Tíminn - 21.09.1995, Blaðsíða 8

Tíminn - 21.09.1995, Blaðsíða 8
8 mminn Fimmtudagur 21. september 1995 Clinton Bandaríkjafor- seti reynir aö tryggja sér endurkjör á for- setastól meö því oð koma á fribi í Bosníu, en stríösaöilar þar eru enn óstýrUátir A&alástæban til þess a& Bandaríkjastjórn tók frumkvæ&ib aö því a& reyna a& koma á samkomulagi og fri&i me& stríösa&ilum í Bo- sníu er a& líkindum a& Clinton forseti gerir sér vonir um, a& slíkur árangur í utanríkismál- um muni tryggja honum end- urkjör á forsetastól a& ári. Mis- takist þetta, yr&i liti& á þa& sem mikinn ósigur fyrir Clin- ton og gæti þa& jafnvel gert a& engu möguleika hans á endur- kjöri. Me& hli&sjón af þessu má ætla a& stjórn Ciintons muni leggja allt kapp á a& hún hafi erindi sem erfi&i í máli þessu um þa& er lýkur. Richard Holbrooke, a&stobarut- anríkisráðherra Bandaríkjanna um Evrópumál og sérlegum er- indreka Bandaríkjastjórnar til fyrrverandi Júgóslavíu, tókst á dögunum á fundi í Genf að þrýsta utanríkisráðherrum Bosníumúsl- íma, nýju Júgóslavíu (sem hefur. umbob til samninga frá Bosníu- Serbum) og Króatíu til samkomu- lags og síðan til aö takast í hend- ur. Við það voru myndir teknar af ráðherrunum, feimnislegum á svip yfir þessum diplómatísku látalátum. Viðurkenning á Pale- stjórn Samkomulagið er þó þegar þetta er ritað abeins til bráða- birgða og óundirritað. Eitt af mik- ilvægustu atribunum í því er að lýðveldi Bosníu-Serba, með Pale, rétt hjá S’arajevo, sem stjórnarset- ur, er nú í fyrsta sinn viðurkennt af öllum deiluaðilum, þ.á m. Sarajevostjórn Bosníumúslíma. Með þessu virðist viðurkennt að Bosníustríðiö hefur frá upp- hafi staðið m.a. á milli tveggja af þjóðum landsins, múslíma og Serba, og ríkja sem þessar þjóðir stofnuðu. Með viðurkenningunni á Palestjórn er tekið skref frá þeirri afstöðu í illdeilu þessari, sem alþjóðasamfélagib undir for- ystu Vesturlanda tók í upphafi deilunnar, að viðurkenna Saraje- vostjórnina sem hina einu lög- legu stjórn Bosníu allrar og úr- skurða Bosníu-Serba uppreisnar- menn. Ástæða er til að ætla að sú mismunun hafi ekki greitt fyrir friði. Þegar þetta er ritab er hálfur mánuður frá því að loftsókn flug- herja Bandaríkjanna, Bretlands, Frakklands, Þýskalands og Spánar undir fána Nató gegn Bosníu- Serbum hófst. Jafnframt berast fréttir af sókn Bosníumúslíma og Króata í Mib- og Vestur-Bosníu gegn Bosníu-Serbum, að líkind- um með það fyrir augum ab ná vesturhluta landsins úr höndum Serba. Ætla má að sú sókn hafi verið hafin í þeirri trú ab árásir Nató hafi veikt varnir Bosníu- Serba svo mjög ab þeir eigi nú erf- itt með að standast sókn land- hers. Þetta er samkvæmt algengu munstri í hernabi frá því að flug- vélar komu til sögunnar: fyrst er flugher látinn veikja andstæðing- inn og síðan er landherinn send- ur fram. Eitt ríki og þó sund- urskipt Mótsagnakennt má kalla að samtímis því sem Bandaríkin Diplómatísk látalœti í Cenf: Frá vinstri: Miian Milutinovic frá „nýju" júgóslavíu, Holbrooke, Mate Granic frá Króatíu og Muhamed Sacirbey frá Sarajevo- stjórn. og fremst formlegt, þar eð serb- neski hlutinn fái rétt á aö stofna til „sérstaks sambands" við Serb- íu. Þetta var varla hægt að neita Serbum um, þar eð búið er að semja um að