Tíminn - 02.12.1995, Page 14
14
8£nfitra
Laugardagur 2. desember 1995
i- A N D L A
Alfreö Búason
andaöist á gjörgæsludeild
Borgarspítalans 28. nóv-
ember.
Árni Jóhannesson
bifvélavirkj ameistari,
Skjólbraut la, áöur
Hamraborg 26, Kópavogi,
andaðist á Vífilsstööum
sunnudaginn 26. nóvem-
ber sl.
Ásta Jónsdóttir,
Skólageröi 37, Kópavogi,
andaöist 29. nóvember.
Dagbjört Eiríksdóttir,
Njálsgötu 26, andaðist á
gjörgæsludeild Landspítal-
ans 29. nóvember.
Guöjón Kristjánsson
frá Eldjárnsstöðum,
Langanesi, andaðist á
dvalarheimilinu Nausti,
Þórshöfn, laugardaginn
25. nóvember.
Guöný Friöriksdóttir
frá Ytra-Bjargi andaðist á
sjúkrahúsinu á Hvamms-
tanga sunnudaginn 26.
þ.m.
Helena Líndal,
Heiðarási 26, Reykjavík,
lést miðvikudaginn 29.
nóvember.
Hallgrímur Hallgrímsson,
Túngötu 2, Grindavík,
andaðist sunnudaginn 26.
nóvember.
Ingólfur Th. Guðmundsson,
fyrrverandi deildarstjóri,
Fornhaga 23, Reykjavík,
lést á heimili sínu 28.
nóvember.
Jóhanna Björgólfsdóttir,
Heiðarbraut 5c, Keflavík,
lést 21. nóvember. Útför-
in fer fram frá Keflavíkur-
kirkju föstudaginn 1. des-
ember kl. 13.30.
Jóhanna Þórey
Daníelsdóttir,
Æsufelli 2, Reykjavík, and-
aöist á Sólvangi í Hafnar-
firði 23. nóvember.
Jónatan Jóhannesson
sjómaður, Laufásvegi 5,
lést 23. nóvember.
Jórunn Guöjónsdóttir
frá Presthúsum andaðist í
Sjúkrahúsi Vestmanna-
eyja 28. nóvember.
Júlíana Egilsdóttir,
áður til heimilis á Skúla-
götu 78, lést á Elli- og
hjúkrunarheimilinu
Grund 23. nóvember.
Júlíus Schiöth Lárusson,
Einibergi 3, Hafnarfirði,
lést á Sólvangi 28. nóvem-
ber.
Kristín Sigtryggsdóttir,
lést á elli- og hjúkrunar-
heimilinu Grund 26. nóv-
ember.
Margrét Sigurjónsdóttir,
Bláhömrum 2, lést í Borg-
arspítalanum miðvikudag-
inn 29. nóvember.
Orri Steinn Helgason
er látinn.
Ólafur Magnússon
skipasmiður, Túngötu 5,
ísafirði, andaðist í Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á ísa-
firði laugardaginn 25.
nóvember.
Soffía Guðrún Árnadóttir,
Furugerði 1, Reykjavík, er
látin.
