema töltiö. Hér
er hann á Hug-
inn í fimmgang-
inum, þá koma
Davíö og Breki,
Ragnheiöur og
Natan, Viöarog
Custur og Alma
og Von.
Sylvía og Galsi sigruöu í fjórgangi barna, þá koma Viöar og Claöur, Þórdís Erla og Blakkur, Árni Björn og Tralli og Rakel og Tvífari.