Tíminn - 04.11.1995, Síða 4
4
<§fint§t9$i
Laugardagur 4. nóvember 1995
STOFNAÐUR 1 7. MARS 1 91 7
Útgáfufélag: Tímamót hf.
Ritstjóri: Jón Kristjánsson
Ritstjórnarfulltrúi: Oddur Olafsson
Fréttastjóri: Birgir Gubmundsson
Ritstjórn og auglýsingar: Brautarholti 1, 105 Reykjavík
Sími: 563 1600
Símbréf: 55 16270
Pósthólf 5210, 125 Reykjavík
Setning og umbrot: Tæknideild Tímans
Mynda-, plötugerð/prentun: ísafoldarprentsmibja hf.
Mánabaráskrift 1550 kr. m/vsk. Verb ílausasölu 150 kr. m/vsk.
Húsbóndavald
þarfasta þjónsins
Á fundum borgarstjóra meb íbúum hinna ýmsu borgarhluta
kemur í ljós ab fólk telur umferbarþunga í og vib íbúbahverfi
vera illþolandi. Óhófleg bílanotkun og hrabakstur meb til-
heyrandi hávabamengun er til ama, og þar bætist vib slysa-
hættan sem íbúar verba ab búa vib.
Fyrir nokkru kvartabi einn borgarfulltrúa yfir þrúgandi bí-
laumferb, sem hvarvetna gerir íbúum og öbrum vegfarendum
lífib leitt. Þetta er í algjörri andstöðu vib þá stefnu borgaryfir-
valda fyrr og síbar ab libka hvarvetna fyrir bílaumferb og gera
hana greibari og skilvirkari.
í erlendum stórborgum og minni bæjum er farib ab taka
upp þveröfuga stefnu og farið er með skipulegum hætti ab
hamla gegn óhóflegri bílaumferb og torvelda ökumönnum að
geysast um þröngar götur og íbúbahverfi á manndrápshraða.
Stofnub hafa verib samtök borga, sem hafa þab ab markmiði
ab draga stórlega úr bílaumferb meb þab fyrir augum ab gera
þéttbýlissvæbin byggilegri og fegra mannlífib.
Sannleikurinn er sá ab bílaáþjánin er komin út í slíkar öfgar,
ab einkabíllinn og fáránleg ofnotkun hans er ab gera heilu
borgirnar óbyggilegar mannfólki. Mannvirki eins og margra
akreina breibgötur skera borgirnar sundur þvers og kruss og
hverfin verða ab einangrubum eyjum.
Illmögulegt er að komast um vibskiptahverfin, gangandi
eba akandi, nema þar sem forsjálar bæjarstjórnir hafa bægt bí-
laumferbinni frá göngugötum og víða heilum gönguhverfum
þar sem viðskipti og mannlíf blómstrar.
Enn er ótalinn sá skaðvaldur, sem kann ab rústa heilu stór-
borgirnar þar sem ekkert er ab gert. Þab er mengunin. Hún
tærir byggingar og mannvirki hvers konar og hefur vægt sagt
vond áhrif á heilsufar og lífslíkur þeirra sem bíllinn á að þjóna.
Samtökin gegn bílum í borgum stefna ekki að því ab útrýma
bílum úr þéttbýli, heldur að draga úr notkun þeirra og leitast
vib ab koma á einhverju skynsamlegu skipulagi í umferbar-
málum.
Borgarstjórn Reykjavíkur og bæjarstjórnir annarra þéttbýlis-
staba hljóta ab fara ab opna augun fyrir því í hvers konar óefni
stefnir meb endalausu bíladekri og þeirri asnalegu og kostnab-
arsömu vibleitni að vera sífellt ab greiba götu bíla á kostnab
fólks.
Hagsmunir íbúa Reykjavíkur eba annars þéttbýlis felast ekki
í ab þrengja sífellt ab fólki og þrúga það meb æbisgengnum og
taugaveiklubum akstri um hrabbrautir. Aksturslag flestra öku-
manna er þannig, ab þab er eins og að líf liggi vib ab þeir kom-
ist á sem allra skemmstum tíma milli áfangastaba. Og yfir-
völdin leggja allt í sölurnar til ab æsa vitleysingana meb meiri,
betri og skilvirkari umferbarmannvirkjum.
