Tíminn - 03.06.1995, Side 14
14
Laugardagur 3. júní 1995
Hagyrbinqaþáttur
Kosningar og stjórnarmyndun vöktu upp andríki ÓÞ
sem aldrei fyrr og sendi hann þættinum pólitískar hug-
leiöingar sínar í bundnu máli. Þótt nokkuð sé um liðiö
síðan atburðir þeir urðu, sem um er ort, úreldist góöur
kveðskapur ekki og er þátturinn tileinkaður hugmynd-
um ÓÞ um pólitíkina.
Eftirfarandi vísur eru allar ortar á kosninganótt, þegar
ýmsum vegnaði betur og öðrum verr og ekki var með
öllu útséð hvernig fara myndi.
Féll og sigraöi
Eggertsœti ekki vann,
ei var sjóður digur.
Það að fella þriðja mann
þó var nokkur sigur.
Meira um Haukdal
Óvissa um sigur sinn,
hvort sæti á þingi fengi.
Hann var að fara út og inn
ótt og títt og lengi.
Viðsjált vor
Eftir þessi þrautasþor,
þrefí margar vikur,
sé ég fram á viðsjált vor
og varanlegar blikur.
Kratafylgi á kosninganótt
Nú er klukkan nasrri tvö,
nœðir um krataflokkinn.
Nú úr tíu niður í sjö
næstum alveg sokkinn.
Framsóknartónninn sömu nótt
Halldór virðist fylgi fá
framar öllum vonum.
Fáum kannski seinna að sjá
hvort sigrar gagnast honum?
Reiðmennska Péturs fyrir vestan
Framsókn reyndi seggur sá
svolítið að stríða.
En varla hesti feitum frá
finnst mér Pétur ríða.
Um Kvennalistann
Kvennalista konumar
kemba ekki hærumar.
Á þær verð ég orða spar,
ekki er sigurvíman þar.
Kristilegt framboð var með í dæminu
Þó að leggist líkn með þraut,
lítt var þjóðin kristin.
Útreið slæma og hörmung hlaut
heilagsanda listinn.
Þegar sýnt var að ríkisstjórnin mundi hjara, skaust þessi
út úr heilaberkinum:
Daprast fjör í Davíðs sæng,
doði í kappans beinum.
í heljarklóm á hægri væng
hangir nú á einum.
Undir morgun:
Engin gerast ævintýr.
Undan kannski svíður.
Uppskeran varð ósköp rýr.
Okkar tími bíður.
Kosninganóttin varð ÓÞ tilefni andlegra iðkana, eins og
glöggt má sjá, og vafalítiö hefur honum oröið vísa á
munni í þeim pólitísku umbrotum, sem á eftir fylgdu,
og fáum við vonandi að njóta síðar.
Botnar og vísur sendist til Tímans
Stakkholti 4
Rosabullur undir
sumarkjólum
Skótauið, sem ungar stúlkur
ganga í, eru miklar rosabullur,
stórkarlalegir klossar með þykk-
um sólum og ná oft hátt upp á
legginn. Skófatnaður af þessari
gerð hentar skógarhöggsmönn-
um og fótgönguliðum í stríði
vel og leynir sér ekki hvert fyrir-
mynd þessarar stúlknatísku er
sótt.
Mörgum þykja klossarnir fara
stúlkunum vel, en öðrum líst
síst á fótabúnaðinn. En þetta er
tíska og þá hljóta allar stúlkur
ab hlýba og klæða sig upp á
samkvæmt henni. En ein á há-
um hælum vill fá að vita hvort
svona skótíska eigi við hvar sem
er og við hvaða klæðnað sem er
og spyr Heiðar hvort rosabullu-
tískan sé bundin við íslenskan
smekk eða hvort ungar stúlkur
og jafnvel rígfullorbnar konur
um allan heim hafi oröið sér úti
um sams konar skótau og
námukarlar og aðrir erfiðis-
vinnumenn hafa einir notað
fram undir okkar tíð.
