Tíminn - 02.12.1995, Síða 7

Tíminn - 02.12.1995, Síða 7
Laugardagur 2. desember 1995 7 Stór hluti 14 og 15 ára unglinga drekkur ekki Um helmingur 14 ára ung- linga og um 40% 15 ára ung- linga hafa þá mynd af sér ab þeir drekki ekki. Fleiri 14 ára unglingar neyta áfengis nú en fyrir sex árum. Fimmti hver þeirra hefur drukkiö tíu sinn- um e&a oftar. Hlutfallslega fleiri stúlkur sem búa hjá for- eldrum sínum neyta áfengis en stúlkur sem búa hjá móbur og stjúpföbur. Dr. Sigrún Aöalbjarnardóttir, prófessor viö Háskóla íslands, stendur aö umfangsmikilli rannsókn á áhættuhegðun ung- linga, þ.á m. áfengisneyslu þeirra. Sigrún og aðstoðarmaður hennar, Kristjana Blöndal upp- eldisfræöingur, héldu fyrirlestur í Kennaraháskólanum í vikunni þar sem þær geröu grein fyrir fyrstu niðurstöðum rannsókn- arinnar. „Þetta kemur okkur ekkert á óvart. Allt frá því aö bjórinn kom áriö 1989 hefur ungling- um sem drekka áfengi fjölgað nokkuö jafnt ár frá ári og aldur þeirra sem eru aö byrja jafn- framt Iækkaö," segir Árni Ein- arsson hjá Fræöslumiðstöö um fíknivarnir vegna niöurstööu rannsóknar dr. Sigrúnar Aöal- bjarnardóttur á áhættuhegöun unglinga. Arni segist hafa átt fund með mönnum sem vinna aö áfengis- vörnum eftir að Sigrún kynnti niðurstöður sínar í vikunni. Ha.nn segir alla fundarmenn hafa verið sammála um að niöurstöð- ur hennar væru í samræmi við það sem þeir áttu von á. Allar rannsóknir síðustu ára hafi sýnt Samkvæmt niðurstöðum Sig- rúnar drekka að minnsta kosti 40% 14 ára unglinga ekki. Inni í þeirri tölu eru þeir sem aldrei hafa prófab að drekka og þeir sem hafa prófað einu sinni eða tvisvar en ekki á síðasta ári. Samsvarandi hlutfall er tæp 30% af unglingunum þegar þeir eru orðnir 15 ára. „20% af 14 ára unglingum sögðust hafa prófað að drekka 10 sinnum eba oftar. Það finnst mér of hátt hlutfall. Hluti þeirra drekkur líka illa. Af þeim 14 ára unglingum sem drekka sögðust 30% drekka fimm glös eða fleiri í senn," segir Sigrún. Aldur þeirra sem hafa prófað að neyta áfengis virðist hafa lækkað, samkvæmt rannsókn Sigrúnar, samanboriö við rann- sókn sem gerð var árið 1989. Hún telur brýnt að snúa þessari að áfengisneysla aukist stöbugt meðal unglinga. Árni segir andvaraleysi foreldra og þjóðfélagsins almennt ekki síst eiga sök á því hvernig komib sé. „Þróunin hefur öll hnigib í sömu átt. Andvaraleysi gagnvart áfengisneyslu barna og unglinga hefur farib vaxandi," segir Árni. „Fyrst og fremst held ég að þessa þróun megi rekja til þess að það hefur allt hnigib ab því að ýta undir og auðvelda börnum og unglingum áfengisneyslu. Vib sjáum t.d. miðbæjarvandann þar sem börn og unglingar eiga auð- velt með að nálgast áfengi í mikl- um mannfjölda." Lækkun áfengiskaupaaldurs, verði frumvarp þess efnis sam- þykkt, mun einnig ýta undir þróun við. „Það er mikilvægt að stuöla ab því að krakkar byrji seinna að smakka áfengi. Rannsóknir sýna að því fyrr sem fólk byrjar að drekka því meiri líkur eru á að það lendi í áfengisvanda og ýmsu sem honum fylgir." Ekki kom fram munur á drykkju kynjanna í rannsókn- inni að öbru leyti en því að strákar drekka meira en stúlkur í hvert sinn. Þær drekka hins veg- ar jafn oft. Sigrún kannaði einn- ig tengsl á milli fjölskyldugerðar (hvort þeir búa hjá foreldrum, móður eða móður og sambýlis- manni) og áfengisneyslu ung- linganna. Fyrstu niðurstöður úr þeim þætti benda til að fjöl- skyldugerð tengist ekki áfengis- neyslu drengja. Hins vegar virð- ast hlutfallslega fleiri stúlkur sem búa hjá móður