Tíminn - 19.05.1995, Page 11

Tíminn - 19.05.1995, Page 11
Föstudagur 19. maí 1995 11 Jóhannes Haraldur Jónsson vélstjóri Jóhannes Haraldur Jónsson var fœddur á Þingeyri við Dýrafjörð 30. nóvember 1923. Dáinn 12. maí 1995 á heitnili sínu, Háaleit- isbraut 42, Reykjavík. Kona hans, Lovísa, var fœdd 25. október 1921. Dáin 2. febriíar 1991. Þau áttu síðast heimili sitt að Háaleitisbraut 42. Jóhannes kvœntist Lovísu árið 1960 og eignuðust þau tvö böm: Valgarð f. 1959 og Inga Jón f. 1964. Áður átti Lovísa tvœr dœtur: frisi Val- berg f. 1947 og Önnu Björg Samú- elsdóttur f. 1957. Bamaböm þeirra em 6 og eitt bamabama- bam. Sólin kom jafn snemma upp á báðum bæjunum. Þeir stóbu undir sömu hlíðinni þar sem Grafandilækur og gilin tvö, Glórugil og Bæjargil, trítluðu niður hlíðina. Efst á hvorum gil- barminum um sig var sýnishorn af gróðri fyrri alda, Skógarbrekk- urnar og Hornteigarnir. Þar ilm- aði smávegis birkikjarr, fjall- drapi, lambagras, blóbberg og fleira. Á sínum hvorum bænum vorum við Jóhannes og systkin okkar, öll á sama aldri. Mitt á milli bæjanna, Gils og Gemlu- t MINNING falls, stóð barnaskólinn Lamba- hlað. Þangað sóttu öll börn frá Mýrum ab Lambadal skyldu- nám sitt. Hann var vorboöi nýrra tíma, barnahópurinn stór og allir frá 10 til 14 ára í sama bekknum. Þau sem fermdust fóru, hin 10 ára komu inn. Þarna óx upp samfélag. Þannig vissum við öll alltaf eitt- hvað hvert um annað. Þetta voru síðustu árin sem allt gekk sinn vanagang. Svo kom hrað- inn og möguleikarnir blöstu við. Hópurinn frá Lambahlaöi hélt vítt og breitt um landið. Enn í dag finnst mér þessi ár, bernskan og æskan, hafa gefiö mér mynd af öllu þessu fólki. Mynd sem aldrei breytist. Alltof mörg hafa dáið um aldur fram. Þau eru samt þarna í röðinni sem forðum. Ég sé þau sem þá: yndisleg, góð og skemmtileg. Þab er stutt milli bæjanna Gils og Gemlufalls og spor margra kynslóða geymir mjúk og gróin hlíðin. Jóhannes Jónsson —Jói á Gili — hélt til náms og lærði til vél- stjóra. Við kölluðum hann betta öll. Mestan hluta miðrar ævi hittumst við ekki oft. Við gist- um samt bæði Reykjavík, hún býr yfir sinni dulúð og einn dag- inn vorum við Jói orðin ná- grannar á ný. Enginn lækur, engin gil, bara malbikuð gatan. Ég sá ljósið í hans glugga og hann í mínum. Hann varð fyrri til að heilsa uppá okkur hjónin, sem þekktum hann bæði. Það var eins og enginn tími hafi liðið. Það sem var á Lamba- hlabi, Ungmennafélagsfundirn- ir, böllin og hvað eina, kom flæðandi sem hafsjór inná sjón- arsviðið og ekkert hafði breyst. Við fluttumst í hjartans ein- lægni til þeirra sælustunda sem enginn skuggi lá yfir. Þar sem vandamál voru óþekkt. Léttari nóturnar lágu vel fyrir Jóa, sem hann átti kyn til, og ennþá gátum við brosað og hlegib. í eftirmiðdag þann síðasta sem hann lifði, töluðum við lengi saman í síma. Hann byrj- aði á því að segja mér ab hann væri löngu búinn að koma með fisk í soðið til mín, ef vélin í bátnum hans hefði ekki tekiö uppá því að bila, og svo fágæt væri hún ab stykkið sem vant- abi fengist ekki í landinu. „Ég er alveg í