Tíminn - 01.08.1995, Qupperneq 6

Tíminn - 01.08.1995, Qupperneq 6
6 Þri&judagur 1. ágúst 1995 Kvennadeild Landspítalans — þar eru framkvœmdar flestar fóstureybingar á konum á Islandi. Þœr voru alls 768 á landinu öllu í hittebfyrra. Fóstureyöingar og táningsþunganir: „Viö höfum heimsins verstu getnaöarvamarþ j ónustu " mynd sem vekur mikla athygli þeirra sem leib eiga um Eden í Hveragerbi. í ljósi þeirrai umræðu sem oröið hefur um útburö stúlku- barna í Kína ákvað Tíminn að kanna fjölda og ástæður fóst- ureyðinga hér á landi. í ljós kom að meðal táningsstúlkna (15-19 ára) eru fleiri fæöingar en fóstureyðingar. Hins vegar verða fleiri táningsstúlkur óiéttar hér á landi en á hinum Norburlöndunum. Að sögn Sigríöar Vilhjálms- dóttur á Hagstofunni er enn ekki búið að gera upp árið 1994. Hins vegar geta tölur frá 1993 gefið mynd af ástæöum og fjölda fóstureyðinga. Alls voru framkvæmdar 768 fóstureyðingar á öllu landinu árið 1993 en það ár voru 4623 börn lifandi fædd. Flestar fóst- ureyöingar voru hjá konum á aldrinum 20-24ra ára, eða alls 210. í þessum aldurshóp hafa flestar fóstureyðingar verið framkvæmdar á árunum 1983- 1993. Yfirleitt eru félagslegar ástæöur tilgreindar fyrir um 90% fóstureyðinga en ekki eru til nákvæmar tölur um það fyrir árið 1993. Árið 1992 voru fóst- ureyðingar eingöngu af félags- legum ástæðum tæp 92%. Hin tíu prósentin skiptast svo í tvo flokka: læknisfræðilegar ástæð- ur og félags- og læknisfræðileg- ar ástæður. Benedikt Ó. Sveinsson kven- sjúkdómalæknir á sæti í nefnd sem fær til umfjöllunar um- sóknir um fóstureyðingar þar sem konan er gengin lengur en 12 vikur og ef ágreiningur hefur risið um synjun beiðni. Fram að 12 vikum nægir svokallað tveggjalæknavottorð. í nefnd- inni sitja lögfræðingur, læknir og félagsráðgjafi og þarf hún að úrskuröa í málum innan viku frá því að beiðnin berst til hennar. Samkvæmt Benedikt eru fóstureyðingar vegna félags- legra ástæðna heimilar innan vissra marka upp að 16 vikum. Fóstureyðingar eru einungis heimilar eftir 16. viku ef líf og heilsa móbur er í hættu eða ef miklar líkur eru á sködduðu fóstri. Af því leiöir ab allar um- sóknir þar sem konan er gengin lengur en 16 vikur fara til nefndarinnar. Langflestar um- sóknir sem nefndin fær til um- fjöllunar varba fóstur sem eitt- hvab hefur fundist að. Ekki fengust nákvæmar tölur um fjölda umsókna en að sögn Benedikts fær nefndin ein- hverja tugi umsókna á ári. Svava Stefánsdóttir, félagsráð- gjafi á kvennadeild Landspítal- ans, tekur á móti þeim konum sem óska eftir viðtali við félags- ráðgjafa áður en þær fara í fóst- ureyðingu. Margar koma hins vegar frá heimilislæknum eba sérfræbingum og fara beint í sjúkraskýrslutöku. „Það em bara þær sem biöja um félagsráðgjafa sem koma í viðtal til mín." Svava sagði það ekki vera ein- ungis konur sem efuðust um ákvörðun sína sem kæmu til hennar. „Þetta á bara ab vera hlutlaust viðtal samkvæmt lög- unum. Athuga hvar manneskj- an stendur sjálf. Þær koma margar ákafiega ákveðnar en aðrar tvístígandi og þurfa að tala meira." Svava segir konur á aldrinum 18-25 ára vera mest áberandi. „Eldri konur fara sumar frekar í ófrjósemisaðgerb- ir í dag. Þær eru mjög duglegar viö það miðað við karlmenn. ís- lenskir karlmenn fara ákaflega sjaldan miðab við önnur lönd." Að sögn Svövu hafa ansi margar konur í yngri hópnum ekki átt barn áöur, em ekki í föstu sam- bandi og ekki í fastri vinnu. Hún segir áberandi hvað þeim konum fjölgi sem fari í fóstur- eybingu sem eru atvinnulausar og hafa dottið úr skóla. „Þab Börn — finnst manni afskaplega sorg- legt. Einnig er töluveröur hópur af konum undir 25 sem eru á kafi í námi og em kannski er- lendis þar sem ómögulegt er að vera einn með barn. Það eru ekki allir sem hafa þak yfir höf- uöið, þab er orbið það dýrt að leigja. Það þarf að búa vel að barni. Það eru ekki allir tilbúnir á þessum aldri til að flytja aftur heim. Sumar ganga með barn vitandi að þær verða eiijstæðar mæður." Fram kemur í skrá frá Hag- stofu íslands ab á árabilinu 1982-1992 er ríflega helmingur þeirra kvenna sem fer í fóstur- eyðingu ekki í