Tíminn - 04.11.1995, Qupperneq 14
14
Laugardagur 4. nóvember 1995
Haavrðingaþáttur
Ógnin
Ennþá skekur íslandsbyggð
ógn sem vœtir kintiar.
Sárt upp vekur hugarhryggð
hörmung þjóðar mitmar.
Þögull grœtur þanki minn
þessa stund og lengur.
Því margur vinamissirinn
mjög að hjörtum gengur.
Bið égguð á hœðum hátt
að hlúa að gleðisnauðum.
Og öllum þeim, sem eiga bágt
og eru í hugamauðum.
Drottins máttur mikill er,
sem megnar allt að iaga.
Fyrr en varir veit ég hér
er von um bjarta daga.
Flateyringar. faðir hár,
fái blessun þína.
Vil ég og, með votar brár,
þeim votta samúð mína.
Pétur Stefánsson
Ástin blómstrar
Alltafverður ástin blíð,
allar vonir túlka.
Þig ég elska ár og síð,
yndisfagra stúlka.
Þarna uppi sólin skín,
skartar himinn fagur.
Yndislegur, ástin mín,
okkar bíður dagur.
Við skulum vaka, elskan mín,
verum þess ei dulin.
Sólarinnar fyrstu sýn
sofendum er hulin.
Ægir Geirdal
Þjóöleg íþrótt
Allir lýsa yfir hér,
engin krísa grandi.
Að yrkja vísur íþrótt er
á okkar ísa-landi.
Sami
Eftirfarandi vísu orti Auðunn Bragi um fööur sinn,
Svein frá Elivogum:
Oft í vanda orðhvatur,
eyddi grandi kífsins.
I raunastandi réttstígur;
rataði sanda lífsins.
Haustkoma
Fram úr nausti fleyið skaust,
feigðar laust við kœlu.
Senn mun haustið hárri raust
hefja austan brœlu.
Svo dýrt kveður Búi.
Og að lokum þjóðlýsing eftir hann:
Oröstír
Ýmsir telja okkur slynga,
þó um sé rcett í norskri frétt,
að grœðgi okkar íslendinga
engin takmörk verði sett.
Botnar og vísur sendist til Tímans
Brautarholti 1
105 Reykjavík p.s. SKRIFIÐ GREINILEGA
Flott og stolt aukakíló
Að hætta að reykja er ekkert
grín. Fyrir marga er það langvar-
andi stríö og svo fylgir sá böggull
skammrifi að þeir sem hætta,
fitna flestir og er tíu kílóa ábót
algeng. Kona, sem svona er
ástatt fyrir og talar áreiðanlega
fyrir munn margra, væntir þess
að Heiðar geti gefið góð ráð við
spurningunni hvort maður eigi
að vera feit og óhamingjusöm en
heilbrigð, eða grönn, sísvöng og
óhamingjusöm og með það að
verða aö reykja ti'. að tolla í lín-
unum.
Heiðar: Reykingar eru mesta
eitur og ætti ég að vita það betur
en nokkur annar eftir að hafa
reykt síðan ég var unglingur.
Að hætta að reykja er krafta-
verk og ætti að veita því fólki
orðu, sem leggur það á sig og
tekst að venja sig af eiturinnsog-
inu.
Það fylgir reykingabindind-
inu, sérstaklega hjá konum, að
þær fitna án þess að borða meira.
Eitrið í nikótíninu er svo mikið
að líkamsstarfsemin breytist og
fer úr skorðum þegar hætt er aö
neyta þess.
Leyfið fitunni að
safnast
Fólk, sem hættir að reykja,
verður bara að leyfa sér að fitna í
eitt til eitt og hálft ár þangað til
mesti sviðinn er farinn hjá. Þá
má byrja á að fara í skynsamleg-
an megrunarkúr, ef það vill vera
grennra, sem fyrir guði er alls
ekki nauðsynlegt, né mönnum.
En ef að reykingafólkið fyrr-
verandi vill grenna sig, er varað
við að það sé að bögglast við að
byrja strax í matarkúr og pína sig
á tvennu, að hætta reykingum
og svelta sig samtímis. Því að
það að hætta að reykja er svo
mikiö kraftaverk, að þó að það
kosti tíu kílóa ábót, þá er ástin
blind.
Vigtin manns er mikilvæg
gagnvart þeim sem elskar mann
og ef að mótaöili konu eða
manns, sem fitnar um tíu kíló,
missir ást á viðkomandi fyrir þá
sök, þá er ástin ekki mikil og eitt-
hvað annað að en líkamsþyngd-
in.
