Tíminn - 20.07.1995, Page 11
Fimmtudagur 20. júlí 1995
wmww
r, f
n
Gísli Hjörleifsson
Gísli Hjörleifssoti, bóndi í Utmar-
holtskoti, Hrunamatmahreppi,
fœddist 10. júní 1923 í Unnarholt-
skoti. Hantt lést á Borgarspítalanum
þann 6. júlí sl. Foreldrar hans vom
hjónin Helga Gísladóttir húsfreyja
og Hjörleifur Sveinsson, bóndi í
Unnarholtskoti. Systur Gísla eru
Dóra, búsett í Unnarholtskoti, og
Valgerður, búsett í Reykjavík.
Hinn 1. júlí 1950 gekk hatm að
eiga eftirlifandi eiginkonu sína,
Helgu Runólfsdóttur, f. 18. sept.
1927. Helga var fædd og uppalitt á
Fáskrúðsfirði. Foreldrar hennar voru
hjónin Guðlaug Eiríksdóttir og Run-
óifur Guðtnundsson.
Böm Helgu og Gísla em: Guðlaug
f. 1947, d. sama ár; Hjörleifur f.
1948, maki Sigþrúður Siglaugsdótt-
ir; Guðlaug f. 1955, maki Guð-
mundur Þórðarson; Hildur f. 1960,
tnaki Kristján Rafii Heiðarsson;
Unnar f. 1962, tnaki Hjördís Harð-
ardóttir. Bamabömin em 14 talsins
og bamabamabömin eru 5.
Útfór Gísla fór fram frá Hruna-
kirkju fóstudaginn 14. júlt sl.
Góöur, traustur vinur og sveit-
ungi, Gísli Hjörleifsson, Unnar-
holtskoti, er látinn. Hann hafði
lengi átt við mikla vanheilsu að
stríða og að lokum beið hann
lægri hlut fyrir þeim vágesti, þrátt
fyrir mikið sálarþrek. Utför hans
fór fram frá Hrunakirkju, föstu-
t MINNING
daginn 14. júlí sl., að viðstöddu
miklu fjölmenni.
Á slíkum stundum er margs að
minnast og margs að sakna, og
löngunina til að stinga niður
penna veröur að framkvæma.
Gísli var fæddur 10. júní 1923,
foreldrar hans voru Helga Gísla-
dóttir og Hjörleifur Sveinsson. í
Unnarholtskoti ólst Gísli upp
með foreldrum og tveim systrum,
Dóróþeu og Valgerði. Æskuheim-
ili þeirra hefur og eflaust verið
mannmargt, eins og svo algengt
var í þá daga, og unga fólkinu
kennd réttu handtökin við bú-
störfin svo fljótt sem tímabært
þótti.
Gísli hóf búskap á föðurleifö
sinni ásamt konu sinni, Helgu
Runólfsdóttur, en þau jgengu í
hjónaband 1. júlí 1950. I Unnar-
holtskoti bjuggu þau hjónin
miklu myndar- og rausnarbúi. Þar
andaði að aðkomumanni gest-
risni og hlýja húsbændanna.
Helga og Gísli eignuðust fimm
börn. Elstu dóttur sína, Guð-
laugu, misstu þau aðeins fárra
daga gamla; þá er Hjörleifur, bú-
settur á Akureyri, Guðlaug, búsett
í Bandaríkjunum, Hildur, búsett í
Hafnarfirði, og Unnar, bóndi í
Unnarholtskoti.
Við, sem þessar línur ritum, er-
um þakklát fyrir að hafa átt Gísla
aö samferðamanni. Hann var
mikill félagshyggju- og sam-
vinnumaöur. Honum var það vel
ljóst hversu mikilvægt það er,
ekki síst fyrir bændur, að standa
sameinaðir.
Gísli vann að margvíslegum fé-
lagsmálum fyrir sveit sína og hér-
að. í fyrstu var hann í stjórn Ung-
mennafélags Hrunamanna og
vann þar mikið og óeigingjarnt
starf. Hann var í sveitarstjórn í 12
ár og lét þar mikið tii sín taka,
m.a. í afréttarmálum. Seinni árin
starfaði Gísli talsvert í Félagi eldri
borgara og vann þar m.a. við bók-
band, en Gísli átti stórt safn blaða
og tímarita, og margt af því batt
hann inn og færði bókasafni
sveitarinnar aö gjöf.
Út á við kom Gísli víða við.
Hann var í stjórn Kaupfélags Ár-
nesinga. Og nú síðustu ár endur-
skoðandi Sláturfélags Suöurlands,
en því starfi gegndi hann þar til
síðastliöið vor.
Gísli lá aldrei á skoðunum sín-
um, hann var ákveðinn fram-
sóknarmaður og góður liðsmaður
þar. Oft spjölluðum vib um pólit-
íkina, félagskerfi okkar í bænda-
stétt og fleira sem hið daglega
amstur snerist um. Oft vorum við
sammála, en þó komu á stundum
upp fjörugar umræður og skoð-
anaskipti. Þegar þannig stóð á, fór
Gísli á kostum. Kom þá félags-
þiroski hans berlega í ljós, hann
hafði þann góöa hæfileika aö
virða annarra skoðanir og vilja
ræða málin á sanngjarnan og rök-
fastan hátt. Það var ekki síður í
slíkum tilvikum sem góða við-
mótið og hlýja brosið hans Gísla
kom svo vel í ljós og verður okkur
ljóslifandi fyrir hugskotssjónum,
er við minnumst hans með virð-
ingu og þökk.
