Tíminn - 25.05.1995, Blaðsíða 14

Tíminn - 25.05.1995, Blaðsíða 14
14 Fimmtudagur 25. maí 1995 Framsóknarflokkurinn Happdrætti Kiördæmissam- bands framsóknarfélaganna í Reykjaneskjördæmi 1. Nr. 2956 1. Ferb til Benidorm m/Samvf.-Landsýn að eigin vali kr. 100.000,- 2. Nr. 5628 2. Ferb til Mallorca, Ponent Mar, m/Samvf,- Landsýn að eigin vali — 100.000,- 3. Nr. 7684 3.-4. Ferb til Benidorm m/Samvf.-Landsýn ab eigin vali, 4. Nr. 4765 hvorvinningur á kr. 75.000 — 150.000,- 5. Nr. 7992 5.-6. Ferb til Mallorca, Cala d'Or, m/Samvf,- Landsýn, 6. Nr. 600 hvor vinningur á kr. 75.000 — 150.000,- 7. Nr. 6175 7. Flug til írlands m/Samvf.-Landsýn ab eigin vali — 50.000,- 8. Nr. 7263 8. Flug til Kaupmannah. m/Samvf.-Landsýn ab eigin vali — 50.000,- 9. Nr. 3500 9.-10. Flug til Kaupmannah. m/Samvf.-Landsýn, 10. Nr. 5478 hvor vinn. á kr. 40.000,- kr. 80.000,- Samtals kr. 680.000,- Upplýsingar í síma 5543222. --------------------- TÖKUM ÁFENGIÐ Faöir okkar, tengdafaöir, afi og langafi Sveinbjörn Valgeirsson frá Nor&urfir&i til heimilis aö Dvalarheimilinu Höfða veröur jarösunginn frá Akraneskirkju föstudaginn 26. maí kl. 14:00. Þeir, sem vildu minnast hans, eru beönir um aö láta Dvalarheimiliö Höföa, Akranesi, njóta þess. Guörún Sveinbjörnsdóttir Þorger&ur Sveinbjörnsdóttir Gestur Sveinbjörnsson Sesselja Sveinbjörnsdóttir Hei&rún Sveinbjörnsdóttir Valger&ur Sveinbjörnsdóttir Gu&jón Sveinbjörnsson Júlíus Veturliðason Erlendur Halldórsson Kristín Jónsdóttir Hlö&ver Sigur&sson Jón Valgar&sson Lárus Olafsson börn og barnabörn Sauðajörð Leitum eftir góðri saubajörð, gjarnan kvótalausri, í skipt- um fyrir góba 4ra herbergja íbúð meb fallegu útsýni í Fossvogsdal, Kópavogsmegin. Milligjöf gæti verið stab- greidd, ef um dýrari jörð er að ræða. Allir möguleikar skobabir og um allt er hægt ab ræða. Vinsamlegast sendiö nánari upplýsingar til Fasteigna- miðlunarinnar, Suburlandsbraut 12, 108 Reykjavík, eba hafið samband við Sverri í síma 553-1800, 5652224 eða 989-64489. ’ Mii ' Blaðberar Blaðbera vantar í Reykjavík og nágrenni. Upplýsingar í afgreibslu Tímans í síma 5631631. Sveinbjöm Valgeirsson frá Noröurfiröi Fæddur 24. ágúst 1906. Dáinn 18. maí 1995. Gnúpleit og tignarleg, með nokkrum ávæning af þótta, standa Strandafjöllin sem „risar á verði" og bjóða birginn af brotsjóum Húnaflóa þegar af norðaustri blæs og eins og þau láti sér fátt finnast um ham- remmi öldunnar sem æðir að urðum og hleinum við fætur þeirra. Þessi mikilúðlegu fjöll veita að öðru leyti skjól, í öðrum vindáttum, víkum og ýmsum byggðarlögum; hlúa ab þeim á ýmsa lund og hafa lagt þann grundvöll sem þarf til þess ab mannleg búseta fái þar staðist. Ekki trútt um að svipmikil nátt- úran á þessum slóðum hafi sett mark sitt á fólk það sem þar er upprunniö og hamrað í það kjark og þor. Ég er ab hugleiöa þetta við fráfall tengdaföður míns, en hann lést á sjúkrahúsinu á Akranesi ab morgni 18. maí sl. og yerður útför hans gerð frá Akraneskirkju á morgun. Það er mér bæði ljúft og skylt ab heiðra minningu hans með fá- einum línum, en annir vorsins og erill við sauðburð hamla því nokkuð að ég geti gert það á viðhlítandi hátt eða svo sem vert væri. Kynni okkar Sveinbjarnar tókust síðla árs 1962, er ég tókst ferð á hendur meb unn- ustu minni norður í Árnes- hrepp til fundar við tengdafor- eldra mína og annab venslafólk