Og skattborgarar og tryggingafélög borga.
Skipulag, sem tekur tillit til fólks, og brúklegar almennings-
samgöngur hljóta að verba markmib til ab stefna ab, þegar þar
kemur ab dýrkeypt einkabílastefnan hlýtur ab láta í minni
pokann.
Ef borgir án bíla eiga ekki framtíb fyrir sér, eiga bílaborgirn-
ar það ekki heldur. Hér er því ekki fleiri kosta völ og er eins
gott að borgaryfirvöld átti sig á því fyrr en síðar.
Kvartanir íbúanna á hverfafundunum ættu ab ná eyrum
borgarstjóra ekki síbur en heimtufrekja fótafúnu vesaling-
anna, sem halda ab þeim sé um megn ab yfirgefa dýru leik-
föngin sín, sem draga nibur lífskjörin meira en almennt fæst
viburkennt.
Birgir Guömundsson:
Mjúkur og haröur klósettpappír
Einhver sérkennilegasti umræbu-
fundur sem undirritabur hefur set-
ib, var húsfundur á stúdentagarbi
vib Essexháskóla í Austur-Anglíu
veturinn 1977-1978. Örlögin höfðu
hagab málum þannig ab leigjendur
á görbunum, (sem voru háir og
miklir turnar á skólalóðinni), áttu
ab fá hluta leigunnar endurgreidd-
an, sem þó var ekki meira en svo ab
varla tók því ab skipta upphæbinni
á milli manna. Fundurinn snerist
semsé um hvað ætti að gera við
þessi pens og pund sem garðbúar í
sameiningu áttu. Einhver hafði
komið meb tillögu um ab haldib
yrði partý og peningarnir notabir til
að niburgreiba veigamar í íbúana.
Merkilegasta tillagan, og sú sem
varb ofan á á endanum, snerist hins
vegar um það ab keyptur yrbi
„mjúkur klósettpappír" á öll salerni
í byggingunni á meban fjármagnið
entist. Þessi tillaga féll í mjög góban
jarbveg hjá miklum meirihluta
stúdentanna, enda sú tegund kló-
settpappírs sem skólinn skaffaði,
harbur og einna líkastur smjör-
pappír.
Tillagan fékkst þó ekki samþykkt
umræðu- eða átakalaust, enda þó
nokkrir íbúanna vanir smjörpapp-
ímum og töldu mjúkan klósett-
pappír fráleitt brubl.
Sérstaklega minnisstæba ræbu
hélt verkamannssonur frá Manc-
hester, Paul Yates, sem taldi fráleitt
ab sólunda sameiginlegum sjóbum
námsmanna í hlaba undir rassinn á
forderkrubum pempíum. Nær væri
ab kaupa fyrir þá eitthvab skynsam-
legt, t.d. bjór. Paul þessi (sem nú
mun vera orbinn skatteftirlitsmab-
ur í Bretaveldi) varb undir og mjúk-
ur klósettpapír var keyptur handa
„fordekrubu pempíunum".
Klósettpappír oq
Ráðhús
Á þeim tæpu tuttugu árum sem
libin eru síban þessi hitafundur var
haldinn hefur sá sem þetta ritar oft
brosab ab þessari uppákomu.
Aldrei reis ágreiningur milli íbúa
út af öbrum sameiginlegum málum
þennan vetur og afar sjaldgæft hlýt-
ur ab vera ab í samfélagi fólks rísi
ekki ágreinngur út af merkilegri
málum en hvort klósettpappír eigi
ab vera mjúkur eba harbur og vax-
kenndur.
