Tíminn - 18.07.1995, Blaðsíða 16

Tíminn - 18.07.1995, Blaðsíða 16
Vebríb (Byggt á spá Veburstofu kl. 16.30 í gær) • Suburland og Faxaflói: Norbaustan kaldi. Hiti 8 til 15 stig ab deginum. • Breibafjörbur: Norbaustanátt, lengst af stinningskaldi. Skýjab meb köfl- um en þurrt. Hiti 5 til 10 stig. • Vestfirbir: Norbaustan kaldi eba stinningskaldi, skvjab ab mestu og lít- ilsháttar rigning eba súld norbantil, en þurrt sunnantií. Hiti 7 til 10 stig. • Strandir og Norburland vestra: Norban kaldi og þokusúld, einkum úti vib sjóinn. Hiti 3 til 7 stig. • Norburland eystra og Austurland ab Clettingi: Norban kaldi og rign- ing eba súld annab slagiö í fyrstu. Hiti 3 til 8 stig. • Austfirbir og Subausturland: Norban og norbaustan kaldi, víbast þurrt. • Mibhálendib: Norban kaldi. Víba slydda norban heiba, en ab mestu þurrt sunnantil. Hiti 0 til 5 stig. Jóhannes Gunnarsson, lœkningaforstjóri á Borgarspíta: Heilbrigðis- þjónustan eins og blabra „Þegar klipiö er í heilbrigðis- þjónustuna á einum stað, þá er þetta eins og blaðra. Hún bólgnar bara út annars stað- ar. Þaö er akkúrat þaö sem gerist," segir Jóhannes Gunn- arsson, lækningaforstjóri á Borgarspítalanum. Hann seg- ir ab samdrátturinn í heil- brigbiskerfinu komi í meira mæli niöur á stóru spítölun- um tveimur, Borgarspítala og Landsspítala, en öbrum sjúkrastofnunum. Sparnabur- inn sem til verbi hjá ákveön- um sjúkrastofnunum leibi til kostnabarauka hjá öörum og þessir tveir spítalar séu alltaf endapunkturinn, sem ekki geti vikib sér undan því sem til þeirra berst. „Klassíska dæmið er jú, aö maður les í blöðunum aö skurðstofum á þessu og þessu sjúkrahúsi er lokað í einn, tvo eða þrjá mánuði yfir sumartím- ann. Fólk lendir þá auðvitað í Reykjavík. Það er óumflýjan- legt. Á sama tíma þurfum við líka ab senda fólk í sumarfrí og passa upp á aurinn," segir Jó- hannes. Hann segir að vart hafi verið við að ýmsar heilbrigðisstofn- anir, jafnvel í Reykjavík, sem séu á sérstökum fjárlögum, eins og öldrunarstofnanir ýmiskon- ar, hafi ákveöna tilhneigingu til þess að reyna að koma sjúkling- um á spítalana ef þeir eru orðn- ir of dýrir í meðhöndlun, eru t.d. á dýrum lyfjum. „Verkefnin hér hafa aukist gríbarlega mikið, sérstaklega á síöustu fimm árum. Það hefur ekki fengist að bæta við fólki sem neinu nemur til þess. Það hefur hins vegar ekkert verið fækkað fólki á skurðstofunum, en þetta hlutfall riblast hægt og hægt," segir Jóhannes. Hann segir að fjölgun íbúa og hliðrun í aldurssamsetningu þjóðarinnar þýði að álag á stóru sjúkrahúsin tvö aukist um 5% á ári. „Þannig ab þetta er býsna mikil aukning sem verbur, án þess ab menn verbi mikiö varir við þab," segir Jó- hannes Gunnarsson, lækninga- forstjóri á Borgarspítala. - TÞ Heyskapur var ífullum gangi á Suöurlandi um síbustu helgi. Þessa mynd tók blabamabur vib bœinn Tannastabi í Ölfusi á sunnudaginn, þegar fólk hamabist þar vib ab ná heyi í hús undan rigningu. Og gamli bœrinn á Tannastöbum, sem byggbur er snemma á þessari öld, stendur alltaf fyrir sínu. Tímamynd sigurbur Bogi Heyskapur á Suöurlandi: Fyrri slætti er víða lokið Fyrri slætti hjá mörgum bænd- um á Suburlandi er ab verba lokiö. Heyfengur er helst til minni en hann var um þetta leyti í fyrrasumar. „Bændur eru almennt vel á veg komnir með fyrri slátt. Menn hafa náö inn gæðafóðri, en magn- ið er helst til minna en t.d. í fyrra- sumar. Þaö helgast meðal annars af því hve síðasti vetur var kaldur. Ég boða þó ekki heyskort næsta vetur, bæði eiga menn eftir að ná miklu í hús ennþá og eins eru til fyrningar frá síðasta vetri," sagði Sveinn Sigurmundsson, fram- kvæmdastjóri Búnaöarsambands Suðurlands. Skv. upplýsingum blaðsins eru bændur í Skaftárhreppi í vondum málum vegna kals í túnum, sem helgast af svellalögum sem lágu þar yfir sl. vetur. Þeir eru þó bjart- sýnir á að úr rætist og aö góð hey náist í hús. -SBS, Selfossi Geysileg fjölgun fyrirspurna eftir innbrot helgarinnar: A þriðja tug fyrirspurna hjá Vara á mánudagsmorgun Claes kemur ekki Opinberri heimsókn Willy