Tíminn - 02.11.1995, Blaðsíða 4

Tíminn - 02.11.1995, Blaðsíða 4
4 Fimmtudagur 2. nóvember 1995 Hmémi STOFNAÐUR 1 7. MARS 1 91 7 Útgáfufélag: Tímamót hf. Ritstjóri: Jón Kristjánsson Ritstjórnarfulltrúi: Oddur Olafsson Fréttastjóri: Birgir Gubmundsson Ritstjórn og auglýsingar: Brautarholti 1, 105 Reykjavík Sími: 563 1600 Símbréf: 55 16270 Pósthólf 5210, 125 Reykjavík Setning og umbrot: Tæknideild Tímans Mynda-, plötugerb/prentun: ísafoldarprentsmibja hf. Mánabaráskrift 1550 kr. m/vsk. Verb í lausasölu 150 kr. m/vsk. Þjóð o g þjóðir Ekki er sjálfgefið að Kanada verði eitt og óklofið ríki í framtíðinni, þótt aðskilnaöarsinnar hafi orðið undir í kosningunum í Quebec s.l. mánudag. Svo mjótt er á mununum að baráttunni fyrir aðskilnaði verður haldið áfram af enn meiri krafti en hingað til, og heita frönskumælandi menn að herða sóknina og beita sér fyrir að kosið verði á ný hið fyrsta. Það eykur mjög sig- urvilja þeirra að greinilegt er að unga fólkið í Quebec er fylgjandi klofningi frá öðrum fylkjum Kanada, en hinir eldri eru hlynntari sambandsríkinu. Víða um heim eru uppi miklar deilur og styrjaldir þar sem ágreiningurinn er skipting landsvæða milli þjóða og þjóðabrota, eða miklu fremur menningarheilda. í Vestur-Evrópu og Norður-Ameríku er mikið gert úr kynþáttahyggju og er sífellt verið að væna fólk þar um fordóma og jafnvel hatur. En minna er gert úr menn- ingar- og trúarbragaðamun sem skilur þjóðir að. í Kan- ada er það tungumálið og frönsk menningararfleifð sem knýr Quebecbúa til að segja skilið við nær allsráð- andi engilsaxneskan menningarheim. Kúrdar eru ofsóttir í fleiri þjóðríkjum vegna kröfu um sjálfstæöi. Arabar og Gyðingar eiga í heilögu stríði og berjast með kjafti og klóm um jarðarskika á berangri. Málfar og kennisetningar Kóransins og Tórunnar skilja þá að. íbúar Eystrasaltsríkjanna vilja ekki vera Rússar, né fjöldi annarra þjóða sem búa í eða við gamla keisara- dæmið. Hægt er að fara um allan heim og hvarvetna eru ófriöarsvæði þar sem ólíkar menningarheildir mæt- ast og hinir öflugri kúga og ofsækja þá sem minna mega sín. Balkanskaginn er gamalt og nýtt ófriðarbæli þar sem trúarbrögð, sögulegar aðstæður og hégiljur margs konar skipta íbúunum í þjóðir sem deila, drottna og berast á banaspjót. Utanaðkomandi er nær ómögulegt að skilja hvað ber á milli, hvað aðskilur fólkið, sem er líkt að hörundslit og útliti, svo að ekki er mögulegt að útskýra ágreininginn þar með fávíslegri kynþáttahyggju. Fjölþjóðasamtök reyna að stilla til friðar með góðu eða illu, sem til þessa hefur reynst álíka fánýtt. En nú stendur yfir í Bandaríkjunum fundur þriggja leiðtoga Balkanríkja og þykjast menn vestra vera vongóðir um að hægt sé að fá einhverja af stríðsaðilum til að leggja niður vopn og leysa ágreining með friðsamlegum hætti. Kannski það takist, en svo margar sáttagjörðir milli stríðandi afla hér og hvar er búið að innsigla með til- stuðlan risavelda, sem ekki standast nema skamma hríð, að margir hljóta að efast þegar myndir af brosandi leiðtogum að takast í hendur í Ohio birtast þegar líða tekur á vikuna. Það er erfitt fyrir íslendinga með sín skýru landamæri og sameiginlegan menningararf að setja sig í spor þjóða þar sem sífelldur ágreiningur ríkir um hverjir eru „við" og hverjir eru „þeir" og seint verður úr því skorið. Oft má efast um hvort við metum þessar einstæðu aðstæður sem skyldi, og leitt er að sjá og heyra þegar til- teknir hópa staðhæfa, og það með nokkrum rétti, að í landinu búi tvær þjóðir. Hér er meiri alvara á feröum en svo að hægt sé að skella skollaeyrum við svo alvarlegum staðhæfingum. Lénsskipulagi bylt? Framtíð RÚV er nú í brennidepli eftir aö Ríkisendurskoðun skilaöi Fjárlaganefnd stjórnsýsluúttekt á stofnuninni í fyrradag. Fjöl- miðlabylting