Tíminn - 20.09.1995, Blaðsíða 6
V
6
fgmáam
fyc nnnch' * >li\ ■ ,
Mibvikudagur 20. september 1995
UR HERAÐSFRETTABLÖÐUM
íbúbarhúsib vib Vallarbraut.
Austurland
NESKAUPSTAÐ
llla gengur ab
rába fólk
Síldarvinnslan hf. á Neskaup-
stað hefur að undanförnu aug-
lýst eftir starfsfólki í frystihús
félagsins og til vinnu á yfirvof-
andi síldarvertíö, án teljandi ár-
angurs. Svanbjörn Stefánsson,
framleiðslustjóri frystihúss
SVN, tjáði blaðinu að ástandið
væri svipað hér og víða annars
staðar og sérstaklega gengi illa
að fá vant fólk til vinnu við
pökkun og snyrtingu. Hann
sagði að um 35 manns vantaði
til starfa og aö þegar væri farið
að kanna möguleika á að fá
starfsfólk erlendis frá. Fyrir-
spurnir hafa verið sendar til
Færeyja og einnig er til athug-
unar að leita eftir Pólverjum til
starfa. Húsnæðisskortur setur
Síldarvinnslunni vissar skorður
í ráðningum á farandverkafólki,
en í dag er hægt að hýsa 19
manns. Það dugir þó ekki til að
leysa úr manneklu fyrirtækisins
og vonast menn til að eitthvert
starfsfólk fáist sem geti leyst sín
húsnæðismál á eigin spýtur.
Slmrnm Irillm- og mmilytUtmblmélÓ i Smémrmttjmm
|#lKUR
KEFLAVÍK
Glæsilegar íbúbir
vib Vallarbraut
Húsanes hf. afhenti fyrir
skömmu íbúðir og þjónustusel
fyrir eldri borgara við Vallar-
braut í Njarðvík. Af því tilefni
heimsótti fjöldi manns Vallar-
brautina og þáði veitingar, auk
þess að skoða nýju íbúðirnar.
Ellert Eiríksson, bæjarstjóri
Reykjanesbæjar, rakti bygging-
arsögu hússins þar sem fram
kom að byggingin og fram-
kvæmdin öll gekk mjög vel.
Einnig kom fram að Tóm-
stundaráð Reykjanesbæjar mun
hafa umsjón með rekstri þjón-
ustuselsins. Þjónustuselið er
320 fermetrar og kostaði 26
milljónir í byggingu. í því er
ýmis aðstaða, m.a. fyrir lækni
og fleira. íbúðirnar sjálfar eru
glæsilegar, 2ja og 3ja herbergja,
og eru þær síðarnefndu um 104
fermetrar að flatarmáli með
sameign. Alls eru 22 íbúðir í
húsinu. Fyrstu kaupendurnir
fengu afhenta lykla sína á laug-
ardag og fluttu inn skömmu
síðar.
Að sögn Sigurðar Ragnarsson-
ar hjá Eignamiðlun, sem er
söluaðili íbúðanna viö Vallar-
braut, er möguleiki á eigna-
skiptum, en allar nánati upplýs-
ingar fást hjá Eignamið’luninni.
Ey 8tra-1
hornl
Eldsmiburinn
Hlutafélagið Eldsmiðurinn
hefur verið stofnað hér í Horna-
firði til að koma á fót tölvusam-
skiptastöð. Vonir standa til að
starfsemi þeirrar stöðvar hefjist
í næsta mánuöi og verður meg-
inverkefni hennar að bjóða upp
á aðgang að Internetinu á inn-
anbæjargjaldi. Þegar hafa safn-
ast 4,9 milljónir upp í áætlaðan
stofnkostnað, sem er 6 milljón-
ir.
Internetið er alheimstölvu-
net. Til að komast inn á netið
þarf tölvu og mótald, en eins og
nú er málum háttað verða íbúar
þessa landshluta að tengjast
netinu gegnum Reykjavík, Ak-
ureyri eða Kópasker og er kostn-
aöur sambærilegur við afnot af
síma. Því er það mikið hags-
munamál fyrir þá aðila, sem
nýta sér þetta kerfi, að fá móð-
urtölvu hér.
Hugmyndinni að stofnun
samskiptastöðvar var varpað
fram á bæjarstjórnarfundi í vor
og fékk hún strax góðan byr, að
sögn Gísla Sverris Árnasonar,
sem er formaður stjórnar Eld-
smiðsins. Starfshópur, sem skip-
aður var til undirbúningsvinnu,
skilaði fljótt og vel af sér og fyr-
irtæki, skólar og einstaklingar
sýndu strax mikinn áhuga.