Cla- es, abalframkvæmdastjóra NATO, hingað til íslands hefur verib aflýst en Claes var vænt- anlegur til landsins á morgun, miðvikudaginn 19. júlí, og til stóð ab hann færi aftur á fimmtudag. Ástæðan fyrir því ab heimsókninni var aflýst er ástandið í Bosníu. ■ Síbrotamaður og sambýlis- kona hans voru úrskurðuð í gæsluvarðhald um helgina, eftir að þýfi úr innbroti í gler- augnaverslun fannst í íbúð þeirra við húsleit. Einnig fundust tölvur, prentarar, fatnaður og fleira úr nokkr- um innbrotum í herbergi sem maðurinn leigir í Vestur- bæ Reykjavíkur. Þau hafa bæði kært gæsluvaröhaldsúr- skurðina til Hæstaréttar. En þjófar komu víðar vib í kjölfar innbrota sem framin vom um helgina hafa fyrir- spurnir um öryggiskerfi í heimahús aukist vemlega hjá Securitas og Vara. Svo virbist sem umfjöllun fjölmiðla um innbrot í heimahús hafi bein áhrif á sölu öryggiskerfa. Að sögn Hannesar Guðmunds- sonar, framkvæmdarstjóra hjá sögu um helgina. í einbýlishúsi einu í Kópavogi var heimkom- an heldur nöturleg fyrir hús- ráðendur. Þjófar höfðu komist inn um opinn glugga á bakhlið hússins og stolið nær öllu fé- mætu úr húsinu. Meðal þess sem stolið var em tvenn hljómflutningstæki, símtæki, sjónvarp, myndbandstæki, tölva, tölvuprentari, geisladrif og ýmislegt fleira. Þar er því um stórtjón ab ræöa fyrir hús- ráöendur. Securitas, er þó erfitt ab merkja aukningu á sölu enda hafi sala verið mjög mikil. „Við sjáum að þessum bylgjum í innbrotum fylgja miklu fleiri fyrirspurnir. Það gerist einmitt á dögum eins og í dag þegar framin hafa verib leiöindainnbrot um helgina. Þá verður mikið beðib um tilbob í þessari viku." Hannes segir ferlið Það virðist vera að færast í aukana ab innbrotsþjófar nýti sér ab húsráðendur séu í sum- arleyfi, þaö sýndi sig víðar. í einbýlishúsi í Garðabæ upp- götvaðist einnig sambærilegt innbrot, þar sem stolið var verbmætum tækjum og nýleg- um fólksbíl sem fannst aftur á sunnudagskvöld, en þar höfðu þjófar á brott meb sér verö- mæti fyrir allt ab 3 milljónir króna. Húsrábendur eru í sum- arleyfi á Spáni. - TÞ vera þannig að fólk biðji um til- boð og fær þannig hugmynd um verðið. Sumir taka ákvöröun strax en abrir láta málið liggja þar til næsta bylgja kemur en þá stökkva menn til og vilja taka til- boöinu. Hann segir ennfremur ab sala og fyrirspurnir haldist nokkurn veginn í hendur viö umfjöllun um innbrot í fjölmiðl- um. Hannes segir eftirspurnina ekki koma frá ákveönum hverfum að þessu sinni. Hins vegar komi oft fyrir aö beðib sé um öryggiskerfi í tvö til þrjú hús í götu þar sem ný- lega hefur veriö framib innbrot. Abspurður um hvort nágranna- varslan, sem íbúar í Grafarvogi hafa komiö sér upp, hafi minnk- að sölu á öryggiskerfum í því hverfi segir Hannes svo ekki vera. „Nágrannavarslan er hið besta mál en hún er bara eitt af mörg- um þrepum, fyrst er að muna aö loka á eftir sér, annaö að læsa o.s.frv." Þegar Tíminn haföi samband vib Jóhann Ólafsson, þjónustu- stjóra Vara, um ellefuleytib í gær- morgun sagðist hann áætla aö um 20-30 manns hafi komið með fyrirspurnir um öryggiskerfi fyrir heimili þá um morguninn. Jóhann sagbi sölu öryggiskerfa hafa aukist jafnt og þétt síðastlið- in 2 ár svo að jafnvel megi kalla byltingu í þessum málum. Að- spurður um hvort hann hafi orð- ið var við sérstaka aukningu á sölu síðastliðnar tvær vikur sagði hann svo ekki vera en hins vegar hafi fyrirspurnum fjölgað geysi- lega í morgun. „Þetta er yfirleitt ekki efst í huga fólks þegar sólin skín og bjart er úti. Þó það sé al- veg jafn hættulegur tími og hver annar. Fólk hefur greinilega áhyggjur af þessu." Jóhann telur ab aukning fyrir- spurna sé ekki hverfisbundin heldur komi þær víbsvegar ab af Stór- Reykjavíkursvæbinu. Hjá Securitas og Vara er mesta salan í smærri öryggiskerfum fyrir heimili og fyrirtæki. Meðalverð á öryggiskerfi fyrir meðalstórt heimili er í kringum 100.000 kr. ■ Þýfi finnst hjá síbrotamanni og fólk / sumarleyfi fœr óskemmtilega og óvelkomna gesti á meöan: Þjófarnir stórtækir

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.