Tíminn - 21.09.1995, Blaðsíða 11

Tíminn - 21.09.1995, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 21. september 1995 11 Leonardo da Vinci, Frakk- land og tötra- marxismi Leonardo da Vinci: Der Nussbaum im Campanile. Deutscher Taschenbuch Ver- lag 1991. Kurt R! Eissler: Leonardo da Vinci. Psyc- hoanalytischen Notizen zu einem Ratsel. Band I. Text — Band II. Abbildungen. DeutscherTaschenbuch Verlag 1994. Gordon Wright: France in Modern Tim- es. From the Enlightenment to the Pre- sent. Fifth Edition. W.W. Norton 1995. Leonardo da Vinci er flestum kunnuglegt nafn. Hann var list- málari; þótt aðeins hafi varðveist 17 málverk eftir hann, þá er ágæti þeirra í öfugu hlutfalli við magnið. Hann var myndhöggv- ari, verkfræðingur og uppfinn- ingamaður og honum var fæst mannlegt óviðkomandi. Fundist hafa 3400 þéttskrifaðar skrifark- ir, dagbækur, athugasemdir, uppdrættir, hugrenningar, fabúl- ur og ævintýri. Meðal þeirra eru þessar dýra- sögur ásamt dæmisögum og fa- búlum. í lok þessa kvers eru spá- dómar Leonardos, sem eru mjög sérstæöir og vekja undrun eins og flest það sem hann festi á blað. Rit og ritgerðir um verk þessa furðumanns eru óteljandi og það sem veldur stöðugri end- urskoðun m.a. er að öðru hverju finnast blöð og teikningar eftir hann í söfnum eða einkasöfnum. Eitt er einkenni minnisgreina og samantekta Leonardos, hann vandaði til alls sem hann setti saman og því er hvert blað merkilegt. Meðal þeirra manna, sem hrif- ust af Leonardo, var Freud. Hann skrifaöi um hann rit, sem áhang- endur Freuds telja eitt mesta snilldarverk hans hvab stíl og skarpleika í útlistunum snertir, en ritgerðin fjallar um bernsku- minningu Leonardos, sem varð tilefni til myndarinnar „Leda og svanurinn", alkunnug sögn úr grískri gobafræði. Eissler skrifar rúml. 300 síðna ritverk um efnib og umfjöllun Freuds um bernskuminningu Le- onardos og _ grísku goðsög- una. Leda og svanurinn er vel þekkt efni í ljóð- um margra skálda og efni í verkum mynd- listarmanna. Frummynd Leon- ardos er glötuð, en til er eftir- mynd. Myndir, sem snerta efni ritgerðarinnar, eru í öðru bind- inu. Útlistanir Eisslers eru ab hætti freudista, kynferöislegar útlistan- ir úr frumbernsku Leonardos og þar telur Eissler sig finna kveikj- una að listsnilld Leonardos. Verk Eisslers er dæmigerö aðferð freudista til þess sem þeir nefna útlistun og útskýringu á mótun og sálarlífi homo sapiens. Gordon Wright er kunnur sagn- fræðingur og fyrrverandi forseti Bandarísku sagnfræbistofnunar- innar og Samtaka um rannsóknir franskrar sögu. Hann er afkasta- mikill höfundur og hefur skrifað merkar bækur um franska sögu. Þessi bók hans kom fyrst út 1960 og hefur nú komiö í fimm endur- skoðuðum útgáfum. Sjálfsmynd Leonardos á gamals aldri. Saga Frakklands er jafnframt saga Evrópu, frönsk áhrif á gang mála í Evrópu og evrópska menningu eru markandi s.l. 3- 400 ár. Frönsk tunga var alþjóða- mál eftir að latínunni sleppti og _______________ franskar bók- BÆKUR SIGLAUGUR BRYNLEIFSSON menntir mót- uðu bók- menntasmekk