En í Reykjavík í dag virbist stjóm-
málabaráttan þó vera ansi nálægt
þessu klósettpappírsstigi. Stjórnar-
andstaba Sjálfstæbisflokksins
minnir óneitanlega á málflutning
verkamannssonarins og skatt-
heimtumannsins frá Manchester
á stúdentagarbi í Essex fyrir 20 ár-
um. Málin sem ágreinngur er gerb-
ur um eru einfaldlega þess eblis ab
þab kæmi hreint ekki á óvart þó
næsta sprengiefni gagnrýni og
hneykslunar hjá sjálfstæbismönn-
um væri ab R- listaflokkarnir heföu
keypt mjúkan klósettpappír eöa
jafnvel blómóttan á salernin í Ráö-
húsinu. Sjálfstæöismenn eru þegar
komnir inn á babherbergiö hjá
embætti borgarstjóra. Þar stynja
þeir af pólitísku harölífi yfir því aö
keypt hafi verib hárblásari, sjampó,
meik og maskari í búningsklefann
sem hannabur hafbi verib til fata-
skipta og veislubúnings fyrir þenn-
an æösta embættismann borgar-
innar. Oddviti stjómarandstööunn-
ar taldi þaö einmitt „afar sérkenni-
legt" ab í sérstöku búningsherbergi
kvenborgarstjóra væru til staöar
slíkar snyrtivörur. Er oddvitinn þó
bæbi kvæntur maöur og ólst upp í
hópi systra.
Velta boröum víxlara
En auk þess ab hneykslast á
snyrtivörum í búningsklefa borgar-
stjórans hefur Sjálfstæbisflokkurinn
kvatt sér hljóbs á grundvelli rétt-
trúnaöar í þjóökirkjunni og viljaö
úthýsa svokallaöri „borgaralegri
fermingu" út úr Ráöhúsinu. Ástæb-
una segja þeir vera aö hugtakib
„ferming" sé kristiö hugtak. Hrein-
trúarstefna Sjálfstæöismanna er slík
aö engu er saman aö jafna nema
e.t.v. hræsni þjóbkirkjunnar sjálfrar
sem lætur svo lítib aö samþykkja
meö þögn sinni oröskýringar Sjálf-
stæöisflokksins um ab þab sé stór-
mál ab orbiö „ferming" sé notaö
um borgaralega fermingu. Þab væru
ný tíöindi á Vesturlöndum ef Ráb-
hús eru talin slíkur helgidómur aö
stjórnmálamenn þurfi ab velta þar
um borbum víxlara í heilagri vand-
lætingu. Á sama tíma er hvers kyns
nýaldarkukl og spíritísmi boöiö vel-
komib inn í sjálfar kirkjur landsins.
Þab er kannski tímanna tákn ab
postuli tiltekins strangtrúnaöar og
gamall skólabróöir oddvita stjórn-
arandstöbunnar í borgarstjórn,
sjálfur forstöbumabur Fíladelfíu
I
tímans
rás
Smámálin
Þegar öll þessi hin stóru pólitísku
upphlaup stjórnarandstöbunnar í
Reykjavík eru skoöuö kemur í ljós
ab þau eru næstum öll út af ein-
hverjum smáatriöum, sem skipta
svo litlu máli aö þau flokkast undir
ab vera fáfengileg. Undantekning
frá því er þó helst sú viöleitni and-
stööunnar ab gagnrýna skattahækk-
anir og fargjaldahækkanir hjá SVR.
Ekki einu sinni á þessum vettvangi
hefur sjálfstæöismönnum þó tekist
ab tefla fram uppbyggjandi mál-
flutningi. Beittasta gagnrýnin á SVR
hækkunina hefur komib úr röbum
R-listafólks sjálfs en gagnrýnin á
holræsagjaldib og fjármálastöbu
borgarinnar hefur einkennst af
upphrópunum. Og þó upphrópanir
geti verib ágætar þarf aö undir-
byggja þær svo aö eitthvert gagn sé
ab þeim. Þá undirbyggingu hefur
hins vegar skort. Þaö dugar einfald-
lega ekki ab hamra endalaust á því
aö staöan hjá öbrum sveitarfélög-
um sé líka slæm eins og sjálfstæöis-
menn hafa gert — slíkt bætir ekki
fjárhagsstöbu Reykjavíkur. Því mib-
Hafliöi Kristinsson, segir í spurn-
ingu Tímans í gær ab hann telji ekki
nema sjálfsagt ab Rábhúsib sé opiö
öllum svo framarlega sem sömu
reglur gildi fyrir alla. Frelsispostular
Sjálfstæöisflokksins telja slíkt hins
vegar daöur vib villutrú.
