Tíminn - 25.05.1995, Blaðsíða 9

Tíminn - 25.05.1995, Blaðsíða 9
UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . Fimmtudagur 25. maí 1995 Lögreglumabur beinir byssu sinni aö dreng í miöborg Rio de /o- neiro. Drengurinn var þátttakandi í mótmœlaögeröum sem götusölu- menn höföu í frammi ígær til aö mótmœla ofríki lögreglunnar gegn þeim. Einn sölumannanna var skotinn til bana. Nýskipaöur yfirmaöur öryggislög- reglunnar í borginni, Nilton Cerqu- eira, lét þau tilmæli út ganga á þriöjudaginn aö lögreglan skyldi ekki hika viö aö beita skotvopnum í baráttu sinni gegn ofbeldisglœp- um. „ Þegar lögreglumaöur hleypir af byssu sinni veröa skotin aö vera banvæn, því ef hann hikar veröur hann drepinn," sagöi Cerqueira sem var hershöföingi í varaliöi landsins. Mannréttindahópar hafa harölega gagnrýnt skipun Cerqueiras íemb- ættiö. Hann er talinn bera ábyrgö á dauöa 269 manns og hvarfi 152 á tímum herstjórnarinnar í Brasilíu. Kasmírbúar vilja ekki kosningar um framtíö héraösins nema aöskilnaöur frá Indlandi sé einn valkostanna: Stjórnin ætlar að knýja fram kosningar Srinagar — Reuter Undirbúningur er nú hafinn ab kosningum í Kasmírhérabi nyrst á Indlandi, þar sem kjósa á um framtíh hérabsins. Ekki er þó víst hvort af kosningunum getur orhih, því spenna er mik- il í hérabinu, en miklar óeirhir brutust þar út eftir ab grafhýsi þjóbardýrlings Kasmírbúa í bænum Charar-e-Sharief eybi- lagbist í eldi 11. maí sl. Grafhýsib brann í miklum eldsvoða, sem braust út í átök- um milli indverska hersins og múslímskra aðskilnaðarsinna, og brann fjöldi húsa í bænum þá til kaldra kola. Saka aðskiln- aðarsinnar og herinn hver ann- an um að vera valdir að brunan- um. Útgöngubann, sem sett var á í kjölfar eldsvoðans, var num- ið úr gildi í vikunni og hefur verið tiltölulega friðsælt í hérað- inu síðan. Kasmírhérað var sett undir stjórn Indlands árið 1990 í kjöl- far uppreisnar aðskilnaðarsinna það ár, en gildistími þess fyrir- komulags á að renna út 18. júlí nk. Indverska stjórnin hefur stefnt að því að lýðræðislegar kosningar fari fram í héraðinu fyrir þann tíma, en atburðir síð- ustu vikna hafa raskað þeim áformum. Mikil og almenn andstaða er í héraðinu gegn því að kosningarnar verði haldnar, enda er ekki gert ráð fyrir þeim möguleika að kjósendur geti valið algeran aðskilnað héraðs- ins frá Indlandi. Frelsisfylkingin, sem er sam- steypa 30 stjórnmálahópa að- skilnaðarsinna, er mjög and- snúin kosningunum og hefur hafið almenna herferð gegn þeim. „Þar til fyrir stuttu voru e.t.v. 30 prósent Kasmírbúa sem vildu kosningar," sagði verslun- areigandi í Srinagar, höfuðborg Jammú og Kasmír. „En eftir að helgidómurinn var eyðilagöur hafa tvöfalt fleiri snúist gegn því." Umar Farooq, formaður Frels- isfylkingarinnar, segir að hið helga grafhýsi sé í huga Kasmír- búa eitt helsta tákn múslímskr- ar þjóðarvitundar í Kasmír. „Helsta baráttumál hreyfingar múslíma í Kasmír er aö vernda þessa þjóðarvitund," sagði hann. „Þess vegna var þessi at- burður mikilvægur vendipunkt- ur fyrir hreyfinguna." Á þriðjudaginn var ráðist með grjótkasti á hinn 70 ára gamla Ghulam Rasool Kar, sem er helsti leiðtogi indverska Kon- gressflokksins í héraðinu. Hann var fluttur á sjúkrahús með minniháttar meiðsli, en þetta atvik sýnir að stjórnmálamenn geta verið í töluverðri hættu á þessum slóbum og ab spennan kraumar undir niðri. Þrátt fyrir þessa andstöðu hef- ur indverska stjórnin nú látið hefja undirbúning að kosning- unum. ■ Mál Salmans Rushdie: íran