Evrópuþjóð- anna fram á síðasta hluta 18. aldar frá því á miðöldum. Og á 19. og 20. öld voru margir snjöllustu höfundar Evrópu franskir. Skynsemisstefnan og franska stjórnarbyltingin mótuðu stjórn- arhætti Evrópuþjóðanna. Saga þessa ríkis er rakin af Wright frá og með frönsku stjórnarbyltingunni og allt fram á síöasta áratug 20. aldar. Lengi vel mótuðu marxískir sagnfræð- ingar umfjöllun um þýðingar- mestu þætti og atburði franskrar sögu, en þegar kom fram á síðari hluta þessarar aldar dvínuðu áhrif þeirra jafnt og þétt. Einsýni þeirra og kreddufesta afskræmdi franska sögu, pólitísk skoðana- festa þeirra mótaði mat þeirra og útlistun, svo að útkoman varð sú, að allir þýbingarmestu at- burbir tveggja alda sögu voru áfangi til fullkomnunar sameign- arríkisins undir merkjum vís- indalegs sósíalisma. En allt þetta spilverk hrundi á einni nóttu. Reyndar var tekib að kvistast úr kenningakerfinu ábur en allt hrundi, margir gáfuðustu sagn- fræðingar Frakka neituðu að vera ginningarfífl lyga og áróðurs. Gordon Wright segir hér sögu tvöhundruð ára samkvæmt sögulegri rannsóknaraðferð sem byggir á staðreyndum heimild- anna. Kaflarnir um byltingarnar 1830 og 1848 stangast héldur en ekki á vib útlistun þeirra atburða í marxískum sagnfræðiritum, hvað þá í kennslubókum sem ís- lenskum skólanemendum eru ætlaðar og sem eru skrifaðar í anda norsk-marxískrar tötra- sagnfræði. Sami tötramarxism- inn einkennir ekki síður kennslubækur í íslandssögu, sem ætlaðar eru nemendum grunn- skólans ásamt þýddri sænskri mannkynssögubók auk enn meiri útþynningar eftir innlend- an höfund. Fyrir nokkrum misserum fengu íslendingar að sjá á sjón- varpsskjánum útvalin dæmi um íslandssöguna í afskræmingar- formi marxískrar söguskoðunar. í þeim stíl eru kennslubækur sem nú eru notaðar til íslandssögu- kennslu. Bók Gordons Wright er rúmar 500 blaðsíður í stóru broti. DAGBOK Fimmtudaqur 21 september X 264. dagur ársins -101 dagur eftir. 38. vika Sólris kl. 07.06 sólarlag kl. 19.34 Dagurinn styttist um 7 mínutur Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni Haustlitaferð á Þingvöll kl. 13 á morgun. Miðapantanir á skrif- stofu félagsins. Gjábakki, Fannborg 8 Námskeiðin, sem í boði eru fram að áramótum í Gjábakka, verða kynnt í dag, fimmtudag. Kynningin hefst kl. 14 og inn- ritaö á námskeiðin milli kl. 14 og 16. Heitt á könnunni. Hjólab nibur Fossvogs- dal og út á Nes Áhugahópur um hjólreiðar á höfuðborgarsvæðinu stendur fyrir hjólreiðaferb niður Foss- vogsdal og út á Seltjarnarnes í kvöld, fimmtudaginn 21. sept-. Öllum er velkomið að taka þátt í ferðinni. Mæting við Fákshús- in vib Reykjanesbraut. Hægt verður að koma í feröina við Skógræktarhliðið kl. 20.15 og við Skeljung kl. 20.30. Hjólab verður um Eiöistorg og niður á Miðbakka. Hjólreiðaferbin tek- ur um eina klukkustund. Ferbafélag íslands Laugardagur 23. sept. kl. 08: Hekluslóðir (árbókarferð). Öku- ferð með léttum göngum. Litast um í Hraunteigi (haustlitir), Næfurholti, Haukadal og á fal- legum slóbum bak við Bjólfell sem fáir hafa kynnst. Brottför frá BSÍ, austanmegin, og Mörk- inni 6. Munið helgarferðirnar 23.