múslímsk-króatíski hlutinn myndi einskonar sam- bandsríki með Króatíu. Langþráb takmark - En orðalagið um þetta í Hol- brooke- samkomulagi er óljóst, einkum líklega vegna eindreginn- ar andstöðu Sarajevostjórnar, enda hafa talsmenn hennar síðan sagt að ekki komi til greina að hún samþykki að Bosníu- Serbar myndi sambandsríki með Serbíu. Gera má því ráð fyrir að Sarajevo- stjórn sé ennþá við það heygarðs- horn aö reyna ab ná yfirráðum í Bosníu allri. Með loftsókn Nató kann hún ab gera sér vonir um að langþráð takmark hennar, ab fá Vesturlönd alfarið í stríðið með sér, sé að rætast, og undir þeim kringumstæðum sér hún kannski ekki mikla ástæðu til eftirgjafar. Loftsóknin gæti því orðið vopn, sem snerist í höndum þeirra Clin- tons og Holbrookes. í Holbrooke-samkomulagi er gert ráð fyrir að Bosníu-Serbar fái tæpan helming landsins, en fyrir stríð voru þeir í meirihluta á rúm- um helmingi þess. En horfurnar á því að þeir sætti sig við tillögur Holbrookes eru vaxandi, enda allmjög að þeim kreppt í stríðinu og Serbía leggur að þeim að gefa eftir. Bosníumúslímar og Króatar, sem hafa Vesturlönd og íslams- heim á bak við sig, standa betur að vígi á 'alþjóðavettvangi en Serbar, með gervirisaveldið Rúss- land sem helsta stuðningsaðila. Sarajevostjórn kynni því með kröfuhörku og herna&araðgerð- um aö verba þeim Clinton og Holbrooke erfiðasti þrándurinn í götunni til friöarsamnings í Bo- sníu. Holbrooke er nú sagbur hafa slegið því fram ab að Nató og Rússland ættu ab taka við friöar- gæslu þarlendis af S.þ. og vera kann að með því sé Bandaríkja- stjórn að hræða múslíma og Kró- ata til eftirgjafar. Aukin hlutdeild Rússa í taflinu á Balkanskaga er áreiðanlega eitt af því sem stjórn- irnar í Sarajevo og Zagreb síst óska sér. ■ Þýskir flugherfQríngjar á Italíu, en frá flugvöllum þaban og flugvélamóöurskipum á Adríahafi herjar flugher Nató á Bosníu-Serba. Um forsetastól- inn ab tefla þrýsta Króötum og Bosníumúsl- ímum til viðurkenningar á Pale- stjórn og í áttina ab samkomulagi við hana skuli þau standa fyrir nýnefndum stórfelldum hernað- araðgeröum Nató til stuðnings Sarajevostjórn. Vesturlönd hafa í stríði þessu verið að vissu marki Bosníumúslíma megin, og með loftsókninni er stigið drjúgt skref til fullrar stríbshlutdeildar þeirra við hlið Sarajevostjórnar. Þetta er gert á þeim forsendum af hálfu Vesturlanda að Bosníu-Serbar séu árásaraðili, en Bosníumúslímar BAKSVIÐ DAGUR ÞORLEIFSSON fórnarlömb. Þar með er snibgeng- in sú staðreynd, að hér er um að ræða tvo aðila sem eiga í stríbi hvor við annan og reyna þaraf- leibandi eftir bestu getu a& klekkja hvor á öðrum, báðir jafnt. Bosníumúslímar hafa t.d. notað svokölluð griðasvæði Sameinubu þjóðanna, þ.á m. Sarajevo, til árása á Bosníu-Serba. Flytji Bo- sníu-Serbar stórskotalið sitt frá Sarajevo, eins og Nató krefst, þýð- ir það ab hernaðarabstaba þeirra veikist og að serbnesk hverfi og staðir í Sarajevo og nágrenni komast í aukna hættu af völdum múslíma. Samkvæmt Holbrooke-sam- komulagi á Bosnía að verða eitt ríki áfram og þó skipt í tvennt, í múslímsk- króatískan hluta og serbneskan. Þab virðist liggja í loftinu að vald mibstjórnar Bo- sníu verði samkvæmt þessu fyrst

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.