Elsku Helga, við sendum þér og
öðrum aðstandendum innileg-
ustu samúðarkveöjur.
Bubba og Magnús
DAGBOK
IUVJ\yVAAJVAAJUVAAJ|
Fimmtudaqur
20
201. daqur ársins -164 daqar eftir.
29. vika
Sólris kl. 03.54
sólarlag kl. 23.11
Dagurinn styttist
um 6 mínutur
Regnboginn sýnir Bye,
Bye Love
í dag, fimmtudag, frumsýnir
Regnboginn gamanmyndina
Bye, Bye Love sem hlotið hefur
íslenska nafnið Ástir einstæðra
feðra. í aðalhlutverkum eru
þeir Matthew Modine, Randy
Quaid og Paul Reiser. Leik-
stjóri myndarinnar er Sam
Weizman (D2: The Mighty
Ducks, Brooklyn Bridge).
Bye, Bye Love segir frá vinun-
um Dave, Donny og Vic, sem
allir eru fráskildir og einstæðir
feður. Líf þeirra snýst um þetta
hlutskipti og þeir eiga miserf-
itt með að koma fótunum
undir sig þegar fjölskyldulífið
er fyrir bí. Dave á þrjú ung
börn, gullfallega kærustu og
fullt af sénsum, Donny á í erf-
iðleikum með samskiptin við
unglinginn dóttur sína og sér
einlæglega eftir mömmu
hennar, en Vic sér nákvæm-
lega ekkert eftir sinni fyrrver-
andi — en þeim mun meira
eftir börnunum og hundinum
— og samskiptin við hitt kyn-
ið eru í besta falli afar strjál.
Um hverja helgi hittast vinirn-
ir og njóta samskiptanna við
börnin, skiptast á kveðjum við
fyrrum eiginkonurnar og gera
síðan eitthvað skemmtilegt!
Hljómsveitin SSSól.
En eina helgina gekk allt á aft-
urfótunum ...
SSSól — Sólbruni '95:
Spilab á Hnífsdal á
laugardag
Hljómsveitin SSSól heldur
áfram tónleikaferð sinni Sól-
bruna '95 og nú er stefnan tek-
in á Vestfirðina; þetta er eina
skiptið sem sveitin kemur þar
við á þessu ári. Dansleikurinn
verður í félagsheimilinu í
Hnífsdal laugardagskvöldið
22. júlí.
Nú styttist í lok tónleika-
ferðarinnar Sólbruna og er
þetta í raun síðasta ball sveit-
arinnar á árinu undir þessum
merkjum, ef frá er talinn ísa-
fjörður 22. júlí og verslunar-
mannahelgin nk.
Lagið „Mér var svo kalt" eft-
ir söngvara sveitarinnar, Helga
Björnsson, er nú eitt vinsæl-
asta lagið á íslenska listanum
og annað lag, „Fullorðinn", er
væntanlegt á öldur ljósvakans
þegar nær dregur verslunar-
mannahelgi.
SSSól verbur í Miðgaröi í
Skagafirði á föstudags- og
laugardagskvöld um verslun-
armannahelgina. Þar verður
mikil sólblóma-, fantasíu- og
nostalgíuhátíð, sem stendur
þessa tvo daga. Meira verður
sagt frá henni síðar.
A sunnudagskvöldið verður
sveitin svo á Kili, Kirkjubæjar-
klaustri, ásamt Björk, Prodigy
og fleiri listamönnum.
Snædís Úlriksdóttir
sýnir ■ Gallerí Greip
Laugardaginn 22. júlí kl. 16
opnar í Gallerí Greip, Hverfis-
götu 82, sýning á verkum eftir
Snædísi Úlriksdóttur hús-
gagnahönnuð. Á sýningunni
verða húsgögn sem Snædís
hefur unnið að á síðustu mán-
uðum.
Snædís lauk mastersnámi frá
Royal College of Art í London
1993 og hefur rekið stúdíó þar
í borg síðan. Þetta er fyrsta
einkasýning Snædísar, en hún
hefur tekið þátt í samsýning-
um í Bretlandi.
Sýningin stendur til 6. ágúst
og verður opin alla daga frá
14-18, nema mánudaga.
APÓTEK
Kvöld-, nætur- og helgldagavarsla apóteka f
Reykjavík (rá 14 tll 20. Júlf er f Apótekl Austurbæjar
og Brelóholts apótekl. Það apótek sem fyrr er netnt
annast eltt vörsluna Irá kl. 22.00 að kvöldl tll kl. 9.00
að morgnl vlrka daga en kl. 22.00 á sunnudögum.
Upplýslngar um læknls- og lyfjaþjónustu eru gefnar
f sfma 16888.