er aö veröa á ljós- vakanum hvað varöar sam- keppni, á sama tíma og miklar hræringar eiga sér stað á öllum sviöum miðlunar og upplýsinga- tækni. Þó er þaö ekki fjöl- miðlarisi ríkisins sem er í fararbroddi breytinga, heldur einbeitir hann sér að því að soga til sín aug- lýsingatekjur og skattfé og gerir þannig öllum öðrum fjölmiðlum erfiðara með að draga lífsandann. Eitt af því, sem Ríkis- endurskoðun benti á, er að óheppilegt væri að rásirnar tvær, sem reknar eru af sama að- ila fyrir skattfé sama fólksins, keppi mikið innbyrðis og dreifi kröftum sínum og skipulagi í að ná hlustendum hvor frá annarri. Sama gildir um samstarf frétta- stofanna. Það sé m.ö.o. eðlilegt að starfsmenn hinna ýmsu deilda Ríkisútvarpsins hugi að því hvað samstarfsmenn þeirra séu að gera og komi þannig í veg fyrir tvíverknað, þríverknað eða jafnvel fjórverknað, sem er al- gengur þegar fulltrúar Rásar 2, Rásar 1, fréttastofu Útvarps og fréttastofu Sjónvarps eru allir að segja sama fólkinu sama hlutinn með nánast sama hætti á sama tíma. Póst- og símalénib Það, sem heyrst hefur til Ríkis- útvarpsmanna eftir birtingu skýrslu Ríkisendurskoöunar, hef- ur verið nokkuð tvírætt og eink- um falist í því að þessar tillögur þurfi mikla umræðu innanhúss áður en nokkuð sé um þær að segja. Þó hafa menn óhikað tjáð sig um þá hugmynd, sem fram kemur í skýrslunni, að ríkisfyrir- tækið Ríkisútvarp hafi meiri sam- vinnu við ríkisfyrirtækið Póst og síma um dreifikerfi. Ríkisendur- skoðun telur að RÚV ætti að nota ljósleiðarakerfið, sem búið er að byggja upp með miklum tilkostnaðl til að dreifa efni, en vera ekki að byggja upp annaö GARRI dreifikerfi til hliðar við ljósleiðar- ann. Við þessu hafa forráðamenn RÚV verið fljótir að bregöast og sagt — réttilega — að ekki sé auð- velt um slíkt samstarf, því okur- starfsemi Pósts og síma sé slík að ekki sé nokkur leið, ekki einu sinni fyrir RÚV, að eiga viðskipti við þá. Ástandið í rekstri og samstarfs- málum þessara ríkisstofnana minnir einna helst á lénsskipu- lag síðmiðalda og nýaldar í Evr- ópu. Ráðherrarnir hafa úthlutað lénum til lénsherra, sem raðað hafa sér á hina ýmsu staöi, deild- ir og rásir. Aðalstign lénsmanna ráðherra er fjölbreytt: útvarps- stjóri er eins konar stórhertogi; framkvæmdastjórar eru jarlar; deildarstjórar, fréttastjórar og aðrir svipaðir eru lávarðar, en varafréttastjórar og aðstoðar- deildarstjórar hvers konar til- heyra lágaðlinum. Viröingar- staða aðalsins við ríkishirðina ákvarðast ekki síst af gengi og styrk hvers Iéns um sig, þannig að lénsherrarnir og aðalsmenn eiga að sjálfsögðu erfitt meö að framselja í einhverju hagræðing- arskyni það erfðagóss sem léninu fylgir. Og þegar lögð er til sam- vinna við lénsherra einhvers annars ráðherra, abila úr allt annarri hirð — eins og tilfellið er með Ríkisútvarpið annars vegar og Póst og síma hins veg- ar — þá er bjartsýnin heldur betur farin ab hlaupa með menn í gön- ur. Þab hefur enn oröið til að auka á notagildi sam- líkingarinnar vib léns- veldið að ríkisstofnanirn- ar tvær, Ríkisútvarp og Póstur og sími, hafa við- skiptavini eba „leiguliða" sem bundnir eru vistarböndum og hafa í raun ekkert val um hvort þeir afneita þessum herr- um sínum. Framfærsluskylda leiguliða Framfærsluskylda leiguliðanna gagnvart lénsherrunum er ab verulegu leyti bundin í lög, ým- ist með fjárframlögum, einokun á mikilvægum svibum eða með afnotagjöldum. Á móti bera léns- herrarnir þá skyldu að veita leigulibunum „öryggi", rétt eins og tíðkaðist á sínum tíma í hin- um evrópsku lénum. Skýrsla Ríkisendurskoöunar er því byltingarkennt plagg, sem gæti haft mikil og víbtæk áhrif vegna þess að þjóðfélagsaðstæð- ur eru nú móttækilegar fyrir breytingum í fjölmiðlaflórunni. Skýrslan gæti því orðið nútíma- legt