-24. sept.: Þórsmörk í haustlitum og Gljúfurleit-Þjórsárdalur (haust- litir). Brottför laugard. kl. 08. Farmibar á skrifstofunni. Sunnudagsferbir 24. sept.: Kl. 10.30 Hrafnabjörg; kl. 13 Þing- vellir, eyðibýli (haustlitir) og gönguferb á Kvígindisfell. Tanja tatarastelpa í Ævintýra-Kringlunni Tanja tatarastelpa skemmtir í Ævintýra-Kringlunni, á 3. hæb í Kringlunni, kl. 17 í dag, fimmtudag. Tanja tatarastelpa hefur áður komið í heimsókn í Ævintýra-Kringluna og hefur frá ýmsu að segja. Líf tataranna er að flestu leyti frábrugðið lífi ís- lendinga, en í leikþættinum fá börnin að skyggnast inn í heim Tönju og fjölskyldu hennar. Tanja tatarastelpa er leikin af Ólöfu Sverrisdóttur leikkonu. Ævintýra-Kringlan er opin virka daga frá kl. 14 til 18.30 og laugardaga frá kl. 10 til 16. Leikfélag Reykjavíkur frumsýnir: Hvab dreymdi þig, Va- lentína? Leikfélag Reykjavíkur frum- sýnir sunnudagskvöldið 24. september á litla sviðinu leikrit- ið „Hvaö dreymdi þig, Valent- ína?" eftir Ljúdmílu Raz- umovskaju. Leikrit hennar, „Kæra Jelena", var sýnt við miklar vinsældir í Þjóðleikhús- inu fyrir nokkrum árum. Leikritið segir frá þremur mæðgum sem búa saman við mikil þrengsli. Það gerist um 1980 á sautján ára afmælisdegi Ljúbu. Móbir hennar Valentína og amma Nína eru í miðjum klíðum að undirbúa afmælis- veisluna, þegar óvænt uppá- koma setur strik í reikninginn og breytir afmælisdeginum í hálfgeröa martröð. Höfundurinn kallar leikrit sitt gamanleik, enda skiptast á skin og skúrir líkt og í lífinu sjálfu. íslenska þýðingu gerbi Árni Bergmann, leikmynd gerir Steinþór Sigurðsson, búninga Stefanía Adolfsdóttir, lýsingu annast Elfar Bjarnason og leik- stjóri er Hlín Agnarsdóttir. Leikarar eru: Sigrún Edda Björnsdóttir, Ásta Arnardóttir og Guðrún Ásmundsdóttir, og má geta þess að Guðrún á 40 ára leikafmæli um þessar mundir. TIL HAMINGJU Þann 29. júlí 1995 voru gefin saman í Áskirkju af séra Bjarna Þór Bjarnasyni, þau Gubbjörg Sólveig Sigurbardóttir og Þor- steinn Þorsteinsson. Heimili þeirra er ab Kveldúlfsgötu 26, Borgarnesi. Ljósmyndast. Sigríðar Bachmann APÓTEK Kvöld-, nætur- og helgidagavarsla apóteka I Reykjavík frá 15. tll 21. september er I Árbæjar apótekl og Laugarnes apóteki. Það apótek sem fyrr er nefnt ann- ast eltt vörsluna frá kl. 22.00 að kvöldl tll kl. 9.00 að morgnl vlrka daga en kl. 22.00 á sunnudögum. Upplýs- Ingar um læknls- og lyfjaþjónustu eru gefnar f sfma Neyðarvakt Tannlæknafélags Islands er starfrækt um helgar og á stórhátíðum. Simsvari 681041. Hafnarfjörðun Hafnarfjaróar apótek og Norðurbæjar apó- tek eru opfn á vfrkum dögum frá kl. 9.00-18.30 og til skiptis annan hvern laugardag kl. 10.00-13.00 og sunnudag kl. 10.00-12.00. Upplýsingar í símsvara nr. 51600. Akureyrl: Akureyrar apótek og Stjömu apótek eru opin virka daga á opnunartíma buða. Apótekin skiptast á sina vikuna hvort aó sinna kvöld-, nætur- og helgidagavörslu. Á kvöldin er opiö í því apóteki sem sér um þessa vörslu, 61 kl. 19.00. Á