Tíminn - 18.07.1995, Blaðsíða 9

Tíminn - 18.07.1995, Blaðsíða 9
Martha Ernstdóttir í 4. sœti í Noregi í 3000m, en segist óánœgb meö þab og árangurinn í sumar: „Of miklar æfingar" „Fer ekki á HM nema ég viti ab ég geti stabib mig vel/' segir Martha Martha Ernstdóttir hljóp 3000m hlaup á 9:29,99 mínút- um á móti í Noregi á laugardag og hafnaði í fjórða sæti. Hún sagði hins vegar við Tímann að hún væri ekki ánægð með þann tíma né heldur árangur sinn í heild í sumar. „Ég er óánægö með þennan tíma, sem er ekki góður þó svo ég hafi hafnaö í fjórða sæti. Sætið segir ekki allt. Eg tel mig geta hlaup- ið þessa vegalengd á rúmum níu mínútum og það er ég ein- mitt að gera á æfingum. Það er reyndar hlægilegt hversu vel ég hleyp á æfingum, en ekki á mótum. Það virðist eitthvaö standa á sér þetta form, það virðist ekki komast út, þó svo ég sé búin að æfa rosalega vel. Ástæðan fyrir þessu held ég að gæti legið í of miklum æfingum í sumar og það er í raun eina skýringin sem ég sé, því allt annaö hefur gengið vel, engin meiðsl eða þessháttar. Það var reyndar tímapunktur þegar ég Martha Ernstdóttir er ekki mjög ánœgö meö árangurinn ísumar. Tímamynd GS var að koma upp í byrjun júní, en þá voru of erfiðar æfingar á því tímabili og ég held að það hafi keyrt mig niður aftur. Þetta hefur a.m.k. stoppað það aö ég nái að koma forminu út. Þetta er allt svo rosalega viðkvæmt, en ég get meira og vonandi kemur það í ágúst. Eg hef samt ekki slæma samvisku. Ég er bú&; in að leggja mína vinnu í þetta af lífi og sál og veit að ég hef gert vinnuna mína. Það er bara spurningin að ná þessu út," sagði Martha. Hún keppir á Bislet-leikunum á föstudaginn í 5000m hlaupi og segir að þessi keppni í styttri vegalengdunum sé aðeins und- irbúningur fyrir lOOOOm. Mart- ha segist vona að hún springi út á föstudag. „Það fara að verða síðustu forvöö að sýna góðan árangur. Eftir Bislet-mót- ið tek ég ákvörðun um hvað verður með framhaldið, eins og heimsmeistaramótið. Ég fer ekki þangað nema ég viti að ég geti staðið mig vel," sagði Mart- ha sem ætlar að bæta sig í 5000m á föstudag, sem yrði þá um leið íslandsmet. ■ s / Arni Arnason sjúkraþjálfari um meibsl knattspyrnumanna í sumar: „Minnkun meiðsla frá fyrri árum" Hefur verib meb ákvebna abferb til ab fyrirbyggja meibsli sem hefur reynst mjög vel „Þar sem ég þekki til er tölu- verð minnkun um meiðsl leik- manna frá því fyrir nokkrum árum," segir Árni Árnason, sjúkraþjálfari hjá Val, sem hef- ur meðhöndlað margan meidd- an leikmanninn. Nokkra at- hygli vekur að í sumar hefur minna veriö um slæm meiðsli og er það góðs viti. Árni segir að ökklameiðslin, tognanir aft- an í lærum, náratognanir og hnémeiösli séu þau meiðsli sem eru algengust hjá leikmönnum, en það sé lítil breyting frá fyrri árum. „Það er aldrei hægt að fyrirbyggja öll meiðsli, aldrei hægt að gera fótboltann meiðslafrían, en það er hægt að fækka verulega og það hefur gerst." VINNINGSTÖLUR LAUGARDAGINN VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA 1.5 at 5 0 2.034.501 88.950 3. 4 a< 5 71 6.480 4. 