Hégómi og öfgar
Það er einfalt aö vera bara
reykingalaus bolla í eitt til tvö ár
og vera stolt/ur af því.
Ég vildi óska þess að ég hefði
þrek til þess að vera reykingalaus
bolla í tvö ár.
Það þurfa ekki allar konur að
vera eins og tískusýningarstúlk-
ur eða tággrönnu glæsikonurnar
sem notaöar eru í auglýsingar.
Ég held ab guði sé það ekki
þóknanlegt, vegna þess að hé-
gómi er ekki synd nema hann
fari út í öfgar. Eðlilegur hégómi
er guði ábyggilega þóknanlegur,
en óeblilegur hégómi hlýtur ab
vera synd fyrir guði.
Þess vegna verðum við að
sætta okkur svolítiö viö að vera
eins og guð skapar okkur. Sum-
um er eðlilegt að vera feitlagnir
og aðrir eru alltaf tággrannir og
verður fólk bara að sætta sig við
þab.
En óblileg matgræðgi er
hvorki guði né líkamanum
þóknanleg. Þarna kemur líka
inní fyrirbæri sem danskurinn
kallar „tröstespiser". Það er geb-
rænt vandamál fremur en líkam-
legt.
Hugarástand
Breytingar á lífsháttum geta
komið þessu af stað. Það þarf
ekki reykingar til. Matgræðgi af
þessu tagi getur stafað af sorg,
hún getur stafað af höfnun og
þunglyndi. Þab er ýmislegt sem
geþur orðib til þess að fólk fitni
af sálrænum ástæðum.
Þannig að líkamsbreytingu af
því að hætta aö reykja má líkja
við líkamsbreytingu, sem getur
orðið hjá konu sem á mann sem
skilur við hana og giftist yngri
konu, en hún elskar enn þennan
sama mann. Sú kona fitnar oft
mjög svipað og sú sem hættir ab
reykja. Sumir vilja meina að
þetta sé maturinn. Persónulega
vil ég meina, og hef séb, að þetta
hefur ekki endilega neitt með
mat að gera.
Það er röskun á líkamsstarf-
semi, röskun á kirtlastarfsemi
líkamans, sem hefur mikið meb
vigt ab gera. Þannig að fara í
megrunarkúr stuttu eftir ab hætt
er að reykja,
vil ég meina
að sé tilgangs-
laust.
Tilfinn-
ingamál
karla
Hægt er að
bera þetta
saman vib
annað vanda-
mál kvenna,
sem sækir mis-
jafnlega þungt
. á þær. Þegar
kona eignast
barn, slitnar
hún oft. Slíkt
Heibar
jónsson,
snyrtir,
svarar
. spurningum
lesenda
Hvernig
áégaö
vera?
slit er ekki
1 æ k n a n -
legt, en lag-
ast oft með
aldrinum.
Þetta leggst
oft þungt á
sumar kon-
ur. Ég hef
spurt þó
n o k k u ð
marga karl-
menn um
þ e t t a
vandamál,
h v e r n i g
það lítur út
frá þeirra bæjardyrum.
Niðurstaðan er hughreyst-
andi. Kona, sem er með slit eftir
barnsburð, er oft meira ablað-
andi og kynþokkafull fyrir
mann, því hún hefur þá alið
honum, eða öbrum mannL
barn. Sem auðvitað er tilfinn-
ingamál okkar karlmanna. En
kona með slit verður ekki feg-
urðardrottning eba fyrirsæta. En
kona, sem búin er að eiga barn
án þess ab fá slit, verbur ekki
heldur fyrirsæta eba fegurðar-
drottning. Og hvað með þab?
Það er svo margt fleira sem
gefur lífinu gildi, og kona með
slit eða nokkur aukakíló er ekk-
ert síður aðlaðandi en glæsilegu
stúlkurnar sem hafa „rétt" vaxt-
arlag. Spyrjið bara karlana. Þeir
vita hvað þeir vilja og það er ekki
alltaf sú kvenímynd sem tísku-
heimurinn heldur mest á lofti.
Frí förðun
Nú ber vel í veiði fyrir konur
sem ætla á ball í kvöld, eba eitt-
hvað annað svakalega flott. Þær
geta komið vib hjá Heiöari að
Laugavegi 66 og fengið sér fríða
förðun. Þar er verið aö kynna
hinar glæsilegu Givenchy-
snyrtivörur. Þarna verður hægt
að lykta og prófa og þær konur
sem komast að fá fínustu förðun
án þess ab borga eyri fyrir.
Þaö er langur laugardagur við
Laugaveginn og opið fram á
kvöld og Heiöar til þjónustu
reiðubúinn alveg fram á sel-
skapstímann.