Þarna opnast möguleikar á við-
skiptum og fræðslu gegnum
Internetið og hægt er að kaupa
sér „heimasíðu", ef menn vilja
koma upplýsingum á framfæri.
Nýr leikskóli hefur
starfsemi
Leikskólinn Álfasteinn í
Glæsibæjarhreppi í Eyjafjarðar-
sveit var opnaður formlega fyrir
skömmu, en starfsemi hófst þar
fyrir um mánuði. Þetta mun
vera í fyrsta sinn sem leikskóli
er starfræktur í hreppnum.
Leikskólinn er rúmlega 100
fermetrar og hægt er að taka við
14 börnum þar í einu. Mörg
börnin eru þó aöeins hluta úr
degi og alls eru á leikskólanum
nú milli 16 og 18 börn. Við
leikskólann verða þrír starfs-
menn í fullu starfi og er Rann-
veig Oddsdóttir leikskólastjóri.
Rannveig segir að mikil þörf
hafi verið á leikskóla í hreppn-
um. „Margir sem búa í hreppn-
um vinna á Akureyri og þeir
hafa ekki haft aögang að leik-
skólunum þar vegna þess að
þeir eru ekki með lögheimili á
Akureyri. Eins nýta margir sér
að leyfa börnunum að vera ein-
hvern hluta úr degi, þó þeir séu
ekki að vinna."
Aö sögn Rannveigar er leik-
skólinn nógu stór til að anna
eftirspurn í hreppnum og er
enn pláss fyrir fleiri börn fyrir
hádegi. „Nágrannasveitirnar
hafa líka fengið hérna inni,
bæði Arnarneshreppur og
Skriðuhreppur," segir Rannveig.
Fyrstu íbúar á
dvalarheimili aldr-
abra flytja inn
Fyrstu fjórir íbúar dvalar-
heimilisins á Djúpavogi fluttu
inn sl. laugardag, en heimilið
sem hlotið hefur nafnið Helga-
fell verður formlega tekið í
notkun 30. sept. nk. Á dvalar-
heimilinu er rými fyrir 12
manns í þremur tveggja manna
herbergjum og 6 einstaklings-
herbergjum. Þar er ennfremur
rúmgott sameiginlegt rými, en
fyrirhugað er að í framtíðinni
verði hægt að taka aldraða í
dagvistun. Einnig er áætlað aö
félagsaöstaöa fyrir eldri borgara
á Djúpavogi verði þar til húsa.
Tveir starfsmenn hafa verið
ráðnir til starfa á dvalarheimil-
inu og mun sá þriðji hefja störf
upp úr næstu mánaðamótum.
Leikskólinn Álfasteinn í Clœsibœjarhreppi var opnabur formlega fyrir
skömmu, íþessu rúmlega 100 fermetra húsi. A innfelldu myndinni tekur
Oddur Cunnarsson, oddviti Glœsibœjarhrepps (t.v.), vib blómvendi úr
hendi Elíasar Höskuldssonar, fulltrúa verktakans, Kötlu hf. á Árskógs-
strönd, vib opnunina á laugardag.
Reglugerö um stœkkun möskva í botn- og flotvörp-
um til aö draga úr hlutfalli smás fisks í Smuguafla:
Strangari kröfur
en Norðmenn gera
í lok síöustu viku gaf sjávar-
útvegsráðuneytið út viðauka
við reglugerð um botn- og
flotvörpuveiðar til að draga
úr hlutfalli smás fisks í afla
íslenskra skipa í Smugunni. í
viðaukanum er kveðiö á um
að frá og með deginum í dag,
20. sept., veröur öllum ís-
Ienskum skipum gert skylt að
nota 155 millimetra möskva í
8 öftustu metrum botn- og
flotvarpa við veiðar í Barents-
hafi.
í frétt frá ráðuneytinu kemur
m.a. fram að þetta séu strangari
kröfur en Norðmenn gera til
möskvastærðar við veiðar eigin
skipa á svæðinu. Jafnframt er í
athugun hjá ráðuneytinu hvort
gera eigi frekari kröfur til bún-
aðar veiðarfæra togara í Smug-
unni, til að draga enn úr hlut-
falli smás fisks í afla.