og stjúpföb- drykkju unglinga, að mati Árna. „Þá er verið að segja við unga fólkið: „Þab er allt í lagi að þið drekkið áfengi, við sættum okkur vib þaö." Menn segjast vera ab laga sig að veruleikanum meb þessu frumvarpi, en tvískinnung- urinn er jafn mikill hvort sem miðað er við 18 eða 20 ár. Eins og kom fram í erindi Sigrúnar er stór hópur 14 og 15 ára unglinga sem neytir áfengis. Til að laga löggjöf- ina að veruleikanum þyrfti því að lækka aldurinn niður í 14 ár. Allt annað er tvískinnungur." Árni segir einnig þá hættu fel- ast í ákvæðum frumvarpsins að 18 ára unglingar séu líklegri til að kaupa áfengi fyrir yngri unglinga en þeir sem eru 20 ára. í erindi Sigrúnar kom fram að ur neyta áfengis en þær sem búa hjá báðum foreldrum sínum. Sigrún bendir á að ef til vill þurfi að grípa til ólíkra abgerba í forvarnarstarfi eftir því hversu gamlir krakkarnir eru sem starf- ið er mibað vib. „Það vakti at- Til greina kemur ab Lýbskólafé- lagib, sem hélt framhaldsstofn- fund sinn í Norræna húsinu í gær, taki Hlíbardalsskóla í Ölfusi á leigu undir fyrirhugaban skóla- rekstur sinn, ab sögn Odds Al- bertssonar, fyrrverandi skóla- stjóra í Reykholti. Hann segir ab auk sín standi ab stofnun félags- viðhorf unglinga hafa áhrif á það hvort þeir neyta áfengis eba ekki. Árni segir að þetta sé athyglisverð niðurstaða fyrir þá sem starfa að forvörnum. Hann setur þó þann fyrirvara að úrvinnsla rannsóknar Sigrúnar er enn skammt á veg komin. „Mér fannst ég þó geta lesið það út úr niðurstöðum hennar að við höfum verib að fikra okkur inn á réttar brautir í forvarnar- starfi a.m.k. í skólunum, með Lions Quest námsefninu. Það byggir á þeim þáttum sem hún dregur fram, að það þurfi að vinna nánar og kerfisbundnar meb viðhorf krakkanna, bæði einstaklingsbundið og í hóp." hygli mína að þær ástæður, sem 14 ára krökkum þykja mjög mikilvægar fyrir því að drekka ekki, finnst þeim ekki eins mik- ilvægar þegar þeir eru orbnir 15 ára," segir hún. -GBK ins skólafólk og námsráðgjafar, auk abila frá Hinu húsinu, Kenn- araskólanum og Norræna félag- inu. „Að mínu mati er þetta húsnæði kjörið til að búa til svona skólaróm- antík og skóla," segir Oddur. „Við sjáum fyrir okkur tvo valkosti: Annars vegar beinharðan „city"- skóla, Reykjavíkur-lýbskóla, kannski á annarri hæb í stóru hús- næði í mibbænum, þar sem stend- ur bara Lýðskólinn fyrir ofan járn- dyr og menn fara þar inn á morgn- ana og koma út að kvöldi eða hve- nær sem námskeiðin eru búin, ellegar skóla í blönduðu formi, þe- as. svona sextíu manns sem kæm- ust fyrir á heimavist og síðan jafn- vel möguleika á því að bjóba upp á námskeið fyrir Reykvíkinga. Þab tekur ekki nema hálftíma með rútu ab komast þarna út í Hlíöardals- skóla. Við eygjum þarna von um að geta fljótlega mætt þessari þörf, sem vib teljum að sé mjög brýn. Það eru svo margir atvinnulausir krakkar og annað fólk, sem er í mikilli þörf fyrir þessa tegund af skóla," segir Oddur Albertsson. ■ í tilkynningu um framhalds- stofnfundinn segir ma. ab þau fög, sem í fyrstu verði kennd í fyrirhug- uðum lýðskóla, séu samfélagsfræði, heimspeki og listir, ásamt fjöl- miðlafræði, nánar tiltekið blaðaút- gáfu. Síban segir ma.: Einkenni lýð- skólans er lýðræðislegt og skapandi samfélag, listgreinar ýmsar, vett- vangsnám og veisluhöld. ■ Starfsmaöur Frœbslumiöstöbvar um fíknivarnir um niöurstööur Sigrúnar Aöalbjarnardóttur: Koma ekki á óvart Lýbskóli í Hlíðar- dalsskóla í Ölfusi?

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.