3 al 5 2.360 450 Heildarvinningsupphæö: 3.823.431 M i BIRT MED FYRIRVARA UM PRENTVILLUR Árni hefur í tvö ár verið með ákveðna aðferö til að fyrir- byggja meiðsli og er hann sá eini hér á landi sem notar þessa aðferð. „Hún hefur skilað sér mjög vel á þeim liðum sem við höfum verið með," segir Árni, en liðin sem hann var með voru Valur, Breiöablik og ÍA. „Það sem við gerum er að við skoðum hvern leikmann (á undirbúriingstímabilinu) og leitum aö áhættuþáttum hans með tilliti til meiðslanna. Viö fáum upplýsingar um fyrri meiðsli og við mælum hluti eins og styrk, liðleika og fleira og berum þetta saman við við- miðunartölur frá stórri rann- sókn, sem ég ásamt öðrum framkvæmdi 1991. Þannig leit- um við hreinlega eftir áhættu- þáttum, sem við teljum geta or- sakað meiðsli. Það hefur skilab sér mjög vel, bæði með þessum mælingum og svo líka skoðun- um eins og ab skoða bak og annað," segir Árni. Hann segir að það finnist veikleiki hjá flestöllum leik- mönnuiji. „Ef menn vinna með þessa veikleika, þá er engin spurning að það skilar sér, því við erum að sjá það hjá mönn- um sem hafa ekki verið alveg nógu duglegir aö vinna með sín vandamál að þeir koma mjög gjarnan í meðferð, því þeir sinntu ekki nógu vel því sem fyrir þá var lagt. Þá höfum við upplýsingar um þá og get- um flett því upp og séö að þarna var hlutur sem þeir hefðu mátt vinna betur með, eftir því sem niðurstööur skoðunarinnar sýndu. Við fáum kannski inn mann með tognun aftan í læri og þegar við flettum upp gögn- unum okkar þá kemur t.d. í ljós ab hann var með of lítinn styrk í þessum vöðva eða hlutfalls- legur styrkur milli hægri og vinstri var ekki réttur," sagði Árni að lokum. ■ Keflavík lokib keppni í Inter-Toto keppninni: Tap gegn Linzer Keflavík endubu þátttöku um eftir 0-1 útisigur á Zagreb sína í Inter-Toto keppninni og eiga því kost á að komast í með tapi gegn Linzer frá Aust- Evrópukeppni félagsliða. Stað- urríki, 1-2, ytra á laugardag. an í riðlinum: Sverrir Þór Sverrisson kom Keflavík yfir snemma í leiknum Metz....3 3 0 0 4-1 9 en Linzer jafnaði skömmu Linzer ......3 1 20 4-3 5 seinna og gerbi sigurmarkið Partick....3 111 5-4 4 þremur mínútum fyrir leikslok. Zagreb ..3 0 2 1 0-1 2 Metz er komiö áfram úr riðlin- Keflavík.4 0 1 3 2-5 1 „ Camli risinn vaknar oft aftur upp þegar á móti blces," segir Kristinn „Rót vandans hjá Val er marg- slungin. Það er kannski helst ab klúbburinn stendur illa fjárhagslega. Ég er ekki að segja að hægt sé að kaupa sér árangur, en það virðist vera betra að hafa ákveðna pen- inga milli handanna til ab tryggja ákveðið jafnvægi hjá liðum. Þab hafa líka verið miklar hreyfingar hjá Val á undanförnum árum. Á fyrsta árinu sem ég var með Val fóru Kristinn Björnsson býst viö sigri Vals gegn Fram á fimmtudag. einir 10 leikmenn, og tölu- verðar mannabreytingar urðu svo árið eftir og fyrir þetta tímabil. Það segir sig alveg sjálft að það er ekkert lið sem þolir svona ár frá ári," segir Kristinn Björnsson, sem þjálf- aði 1. deildarlið Vals í fyrra, um þann lélega árangur hjá Val í sumar. „Þegar lið eins og Valur kemst í þessa stöðu þá undir- strikast allir veikleikar, ekki bara liðsins í heild heldur einnig veikleikar hvers ein- staklings sem tengist málinu einS og leikmanna, þjálfara og stjórnarmanna. Þegar hins vegar vel gengur, er það styrk- leikinn sem er undirstrikaður. Eg held t.d. eins og með Lárus markvörð að hann er einfald- lega ekki með sjálfstraustiö í lagi, frekar en aðrir leikmenn, en allir vita að hann er góður markmaður. Hann líður fyrir þab ab liðinu gengur illa, eins og ef liðið skorar ekki jafnt og reglulega þá verður hvert mark sem fengið er á sig meira áberandi," segir Krist- inn. Hann segir að sjálfstraustið í heild sé því ekki í lagi. „Ef menn fara að tala of snemma um fallbaráttu, þá endar það með því að það hugarfar gleypir félagið. Það ab Valur hafi aldrei fallið í 2. deild, veldur líka mikilli taugaveikl- un og það er að verba ein- hvers konar draugur hjá félag- inu að ef liðiö er ekki strax í toppbaráttu, þá fara menn að tala um fallbaráttu. Þetta er eitthvað sem heltekur hugi manna og þeir