Tíminn - 21.10.1995, Page 5

Tíminn - 21.10.1995, Page 5
Laugardagur 21. október 1995 dmÍHIt FJÁRMÁL HEIMILANNA 5 mn og starfskjör í þjóðfélaginu nær 15% á samningstímanum. í mörgum kjarasamningum sem gerðir hafa verið frá því í febrúar sl. bæði á almennum og opinberum markaði hafa kauptaxtar hækkab um prósentutölu. Nefna má nokkra kjarasamninga á almennum vinnu- markaði þar sem ekki var samið um krónutöluhækkun: - Flugfreyjur gerðu kjarasamning í lok apríl sem talið er aö hækki laun um ríflega 9%, en hluti hækk- unarinnar, 2,7%, er vegna aukinnar vinnuskyldu og er ráðstafab í lífeyr- issjób. - Ab teknu tilliti til breytinga á orlofstímabili leiddi kjarasamning- ur mjólkurfræöinga, sem gerður var fyrri hluta maímánaðar til 7% launahækkunar. Frá 1. maí hækk- uðu laun um 4,4% og um 2,5% 1. janúar nk. - Bílstjórafélagið Sleipnir skrifaði undir kjarasamning við viðsemj- endur sína í lok maí um allt að 20% launahækkun á samningstím- anum. - í byrjun júní sömdu banka- menn um 8,5% hækkun launa sem kemur í þremur áföngum, 3,3% 1. apríl, 1% 1. júní og 3,7% í janúar nk. - Kjarasamningur starfsmanna ís- lenska álfélagsins, sem gerður var seinni hluta júnímánaðar, er talinn leiöa til 11,4% launahækkunar á samningstímanum. Við undirskrift hækkuðu laun um 3,2% og aftur um 3% 1. janúar nk., en einnig fela samningarnir í sér flokkatilfærslur. - Launahækkun til félaga í Far- manna- og fiskimannasambandi íslands er talin nema um 11-11'% á samningstímanum. Við undirskrift hækkubu laun um 5,5%, 1,4% hækkun varð í júní og 1% í septem- ber og loks eiga laun að hækka um 3% í janúar nk. Sérstök eingreiðsla 12.000 krónur verður greidd í lok samningstímans. - Kjarasamningar flugmanna frá júlí sl. kveða á um ríflega 10% hækkun í heild, 7% hækkun launa strax og 3% í upphafi næsta árs. Á móti kemur ýmis hagræbing og er talið ab kostnaðarauki vinnuveit- enda verði 6,5%. Frá febrúar til ársloka hafði fjár- málaráðuneytiö samið við nær 40 samtök opinberra starfsmanna og fjölda stéttarfélaga á hinum al- menna vinnumarkaði fyrir hönd félagsmanna semstarfa hjá ríkinu. í flestum tilvikum kveða þessir samningar á um prósentuhækkun en ekki krónutöluhækkun. Raunar má segja að í nærfellt öllum samn- ingum sem gerðir hafa verið frá júní sl. hafi laun hækkað um pró- sentur en ekki krónutölu. Hér verða nefndir nokkrir kjarasamningar sem fjármálaráðuneytið hefur gert, en meðfylgjandi mat á launahækk- un er samkvæmt upplýsingum ráöuneytisins. - f samningi stærsta aðildasam- bands BSRB, Starfsmannafélags rík- isstofnana, sem gerður var í apríl sl., er kveðið á um krónutöluhækk- un að hætti samninga á almennum vinnumarkaði, en jafnframt er í samningnum að finna ákvæði um flokkatilfærslur þannig að hann hefur í för með sér u.þ.b. 10% launahækkun. Vegna ákvæða í samningunum um víðtæk nám- skeiö til félaga í SFR er útgjaldaauki ríkisins af samningnum enn meiri. - Af samningum annarra félaga innan BSRB má nefna samnninga símamanna sem fólu í sér rúmlega 10% launahækkun á samningstím- anum og byggja á krónutöluhækk- un og flokkatilfærslum. Kjarasamn- ingur Póstmannafélags Islands er með svipuðu sniði og er metin til tæplega 10% launahækkunar. Kjarasamningar Starfsmannafélags ríkisútvarps/sjónvarps fela í sér um 9% launahækkun í heild og gera ráð fyrir 3,45% hækkun við undir- ritun en krónutöluhækkun um ára- mót. - Samningar viö kennarafélögin og BHMR fela í sér sömu prósentu- breytingu á alla taxta. Kennara- samningarnir eru taldir fela í sér allt að 20% launahækkun, þótt á móti komi breytingar á vinnufram- lagi, sem gætu numið 3-4%. - Þeir kjarasamningar sem gerðir hafa veirð við aðildarfélög innan BHMR, önnur en HÍK, virðast fela í sér 8- 10% hækkun á samningstím- anum í heild. Laun hækka um 2,5- 3% við undirskrift og um 3% í janúar, auk þess verða flokkatil- færslur í september og í mars á næsta ári. - Félag háskólakennara er eitt stærsta aðildarfélag BHMR. Það gerði kjarasamning við