Tíminn - 02.12.1995, Side 11

Tíminn - 02.12.1995, Side 11
1- Laugardagur 2. desember 1995 *£----________ 11 j upplifaö kraftaverk á Landspítalanum: ir svifu um herbergið ftur streymdi inn 1 mig" Siguröur Rósberg meb forsíbu Tímans í höndunum þar sem segir frá þeim hremm- ingum sem mabur vib daubans dyr verbur fyrir í kerfinu. Tímamynd CS heilsan verið upp og ofan. Það hefur ýmislegt komið upp á, m.a. er ég með sýkingu í barka sem ég verð að lifa með. Lyfin hafa líka oft farið illa í mig og læknarnir þurft að prófa sig áfram með hvað ég þoli. Á tímabili var ég mjög slappur, ég átti í erfiðleik- um með þvaglát og með allar at- hafnir daglegs lífs." í vor veiktist Sigurður illa í fyrsta sinn eftir heimkomuna. Hann var þá á sterkri lyfjagjöf og fékk lyfjaeitrun. „Ég fór á spítal- ann tvisvar í viku og það var sett- ur krani í æð til að dæla í mig lyfjunum. Einu sinni þegar ég kom heim veiktist ég hastarlega og var fluttur í snarheitum aftur á spítalann." Sigurður segir að hann hafi verið hætt kominn í þetta sinn, fengið mjög háan hita, blób- þrýstingur og púls fallib og hann allur þrútnað út. Hann náði sér þó fljótlega á strik, en var eftir þetta meira og minna lasinn í allt sumar og fram á haust. í haust gerðist svo þaö sem Sigurður er sannfæröur um að hafi verið kraftaverk. „Ég lá mjög veikur á Landspít- alanum og var búinn að missa alla von. Ég beið bara eftir því ab deyja. Við hliðina á mér lá mað- ur sem var líka að deyja. Þar sem vib liggjum þarna finn ég skyndi- lega fyrir miklum krafti og mér finnst sem englar svífi um her- bergið. Ég áttaði mig á því að þeir voru komnir til að taka her- bergisfélaga minn með sér. Stuttu síðar lést hann og um leið fann ég þennan rosalega kraft koma inn í mig. Ég dró djúpt andann og brjóstið þandist út." Eftir þessa lífsreynslu fór heilsa Sigurðar ört batnandi og nú seg- ist hann aldrei hafa verið hress- ari. Hann segir reynslu sína ekki vera einsdæmi í fjölskyldu sinni. Hann trúir því að verndarengill fylgi fjölskyldu sinni, enda hafi bæði systir hans og faðir öðlast ótrúlegan bata eftir slys. Læknar sögðu föður hans að hann mundi ekki ganga að nýju eftir að hann féll fjóra metra niður á steinsteypu. „Nú tuttugu árum síðar er hann áttræður og hleyp- ur út um allt." „Mig dreymdi draum eftir at- burðinn á spítalanum sem ég tengi við hann. Mér fannst ég vera með ömmu minni heitinni á gangi fyrir norðan þar sem ég er alinn upp. Sólin var ab rísa, út úr henni komu tveir armar og voru norburljós á hvorum þeirra. Amma leit í átt að sólinni og sagði við mig: Þú ert ekki tilbú- inn." Þab er til marks um hversu góð heilsa Siguröar er núna, að hann er farinn ab undirbúa opnun blómabúðar meb bróður sínum. Sigurður er blómaskreytingamað- ur og hann rak blómabúð þegar hann bjó í Bandaríkjunum. Þar segist hann meðal annars hafa séð um skreytingar fyrir Michael Jackson vib eitt tækifæri. „Það var haldin samkeppni um hver fengi að sjá um skreytingarnar fyrir þessa veislu. Yfir 40 blóma- búðir sóttu um og ég var valinn úr. Sennilega hafa skreytingarnar þótt nógu frumlegar, með neón- ljósum og alls kyns öðru skrauti." Sigurður segist þó ekki ætla ab bjóða íslendingum upp á neón- ljósaprýddar blómaskreytingar, heldur verði hann mestmegnis með skreytingar úr þurrkuðum blómum. Hann hefur komið sér upp föndurherbergi í íbúðinni, sem hann leigir ásamt bróður sínum, og heldur sér þannig í þjálfun. Sigurður er bjartsýnn á lífið og hann vildi gjarnan ab fólk fengi ab heyra sögu sína. „Ég vil að fólk fái að vita að kraftaverkin gerast enn," sagði hann og hélt síðan aftur út í lífið. -GBK Persónuleg þjónusta Olíufélagið hf Láttu okkur mæla olíuna eða frostþolið í kælikerfinu, setja á þurrkublöð eða skipta um perur meðan þú bíður. Innan dyra er verslun, salemi og símasjálfsali - og það er alltafheittá könnunni. 'T

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.