Tíminn - 03.06.1995, Blaðsíða 7

Tíminn - 03.06.1995, Blaðsíða 7
Laugardagur 3. júní 1995 7 „Ég hef ólceknandi áhuga á her og hermálum," segir Hafsteinn Þorsteinsson, sem kominn er heilu og höldnu heim í Vatnsholt. „Ég fékk ekki a ð ná í fötin mín" Strákur úr Flóan- um skráöi sig í frönsku útlend- ingaherdeildina, en guggnaöi á þriöja degi: „Ég veit ekki hversvegna ég hef svona mikinn áhuga á her og hermálum. Kannski hefur það komiö þegar ég var strákur og horfði á myndbönd um Stallone og Rambo eða þegar við strákarnir vorum að leika löggu og bófa. Að minnsta kosti er áhuginn nær ólækn- andi og mig langar aö reyna áfram fyrir mér á þessum vett- vangi, þótt það verði ekki aftur franska útlendingaherdeildin." Þetta sagði Hafsteinn Þor- steinsson, tvítugur sveitastrák- ur á bænum Vatnsholti II í Vill- ingaholtshreppi í Flóa, í sam- tali við Tímann. Fyrir nokkrum dögum kom hann heim úr æv- intýralegri för um Evrópu, sem staðið hafði frá áramótum og víða var komið við. Löngum var Hafsteinn starfandi á hóteli í Svartaskógi Þýskalands, en einnig komst Hafsteinn í nokk- urra daga vist í útlendingadeild franska hersins. Sú deild hefur til þessa þótt Mekka þeirra ungu manna, sem vilja sýna karlmennsku sína eða reyna fyrir sér. í hernaði — rétt eins og viðmælandi okkar gerði. Djöflaö í að bera vínkassa „Já, það var í byrjun janúar sem ég fór til starfa á hóteli í Svartaskógi og var þar lengst af við þrif á herbergjum úti og í öðrum tilfallandi störfum. Síð- an kom að því, þarna í lok mars, að ég fór af rælni til Strassborgar og ætlaði fyrst í stað að kynna mér starfsemi þessarar umtöluðu herdeildar. En þegar á reyndi var ekkert vandamál að komast þar inn í skráningarbúðir, en þar ert þú prófaður líkamlega, í þeim til- gangi að sjá hvort þú eigir eitt- hvert raunverulegt erindi," seg- ir Hafsteinn. Okkar maður kom fyrst í her- búðirnar á fimmtudagskvöldi. Eftir að hafa fengið æfinga- galla, merktum sveitinni, var hann settur í að horfa á kynn- ingarmyndband um starfsemi deildarinnar. „Síðan vorum við reknir af hörku í bælið klukkan kortér í tíu og svo aftur var okk- ur djöflað framúr með látum klukkan fimm um morguninn. Það var á föstudeginum sem aðal axjónin var. Þá vorum við allan liðlangan daginn að bera hlassþunga vínkassa inn í flutningabíl, en það vín fengu aftur gamlir hermenn að kaupa á kostnaðarverði. í þessu vor- um viö allan daginn og eitt- hvað vorum við einnig í gönguæfingum og að læra að ganga í takt. Læknisskoðun er líka alltaf á föstudögum og hana stóðst ég og þeir strákar sem voru með mér; en tveir voru franskir, tveir frá Tékk- landi og einn rússneskur. í það heila var þetta stíf dagskrá allan daginn, og ekki veitti af að vera reknir í bælið snemma," segir Hafsteinn. Skráði mig í bríaríi Okkar maður segir að hann hefði vel getað hugsaö sér að reyna enn frekar fyrir sér í þess- ari umtöluðu herdeild. „En ég skráði mig þarna inn í hálf- gerðu bríaríi og þegar kom fram á laugardag, fór ég að hugsa út í þaö aö rétt væri að komast og ná í fötin sín og annað hafurt- ask á hótelinu í Svartaskógi. En reglur herdeildarinnar segja hinsvegar svo til að þegar þú sért kominn undir merki henn- ar, megir þú ekkert fara af bæ, nema þá segja þig endanlega úr deildinni. Og þeim reglum var breytt ekki alls fyrir löngu. Áð- ur voru reglurnar þannig að þegar þú hafðir einu sinni skráð þig í deildina, máttir þú ekkert fara fyrr en skráningartími þinn í deildinni var útrunninn; en hann er yfirleitt fimm ár. Því sagði ég mig úr deildinni á laugardegi og fór aftur til fyrri starfa á hótelinu góða," segir Hafsteinn. Herliðar eru ekkert þjálfaðir í vopnaburði á fyrstu dögum sínum í skráningarbúðunum, sem eru í Strassborg og raunar víðar um Frakkland. Þegar vist- inni þar síðan sleppir, taka við aðrar þjálfunarbúðir sem eru í Marseilíe, og þær eru ákveðin sía á þá sem þangað eru komn- ir. Síðan tekur enn önnur sía við í Bordeaux og þangað kom- ast þeir sem mestan og bestan efniviðinn til hermennsku hafa. Þar taka við skotæfingar, æfingar í vopnaburði, sprengjumeðferð og eins læra menn aö verða „trökkadræver- ar á herbílum". Eftir þaö tekur vígvöllurinn við og hermenn frönsku útlendingaherdeildar- innar eru í fremstu víglínu um allan heim að berjast, svo sem í fyrrum ríkjum Júgóslavíu og víðar. „Ef ég hefði getað skráð mig í herinn og verið þar kannski tvö ár, hefði ég líklega verið þar áfram, en ekki farið á brott á þriðja degi. En mér fundust fimm ár vera helst til mikið svona í fyrstu lotu. En áhugi minn fyrir her er áfram óskipt- ur," segir Hafsteinn. Helst ab stelpa haldi mér heima Einsog fyrr segir, kom Haf- steinn aftur heim á íslandið góða fyrir fáum dögum og fékk þá strax vinnu hjá Skógrækt ríkisins á Suðurlandi og starfar við útplöntun trjáa í Grímsnesi og víðar. En hann neitar því ekki ab hugur sinn stefni áfram til frekari herþátttöku. „Ég á ekki eftir nema um það bil tíu tíma I að hafa öðlast lög- gilt skírteini einkaflugmanns, svokallað B-próf, og reyndar kom ég fyrst og fremst heim nú í sumar til að ljúka því prófi. „Vegna þess hve langt ég er kominn með flugnámið, tel ég mig eiga allgóöa möguleika á að komast inn hjá Konunglega breska flughernum. Ég hef sett mig í samband vib þá og fengiö þau svör að ég þurfi að minnsta kosti að dveljast eitt ár í land- inu til að eiga möguleika á að komast þar inn. Máski fer ég ut- an til Bretlands nú í haust. Þá hef ég einnig athugað með bandaríska herinn, sem hefur aðsetur í Oklahoma-fylki þar vestanhafs," segir Hafsteinn. Og hann heldur áfram: „Ég hef voðalega lítinn áhuga á Islandi með tilliti til búsetu hér. Tækifærin fyrir mann á minni línu eru helst til fá. Það væri helst að falleg stelpa gæti haldið mér hér heima — og þá væri mér nokk sama hvað ég starfaði við. En herinn heillar," segir Hafsteinn Þorsteinsson og bliki slær á augu æskumanns- ins. Mynd og viðtal: Sigurður Bogi Sævarsson Hermenn ífyrrum ríkjum júgóslavíu. Ef til vill hefbi Hafsteinn stabib í þessum sporum, hefbi hann haldib áfram í frönsku útlendingaherdeildinni.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.