öngum mínum yfir að komast ekki á sjóinn. Ég vissi bara ekki að það væri svona ó- mögulegt að komast það ekki." Það taldist ekki til undantekn- inga ab hann kom í dyrnar hjá mér og sagði: „Áttu ekki plast- poka? Ég er með alltof mikið af fiski í skottinu á bílnum." Þannig fékk ég spriklandi fisk beint úr sjónum. Ekki eina soðningu, heldur margar. Stundum þáði hann kaffisopa og við drógum tímann á tálar og töluðum og töluðum. Jóhannes vinur minn naut vel gleðistunda. Hann kunni líka að fara vel með sársauka sinn. Ég skrifa ekki þessar línur til að tí- unda líf hans, því er nú iokið. Þennan tíma, sem nýja nábýlið varði, varð beint framhald af æskuvinsemd sem mjög var á- nægjulegt að njóta. Ég hugsa til þeirra vina minna, sem fallnir eru frá úr hópnum frá Lamba- hlaði. Vib vorum öll fermd á Mýrum og boðað að við værum Gubs börn, sem Hann tæki á móti í ríki sínu, þá héðan af jörðu færum vib. Við, sem ennþá erum ofar moldu, erum nú gamla fólkið í fjölskyldunum. Það er kannski ekki rökrétt, en meðvitundin segir að hvert okkar hljóti að vera næst eða geta eðlilega verið það. Ég sakna vinar í stað og þakka hjartanlega vinsemd og hlýhug fyrr og síöar. Nú er Jói minn kominn á eilífðarsjóinn og ég veit ab hann kemur syngjandi fallegu röddinni sinni ab landi hinum megin. Hópnum hans og bræðrum fyrir vestan sendi ég hugheilar samúbarkveðjur. Nína Fullveldisvof- an gengur aft- ur í Kópavogi Nafnlausi leikhópurinn frem- ur leiklistarlega framsetningu atburða ársins 1918. Leikurinn er eftir Þóri Stein- grímsson og annast hann einnig leikstjórn. Margir lista- menn koma vib sögu sýning- arinnar, svo sem tónlistar- mennirnir Jónas Ingimundar- son og Sigurður Rúnar Jóns- son og leikararnir Erlingur Gíslason og Dóra Magnúsdótt- ir, svo einhverjir séu nefndir. Leikurinn fjallar um 1. des- ember 1918 eða um fullveldi íslands, er fagnað var í skugga dauðans, og er sérstaklega samið fyrir leikhópinn, sem vill minna áhorfendur á sjálf- stæðisbaráttu íslensku þjóðar- innar á því herrans ári og á þá arfleifö sem hún byggir á. Megininntak verksins er ferðalag fólks að kvöldlagi, á leið af hátíðahöldunum á Þingvöllum 17. júní 1944. Ferðaðist það á vörubíl meb boddýi, sem bilaði á Kópa- vogshálsinum, skammt frá Álfhól. Á meðan veriö er að gera við bílinn fara „landvætt- ir" af stað og hrista upp í far- þegunum ýmsar minningar frá árinu 1918, sem virtust hafa gleymst eða legið í þagn- argildi. Minningarnar eru um: Frostaveturinn mikla, „lands- ins forna fjanda" — hafísinn, Kötlugosið, Spænsku veikina o.fl. Við umfjöllun þessara at- burða fara ýmis viðhorf ab koma upp, sem ekki hafa verið mikib rædd. í lokin tekst að gera við bílinn, en þegar lagt er af stab, þá er það ekki sami hópurinn sem fer og_ gá sem LEIKHUS kom frá Þingvóllum. Nafnlausi leikhópurinn var stofnaður árið 1992 og saman- stendur af nokkrum eldri borgurum í Kópavogi. Hefur hann sett á svib Spegilinn, í leikstjórn og leikgerð Ásdísar Skúladóttur eftir sögu Fríðu Á. Sigurðardóttur, og jafnframt tekið þátt í útvarpsuppsetn- ingu undir stjórn Jónasar