Tíminn - 12.07.1995, Blaðsíða 1
SIMI 563 1600
Brautarholti 1
STOFNAÐUR 1917
79. árgangur
Miövikudagur 12. júlí 1995
127. tölublað 1995
Kaupfélagib Fram í Nes-
kaupstaö óskar gjald-
þrotaskipta:
Heildar-
skuldir 150
millj. kr
„Vib ætlum aö reyna aö gera
eins gott úr þessu vonda máli
og hægt er. Okkar vilji er sá
aö félagiö veröi rekiö áfram
fyrst um sinn af skiptastjóra
og deildir þess veröi síöan
seldar í bitum til annara aö-
ila. Þetta er þó á valdi skipta-
stjórans," sagöi Friögeir Guö-
jónsson, kaupfélagsstjóri
Kaupfélagsins Fram í Nes-
kaupsstab, í samtali viö Tím-
ann í gærdag.
Stjórn Kaupfélagsins Fram tók
þá ákvöröun á fundi sínum í gær-
morgun að óska eftir gjaldþrota-
skiptum á rekstri félagsins.
Landsbanki íslands hefur tekið
þá ákvörðun að segja upp við-
skiptum við Fram og innheimta
kröfur sínar þar. Það er helsta
ástæða þessarar beðni um gjald-
þrotameðferð.
Heildarskuldir Kaupfélagsins
Fram eru um 150 milljónir kr. og
ljóst er að ekki er hægt ab greiða
þær, enda þótt talsverður ávinn-
ingurur hafi náðst að undan-
förnu í að bæta stöðu félagsins.
Velta Fram var á síðasta ári um
240 millj. kr. og í árslok var eigin-
fjárstaðan neikvæð um 16 millj.
kr.
„Ég held að ljóst sé ab menn
óski aldrei gjalþrotaskipta á
rekstri fyrirtækja undir öbrum
kringumstæðum en þeim ab það
sé óumflýjanlegt," sagði Friðgeir.
Hann kveðst þó vonast til að
þetta raski aðstæðum í Neskaup-
stað sem allra minnst, enda þótt
félagib sé þar allstór atvinnurek-
andi. Hjá því starfa um 40 manns
og hlutdeild þess í almennri
vörusölu á staðnum er milli 60
og 70%, að sögn Friðgeirs kaupfé-
lagsstjóra. ■
Tímamynd: Pjetur
Lúpínan burt
í dag munu starfsmenn Skórækt-
arfélags Reykjavíkur hefjast
handa við að slá og rífa upp lú-
pínuplöntur í suður- og vestur-
hlíöum Öskjuhlíöar. Er þetta gert
samkvæmt ákvörðun umhverfis-
málaráðs borgarinnar og í þeim
tilgangi að hefta útbreiðslu
plöntunnar meira en orðið er. Að
sögn Jóhanns Pálssonar, garð-
yrkjustjóra borgarinnar, verður
jafnframt gerð úttekt á stöbu lú-
pínunnar í Öskjuhlíð. ■
Dorgaö í Firöinum
í bæ, en yfirvöld í bœnum stóöu bar fvrirdorq\
Tímamyna: Pjetur
Ungmenni í Hafnarfirbi renndu mörg ígœr fyrir fisk á svonefndri Flensborgarbryggju þar
þar fyrirdorgveiöikeppni. Afli var ágœtur og áhuginn mikill.
Halldór Ásgrímsson um möguleikann á kjarnorkusprengjum á Islandi:
Tel m j ög ólí klegt aö
slikt hafi gerst
„Nei, mjög lítillega," svarar Hall-
dór Ásgrímsson utanríkissráö-
herra aöspurbur hvort umræða
um hvort kjarnorkuvopn hafi ver-
iö á íslandi hafi komiö upp í utan-
ríkisráöuneytinu eftir fréttir sama
efnis frá Grænlandi. Og hann
heldur áfram: „Viö höfum ekki
taliö neina ástæöu til aö ætla aö
neitt slíkt hafi gerst hér á íslandi.
Ég hef engar vísbendingar um þaö
og ég tel þaö mjög ólíklegt aö svo
hafi gerst. Ég get aö sjálfsögöu
ekkert sagt meira um þaö."
-Og það er ekki talin ástæba til að
kanna það neitt nánar í ljósi þessara
frétta? „Það liggja ekki fyrir nein
gögn sem benda til þess," svarar
Halldór.