tilvonandi, og var þetta ekki lít- ið feröalag á þeirra tíma mæli- kvarba. Ekki hafði ég þangað komiö áöur og lítið sem ekkert vissi ég um tengdaföður minn tilvonandi nema hvab mér hafði verið sagt að hann væri maður heldur í strangara lagi og skapmikill. Ég var því engan veginn laus við kvíða þegar fundum okkar bar saman. Sá kvíði reyndist hins vegar ástæðulaus með öllu og tókst með okkur besta vinátta sem hefur haldist æ síðan og aldrei borið skugga á. Sveinbjörn tengdafaðir minn var fæddur í Noröurfirði þann 24. ágúst 1906 og var því kom- inn langt á 89. aldursárið þegar hann lést. Norburfjörður varð síðan skjól hans, athvarf og at- vinnustaður að langmestu leyti, allt til þess að hann flutti eftir áratuga búskap þar, ásamt Sig- urrósu konu sinni, á Akranes. Hann var tíunda barn þeirra hjóna í Norðurfirði, Valgeirs Jónssonar og Sesselju Gísladótt- ur sem alls áttu átján börn, hvar af fjögur dóu við fæðingu eöa á fyrsta ári. Það þarf að sjálfsögðu ekki vitnanna viö til að sjá það að ekki var tekið út með sitjandi sældinni að fram- fleyta svo gríðarstórri fjöl- skyldu, þó svo aö tveim barn- anna hafi verið komið fyrir hjá öðrum á unga aldri. Sveinbjörn sagði mér oft frá vinnuþrælkun ungdómsáranna og var þá gjarnt að bera hana saman vib vinnu ungmenna nú á dögum, þegar jafnvel jaðrar við skort á verkefnum til handa börnum og unglingum í sveit- um. Það má meb nokkrum sanni segja ab hann hafi orðiö vinnu- þrælkuninni að bráð. Sjósókn á opnum báti þegar eftir ferm- ingu og vos það sem henni fylgdi gekk svo nærri heilsu hans að hann beið þess aldrei fullar bætur. Aðrir sjúkdómar, síðar á lífs- leiðinni, riðu svo baggamuninn með það að hann fékk lítið sem ekki notið þeirrar hreysti og þess líkamsatgervis sem ég hygg þó að hann hafi haft að upplagi. Ekki má þó skilja þessi orð mín svo að hann hafi verið neinn vesalingur eða aukvisi. Það var nú öðru nær. Enda átti fyrir honum að liggja, og konu hans, að koma upp allstórum barnahópi og tókst það meb fullri sæmd og prýði. Þann 29. ágúst 1937 kvæntist hann Sigurrósu Jónsdóttur frá t MINNING Asparvík og bjuggu þau í Norð- urfirði til ársins 1976 er þau fluttust á Akranes sem fyrr seg- ir. Sigurrós lést í apríl 1994 og greindi ég frá lífsferli hennar og kynnum mínum af henni í fá- tæklegum minningaroröum. Enda þótt búskapurinn yrði lífsstarf Sveinbjarnar er ekki þar með sagt að hneigöir hans hafi ekki kunnað að standa til ýmis- legs annars. Ég held t.d. ab hann hafi haft þó nokkurt sjó- mannsblóð í æbum og sjó- mennsku stundaði hann tals- vert, bæði frá Reykjavík og á heimaslóðum. Frá Reykjavík sótti hann sjó á skipi sem hét Ármann og var meb stærri fiski- skipum sem gerð voru út þá. Skipstjórinn hét Gestur og síðar meir gaf Sveinbjörn öðrum syni sínum nöfn bæbi skip- stjóra og skips í vináttu- og virðingarskyni. Þá var hann einnig maður handlaginn og útsjónarsamur við smíöar og fékkst nokkub við þær á yngri árum. Mun m.a. hafa byggt íbúðarhús í Bæ í Trékyllisvík og í Norðurfirði hjá Sigurlínu syst- ur sinni og Ándrési manni hennar auk þess sem hann, ásamt bræörum sínum, byggði þau útihús í Norðurfiröi sem enn voru við lýði þegar hann flutti burtu, og síðar gerði hann stórfelldar umbætur á íbúðar- húsinu þar. Var hann mikill eljumaður við smíðavinnu. Það var því ekki af köllun einni saman, eöa