Jón- assonar, er útvarpað var á gamlárskvöld og á þrettándan- um 1992/93. Þá hefur hann Eiríkur lceknir og Ingibjörg, sem leikin eru af Erlingi Gíslasyni og Dóru Magnúsdóttur. jafnframt verið meb tvö fjöl- sótt leiklistarnámskeið undir stjórn Þóris Steingrímssonar, leikstjóra og leiðbeinanda, sem voru haldin í félagsað- stöðunni Gjábakka, Kópavogi. Með þessari sýningu eru nokkrir eldri borgarar í Kópa- vogi að leggja ýmislegt til mál- anna sem á mikið erindi, og þá ekki einvörðungu til Kópa- vogsbúa heldur þjóðarinnar allrar. Frumsýning var 14. maí vib góðar undirtektir áhorfenda. 2. sýning verður föstudaginn 19. maí og 3. sýning 21. maí. Sýningar verða ekki fleiri! ■ Þjóbemishyggja í vorhefti Skírnis Vorhefti Skímis 1995, 169. árg., er komið út. Meðal efnis eru ritgerðir um áhrif þjóbern- ishyggju á hugmynda- og hagsögu íslands. Guðmundur Jónsson ræðir um samspil þjóðernishyggju og hagþróun- ar frá miðri nítjándu öld fram til lýðveldisstofnunar; Sigríður Matthíasdóttir gerir saman- burð á alþýðufyrirlestrum Jóns Aðils og þjóðernishugmynd- um þýska heimspekingsins Jo- hanns Gottliebs Fichte; þá greinir Arnar Guðmundsson áhrif þjóöernishyggju á ís- lenska stjórnmálaumræðu samtímans. Er síðastnefnda ritgerðin að hluta byggð á við- tölum höfundar viö íslenska stjórnmáfamenn. Hugmyndir Fréttir af bókum um þjóðerni og sjálfsmynd ís- lendinga ber ennfremur á góma í grein Jóns Karls Helga- sonar um gullfót íslenskrar seblaútgáfu. Arfur forn-klassískrar menn- ingar setur svip sinn á Skírni með tvennum hætti að þessu sinni. Haukur Hannesson birt- ir þýðingu á fyrstu bók Eneas- arkviðu eftir rómverska skáld- ið Virgil og Svavar Hrafn Svav- arsson ræðir um þróun og stöðu klassískra fræða í nútím- anum. Af öðrum ritgerbum má nefna nýstárlega túlkun Dicks Ringler á ljóðinu Sökn- uði eftir Jónas Hallgrímsson, grein Sigríðar Halldórsdóttur um rannsóknir þýsku fræði- konunnar Margarethe Leh- mann-Filhés á spjaldvefnaði og umfjöllun Karls Gunnars- sonar um landnám í Húna- þingi. Skáld Skírnis er Thor Vil- hjálmsson og eru þrjú ný ljóð hans birt í heftinu. Myndlist- armaður Skírnis er Nína Tryggvadóttir. Mynd hennar, Sjávarþorþ, prýðir forsíðu rits- ins og fjallar Hrafnhildur Schram um verkið í stuttri grein. Undir liðnum Greinar um bækur er fjallaö um tvær fornbókmenntasögur. Guðni Elísson ræðir um Máttugar meyjar eftir Helgu Kress og Kirsten Wolf skrifar um fyrstu tvö bindi íslenskrar bók- menntasögu sem Vésteinn Óla- son ritstýrði. Með þessu hefti verba rit- stjóraskipti hjá Skírni. Vil- hjálmur Árnason og Ástráður Eysteinsson létu af störfum um síðustu áramót. Nýir rit- stjórar eru þeir Róbert H. Har- aldsson og Jón Karl Helgason. Skírnir er eitt allra þekktasta og virtasta tímarit íslendinga og fá tímarit sem oftar er vitn- að til. Áskrifendur ritsins eru jafnframt félagsmenn í Hinu íslenska bókmenntafélagi og njóta 20% félagsmannaafslátt- ar af bókaverði í afgreiðslu fé- lagsins, Síðumúla 21. Þar er opið virka daga kl. 13:00 til 17:00. ■

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.