Friðþór Eydal, upplýsingafulltrúi
Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli,
svaraði því til að það væri stefna
Bandaríkjastjórnar að neita því
hvorki né játa, þegar hann var
spurbur að því hvort kjamorku-
sprengjur hefðu einhverntíma verið
á íslandi á vegum Varnarliðsins. Aö
öðru leyti vildi hann ekkert láta
hafa eftir sér um málið.
„Við erum ekki búin að kanna
þetta út frá þessari frétt. Við könn-
umst ekki við það. En viö höfum
verið beönir um að líta á þetta, ég
get bara ekki svarað meira í bili,"
svarar Grétar Már Sigurbsson, skrif-
stofustjóri Varnarmálaskrifstofu,
aðspurður hvort kjarnorkuvopn
hafi einhvern tíma verið á íslandi.
„Menn eru að tala um þetta sem
fræðilegan möguleika sem ég veit
bara ekkert um. Þá er þetta á árabil-
inu 1957 til 1968. Menn eru að
spyrja að þessu, ég hygg að svo sé
ekki, en ég mun ekki gefa það svar
opinberlega nema ég geti staðfest
það."
Á íslandi hafa verið staðsettar
flugvélar, á vegum Varnarliðsins,
sem geta borið kjarnorkusprengjur,
m.a. Orion flugvélarnar, þannig að
skortur á flutningatækjum heföi
ekki komið í veg fyrir ab kjarnorku-
sprengjur væru fluttar til landsins.
Thule herstöðin á Grænlandi
þjónaði meðal annars sem varaflug-
völlur fyrir B-52 sprengjuflugvélar,
og reyndar fleiri, en þessar vélar
voru á sveimi á norðurslóð, stans-
laust í áratugi. Keflavíkurflugvöllur
þjónaði þessum vélum hins vegar
ekki. Thule herstöðin var þó fyrst
og fremst útvarðastöð með ratsjá
þar sem fylgst var með geimskotum
og fylgst með eldflaugum sem skot-
ib var upp frá Sovétríkjunum. Sam-
kvæmt heimildum Tímans mun
vélin sem brotlenti við Thule her-
stöbina fyrir næstum þremur ára-
tugum og mikið hefur verið í frétt-
um að undanförnu, hafa verið ab
koma inn til lendingar þar vegna
einhverra vandamála.
Samkvæmt þeim viðmælendum
sem Tíminn hefur rætt vib, að svo
stöddu, hafa ekki verið kjarnorku-
sprengjur á Miðnesheiði, eða ann-
ars staðar á landinu, það þjónaði
einfaldlega engum tilgangi að
geyma hér kjarnavopn. - TÞ
Togarinn Már hugöist leita ásjár í norskri höfn:
Var rekinn út úr norskri lögsögu
Togarinn Már frá Ólafsvík var
í gær rekinn út fyrir 4ra
mílna landhelgi Noregs þegar
hann hugöist leita abstoöar í
Norbur-Noregi eftir ab hafa
fengib í skrúfuna í fyrradag.
Skipiö hafbi verib aö veiöum
í Smugunni og rekja menn
fyrirskpun norskra yfirvalda
til þess.
Már hafði verið búinn að fá
heimild til að koma ab landi og
láta huga að vandamálinu í skrúf-
unni en þegar togarinn var að
koma að fékk hann fyrirskipun
um að snúa við og kasta akkerum
nokkuö utan við höfnina. Þar
kom varðskipið Nornin ab og
vaktaði Má meðan menn köfuðu
nibur og skobuðu í skrúfuna.
Nokkru síðar kom fyrirskipun frá
varðskipinu um að togarinn hyrfi
út fyrir fjórar mílurnar og fylgdu
þeirri skipun engar skýringar, en
varðskipsmenn voru þá búnir að
fara um borð í Má og skoða þar of-
an í lest og í skipsbækur og virtist
þá allt í góðu samkomulagi. Ekki
var búið að skera úr skrúfunni eða
fullkanna skemmdir en í gær var
talið að skipiö gæti skiglt til ís-
lands ef veður héldist gott. Slíkt
væri þó talsverð áhætta.
Utanríkisrábuneytið er komið í
málið og síðast þegar fréttist hafði
ekki fengist niburstaða í hvaö Már
hygðist gera í framhaldinu og
beib hann átekta utan viö 4 míl-
urnar. ■