Tíminn - 03.06.1995, Síða 12

Tíminn - 03.06.1995, Síða 12
12 Laugardagur 3. júní 1995 Reuter S ar Madraka-dagurinn haldinn hátíölegur í Kenýa, til minningar um ab 32 iosnabi undan nýlendustjórn Breta. Á myndinni má sjá hóp Turkana- dansara sem bíba þolinmóbir eftir ab röbin komi ab þeim ab sýna listir sínar, meban Daníel Arap Moi, forseti Kenýa, heldur rœbu sína I fyrradag v ár eru libin frá því ab landib Símanúmera- breytingarnar taka gildi laugar- daginn 3. Númer breytast sem hér segir: 55 bætist framan við fimm stafa símanúmer á höfuðborgarsvæðinu 5 bætist framan við sex stafa símanúmer á höfuðborgarsvæðinu 42 bætist framan við öil símanúmer á Suðurnesjum 43 bætist framan við öll símanúmer á Vesturlandi 456 bætist framan við öll símanúmer á Vestfjörðum 45 bætist framan við öll símanúmer á Norðurlandi vestra 46 bætist framan við öll símanúmer á Norðurlandi eystra 47 bætist framan við öll símanúmer á Austurlandi 48 bætist framan við öll símanúmer á Suðurlandi Eftir breytingarnar þarf ekki lengur að velja svæðisnúmer. Farsíma- og boðtækjanúmer. Talan 9 fellur burt þannig að farsímanúmer byrja á 85, GSM númer á 89 og boðtækjanúmer á 84. Dæmi: 985 489 89 verður 854 8989. pósnmoGsfcfl mundu! 231 tt j j. stafa Mandela viöurkennir aö hafa gefiö fyrirmœli um aö skotvopnum veröi beitt, í átökunum fyrir kosningarnar í fyrra: Sakaður um tvöfeldni Höf&aborg — Reuter Á fimmtudaginn viðurkenndi Nelson Mandela, forseti Suö- ur-Afríku, ab hann hefbi, þeg- ar óeiröir brutust út í landinu í mars í fyrra, hvatt öryggis- verbi sína til aö beita skot- vopnum ef rábist yröi á höf- uöstöðvar Afríska þjóöaráös- ins, flokks Mandela. 28. mars í fyrra létust 60 manns í Jóhannesarborg og ná- grenni þegar óeirðir brutust út í kjölfar mótmælagöngu sem stubningsmenn Zúlú- höfðingj- ans Mangosuthu Buthelezi stóöu aö, þar sem veriö var aö mótmæla væntanlegum kosn- ingum allra kynþátta í landinu. „Ég gaf öryggisvörðum okkar fyrirmæli um aö ef ráöist veröi á húsiö þá — gjöriö þiö svo vel, þiö veröiö að verja þetta hús jafnvel þótt þiö þurfiö aö drepa fólk," sagöi Mandela, sem þá gegndi engu opinberu embætti en er nú orðinn forseti landsins. Átta manns létu lífið fyrir ut- an hús Afríska þjóöarráösins í miöborg Jóhannesarborgar þennan dag. Sl. miðvikudag lögöu ættingjar þeirra sem lét- ust og sumir þeirra sem komust af, alls rúmlega 100 manns, fram kæru á hendur Mandela og Afríska þjóöarráöinu vegna at- burðanna. Máliö kom til umræöu í suö- ur-afríska þinginu á fimmtudag- inn og þaö var þá sem Mandela viðurkenndi aö hafa gefið um- rædd fyrirmæli. Jafnframt gagn- rýndi hann aö athyglinni væri eingöngu beint aö því sem gerö- ist fyrir utan hús Afríska þjóöar- ráösins, en enginn hefði áhuga á öörum drápum sem framin voru þennan dag. Hann sagöi meöal annars að starfsmenn Afríska þjóöaráösins vissu til þess að Inkatha-menn hefðu drepið 32 í Soweto áöur en mót- mælagangan var komin inn í miöbæ Jóhannesarborgar. Rannsókn lögreglunnar á því sem geröist þennan dag stendur enn yfir. í kjölfar ummæla Mandelas sakaði Inkatha-hreyfingin hann um tvöfeldni og krafðist þess að hlutur Mandelas í því sem gerð- ist sæti rannsókn, bæði lögregl- unnar og sérstakrar rannsóknar- nefndar sem sett verði í málið. „Mandela er aö segja að hann sé samsekur um glæpsamlegt at- hæfi ... hann skipulagði og framkvæmdi morð þótt hann væri ekki á staðnum," sagöi Vel- aphi Ndlovu, talsmaður Inkat- ha-hreyfingarinnar. Ennfremur hefur íhaldsflokk- urinn, sem er fylgjandi aöskiln- aði kynþátta í Suður-Afríku, sagt aö kæra þurfi Mandela fyrir morö. „Þaö þarf aö fjarlægja herra Mandela úr embætti þegar í staö og það ætti að kæra hann fyrir morö," sagði Ferdi Hetzen- berg, leiötogi Ihaldsflokksins í yfirlýsingu sem gefin var út í gær. Hátt í 1.600 manns hafa látið lífiö í pólitískum átökum frá því í apríl í fyrra, þegar Afríska þjóöaráöiö vann sigur í kosn- ingunum og Mandela komst til valda. Þar af hafa 900 látist í átökum Afríska þjóðaráðsins og Inkatha-hreyfingarinnar.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.