geta varla hugsað skýra hugsun fyrir því," segir Kristinn. Kristinn var mjög gagn- rýndur í fyrra meb störf sín hjá félaginu og ætti því að þekkja þab að vinna undir álaginu sem Hörður Hilmars- Unglingalandslib íslands í borbtennis: Mjög góöur árangur Unglingalandslið íslands í borðtennis tók þátt í alþjóð- legu móti í Ölstykke í Dan- mörku fyrir skemmstu og náð- ist mjög góður árangur á mót- inu. Undrið unga og efnilega, Guðmundur E. Stephensen, sigraði glæsilega í A-flokki drengja 15 ára og yngri og hafnaði jafnframt í 2. sæti í A- flokki drengja 15-17 ára, en Lárus Sigurbsson, markvörbur Vals, um slaka frammistöbu sína í sumar: tt Ekki í bolt- anum til aö vera á bekknum" „Á meban Tómas ver eins og gegn ÍA þá fer ég ekki í libib," segir Lárus Enn vinnur ÍA og enn tapor Valur Skagamenn halda óslitinni sigurgöngu sinni áfram í 1. deild karla íknattspyrnu eftir oð hafa unnib Val 1 -0 á heimavelli og var Skagamenn halda óslitinni sigurgöngu sinni áfram í 1. deild karla íknattspyrnu eftir oð hafa unnib Val 1 -0 á heimavelli og var þab Stefán Þórbarson sem gerbi markib á glæsilegan hátt meb skalla eftir undirbúning Haraldar Ingólfssonar. Valsmenn halda hins vegar áfram ab tapa og var þetta fjórba tap þeirra í röb í deildinni. Á myndinni er Ólafur Þórbarson, sem var mjög góbur, í baráttunni vib Valsarann Gubmund Brynjólfsson. Tímamynd Pjetur Kristinn Björnsson, fyrrum þjalfari Vals, um gengi Vals í sumar í karlaknattspyrnunni: „ Fallbaráttudraugur veldur taugaveiklun" son er undir núna. „Hann gæti t.d. misst sjálfstraustið líka og farið að efast um sínar aðgerðir. Það er bara hægt að treysta á sína eigin skynsemi og vinna sig út úr þessu hægt og rólega," sagði Kristinn. Hann sagði annars að Valslið- ið væri á uppleið og hann byggist við því ab sigur myndi vinnast gegn Fram á fimmtu- dag. „En tapist sá leikur, verður mjög erfitt að hífa sig upp aft- ur. En ég trúi á seigluna í liðinu og það er nú oft þannig að þeg- ar á móti blæs þá vaknar gamli risinn aftur til lífsins," sagöi Kristinn aö lokum. ■ „Þetta er ný staða fyrir mig en þetta er staða sem ég verð ab sætta mig við því ég er ekki búinn að standa mig eins og ég get best," segir Lárus Sig- urösson, markvörður hjá Val, aðspurður um það nýja hlut- skipti í síðustu tveimur leikj- um Vals að sitja á bekknum. Lárus var á bekknum gegn Grindavík í bikarnum í síö- ustu viku og einnig gegn ÍA á sunnudag. Fram að ÍA-leikn- um hafði Lárus leikið tæpa 70 leiki í deildinni með Þór og Val án þess að setjast á bekk- inn. „Ég hef fáar skýringar á slakri frammistöðu minni í sumar. Maður er ósáttur við sjálfan sig en ég er hvergi nærri hættur og held bara áfram," segir Lárus. Aðspurð- ur hvort mikil vinna við að reka veitingastaðinn Kofa Tómasar frænda hafi einhver áhrif segir Lárus það ekki vera og ef eitthvað er hafi verið mun meira álag í vinnunni í fyrra heldur en nú. „Ég ætla ekki að tína vinnuna sérstak- lega til. Þetta eru bara hlutir sem gerast og ég hef aldrei lent í þessu áður. Maður er alltaf að læra eitthvað nýtt í boltanum. Ég hef verib að gera mörg byrjendamistök og það er töluvert áfall enda vill enginn gera mistök. Þetta hef- ur verið nánast aumingja- gangur í mér og einnig hef ég verið óheppinn. Miðað við hvernig Valsliðið hefur spilað þá hafa mistök mín orðið meira áberandi en ella. En þetta er gríðarlega erfitt að sætta sig við þegar ég veit að ég get miklu meira og betur. Ég finn samt fyrir gríðarlegum persónulegum stuðningi en skil afstöðu þjálfarans mjög vel." Tómas Ingason heitir sá ungi markmaöur sem hefur tekið við stöðu Lárusar