helgidögum er opió frá kl. 11.00- 12.00 og 20.00- 21.00. Á öðrum tímum er lyfjafræðingur á bakvakt. Upplýs- ingar eru gefnar í sima 22445. Apótek Keflavfkun Opið virka daga frá kl. 9.00-19.00. Laugard., helgidaga og almenna frídaga kl. 10.00-12.00. Apótek Vestmannaeyja: Opið virka daga frá kl. 8.00- 18.00. Lokað í hádeginu milli kl. 12.30-14.00. Selfoss: Selfoss apótek er opið til kl. 18.30. Opið er á laug- ardögum og sunnudögum kl. 10.00-12.00. Akranes: Apótek bæjarins er opið virka daga 61 kl. 18.30. Á laugard. kl. 10.00-13.00 og sunnud. kl. 13.00-14.00. Garðabær: Apótekið er opiö rumhelga daga kl. 9.00- 18.30, en laugardaga kl. 11.00-14.00. ALMANNATRYGGINGAR 1. sept. 1995 Mánabárgreiöslur Elli/örorkulífeyrir (grunnlífeyrir) 12.921 1/2 hjónalífeyrir 11.629 Full tekjutrygging ellilíTeyrisþega 23.773 Full tekjutrygging örorkulrfeyrisþega 24.439 Heimilisuppbót 8.081 Sérstök heimilisuppbót 5.559 Bensínstyrkur 4.317 Bamalífeyrir v/1 bams 10.794 Meölag v/1 bams 10.794 Mæöralaun/feöralaun v/1 barns 1.048 Mæöralaun/feöralaun v/ 2ja barna 5.240 Mæöralaun/feöralaun v/ 3ja barna eöa fleiri 11.318 Ekkjubætur/ekkilsbætur 6 mánaöa 16.190 Ekkjubætur/ekkilsbætur 12 mánaöa 12.139 Fullur ekkjulífeyrir 12.921 Dánarbætur í 8 ár (v/ slysa) 16.190 Fæöingarstyrkur 26.294 Vasapeningar vistmanna 10.658 Vasapeningar v/ sjúkratrygginga 10.658 Daggrei&slur Fullir fæöingardagpeningar 1.102,00 Sjúkradagpeningar einstaklings 552,00 Sjúkradagp. fyrir hvert barn á framfæri 150,00 Slysadagpeningar einstaklings 698,00 Slysadagpeningar fyrir hvert bam á framfæri 150,00 Vakin er athygli á því aö frá og meö 1. september er bensín- styrkur staögreiösluskyldur. í júlí var greidd 26% uppbót á fjárhæöir tekjutiyggingar, heimilisuppbótar og sérstaka heimilisuppbót vegna launa- bóta og í ágúst var greidd á þessar fjárhæöir 20% uppbót vegna orlofsuppbótar. Engar slikar uppbætur eru greiddar i september og eru því þessar fjárhæöir lægri í september en fyrrgreinda mánuöi. GENGISSKRÁNING 20. sept. 1995 kl. 10,52 Opinb. Kaup viðm.gengi Sala Gengi skr.fundar Bandarikjadollar 66,24 66,42 66,33 Sterlingspund 102,44 102,72 102,58 48,70 48,90 11,573 48,80 11,554 Dönsk króna ....11,535 Norsk króna ... 10,221 10,255 10,238 Sænsk króna 9,365 9,397 9,381 Finnskt mark ....14,981 15,031 15,006 Franskur franki ....12,982 13,026 13,004 Belgiskur franki ....2,1691 2,1765 2,1728 Svissneskur franki. 55,14 55,32 55,23 Hollenskt gyllini 39,86 40,00 39,93 Þýskt mark 44,66 44,78 44,72 itölsk líra ..0,04111 0,04129 0,04120 Austurrískur sch 6,346 6,370 6,358 Portúg. escudo ....0,4285 0,4303 0,4294 Spánskur peseti ....0,5218 0,5240 0,5229 Japansktyen ....0,6385 0,6405 0,6395 írsktpund ....104,62 105,06 104,84 Sérst. dráttarr 97,08 97,46 97,27 ECU-Evrópumynt.... 83,64 83,92 83,78 Grísk drakma ,...0,2778 0,2787 0,2782 BÍLALEIGA AKUREYRAR MEÐ ÚTIBÚ ALLT í KRINGUM LANDIÐ MUNIÐ ÓDÝRU HELG ARPAKK AN A OKKAR REYKJAVÍK 568-6915 AKUREYRI 461-3000 PÖNTUM BÍLA ERLENDIS interRent Europcar

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.