Neyðarvakt Tannlæknafélags islands
er starfrækt um helgar og á stórhátíðum. Símsvari 681041.
Hafnarfjörður: Hafnarfjaröar apótek og Noróurbæjar apó-
tek eru opin á virkum dögum frá kl. 9.00-18.30 og til skiptis
annan hvem laugardag kl. 10.00-13.00 og sunnudag kl.
10.00-12.00. Upplýsingar í símsvara nr. 51600.
Akureyrl: Akureyrar apótek og Stjörnu apótek eru opin
virka daga á opnunartima búða. Apótekin skiptast á sina
vikuna hvort að sinna kvöld-, nætur- og helgidagavörslu. Á
kvöldin er opið í þvi apóteki sem sér um þessa vörslu, til kl.
19.00. Á helgidögum er opið frá kl. 11.00-12.00 og 20.00-
21.00. Á öðrum tímum er lyfjafræðingur á bakvakt. Upplýs-
ingar eru gefnar i sima 22445.
Apótek Keflavfkur: Opið virka daga frá kl. 9.00-19.00.
Laugard., helgidaga og almenna fridaga kl. 10.00-12.00.
Apötek Vestmannaeyja: Opið virka daga frá kl. 8.00-
18.00. lokaó í hádeginu milli kl, 12.30-14.00.
Selfoss: Selfoss apótek er opiö til kl. 18.30. Opið er á laug-
ardögum og sunnudögum kl. 10.00-12.00.
Akranes: Apótek bæjarins er opið virka daga til kl. 16.30.
Á laugard. kl. 10.00-13.00 og sunnud. kl. 13.00-14.00.
Garðabær: Apótekið er opið rúmhelga daga kf. 9.00-
18.30, en laugardaga kl. 11.00-14.00.
ALMANNATRYGGINGAR
1. júlí 1995
Mina&argreféslur
Elli/örorkulífeyrir (grunnlífeyrir) 12.921
1 /2 hjónalífeyrir 11.629
Full tekjutrygging ellilífeyrisþega 29.954
Full tekjutrygging örorkulífeyrisþega 30.793
Heimilisuppbót 10.182
Sérstök heimilisuppbót 7.004
Barnalífeyrir v/1 barns 10.794
Meölag v/1 barns 10.794
Mæbralaun/febralaun v/1 barns 1.048
Mæbralaun/febralaun v/ 2ja barna 5.240
Mæbralaun/feðralaun v/ 3ja barna eða fleiri 11.318
Ekkjubætur/ekkilsbætur 6 mánaba 16.190
Ekkjubætur/ekkilsbætur 12 mánaða 12.139
Fullur ekkjulífeyrir 12.921
Dánarbætur í 8 ár (v/ slysa) 16.190
Fæðingarstyrkur 26.294
Vasapeningarvistmanna 10.658
Vasapeningar v/ sjúkratrygginga 10.658
Daggreibslur
Fullir fæðingardagpeningar 1.102,00
Sjúkradagpeningar einstaklings 552,00
Sjúkradagp. fyrir hvert barn á framfæri 150,00
Slysadagpeningar einstaklings 69C,D0
Slysadagpeningar fyrir hvert barn á framfæri 150,00
í júlí er greidd 26% uppbót vegna launabóta á
fjárhæðir tekjutryggingar, heimilisuppbótar og
sérstakrar heimilisuppbótar. Uppbótin skerðist vegna
tekna í sama hlutfaíli og þessir bótaflokbr skerðast.
GENGISSKRÁNING
19. Júlf 1995 kl. 10,53
Opinb. viðm.gengi Gengl
Kaup Sala skr.funr' r
Bandarfkjadollar 62,83 63,01 62,92
Sterlingspund ....100,20 100,46 100,33
Kanadadollar 46,11 46,29 46,20
Dönsk króna ....11,653 11,691 11,672
Norsk króna ... 10,202 10,236 10,219
Sænsk króna 8,769 8,799 8,784
Finnsktmark ....14,840 14,890 14,865
Franskur franki ....13,034 13,078 13,056
Belgfskur franki ....2,2046 2,2122 2,2084
Svissneskur franki.. 54,34 54,52 54,43
Hollenskt gylllni 40,47 40,61 40,54
Þýsktmark..... 45,36 45,48 45,42
Itölsk Ifra .0,03878 0,03893 0,03884
Austurrfskur sch 6,447 6,471 6,459
Portúg. escudo ...0,4306 0,4324 0,4315
Spánskur peseti ...0,5242 0,5264 0,5253
Japansktyen ...0,7177 0,7199 0,7188
...102,95 103,37 103,16
Sérst. dráttarr 97,82 98^20 98’01
ECU-Evrópumynt 83,94 84,24 84,09
Grfsk drakma ...0,2790 0,2800 0,2795
BÍLALEIGA
AKUREYRAR
MEÐ ÚTIBÚ ALLT í
KRINGUM LANDIÐ
MUNIÐ ÓDÝRU
HELGARPAKKANA
OKKAR
REYKJAVÍK
568-6915
AKUREYRI
461-3000
PÖNTUM BÍLA ERLENDIS
interRent
Europcar