Myndir á vegg í Höfba
Hin skyndilega umhyggja fyrir
kristindómnum veröur því nánast
jafn hjákátleg og sú mikla reyk-
sprengja sem varpab var fram í
sumar um þaö hvort málverk af
Bjarna heitnum Benediktssyni ætti
ab hanga á einhverjum tilteknum
staö í Höföa eöa hvort helgispjöll
hafi veriö unnin meb því aö endur-
skipuleggja uppstillingar á mál-
verkasafni borgarinnar. Eflaust
heföi stjórnarandstaöan í Reykjavík
sett fram hástemmda kröfu um ab
kosningum yröi flýtt vegna yfirg-
engilegrar misbeitingar valds, ef
hinar borgaralegu fermingar heföu
farib fram í Höfba, þar sem búib var
ab færa til málverk af fyrrum for-
manni Sjálfstæöisflokksins. Svo
ekki sé talaö um ef vel snyrtur borg-
arstjóri meb blásiö hár væri viö-
staddur eftir aö hafa haft fataskipti í
búningsklefa embættisins í Ráöhús-
inu!
Af öbrum pólitískum stórmálum
sem áberandi hafa veriö hjá sjálf-
stæöismönnum muna flestir eftir
hótunum vegna rábningar Helgu
Jónsdóttur í stöbu borgarritara og
nú fyrir skömmu mikla útreikninga
um aö feröakostnaöur borgarstjór-
ans hafi aukist á einhverju sérvöldu
tímabili, en þó er viburkennt ab
feröakostnaöur og risna hafi snar-
lækkaö í heild sinni.
Ljós í myrkrl
En kannski er ljós í myrkrinu. í
Staksteinum Moggans í vikunni var
vitnab í Flokksfréttir Sjálfstæöis-
manna vegna þess ab þar höfbu
birtst talsverb tíbindi: Árni Sigfús-
son bobabi þar ab „nútímaleg
stjórnun sjálfstæöismanna muni
leysa skattastefnu R-listans af
hólmi." í þessum Flokkstíbindum
segir Árni ab endurmeta þurfi hlut-
verk og starfsemi borgarinnar og „á
eftir slíkri skoöun fylgir krafan um
aukna hagkvæmni í rekstri, fyrir-
hyggju og nákvæma útfærslu á
kostnaöaráhrifum einstakra aö-
geröa, ábyrga starfsmanna- og
stjórnendastefnu og fjárhagsáætlun
til minnnst 10 ára sem yröi endur-
skoöuö á tveggja ára fresti. í kjölfar-
ib myndi fylgja bætt þjónusta og
lækkun skatta."
Þetta hljómar vissulega vel og er
raunar í allt öbrum gæöaflokki en
kristnibob Árna í Rábhúsinu, inn-
anhússarkitektúr hans í Höfba eöa
vörutalningin á snyrtiboröinu í
búningsklefa borgarstjórans. Eng-
inn er fullkominn, ekki einu sinni
R-listinn og því er fagnabarefni ef
sjálfstæöismenn ætla aö skipta um
gír í stjórnarandstööunni.
Lyklakippan
Hin „nútímalega stjórnun sjálf-
stæöismanna" er vonandi annab og
meira en enn einn „lykill" á allt of
lítiö notaöa lyklakippu Árna Sigfús-
sonar frá því í kosningabaráttunni.
Stór og merkileg mál eru á hinni
pólitísku dagskrá í Reykjavík og
löngu kominn tími á aö rífa sig frá
þrætubók hins mjúka og harba kló-
settpappírs. ■