Tíminn - 21.10.1995, Side 8
8
flflHllW FJÁRMÁL HEIMILANNA
Laugardagur 21. október 1995
Kaupmáttur greidds tímakaups í dagvinnu jókst um 2,2% á 2. ársfj. 1994 til sama tíma
1995. Algengustu launahœkkanir 3-9%. Kjararannsóknarnefnd:
Kaupmáttur mánaðartekna
verkafólks jókst um 3,4%
Greitt tímakaup í dagvinnu
hjá Iandverkafólki innan
ASÍ hækkaði um 3,5% frá 2.
ársfjórðungi 1994 til 2. árs-
fjórðungs 1995. Á sama
tímabili hækkaði vísitala
neysluverös um 1,3%, þann-
ig aö kaupmáttur greidds
tímakaups í dagvinnu jókst
um 2,2%. Þetta er meðal þess
sem fram kemur í niðurstöð-
um kjarakönnunar Kjara-
rannsóknarnefndar.
Þar kemur einnig fram að al-
gengustu launahækkanir hjá
landverkafólki innan ASÍ voru
á bilinu 3-9%. Meðalmaður-
inn fékk 5-6% hækkun; al-
gengasta hækkunin var hins-
vegar 3%, en hana fengu alls
10% launafólks. Aftur á móti
var algengasta hækkun verka-
fólks og afgreiðslukvenna um
6%, en hjá öðmm stéttum um
2-3%.
Mánaðartekjur landverka-
fólks innan ASÍ í fullu starfi
hækkuðu um 4,7% frá 2. ársfj.
1994 og kaupmáttur ráöstöf-
unartekna jókst því um 3,4%.
Mánaðarlaun hækkuðu í öll-
um hópum, en þó mest hjá
verkafólki og afgreiðslukon-
um. Á tímabilinu lengdist
vinnuvikan lítillega, eða úr
46,7 klst. í 47 klst. Mestar
breytingar urðu þó á vinnu-
tíma verkakarla og afgreiðslu-.
kvenna, en vinnuvika þeirra
lengdist um 0,8 og 0,4 stundir.
Endursöluaðilar:
""T-ræknival SðmocviroeKNiS tít <Q>
_________■■ir.— nyherji
OPIN KERFI HF
BOÐBND ©
REIKNISTOFA LVUTÆKI
VESTFJARÐA
ert stöðvar þig
Tími minnistaps er liðinn. Nú getur þú nýtt allt það minni sem tölvan þín hefur
- og í nýjum víddum.
Windows 95 er heimsviðburður á tölvumarkaði:
Einfaldara • þægilegra • hraðvirkara • traustara • fjölhæfara.
Með nettengibúnaði fyrir alnet og fjölda af nýjum
frábærum hjálparforritum og möguleikum.
Ekkert forrit hefur verið reynsluprófað af
jafn mörgum, jafn víðtækt og i jafn langan tíma.
EINAR j. SKULASON HF
Grensásvegi 10, Sími 563 3000
Umboðsaðili fyrir Microsoft á íslandi
Vinnutími annarra stétta
breyttist lítið.
Samkvæmt úrtaki nefndar-
innar hækkaði tímakaup lægst
launuðu hópanna mest á
tímabilinu. Þannig hækkaði
greitt tímakaup verkafólks og
afgreiðslukvenna að meðaltali
um 5- 5,8% á tímabilinu, en
skrifstofukvenna, afgreiðslu-
karla og iðnaðarmanna hækk-
aði að meðaltali um 1,4-2,3%.
Greitt tímakaup skrifstofu-
karla hækkaði hinsve^gar um
0,2% að meðaltali. í úrtaki
nefndarinnar eru skrifstofu-
fólk og afgreiðslukarlar
minnstu hóparnir og launa-
munur innan þeirra því mest-
ur. Kjararannsóknarnefnd tel-
ur því að úrtakssveiflur hafi
mikil áhrif á niðurstöður þess-
ara hópa.
Samkvæmt kjarasamning-
um aðila vinnumarkaðarins í
febrúar sl., hækkuðu allir
kauptaxtar í lok þess mánaðar
um 2.700 kr. á mánuði. Að
auki hækkuöu laun undir 84
þús. kr. sérstaklega um allt að
eitt þúsund krónur eftir
ákveðnum „reiknireglum",
eins og segir í frétt frá Kjara-
rannsóknarnefnd. Vegna þess
aö um krónutöluhækkun var
að ræða, þá var hlutfallsleg
hækkun mest á lægstu kaup-
töxtum, sem síðan stigminnk-
ar eftir því sem taxtarnir eru
hærri. í samningunum mátu
menn hækkunina um 3,6% á
meðallaun. -grh
Leiöbeiningastöö um
fjármál heimilanna:
Ráögjöf fyrir
pá sem eiga
í miklum
vanda
Stefnt er að því að Leiðbein-
ingastöð um fjármál heimil-
anna taki til starfa um næstu
áramót. Leiðbeiningastöðin
er tilraunaverkefni til tveggja
ára á vegum félagsmálaráðu-
neytisins. Viðfangsefni henn-
ar er fyrst og fremst að að-
stoða fólk sem á í verulegum
greiösluerfiðleikum og er
komið í þrot með fjármál sín.
Árni Gunnarsson, aðstoöar-
maður félagsmálaráðherra, seg-
ir að áfram sé gert ráð fyrir að
þungamiðja fjármálaráðgjafar
verði hjá innlánsstofnunum og
Húsnæðisstofnun, en hægt
verði að vísa þeim, sem ekki fá
úrlausn sinna mála þar, til Leið-
beiningastöðvarinnar. Starf-
semin muni felast í því að
hjálpa fólki að fá yfirsýn yfir
stöðu mála, veita því hjálp við
gerð greiðsluáætlana, velja úr-
ræði og semja við lánardrottna.
Árni segir að fjöldi fólks leiti til
ráðuneytisins í viku hverri
vegna alvarlegra fjárhagsvand-
ræða.
Til lengri tíma litiö er ætlun-
in að eitt meginmarkmið Leið-
beiningastöðvarinnar verði að
veita fræðslu um fjármál heim-
ilanna, jafnframt því sem
henni er ætlað að veita lána-
stofnunum aðhald og standa
vörð um réttindi skuldara.
Félagsmálaráðuneytið er í
viöræðum við 15 aðila um þátt-
töku í verkefninu. Þar á meðal
em ASÍ, BSRB, Húsnæðisstofn-
un, Bændasamtökin, Neyt-
endasamtökin, Þjóökirkjan,
bankar og sparisjóðir. Tillagan
hefur fengið góðar viðtökur hjá
þeim aðilum sem rætt hefur
verib við. - GBK