breyt- ir um áherslur Nicosia — Reuter Nokkurrar stefnubreytingar hefur undanfarib orbib vart hjá írönskum stjórnvöldum í máli Salmans Rushdie. Þar er því enn haldib fram, eins og ábur, ab þab sé ekki á valdi hinna veraldlegu stjórnvalda í íran ab nema daubadóminn yfir Rushdie úr gildi, því hann sé byggbur á trúarleg- um forsendum og hafi sjálf- stætt gildi án tillits til ír- anskra laga. Hins vegar hefur það verið haft eftir írönskum embættis- mönnum að stjórnvöld þar hyggist ekki lengur standa að baki neinum hótunum gagn- vart Rushdie og þau ætli sér jafnframt að hvetja múslíma út um allan heim til að fara í einu og öllu ab lögum þess lands sem þeir eru staddir í. Evrópusambandið reyndi í síðasta mánuði ab fá írönsk stjórnvöld til að aflétta dauða- dóminum meö því ab tryggja öryggi Rushdies í ríkjum Evr- ópu, en í staðinn fengi íran bætt samskipti vib Evrópusam- bandiö á sviöi verslunar, efna- hagsmála og stjórnmála. Stjórnvöld í íran hafa enn ekki sýnt nein formleg viðbrögð vib þessu tilboði, og hafa ítrek- ab fyrri afstöbu sína um að dauðadómurinn sé utan lög- sögu íranska dómskerfisins. En sú áherslubreyting, sem áður er getið, virðist þó til marks um að Iran hafi áhuga á að bæta tengsl sín við Evrópusambandið. ■ 130 stórlaxar úr alþjóölegu viöskiptalífi sœkja EAN-þingiö í Reykjavík: Litlu EAN-merkin sem hafa breytt svo mörgu Tíu ár eru síban EAN, alþjóð- lega vörunúmerakerfib sem flestir þekkja í formi strika- merkinga á nánast hverjum hlut sem keyptur er í versíun- um, hélt innreið sína á íslandi. Þá var stofnub íslensk EAN- nefnd. í dag og á morgun halda alþjóblegu EAN-samtök- in ársfund sinn á Hótel Loft- leibum í Reykjavík. Um 130 manns sækja fundinn, fólk hvaðanæva úr heiminum, einkum stórlaxar vibskiptalífs sinna landa. EAN-merkingar hafa gjörbreytt ýmsu í þjóbfé- laginu á stuttum tíma, en þær hafa líka stublab ab minni vinnu, sérstaklega afgreibslu- störfum í kjörbúbum. Líklega var Kexverksmiðjan Frón frumherji í notkun strika- merkinga á vöru sinni, en þaö kom til af útflutningstilraunum til Ameríku. Það var fyrir um 15 árum. Bónus opnaði verslun með strikamerkingakerfi fyrst smásöluverslana vorið 1989. Margar verslanir fylgdu í kjöl- farið. í dag hafa hundruð aðila fengið úthlutað EAN-merkjum 5 712347 842360 EAN-strikamerkiö erá nánast öllum varningi í dag. hér á landi. Strikamerkin koma við sögu víðar en í verslun og iðnaði og breiðist þessi tækni nánast út um allt í dag. Strika- merkin flýta afgreiöslu í verslunum, gera ' lagerhald nákvæmt og vörumóttöku ör- uggari. Á litla strikamerkinu er að finna upplýsingar" um fjölmarga hluti aðra en verb vörunnar, meðal annars fram- leiðsluland, vöruheiti og margt annað, sem tölvan ein getur lesið út úr merkingunni. Forseti alþjóðlegu EAN-sam- takanna er Hollendingurinn Jan van Dijk, en formaður íslensku nefndarinnar Vilhjálmur Egils- son, alþingismaður og fram- kvæmdastjóri Verslunarráðs ís- lands. Borgarstjórinn í Reykjavík, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, býður ráðstefnugestum til mót- töku í Ráöhúsinu ab loknum þingstörfum annað kvöld. ■ ImmjIhiIIg ABURÐARDREIFARAR Aratuga reynsla á Islandi • Hefur færanlegan neðri festipinna, þannig að hægt er að setja hann á allar gerðir dráttarvéla. Hafíö samband vió sölumenn okkar, sem gefa allar nánari upplýsingar. lngvar Helgason hf. vélasala Sævarhöföa 2, SÍMI 91-674000. Ath. 3. júní breytist símanúmeriö f 525-8000

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.