ígildi framlags „þriðju stétt- arinnar á ríkisstéttaþinginu í Par- ís 1789", en við það þing kenna margir upphaf frönsku stjórnar- byltingarinnar, sem afnam í fyll- ingu tímans endanlega léns- skipulagiö. Garri rirv Utflutningur mennta og manna Landflótti er ljótt orð, sem landsfeðurnir segja að sé ekki til í orðabókinni. Þótt einhverjar þúsundir manna umfram að- flutta hverfi til útlanda á ári hverju, eru það aöeins taldir eblilegir flutningar frjálsra manna, sem vilja ráða hvar þeir kjósa að lita og strita. Engin ástæða er til að hafa áhyggjur af slíkum smámunum. Háskólarektor upplýsti viö síðustu útskrift BA-mennta- fólksins ab á tilteknu árabili settust 15 af hundraöi þeirra, sem ljúka háskólaprófi, aö í út- löndum. Hann gat þess að ekki væri átt við fólk í framhalds- námi, heldur aðeins þá mennta- menn sem ekki skila sér til fóst- urjarðarinnar ab því loknu. Tækifæri til starfa eru ekki fyr- ir hendi og þau lífskjör, sem bobið er upp á, freista ekki sér- staklega. Þá kann þab að rába miklu, að sérmenntað fólk á hinum ýmsu sviðum á víða auö- velt meb ab fá atvinnu og þau kjör sem eftirsóknarverð geta talist. Þóknanlegur land- flótti Aubvitað er það varla til að hafa orb á, þótt 15 af hundraöi allra háskólamenntaðra manna hafi hvorki tækifæri né nennu til að lifa og starfa á ættjörðinni. Ekki fremur en að hundruö og þúsundir fjölskyldna vel verk- færra manna freista gæfunnar og flytja til útlanda, og enn skal tekið fram umfram aðflutta. Ekkert dugir að segja þessu fólki þau alkunnu sannindi, að í útlöndum sé ekkert skjól og ei- lífur stormbeljandi. Á boröum er þar ekki annað en pestarkjöt og margeitrub jurtafæöa. At- vinnuleysið er yfirgengilegt, húsnæðisskortur landlægur og fólk er lamið og rænt á götum úti. Það fer samt. En það er öðruvísi landflótti sem er landsfeðrum þóknanleg- ur og á mikla framtíð fyrir sér. Það er þegar íslendingar gera strandhögg og hasla sér völl á Á víbavangi Kamtsjatka, í Chile, í Namibíu, í Kína, í Víetnam, í Mexíkó. Á þessum stöðum er hvatt til ís- lenskrar atvinnuuppbyggingar, sem kvað eiga mikla framtíð fyr- ir sér. En hvernig þeir peningar skila sér í íslenskt þjóöarbú er leynd- ardómur sem er vel varðveittur. Kannski felst ávinningurinn í því að losna viö sjósóknara og tæknimenntað fólk úr innlendu atvinnulífi? Ægibjört framtíb Mætur hagfræöingur hefur látið í ljósi efa um að kvótakerfi sjávarútvegsins komi miklu fleirum að notum en eigendum kvótans og nokkrum sjómönn- um. Fiskvinnsla í landi fer hrað- minnkandi og ef fisiskipin sigla ekki sjálf með afla sinn, er ís- land í mörgum tilvikum ekki annað en umskipunarhöfn. Og hvar lendir þá hagnaðurinn af íslandsmiðum? Sé það mikill ávinningur fyrir þjóðina að stofna til atvinnu- rekstrar í Chile og Víetnam og koma sem flestu vinnufæru fólki í þau pláss, hlýtur það einnig að vera ljúfur framtíðar- draumur að auka enn útflutn- ing á menntafólki til annarra landa, sem boðið geta því at- vinnur og kjör vib hæfi. Því er von að landsfeður hafi glýju í augum að horfa til svo bjartrar framtíðar. Háskólarektor telur að meö því að búa sæmilega að vel menntuðu fólki og nýta starfs- krafta þess hérlendis gæti það orðið til að auðga atvinnulíf og bæta almenn lífskjör. Hvergi ber' á að aðrir séu á þessari skoðun, því horft er með velþóknun á að dugmikið fólk flytji úr landi og hvatt er til þess að íslendingar sýni þrótt sinn og getu á strönd- um Kyrrahafs og á suðurhveli jarðar. Það er líka eins gott, því þá þarf ekki sífellt að vera ab finna upp aukabúgreinar og aröbært föndur til að viöhalda byggða- mynstri aldamótanna. Svo ætti einhver þjóbhollur framámaður aö segja háskóla- rektor og hans nótum söguna góðu um bókvitið og askana. OÓ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.