Tíminn - 03.06.1995, Síða 13

Tíminn - 03.06.1995, Síða 13
Laugardagur 3. júní 1995 y*fiwlww 13 Bubbi, Rúnar, Beggi, Gulli og Þórir í góbum gír á út- gáfutónleikum: Teikab meb stæl í Kjallaranum Kröftug keyrsla, leikgleöi og fantagóöar lagasmíöar ein- kanndu útgáfutónleika Bubba Morthens og Rúnars Júlíus- sonar í Leikhúskjallaranum í fyrrakvöld, þegar þeir kynntu þriöju samstarfsplötu sína, Teika, í bland viö eldri lög. Fjölmenni var í Leikhúskjall- arnum og er óhætt ab fullyröa aö tónleikagestir hafi fengib sitt og gott betur fyrir þúsund- kallinn. Strax í upphafi tónleikanna var sett á fulla ferö þar sem hver smellurinn á fætur öörum var kýldur í hlustir áhorfenda. Bandið spilaði alls í hátt í 100 mínútur og drógu menn ekkert af sér, enda voru sumir orönir vel heitir og sveittir undir lokin. Alls eru ellefu ný lög á Teika sem Bubbi og Rúnar sömdu í byrjun árs á hótelherbergi á Holiday Inn hótelinu í Amster- dam í Hollandi. Þeir eru ekki meö öllu ókunnugir í þessari borg en þeir vo'ru þar einnig fyr- ir tveimur árum þegar þeir sömdu lögin á GCD-plötuna, Svefnvana. Sem fyrr halda þeir sig á fornum slóöum í lagasmíð- inni þar sem saman fer einfalt bítlarokk, sánd úr smiöju Cree- dence Clearwater Revival, kántríhreimur svo ekki sé Bubbi og Rúnar júl. minnst á ósvikib reggae í anda Tosh og Marley. Fyrsti smellurinn af plötunni „Ég sé ljósið" er þegar farinn aö hljóma á öldum ljósvakanna, en erfitt er aö gera upp á milli einstakra laga sem eiga þaö sam- eiginlegt að vera alveg sérlega melódísk. I>ar má nefna Segöu mér, Vímaefnahraðlestin, Ilm- andi hörund, Komdu meö, Þessi kvöö, Aulaklúbburinn, Þau glóa, Mikiö ertu ljúf, Konur og vín og Þetta líf. Landsmenn eiga því í vændum gott rokksumar, því bandiö mun veröa á faralds- fæti næstu mánuöi um land allt. ■ Langtímalán til framkvcemda viö fasteignir íslandsbanki veitir langtímalán til allt oð 7 2 ára vegna viöamikilla framkvœmda á fasteignum svo sem til viöhalds á húsnæöi, viöbyggingar eöa annarra endurbóta. Þessi lán henta vel einstaklingum sem hyggja á slíkar framkvœmdir. • Lánin eru skuldabréfalán, tryggö meö veöi í fasteign • Upphœö láns og vaxtakjör taka miö af greiöslugetu umsœkjanda, tryggingum og fyrirhuguöum framkvœmdum • Hámarkslánsfjárhœö er 3.000.000 kr. • Hámarkslánstími er 15 ár • Afborganir eru mánaöarlega Áöur en lán er tekiö aöstoöar starfsfólk bankans viöskiptavini viö aö gera sérgrein fyrir greiöslubyröi lánsins og þeim kostnaöi sem lánsviöskiptum fylgja og bera saman viö greiöslugetuna. Á þann hátt er metiö hvort lántakan er innan viöráöanlegra marka. Láttu ekki skynsamlegar framkvœmdir stranda á fjármagninu. Langtímalán íslandsbanka er kostur sem vert er aö athuga. Kynntu þér möguleikana í naesta útibúi bankans. Stendur mikið tíl? Fyrir sex ámm var yngsti söfnuð- ur í Reykjavík stofnaður. Þar sem sóknarbörnum fjölgaði mjög ört var fljótlega ráöist í byggingu kirkju. Þann 18. maí 1991 var fyrsta skóflustungan tekin að kirkjunni og þann 12. desember 1993 vígði biskup íslands, herra Ólafur Skúlason, fyrri áfanga Grafarvogskirkju. Mikið og blómlegt safnaðar- starf hefur farið fram í þeim hluta kirkjunnar sem nú er til reiðu fyrir safnaðarstarfið. Ljóst er þó að ekki komast þar aliir að er vilja starfa að safnaðar- og fé- lagsmálum, enda söfnuðurinn orðinn sá fjölmennasti í landinu. Það er því mikill hugur í safn- aðarfólki aö leggja sitt af mörk- um til þess að halda megi áfram byggingu kirkjunnar. Þess vegna hefur veriö efnt til söfnunar þar sem safnaðarfólki er boðið upp á að gefa stein sem notaður verður sem klæðning utan á kirkjuna. Þessi hugmynd kom upp þegar rætt var um einkunnarorð arki- tekta kirkjunnar, þau sem eru og vom þeirra yfirskrift þegar kirkj- an var á teikniboröinu. Þessi orð em skrifuð í I. Pétursbréfi, 2. kap- itula, 4. og 5. versi, en þar er rit- aö: „Komið til hans hins lifandi steins... og látið sjálfir uppbyggj- ast sem lifandi steinar í andlegt hús." Möguleiki er fyrir þá sem gefa stein, að skipta greiðslum niður á nokkra mánuði, þannig að þeir sem sjálfir em að byggja sín eigin VETTVANGUR Grafarvogs söfnuöur sex ára hús, finni sem minnst fyrir greiðslunum. Söfnuðurinn hefur tekið vel við sér með gjafafé, þó að enn þurfi að gera betur. Ætl- unin er aö leita til fýrirtækja í söfnuðinum en þau em fjöl- mörg. Söfnunin mun halda áfram í sumar og haust. Tímamót Hinn ungi söfnuður hefur fagnab þó nokkmm tímamótum í stuttri sögu sinni. Upphafi kirkjubyggingar, vígslu fyrri hluta hennar, stofnun allra fé- lagasamtaka kirkjunnar, eins og kirkjukórs, safnaðarfélags, æsku- lýðsfélags, barnakórs. Ráðning Wrkjuvarðar og ritara fól einnig í sér mikil tímamót í safnaðarstarf- inu. Merk tímamót áttu sér stab þegar séra Sigurður Arnarson var vígður til aðstoðarprests í Grafar- vogsprestakalli sunnudaginn 21. maí síðastliðinn. Á hvítasunnudag, afmælisdegi Grafarvogskirkju, mun séra Sig- urður verða settur inn í embætti af dómprófasti, séra Guðmundi Þorsteinssyni. Hinn nývígbi prestur prédikar. Skólahljóm- sveit Grafarvogs leikur undir stjórn Jóns Hjaltasonar og kirkju- kórinn mun syngja undir stjórn Bjarna Þórs Jónatanssonar í aðal- sal kirkjunnar, að lokinni messu. Safnaðarfélagib býður upp á veit- ingar að lokinni guðsþjónustu. Þá verbur málverkasýning í Grafarvogskirkja. kirkjunni, er ber yfirskriftina: „Trúarstef gömlu meistaranna." Málverkin em í eigu Listasafns ís- lands. „Komið til hans hins lifandi steins... og látið sjálfir uppbyggj- ast sem lifandi steinar í andlegt hús." Höfundur er sóknarprestur í Grafarvogskirkju. Vigfús Þór Árnason: Nýr prestur sett- ur í embætti

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.