hugsjón, sem hann gerði búskapinn að ævistarfi, heldur réðu þar miklu fremur ræktarsemi við byggð og ætt- menni en slíkt hefur orbið hlutskipti margra annarra þótt fátíðara gerist nú. En þó svo að búskapur væri ekki æðsta köll- un Sveinbjarnar, þá sinnti hann honum af alúð og snyrti- mennsku, og þannig hagar til á Ströndum að sjórinn er jafnan skammt undan og byggingar þurfa sitt viðhald, þar sem ann- ars staðar, og þannig fékk hann útrás fyrir þær ýmsu hneigðir sem með honum blunduðu. Sjórinn hefur um aldir verib önnur hliðin á búskapnum norður þar en úr honum var dregin björg í bú. Rek ég ekki búskaparsögu tengdaforeldra minna nánar, en þau áttu sjö börn sem á legg komust og eru: Guðrún, gift Júlíusi Veturliða- syni frá Isafirði, nú búsett á Akranesi, eiga þau sex börn. Þorgerður, gift Erlendi Hall- dórssyni Dal og eiga þau fjögur börn. Gestur Ármann, kvæntur Kristínu Jónsdóttur frá Reykja- vík og eiga þau fjögur börn. Sesselja, gift Hlöðver Sigurðs- syni frá Djúpavogi og eiga þau þrjú börn. Heiðrún, gift Jóni Valgarðssyni á Eystra-Miðfelli og eiga þau þrjú börn. Gubjón, ókvæntur og barnlaus, og Val- gerður, gift Lárusi Ólafssyni Akranesi og eiga þau fimm börn. Tengdaforeldrar mínir veltust aldrei í veraldarauði þótt þau kæmust bærilega af um dagana, en mestur auður held ég að þeim hafi fundist í afkomendum sínum sem eru orðnir margir en verða ekki nafngreindir eða taldir hér. Og ævinlega var hverjum nýjum fagnaö og glaðst yfir velgengni þeirra. Rétt var það að tengda- faðir minn var maður skapstór og gat jafnvel talist funabráður, en barnavinur var hann mikill og þeim blíður og nærgætinn. Hann átti að því leyti það sam- merkt við Stjána bláa sem segir í kvæði Arnar Arnarsonar: „Hörð er lundin, hraust er tnundin, hjartað gott sem undir slœr." Alla sína tíö var hann eld- heitur framsóknar- og sam- vinnumaður. Slíkt er kynfylgja. Ég vona bara að hann fyrirgefi mér það að láta þessa minning- argrein birtast í Morgunblaðinu en ekki einungis í Tímanum! Því er ekki ab neita að margt í nútíma þjóðfélagsháttum var honum mjög á móti skapi og t.d. fékk það á hann ab þurfa að horfa upp á hálfgildings hrun samvinnuhreyfingarinnar, svo mjög sem hún hafði létt oki af landsins börnum og ekki síst úti á jaðarsvæðum landsins sem svo má kalla. Mörgu öðru í umbyltingum nútímans fjarg- viðraðist hann út af, en þó sjaldan svo að hann gæti ekki hlegið ab „helvítis vitleysunni." Sveinbirni tengdaföður mín- um dapraðist mjög sýn þegar ellin færðist yfir og var síðustu fimm árin alblindur. Hins vegar átti hann því láni að fagna að aldrei förlaöist honum minni og því gat hann, öðrum yngri fremur, farið kórrétt meb þjóð- hagslegar tölur og haft þær á hraðbergi meb ótrúlegum hætti. Ég veit ekki marga á hans aldri sem fylgdust jafn grannt með gangi þjóðmála og hann gerði til hins síöasta. Þá var hann einnig áhugamaður um öll þjóðleg fræði og.kunni mikið af ljóðum sem hann hafbi mætur á. Erum vib hjón svo heppin ab eiga hljóðritanir af ýmsu því sem hann las af ljóðum eða sagði af draumum sínum og ýmsum viðburðum á lífshlaupinu. Skömmu etir að tengdaforeldrar mínir fluttu á Akranes, í húsið númer 47 við Vesturgötu, létu þau gera því verulega til góða með því að klæða það að utan og einangra og var Sveinbjörn réttilega

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.