Tíminn - 02.12.1995, Blaðsíða 1

Tíminn - 02.12.1995, Blaðsíða 1
Póstleggiö jólabögglana tímanlega til fjarlœgra landa. POSTUR OG SIMI STOFNAÐUR 1917 79. árgangur Laugardagur 2. desember 1995 228. tölublað 1995 Sveiqur var lagöur Kamilla Rún jonannsdóttir, framkvœmdastjóri Stuaentaráös, sem ins sem kallaöur var sómi, skjöldur og sverö íslands. Tímamynd GS á leiöi jóns Sigurössonar írigningunni ígcer ítilefni af fullveldisdeginum. Þaö var lagöi kransinn upp aö legsteini jóns en á eftir mœlti lllugi jökulsson fyrir minni manns- Friörik Sophusson fjármálaráöherra um kjarasamningana: Engin ástæba til aö breyta samningunum Gœbi fersks eldisþorsks ekki síbri en hjá villtum. RF-tíbindi: Færri ormar í eldisþorski í holdi eldisþorsks eru færri orm- ar en í villtum þorski, sem gerir eldisþorsk verömætari á erlend- um ferkfiskmörkuðum. Þá kemur þaö ekki nibur á bragöinu, þótt fituinnihald í flökum eldisþorsks sé hærra en í villtum, auk þess sem vaxtarhrabi eldisþorsks er umtalsverbur. Þetta eru helstu niðurstöður í tveimur aðskildum rannsóknum Sigurðar Einarssonar og Vilhjálms Þorsteinssonar sem greint er frá síð- asta tölublaöi RF-tíðinda, sem Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins gefur út. í þessum tveimur rannsóknum var f járhagsþáttur þorskeldis ab vísu ekki metinn, en hinsvegar þykir nokkuð ljóst ab gæbi fersks eldis- þorsks séu ekki síðri en í villtum þorski. í þessum rannsóknum var fylgst meb stærð og þyngd eldisfisks í tæpt ár þar sem m.a. var kannað hvort efnasamsetning, skynmat og ormafjöldi i flökum eldisþorsks og villts þorsks væru mismunandi og hvort einhver munur væri á lifr- inni. -grh Kínósebill fylgir lottómiba: Markaðurinn nánast fullsetinn íslensk getspá hefur ákveðið að gefa öllum þeim sem kaupa 10 raba miba í Lottó 5/38, Kínó- miba ab gjöf. Markmibib er ab kynna Kínóleikinn frekar fyrir landsmönnum en nokkurn tíma hefur tekib að kynna þann leik fyrir neytendum skv. erlendri fyr- irmynd. Að sögn Vilhjálms Vilhjálmsson- ar, framkvæmdastjóra íslenskrar Getspár, virðist sem happdrættis- markaðurinn sá nánast fullsetinn en hann vill ekki spá fyrir um hvort einhverjir aðilar séu dæmdir til að heltast úr lestinni. Um fylgimiða Kínósins með lottóinu sagði Vil- hjálmur: „Við vildum vekja athygli á leiknum með þessum hætti. Menn eru t.d farnir að gefa GSM- síma með nýjum bílum." -BÞ Nokkrar deilur hafa orðib á mebal bókaútgefenda og Félags bóka- og ritfangaverslana eftir ab Jóhannes í Bónus baub 20% afslátt á bókum í verslunum sínum. Formabur Félags ís- lenskra bókaútgefnda, Olafur Ragnarsson, segir ab Jóhannes hafi rofib samkomulag frá því í sumar þar sem samib hafi verib um 15% hámarksafslátt. Þetta segir Jóhannes rangt. „Samkeppnisstofnun setti aldrei „Aubvitab þýbir þetta ab fyrir- liggjandi áætlanir geti riblast eitthvab til en vib munum reyna á næstu dögum ab koma meb tillögur sem mæti neinar reglur. Þeir lögðu bara bless- un sína yfir samkomulagib sem áð- ur hafði verið gert en ég hef ekki komið nálægt því og það gilda al- mennar samkepnnisreglur þess ut- an," sagði Jóhannes Jónsson í sam- tali við Tímann í gær. „Ef þetta hefði verið úrskurður Samkeppnis- stofnunar, hefði ég hlýtt því." Jóhannes bauð í gær bækur með 20% afslætti en hann sagði að um- hverfið skapaði verðlagninguna og ef menn treystu sér í meiri afslátt þessum aukna halla. Þab er áfram stefnt ab því ab halda fjárlagahallanum í 4 milljörb- um en abalatribib er ab jafn- vægib I ríkisbúskapnum náist annars staðar þá myndi hann svara því. Óskar Magnússon hjá Hag- kaupi hefur hvatt neytendur til að halda að sér. höndum í bókainn- kaupum þangað til þeir hafi tekið ákvöröun um sitt verð en Jóhannes segist munu svara því fullum hálsi. „Ég held að bókakaupendur ættu að bíða átekta þangaö til þeir sjá hvað við gerum. Ég er með hreinan skjöld, ég er ekki vondi kallinn í þessu máli heldur góbi kallinn að vanda." -BÞ á tveimur árum," sagbi Fribrik Sophusson fjármálarábherra í samtali vib Tímann í gær. Eins og kunnugt er nemur viðbótarkostnaður ríkisins vegna kjarsamninganna einum milljarbi, lækkun tekna nemur 400 milljónum og aukin ríkisút- gjöld eru um 600 milljónir. Ráð- herra sagði ab ríkisstjórnin mundi leita allra leiba til ab ná því markmiði sem ríkisstjórnin setti sér; ef fjögurra milljarða markið næðist ekki næsta ár yrbi að taka stærra skerf árib 1997. Fribrik sagði þab liggja fyrir með óyggjandi hætti að jafn- vægi í ríkisfjármálum væri for- senda þess að hagvöxtur glædd- ist á næstu árum og lífskjör myndu batna. Því væri mjög mikilvægt að stöðugleikinn héldist. Aðspurður um mat hans á kjarabreytingunni sagði Friðrik ab lokum: „Ég taldi enga ástæðu til ab breyta fyrirliggj- andi samningum. Að því leyt- inu til fannst mér miður að ekki var hægt að standa fast á því sem búið var að gera. En miðað við óróann sem orðinn var á vinnumarkaði er ég tiltölega sáttur við niðurstöðuna, enda geri ég ráð fyrir að þeir sem hafa sagt upp samningum sjái að sér. Mér finnst liggja ljóst fyrir að sú uppsögn er ólögmæt. -BÞ Jón Kristjánsson, for- mabur fjárlaganefndar Alþingis: Kjarasamn- ingi mætt meö sparnaði Jón Kristjánsson, ritstjóri og for- maöur fjárlaganefndar Alþingis, segir í pistli sínum, Menn og mál- efni, í Tímanum í dag ab ríkis- stjórn og Alþingi sé skylt ab leita leiða til að spara vegna þess út- gjaldaauka sem ákveðinn hefur verið með því ab verja í ab minnsta kosti milljarði til ab tryggja gildandi kjarasamninga. ■ Sjá bls. 5 „Samkeppnisstofnun setti aldrei neinar reglur um verölagningu segir jóhannes í Bónus: „Ég er ekki vondi kall- inn heldur góði kallinn"

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.