fjármála- ráðuneytið í ágústlok sem talinn er fela í sér tæplega 10,5% launa- hækkun á samningstímanum. í samningnum er nýtt ákvæbi um lágmarkslaunagreiðslur á ársgrund- velli. - Af öðrum samningum BHMR má nefna að Kjarafélag viðskipta- og hagfræöinga er talið fá 7'% á samningstímabilinu í sínum samn- ingi og Félag háskólamenntaðra starfsmanna stjórnarráðs 8'%. - Kjarasamningu Læknafélags ís- lands, f.h. lausráðinna sjúkrahús- lækna, hefur verib metinn ígildi tæplega 18% hækkunar. Hluta hækkunarinnar má rekja til þess að bílastyrkur er tekinn inn í laun. - Fjölmargir félagar í almennum stéttarfélögum vinna hjá ríkinu og gerir fjármálaráðuneytið samning við mörg félög á almennum vinnu- markaði. Niðurstöður þeirra smninga hafa verið aörar en í samningunum í febrúar. Meðal þessara samninga má nefna samn- inga iðnaðarmanna, Sóknar o.fl. í samningum Rafiðnaðarsambands- ins við fjármálaráðuneytið felast prósentuhækkanir, en ekki blanda prósentu- og krónutöluhækkunar eins og það samdi um á almennum vinnumarkaði. Kjarasamningar við Starfsmannafélagið Sókn er talin leiða til 15% hækkunar á samn- ingstímanum. - Ýmis ákvæði sem skiptu litlu eða engu máli á almenna vinnu- markaðnum hafa í för með sér um- talsverðar launahækkanir á opin- bera markabnum. Þetta á sérstak- lega við um kjarasamnninga Sam- iðnar við fjármálaráðuneytiö, en kjarni samnings þeirra á almennum markaði var að færa ýmis konar álag inn í kauptaxta og færa hann jafnframt nær greiddu kaupi. Á móti þessu komu ýmsar tilslakanir, s.s. breyting flutningslínu o.fl. at- riði sem ekki var tekið tillit til í samningum við ríkið. Tekjuáhrif af þessu eru miklu meiri gagnvart rík- inu og nema í einhverjum tilvikum allt að 20%. ■ Power Macintosh 5200 Allt í einu! Power Macintosh 5200 er fyrsta tölvan með hinum gríðariega öfluga PowerPC - örgjörva sem ætluð er til hefðbundinnar skrifstofu- eða heimilisvinnslu. Hún býr yfir miklu afli sem nýtist vel við t.d. maigmiðlun. Hönnunin er mjög sénstök þar sem skjárinn er sambyggður sjálfri tölvunni. Hún er með innbyggðu fjórhraða geisladrifi, tvíóma hátölurum, getur spilað lifandi myndir og hljóð í geislaspilaragæðum og hefúr einnig möguleika á því að vinna beint með DOS - eða Windows - skjöl. Auk þess er hægt að bæta við sjónvarpsmóttakara eða tengja tölvuna beint við net og ýmsan jaðarbúnað. PowerMacintosh’ Power Macintosh 5200 8/500 cd Tilboðsverð aöeins: Það sem fylgir tölvunni: Örgjörvi: PowerPC 603 RISC Ttftíðni: 75 megarið Vinnsluminni: 8 Mb Skjáminni: lMbDRAM Harðdiskur: 500 Mb Geisladrif: Apple CD600Í (fjórbraða) Hátalarar: Innbyggðir tvíóma hátalarar Skjár: SambyggðurApple 15"MultiScan Diskadrif: 3,5" les Mac og Pc -diska Hnappaborð: Apple Design Keyboard Stýrikerfi: System 7.5.1 sem að sjálfsögðu er allt á íslensku Hugbúnaður: Hið fjölhæfa Clariáfforks 3.0 semeinnigeráíslensku. f forritinu er ritvinnsla, töflureiknir, tvö teikniforrit, gagnagrunnur og samskiptaforrit Fjórir leikir fylgja: Amazing Animation, Sammýs Science House, ThinkinThings og Spectre Supreme Tölvunni fylgja 3 geisladiskar: Grolier: Alfœðisafn, scm er í 35 bindum þegar það er gefið út á prenti Leonardo: Maigvíslegar upplýsingar um Leonardo daVinci Rosetta Stone: TUngumálakennsla, sem kennir ensku, frönsku, spaaisku og þýsku Dæmi um stækkunarmöguleika: Sjónvarpsspjald: Mótald: Vinnsluminni: Jaðartæki: Nettenging: Ef það er tengt við loftnet þá er hægt að horfá á sjónvarp í tölvunni Til að tengjast á Intemet og nálgast þar óendanlegar upplýsingar, baái til skemmtunar og fróðleiks Innra minni tölvunnar má auka í allt að 64 Mb Við SCSI-tengið er hægt að tengja 6 tæki samtímis, t.d. skanna og harðdiska Allar Macintosh-tölvur eru með innbyggt LocalTalk-tengi, en auk þess má bætaviðEthemet 159.900 kr. Afborgunarverð 168.316 kr. /■ •.Apple-umboðið Apple-umboðid • Skipbolli2l • Sími 511 5111 Heimasíðan: bltpHlwwui. apple. is

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.