sambúð og rúm- lega þriðjungur þeirra sem fóru í fóstureyðingu árið 1992 hafði ekki átt barn. Þegar Svava var spurð hvort hún yrði vör við aö litið væri á fóstureyðingar sem getnaðarvörn eins og stundum heyrist meðal andstæðinga fóst- ureyðinga sagði hún að enginn gerði sér þetta ab leik. „Ef að manneskja fer endurtekið í fóst- ureyðingu á nokkrum árum þá er eitthvað annað og meira að." Fjöldi ótímabærra þungana hljóti að vekja upp spurningar um hver sé orsökin. En um það segir Svava: „Við höfum heims- ins verstu getnaðarvarnarþjón- ustu. Samt eru búin að gilda lög í 20 ár þar sem talaö er um ab getnaðarvarnarþjónusta og út- vegun getnaðarvarna skuli vera í tengslum við heilsugæsiu, mæöravemd, félagsráðgjöf og alla mögulega staði." Svava tel- ur að ekki séu nógu margar móttökur þar sem konur geta fengið lykkjuna. Hún segir að það mætti t.d. vera móttaka fyr- ir ungt fólk og unglinga í hús- næbi þar sem önnur starfsemi væri fyrir. „Það eru ekki allir heimilislæknar sem setja upp lykkjur og þá þarf að fara til sér- fræðings þar sem kona getur þurft ,að bíba í mánuði eftir tíma." Aöspurð um það hvort ekki séu alltaf veittar fóstureyðingar fyrir 12 vikna mebgöngu segir Svava að ef fólk getur tilgreint ástæður, farið er ákveöið fram á fóstureyðingu og ef beibnin get- ur heyrt undir iög þá er orðið vib beiðninni. Þegar Matthías Halldórsson, aðstoðarlandlæknir, var inntur eftir viðbrögðum við þeim um- mælum Svövu að hér væri heimsins versta getnaðarvarnar- þjónusta gat hann ekki séð að sú fullyrðing stæðist. „Þab eru mjög margir heilsugæslulæknar sem setja upp lykkjuna svo og kvensjúkdómalæknar á stofum úti í bæ. Sjálfsagt er einhver bið- tími hjá þeim eins og gengur og gerist en ég held að þaö sé ekk- ert verra en víðast hvar annars stabar." Matthías benti á ab meira er notaö af lykkjunni á ís- landi en á hinum Norðurlönd- unum. Þab eru 55 konur af hverjum 1000 á íslandi sem nota lykkjuna og svo eitthvað minna á hinum Norðurlöndun- um. „Þetta bendir nú ekki til þess að það sé erfitt að nálgast hana. Lykkjan er auðvitaö ekk- ert bráðaúrræbi, það er frekar að góður aðgangur að smokkum skipti máli." Matthías sagði að konur sem nota lykkju væru frekar þær sem eru í föstum samböndum auk þess sem lykkjan væri helst ekki fyrir aðrar konur en þær sem fætt hafa barn. „Lykkjan er því yfirleitt ekki lausn fyrir þær sem eru í skyndisamböndum og smokka er hægt að nálgast nán- ast hvar sem er á bensínstöðv- um, búðum, sjálfsölum o.s.frv. þannig að það á enginn að þurfa ab lenda í neinu slysi þess vegna þó að smokkurinn sé að sjálfsögðu ekki eins örugg vörn og lykkjan." Aðspurður um hvernig hon- um lítist á hugmynd Svövu um að aðstaða til uppsetningar lykkju væri til staðar þar sem ungt fólk kæmi saman og önn- ur starfsemi væri fyrir hendi sagði Matthías að yngri hópur- inn notaði bara ekki svo mikið lykkjuna af fyrrgreindum ástæðum. Það er hins vegar staðreynd að á Islandi verða fleiri tánings- stúlkur óléttar en á hinum Norðurlöndunum. Umræða Vesturlandabúa um útburö barna í Kína undanfariö hefur leitt suma til að líta í eigin barm og hafa ýmsir fjallað um fóstur- eyðingar af þessu tilefni. í því sambandi bendir Matthías á að þrátt fyrir fleiri táningsþunganir á íslandi þá séu hér fleiri fæð- ingar en fóstureyðingar í þeim aldurshópi. Á Norðulöndunum em aftur á móti fleiri fóstureyð- ingar heldur en fæðingar hjá táningsstúlkum. Hér voru, árið 1993, 22,9 fæðingar á hverjar 1000 konur á aldrinum 15-19 ára en 15,7 fóstureyðingar. í Noregi voru fóstureyöingarnar hins vegar 18,7 og í Svíþjóð 19 á hverjar 1000 konur. Matthías tekur fram að fæðingum hjá þessum aldurshópi hafi þó snar- fækkað frá því að vera 71,1 árið 1975 á 1000 konur í 23 árið 1993. Fóstureyðingum sem hlutfalli af fæöingum hefur því fjölgað en fjöldi fóstureyðinga hefur hins vegar ekki aukist. Svo viröist sem færri táningsstúlkur verði þungaðar en áður. Því tel- ur Matthías aö fremur vanti eitthvaö upp á fræðslu hjá þess- um aldurshópi heldur en að hann vanti beinlínis getnaðar- varnir.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.