Tíminn - 21.09.1995, Síða 3
Fimmtudagur 21. september 1995
Prmtim
Sigurgeir Þorgeirsson segir rœtt um oð skipta kjötfjallinu milli innlends markaöar og erlendra:
Ríkib borgar ekki fyrr en
framtíöarlausnir finnast
Engar bitastæöar lausnir hafa
ennþá fundist á því hvernig
vandi sá verbi best leystur sem
menn standa nú frammi fyrir í
upphafi sláturtíöar meb stórt
kindakjötsfjall í frystihúsunum.
Enda víst hreint ekki einfalt
mál. Ab sögn Sigurgeirs Þorgeirs-
sonar, framkvæmdastjóra
Bændsamtakanna, eru menn ab
velta fyrir sér einhverskonar
blöndu af því ab setja kjötib hér
inn á markabinn og flytja úr
landi. Allt snúist þetta aubvitab
um peninga og mat manna á því
hvaba áhrif þab hefbi hvernig
kjötib yrbi sett á innanlands-
markabinn.
Engir peningar hafa ennþá feng-
ist úr ríldssjóöi vegna þessa vanda.
Enda segir Sigurgeir þaö hafa legiö
fyrir hjá fulltrúum ríkisins í um-
ræöum í sumar aö fjárupphæöir
yröu ekki ræddar fyrr en sam-
komulag heföi náöst um skynsam-
legar kerfisbreytingar til frambúö-
ar, þar með um þennan birgöa-
pakka. Þannig ab þótt hann valdi
kannski þeim vanda sem hvab
heitast brennur, þá veröi hann
ekki leystur fyrr en öll þessi mál
hafi smollib sæmilega saman. ■
Skriödalur:
Fundu kuml
Maöur frá Eskifirbi var á ferb í
Skribdal og fann þá gröf sem
hann taldi ab væri kuml. Að sögn
Þórs Magnússonar, þjóðminja-
varbar, fóru Gubrún Kristinsdótt-
ir, minjavörbur á Egilsstöbum, og
Steinunn Kristjánsdóttir safn-
stjóri í gærmorgun að skoba stab-
inn og gera þá rannsókn sem
þyrfti.
Guðrún og Steinunn töldu um-
ræddan staö vera kuml en að sögn
Þórs er þaö skemmt að hluta til af
uppblæstri. „Ég veit ekki nánar
hvers konar kuml þetta er, hvort
þetta er bara mannsgröf en þaö
virðast vera einhver vopn meö
þessu. Einhver hrosstönn á að hafa
sést þarna líka."
Guðrún og Steinunn munu rann-
saka kumlið enn frekar í dag en ekki
náðist í þær í gær til að fá nánari
upplýsingar um þennan fornleifa-
fund. ■
Málþing um málefni þroskaheftra á laugardag.
Bryndís Víglundsdóttir, skólastjóri:
Fólk á ab sýna hvort
öðru virðingu
„Sem betur fer hafa tímarnir
breyst og vibhorfin þróast, þab
er fleira en tölvutæknin sem
þróast. Mabur vonar ab sam-
skipti milli fólks fari batnandi,
þab er þab sem vib reynum ab
vinna fylgi, ab fólk sýni gagn-
kvæma virbingu, líka gagnvart
þroskaheftu fólki," segir Bryn-
dís Víglundsdóttir, skólastjóri
Þroskaþjálfaskóla íslands.
Bryndís segir ab í nútímanum
væri þessi gagnkvæma viröing
almennari en ábur gerbist. Þó
væri þab oft svo ab þeir sem
væru „öbruvísi" hætti til ab
verba fyrir abkasti enn í dag,
þab þurfi ekki annab en ab
börn séu feit eba meb gleraugu
til ab þau verbi fyrir áreiti.
Þroskaþjálfaskólinn heldur
málþing í BSRB-húsinu að Grett-
isgötu 89 og hefst þab kl. 9 á
laugardagsmorguninn meö setn-
ingarræðu Páls Péturssonar fé-
lagsmálaráðherra. Ab málþinginu
standa auk skólans Samtökin
Þroskahjálp og Félag þroska-
þjálfa.
Fjallað verbur um „samstarf,
samkennd og gagnkvæma virð-
ingu. Ný vinnubrögð". Tilgang-
urinn með ráðstefnunni er að
efla skoðanaskipti á milli þeirra
sem á einn eða annan hátt tengj-
ast daglegu lífi fatlaðs einstak-
lings, auk þess að leitaö verður
svara við því hvernig best sé hægt
ab tryggja að fatlaöir njóti rétt-
inda sinna og sjálfstæðis. Ráð-
stefnan er öllum opin.
Við Þroskaþjálfaskóla íslands
eru nú 100 nemendur, þar af
tveir karlmenn. Námið tekur 3 ár
ab loknu stúdentsprófi. Nemend-
anna bíða láglaunastörf. „Því
miður er þab rétt," sagbi Bryndís,
„en hér er hópur af glæsilegu
ungu fólki, sem hugsar hærra en
bara til launanna". ■
Þrátt fyrir harbriandi samkeppni:
Lottóiö alltaf
jafn vinsælt
„Vib erum alveg fullir af sjálfs-
trausti og látum engan bilbug á
okkur finna, enda er Lóttóib al-
vinsælasti leikurinn í öllum
löndum," segir Vilhjálmur Vil-
hjálmsson, framkvæmdastjóri
hjá íslenskri Getspá.
