Tíminn - 20.07.1995, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 20. júlí 1995
@ÉUlflW
13
Líflegur
Laugavegur
Útsölur eru nú byrjaðar í Reykjavík
á fullu og hefur heldur en ekki lifn-
að yfir Laugaveginum í kjölfarið.
Byrja útsölumar óvenju snemma í
ár og eru „prísarnir" mjög hagstæð-
ir. Hafði einhver á orði að verslun-
arferðir til útlanda meö þessi verð
og gæði við dyrnar, væru bara útí
hött. Enda virðist ekki standa á því
að hinir fjölmörgu erlendu ferða-
menn, sem nú eru á landinu, láti
sitt eftir liggja í verslunum.
Margt íslenskt verslunarfólk hef-
ur einnig áratuga reynslu í viðskipt-
um og gjörþekkir hinn kröfuharða
íslenska markað. Að jafnaði er því
boðið mjög gott „kvalitet" í íslensk-
um verslunum og þegar verðinu er
fírað þvílíkt niður, eins og gerist á
Mann-
lífs-
spegill
GUÐLAUGUR
TRYGGVI
KARLSSON
útsölunum, ætti fólk virkilega að
taka fljótt við sér og kaupa þaö sem
þarf.
Á myndinni er hinn þekkti herra-
fatakaupmaður, Guðgeir Þórarins-
son, sem svo lengi hefur stutt ís-
lenskan karlpening í hinu erfiða
fatavali af lipurð og smekkvísi. ■
Gunnlaugur H. /ónsson háskólaritari og Amalía Skúladóttir rektorsrítari bíba eftir steikunum sínum í góbum fé-
lagsskap.
Vivat
Academia
í blíðunni undanfarið hafa ýmis
fyrirtæki og stofnanir brugöiö á það
ráö að færa mötuneytið sitt út fyrir
dyrnar og grilla úti. Háskólafólk
hefur haft sérstaka ástæbu til þess
undanfarið, því viðgerð stendur nú
yfir á aðalbyggingu Háskólans og er
því mikill hávaöi innandyra af
þeim sökum. Ekki beint lystaukandi
hljómar.
Auðvelt er að verða sér úti um
grill — fá lánað gasgrill eða ein-
hverjir koma meö kollagrillið sitt —
allur grillmatur er auðvitað á til-
boðsverði og svo er bara að byrja.
Hryllingssögur um „kolagerð" eða
viðbrunninn mat eru látnar lönd
og leið, en auðvitað á það viö í grilli
eins og annarstaðar, að æfingin
skapar meistarann og þolinmæðin
þrautir vinnur allar.
Altjent var starfsfólk Háskólans
himinlifandi með þessa nýbreytni
og stendur til ab endurtaka þetta
einhverja næstu daga. ■
Starfsfólk Háskóla Islands lét fara vel um sig í sólskininu í grillveislunni.
Aftast á bekknum eru prófessorarnir Hreinn Benediktsson í heimspekideild
og Páll Sigurbsson ílagadeild, en fremst fyrír mibju er Árni Finnsson próf-
stjóri.
Matrábskonurnar Gréta og Kristín þóttu snjallar vib gríllib.
Hvert tækifæri notab
Á þessum dögum ársins neyta
hestamenn sérhvers færis að
komast á hestbak og ríöa úti í
gubsgrænni náttúrunni. Stefán
frá Hvítadal orti einu sinni:
Vítt til veggja, heiðið hátt,
hugann eggja bröttu sporin.
Hefði ég tveggja manna mátt,
myndi ég leggjast út á vorin.
Hvab gerir þab líka til, þótt út-
reibartúrinn lengist eitthvab,
þegar bobib er uppá „bjarta
heiba júlínótt"? Þennan heib-
ursmann, Unnstein Beck hrl.,
bar fyrir augun í Mosfellssveit
um daginn. Hann var á móvin-
dóttum fola, sem hann sagði
bæöi ganggóðan og röskan.
Töfra mætti fleiri slíka fram, og
ef veðurguðirnir leyfðu, fara
hvenær sem væri Kjöl, Skaga-
fjörð og Heljardalsheibi hófa-
hljóöi.