Þessi viðauki við reglugerð
um botn- og flotvörpur er til-
kominn vegna niðurstaðna úr
þeim athugunum, sem varð-
skipsmenn um borð í Óðni
gerðu á afla og veiðarfærum 6
íslenskra skipa í Smugunni á
tímabilinu 25. ágúst til 13.
september sl. Þar kom m.a. í
ljós að notaðar voru vörpur
með minna en 155 mm
möskvastærð. Jafnframt kom í
ljós að allmikið af smáum fiski
var í aflanum, þótt hann stæð-
ist þau viðmiðunarmörk sem
Norðmenn nota við ákvörðun
um lokun veiðisvæða.
Þá hafa allmörg íslensk skip
tekið í notkun svonefndan
„glugga" í sín veiðarfæri. En
hann hámarkar það magn sem
hægt er að taka í veiðarfærið í
hverju hali. Þegar ákveðnum
mörkum er náð lekur aflinn út
um „gluggann" í vörpunni og
þannig er hægt að afstýra því
að skipin séu að fá risahöl, sem
í flestum tilfellum er ávísun
uppá léleg gæði og verðmæta-
rýrnun. ■
Sceplast á Dalvík:
Ný gerð af
fiskikerum
Um 20 milljón króna hagnaöur
varö af rekstri Sæplasts hf. á
Dalvík á fyrstu sex mánubum
ársins, en það er mun betri af-
koma en á síðasta ári þegar fyr-
irtækib skilabi abeins um 10
milljónum króna í hagnab yfir
allt árið. Heildartekjur fyrir-
tækisins urbu rúmlega 190
milljónir króna á þessum tíma
og jiar af námu tekjur af út-
flutningi rúmlega 100 milljón-
um eba um 54% af heildartekj-
um fyrirtækisins á sex mánaða
tímabiii.
Helsta framleiðsla Sæplasts eru
fiskikassar, en það framleiðir
einnig nokkuð af rotþróm. Nú
hefur Sæplast sett nýja tegund af
fiskikerum á markað, en þar er
um að ræða ker sem framleidd
eru úr vistvænum efnum. Voru
kerin fyrst kynnt á sjávarútvegs-
sýningu í Bella Center í Dan-
mörku í júní og hlutu strax góbar
viðtökur. Þar sem um dýrari
framleiðslu er að ræða en á hin-
um hefðbundnu kerum, mun
taka nokkurn tíma að kynna
kosti þeirra til fullnustu, en þegar
hafa borist pantanir til fyrirtækis-
ins erlendis frá, sem farið er að
framleiða uppí.
Ekki er komin reynsla á end-
ingu þessara nýju kera, en talið
er aö sú efnablanda, sem þau eru
unnin úr, hafi meiri endingar-
möguleika en eldri kerin. Meö
framleiðslu á hinum nýju kerum
horfa forráðamenn fyrirtækisins
ekki einvörðungu til sjávarút-
vegs, heldur að þessi framleiðsla
muni nýtast öðrum matvæla-
greinum í framtíðinni. ÞI
Árni Björnsson þjóöháttafrceöingur um meintan
álfabústaö í Dölum:
Engin stob fyrir
slíku samkvæmt
örnefnaskrá
í tilefni af meintum álfabú-
stab í Klofasteini vib Ljár-
skóga í Dölum, sagði Árni
Björnsson þjóöháttafræbingur
vib Tímann í gær: „Ég Iít svo á
ab þessar sagnir um álfa í
steinum séu skáldskapur þjób-
arinnar og þab er allt gott um
þab ab segja. Sem dæmi get ég
tekib klofasteininn í Ljárskóg-
um í Dölum. í örnefnaskrá
sem er skrifuð af Hallgrími
Jónssyni í Ljárskógum, föbur
Regínu sem var í fréttunum,
minnist hann á klofasteina og
klofasteinabörö og segir að
þetta hafi upphaflega verib
einn steinn sem hafi klofnað.
En hann minnist ekki einu
orbi á álfa."
Vegagerðin hefur ákveðib aö
færa klofasteininn til, en Regína
Hallgrímsdóttir hefur verið í
fréttum að undanförnu, enda í
sambandi við álfana í steininum
að hennar sögn. Ýmis óhöpp
hafa dunið yfir verktakann Borg-
arverk eftir að lagning nýs vegar
hófst við Ljárskóga í sumar, en
Regína segir álfana ekki hafa
hefnt sín á mönnunum, Þeir séu
hins vegar mjög hræddir. Tímnn
spuröi nokkra valinkunna menn
hvort rétt væri að taka mið af
meintum álfabyggðum við vega-
gerð. Sjá bls. 2. ■