Nýverið hækkaði röðin í laugar-
dagslottóinu úr 40 krónum í 50
krónur. í upphafi Lóttósins í nóv-
ember 1986 kostaði röðin 25 krón-
ur og miöað við þróun vísitölu þá
ætti röðin að kosta 58 krónur. Búið
er að endurnýja sölukerfi Lottósins
fyrir umtalsverða fjármuni og áður
en langt um líður mun verða blásið
til nýrrar sóknar hjá íslenskri Get-
spá. Vilhjálmur verst allra frétta af
því hvab þarna verður um að ræða
að öðru leyti en því að það muni
koma á óvart. Þrátt fyrir sífellt
harðnandi samkeppni á markaðn-
um virðast eignaraðilar Lottósins
hafa haldib sínum hlut, svona
nokkurn veginn.
Samkvæmt ráðstöfun tekjuaf-
gangs 1993-1994 þá nam hlutur
Iþróttasambands íslands alls
194.240 miljónum króna. Árið eftir
fékk ÍSÍ nokkru minna í sinn hlut,
eða 191.020 miljón krónur. Lottó-
tekjur Öryrkjabandalagsins 1993-
1994 námu alls 166.480 miljónir
en 1994-1995 námu þær 163.720
miljónum kr. Þá fékk Ungmenna-
samband íslands í sinn hlut 55.479
miljónir á tímabilinú 1993-1994 og
54.559 miljónir árið eftir. ■
Ráögjöf gerir sam-
komulag vib Reuters
Alþjóða frétta- og upplýsingasam-
steypan Reuters hefur undirritab
samkomulag við Ráðgjöf og efna-
hagsspár í Reykjavík um að hið síb-
arnefnda veröi markaðsfulltrúi fjár-
málaþjónustu Reuters á íslandi.
„Þar sem Reuters rekur ekki eigin
skrifstofu á íslandi, munu Ráðgjöf
og efnahagsspár veita Reuters tafar-
lausa þjónustu hér á landi," segir
Kirsten English, yfirmabur við-
skiptasviðs Reuters í Noregi og á ís-
iandi. ■
Hrólfur fónsson
slökkvilibsstjóri virbist kunna vel
vib sig íþessum gamla bruna-
vagni sem stabsettur var á Hótel
Loftleibum í gœr. Tilefnib var ab
þar fór fram Norrœna brunaráb-
stefnan '95, en á þeirri rábstefnu
eru fluttir yfir 30 fyrirlestrar um
málefni sem eru efst á baugi í
brunamálum. Rábstefnan stendur
fram á fÖStudag. Tímamynd: cs
Snjófló&avarnir í Súðavík
í Tímanum í gáer, 20. septem-
ber, undrast sveitarstjórinn í
Súöavík ummæli mín í sjón-
varpsvibtali mánudaginn 18.
september.
I umræddu viðtali voru lagðar
fyrir mig spurningar um hvab
hefbi verið tekið fyrir á fundi of-
anflóöanefndar fyrr um daginn
og um afgreiðslu þeirra mála.
Þeim spurningum svaraði ég
efnislega og sannleikanum sam-
kvæmt. Framangreindum
spurningum var síðan fylgt eftir
með spurningunni „hvort til
væri fé í ofanflóðasjóði til að
standa undir kostnaði við vam-
ir gegn snjóflóðum í Súðavík
eða kaupum á húsum þar", hvor
kosturinn sem valinn yrbi. Því
var einnig svarað efnislega og
sannleikanum samkvæmt. Ég
tel mér eingöngu heimilt að
greina frá staðreyndum máls,
eins og þær- liggja fyrir þegar
spurt er. Eg tel mér fullkomlega
óheimilt að greina frá hug-
myndum stjórnvalda um aðrar
lausnir fyrr en þær hafa verið
settar fram opinberlega, þannig
að ég lít svo á að ummæli rábu-
neytisstjóra forsætisráðuneytis-
ins á fundi sem ég sat ásamt
sveitarstjóranum á Súðavík, hafi
verið sögb í trúnaði.
Hafi svar mitt um stöðu ofan-
flóðasjóðs til að mæta útgjöld-
um vegna varnarvirkja eba
húsakaupa orðið til þess að
„kvelja hrelldar sálir" eins og
haft er eftir sveitarstjóranum,
þykir mér þab miður og ekkert
er mér jafn fjarri og að vilja auka
áhyggjur þeirra sem búa við
snjóflóðahættu.
I sömu grein, sem byggð er á
athugasemdum sveitarstjórans
við svör mín í téðu sjónvarp-
svibtali, er haft eftir honum að
„vissir embættismenn séu hins
vegar ekki sammála stjórnmála-
mönnum og láti það í ljósi".
Vegna þess sem á undan kom í
umræddu blaðaviðtali má ætla
að hér sé m.a. verið að gera mér
upp skoðun sem ég frábið mér
algjörlega. Ég tel mig hvorki
munnlega né skriflega hafa gef-
ið neitt það til kynna sem túlka
má sem andstöðu eða samstöðu
viö stefnu stjórnvalda á þessu
sviði, enda er mitt hlutverk að
taka efnislega afstöðu til þeirra
verkefna sem hér um ræbir á
grundvelli þeirra laga, reglu-
gerða og annarra stjórnvalds-
ákvarðana sem teknar eru, sjá
um framkvæmd þess sem að Al-
mannavörnum ríkisins snýr og
vera til ráðuneytis eftir því sem
unnt er.
Gudjón Petersen
FORMICA
HARÐPLAST
Formica haröplastiö
er ekki aðeins slitsterkt og
auövelt í meðhöndlun,
heidur áferðarfallegt.
Fœst í hundruðum lita
og munstra.
•w. Einföld og ódýr lausn
ÁRVÍK
ÁRMÚL11 • REYKJAVÍK • SÍMI 568 7222 • MYNDRITI 568 7295