og staðið sig mjög vel í tveimur leikjum. En er Lárus sáttur við ákvörðun þjálfarans? „Það náttúrulega reynir enginn að standa sig illa en mín frammi- staða sem af er sumri er ekki það gób að ég geti farið að setja mig upp á afturlappirn- ar. Á meðan Tómas stendur sig svona vel á hann fullan rétt á að vera í markinu og ég stend með honum af fullum krafti og vona að vib náum að halda Valsmarkinu eins hreinu og hægt er það sem eftir er tímabilsins. A meðan Tómas ver eins vel og gegn ÍA þá fer ég ekki í liðið. Þegar staðan er svona þá verð ég að sætta mig við þab hlutskipti að sitja á bekkhum þó ég sé ekki ánægbur meb það. Mað- ur er ekki í knattspyrnunni til að vera á bekknum. En svona er boltinn, það eru ekki jól endalaust," sagði Lárus. Guðmundur er aðeins 12 ára. Eva Jósteinsdóttir sigraði í 1. og 2. flokki kvenna þar sem hún lagði Lilju Rós Jóhannes- dóttur í úrslitaleik í báðum flokkum. Þá sigraði Ingólfur Ingólfsson í 2. flokki karla. Næsta verkefni unglingana er Evrópukeppni unglinga sem verður haldib verður í lok júlí í Hollandi. ■ Lárus Sigurösson hefur nú setiö á bekknum tvo leiki í röö hjá Val. Tímamynd Pjetur Knatt- spyrnuúrslit 1. deild karla KR-Breiöablik..........2-1 (0-1) 0-1 Arnar Grétarsson (3) 1- 1 Mihajlo Bibercic (46) 2- 1 Guðmundur Benediktsson (86) Grindavík-ÍBV ..........1-0 (0-0) 1-0 Milan Jankovic (78(v)) ÍA-Valur ..............1-0 (0-0) 1-0 Stefán Þórðarson (82) Staöan Akranes........ 8 8 0 0 16-2 24 KR............. 8 5 0 3 10-8 15 Leiftur........7 4 0 3 13-10 12 Keflavík ......63 2 1 6-3 11 ÍBV............8 3 14 18-11 10 Grindavík .....8 3 14 12-12 10 Breiðablik.....8 3 1 4 12-13 10 FH............. 7205 11-18 6 Fram........... 6 1 23 4-12 5 Valur ..........8 1 1 6 6-19 4 Næstu leikir: 19. júlí: Keflavík- KR. 20. júlí: Valur-Fram, FH- Leiftur, Breiðablik-Grindavík, ÍBV-ÍA. 1. deild kvenna Breiðablik-ÍBA.........12-0 (5-0) Staðan Breiðablik.....8 7 1 051-4 22 Valur ..........65 1 021-5 16 Stjarnan.......7 4 1 2 24-7 13 Akranes....... 7 3 13 18-16 10 Haukar......... 7 1 1 5 3-44 4 ÍBA............7 0 1 6 5-38 1 ÍBV ...........5 005 5-24 0 Næstu leikir í kvöld: ÍA-Valur, KR- Haukar, ÍBV-Stjarnan. 2. deild karla Fylkir-Þróttur R..............1-1 (0-0) Víkingur-ÍR..................0-1 (0-0) Víöir-Þór Ak................2-3 (1-1) Staöan Fylkir ........8 5 2 1 16-8 17 Stjarnan.......8 5 12 16-10 16 Þór Ak.........8 5 0 3 15-13 15 Þróttur R...... 8 4 2 2 14-9 14 Skallagrímur....8 4 2 2 12-8 14 KA............. 83 32 9-8 12 Víöir.......... 8 3 1 4 7-8 10 ÍR.............82 1 5 12-18 7 Víkingur.......8206 8-17 6 HK ............8 1 07 10-19 3 Næstu leikir: í kvöld: ÍR-KA. 19. júlí: Þróttur R.-Víkingur, Skalla- grímur-Stjarnan, HK-Víðir, Þór Ak.-Fylkir. 3. deild karla Haukar-Leiknir R............1-5 Þróttur N.-Ægir...............0-3 Selfoss-Höttur..............3-2 Fjölnir-BÍ .................5-1 Staðan Völsungur ......9 62 1 17-7 20 Leiknir R...... 9 6 1 2 21-9 19 Ægir...........9 5 1 3 17-12 16 Dalvík.........9 3 60 13-7 15 Selfoss........9 5 0 4 16-19 15 Þróttur N......9 4 0 5 11-12 12 Fjölnir........9 3 15 17-15 10 BÍ ............9 2 3 4 9-16 9 Haukar.........9 2 0 7 6-25 6 Höttur ........9 1 2 6 10-15 5 Næstu leikir: 21. júlí: Dalvík-BÍ, Höttur-Fjölnir, Selfoss-Ægir, Þróttur N.-Leiknir R., Haukar- Völsungur. 4. deiló Afturelding-Ármann 1-2 Víkingur Ól.-Hamar 6-1 TBR-GG 1-3 Grótta-Reynir S 1-3 Bruni-Smástund 1-4 Njarðvík-ökkli 6-1 ÍH-Smástund 3-1 Tindastóll-Þrymur 10-0 Neisti H.-KS 0-4 Sindri-Huginn 2-1 KVA-Neisti

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.