Svar: Málið er að við íslend-
ingar misskiljum tísku dálítið
oft. Og þetta er tíska fyrir þá
sem vilja, og það er mjög eðli-
legt að unga stúlkan vilji eiga
svona stígvél og sé í þeim við
það sem passar og þab skapar
stíl. En í dag er það orðið dálítið
erfitt að fá ungar stúlkur til að
eiga líka netta og fínlega skó.
Unga stúlkan á íslandi skilur
ekki að það er líka í tísku að
ganga í nettum skóm viö það
sem við á. Ég myndi vilja sjá
ungu stúlkurnar eiga hvort
tveggja.
Ofnotkun
Enn finnst mér samt miður
þegar fulloröna konan fer að
yngja sig upp og fara í þessar
ægilegu bomsur.
Þab er sök sér aö stelpurnar
ofnoti þetta og það er viss stíll í
því ab vera í síðum sumarkjól
og svakalegum fjallgöngukloss-
um þar undan. Það er tíska sem
hentar mörgum ungum týpum
og getur verið dálítið smart.
Margar stúlknanna eru enn
litlar og mjög fíngerðar og sum-
ar alltof grannar. Þetta veldur
því ab mabur sér stundum skó
úti á götu með unga stúlku í. Ég
held að það sé einmitt það, sem
er að angra þann sem horfir á og
finnst þetfa ekki passa nema
mátulega vel saman.
Heiðar
Jónsson,
snyrtir,
svarar
spurningum
lesenda
Hvernig
áég ab
vera?
Það er þegar skórnir eru farnir
að bera manneskjuna algjörlega
ofurliði. Þab þarf að vera eitt-
hvert svolítib samspil milli lík-
amsgeröar og þess sem á skrokk-
inn er sett.
En við skulum líka gæta þess
að til eru ansi fínir spariskór
með þykkum botnum, en samt
fínlegir og undirstrika góðan stíl
vel klæddrar konu.
Aldur fótleggjanna
undirstrikaöur
Ég hef verið að ræba þessi stíg-
vélamál við viðskiptavini mína
og sumar konur á fertugs- og
fimmtugsaldri vilja vera í þessu.
En þær verba að gæta þess vel að
þegar skórnir eru orðnir svona
klossaðir, draga þeir fram og
undirstrika þann aldur sem
kominn er á fótlegginn.
Unglingarnir geta gert ýmis-
legt og þurfa ekki endilega að
flattera fótleggi. Þeir eru yfirleitt
með vel þjálfaða og fína leggi og
geta leikið sér að þessu. En kona
með sverari leggi ætti að varast
að vekja enn meiri athygli á
þeim með svona skótaui.
En ef fimmtug kona er í
svakalegum stæl og fylgir tísku
vel og er með fullkomna fætur,
þá ókei, þá getur hún þetta. En
mér finnst hún vera að villa
svolítið á sér heimildir.
Ströng tískusjónarmiö
Klossatískan hefur lagt heilar
kynslóðir undir sig hér á íslandi.
Svona er þetta ekki í útlöndum.
Maður sér ungar stúlkur og ungt
fólk í rosabullum, en ekki ein-
göngu. Það á og gengur í alls
konar skóm öðrum.
Franskir gestir, sem tengjast
snyrtivörubransanum eða tísku-
og útlitsbransa, segja alltaf, að
ef þeir vilji vita hvab er tíska, þá
fari þeir í Kringluna og gangi
Laugaveginn og Miðbæinn í
Reykjavík. Þeir sjá það hér, en
ekki í París.
Stúlka eða kona í París kaupir
sér einn eba tvo hluti til að búa
til svolitla tísku, sem hún getur
kallað sína.
Hér tökum við gluggaútstill-
inguna alveg og klæðumst
henni frá hatti ofan í skó. Þetta
er þreytandi en mjög gott fyrir
káupmanninn, en budda tísku-
fólksins hlýtur ab léttast.
Nú verð ég var við að konur
og stelpur eru famar að draga
fram skóna úr næstsíðustu tísku
og ég verð að segja fyrir minn
smekk ab mér finnst þeir fal-
legri.
Svo verbur að athuga að mik-
ill munur er á hönnun stígvél-
anna. Sumir hönnuðir kunna
að hanna þessa grodda og gefa
þeim geðslegt yfirbragð, en aðr-
ir eru verri og er þá farið yfir
markið. ■