UMBOÐSMENN TÍMANS
Kaupstabur Nafn umbobsmanns Heimili Sími
Keflavík-Njarbvík Erla Knudsen Elíasdóttir Heibarbraut 7D 421-5669
Akranes GubmundurGunnarsson Háholti 33 431-3246
Borgarnes Hrafnhildur S. Hrafnsdóttir Hrafnaklettur 8 437-1642
Stykkishólmur Erla Lárusdóttir Silfurgata 25 438-1410
Grundarfjörbur Gubrún). jósepsdóttir Grundargata 15 438-6604
Hellissandur Ævar Rafn Þrastarson Hraunsás 11 436-6740
Búbardalur Inga G. Kristjánsdóttir Gunnarsbraut 5 434-1222
Reykhólar Adolf Þ. Gubmundsson Hellisbraut 36 434-7783
ísafjörbur Hafsteinn Eiríksson Pólgata 5 456-3653
Subureyri María Fribriksdóttir Eyrargötu 6 456-6295
Patreksfjörbur Snorri Gunnlaugsson Abalstræti 83 456-1373
Tálknafjörbur Margrét Gublaugsdóttir Túngata 25 456-2563
Bíldudalur Vilborg Jónsdóttir Dalbraut 42 456-2141
'Þingeyri Karítas jónsdóttir Brekkugata 54 456-8131
Hólmavík júlíana Ágústsdóttir Vitabraut 13 451-3390
Hvammstangi Hólmfríbur Gubmundsdóttir Fífusund 12 451-2485
Blönduós Snorri Bjarnason Urbarbraut 20 452-4581
Skagaströnd Dagbjört Bæringsdóttir Ránarbraut 23 452-2832
Saubárkrókur Gubrún Kristófersdóttir Barmahlíb 13 453-5311
Siglufjörbur Gubrún Aubunsdóttir Hafnartún 16 467-1841
Akureyri Baldur Hauksson Drekagil 19 462-7494
Dalvík Harpa Rut Heimisdóttir Bjarkarbraut 21 466-1816
Ólafsfjörbur Sveinn Magnússon Ægisbyggb 20 466-2650
Húsavík Þórunn Kristjánsdóttir Brúnagerbi 11 464-1620
Laugar, S-Þing. Bókabúb Rannveigar H. Olafsdóttur 464-3181
Reykjahlíb v/Mývatn Dabi Fribriksson Skútahrauni 15 464-4215
Raufarhöfn Helga jóhannesdóttir Ásgata 183 465-1165
Þórshöfn Matthildur jóhannsdóttir Austurvegur 14 468-1183
Vopnafjörbur Ellen Ellertsdóttir Kolbeinsgata 44 473-1289
Egilsstabir Páll Pétursson Árskógar 13 471-1350
Seybisfjörbur Margrét Vera Knútsdóttir Múlavegur 7 472-1348
Reybarfjörbur Ragnheibur Elmarsdóttir Hæbargerbi 5 474-1374
Eskifjörbur Björg Sigurbardóttir Strandgata 3B 476-1366
Neskaupstabur Bryndís Helgadóttir Blómsturvellir 46 477-1682
Fáskrúbsfjörbur Ásdís Jóhannesdóttir Skólavegur 8 475-1339
Stöbvarfjörbur Sunna K. jónsdóttir Einholt 475-8864
Breibdalsvík Davíb Skúlason Sólheimar 1 475-6669
Djúpivogur Ingibjörg Jónsdóttir Hammersminni 10 478-8916
Höfn Sigurbjörg Einarsdóttir Víkurbraut 11 478-1274
Nesjar Kristín Gunnarsdóttir Stöbli 478-1573
Selfoss Bárbur Gubmundsson Trvqqvaqata 11 482-3577
Hveragerbi Þórbur Snæbjörnsson Heibmörk 61 483-4191
Þorlákshöfn Halldóra S. Sveinsdóttir Egilsbraut 22 483-3300
Eyrarbakki jóhannes Erlingsson Túngata 28 483-1198
Hvolsvöllur Ómar Eyþórsson Litlagerbi 10 487-8353
Vík í Mýrdal Pálmi Kristjánsson Sunnubraut 2 487-1426
Kirkjubaejarklaustur Bryndís Gubgeirsdóttir Skribuvellir 487-4624
Vestmannaeyjar Auróra Fribriksdóttir Kirkjubæjarbraut 4 481-1404
Gubrún Þóra Þorkelsdóttir
frá Fjalli
Þóra á Fjalli, eins og hún var oftast
nefnd, fœddist 17. apríl árið 1918 á
Miðgrund í Blönduhlíð í Skagafirði
þar sem foreldrar hennar, Una
Gunnlaugsdóttir og Þorkell Jónsson,
hófu búskap sinn. Þau fluttust
skömmu síðar að Miðsitju í sömu
sveit og þar ólst Þóra upp. Systkini
Þóru eru: Nikólína, f. 1920, búisett á
Akureyri, gift Rögnvaldi Árnasyni;
Helga, f. 1922, býr íReykjavík, hún
var gift Sigurði Sigfiissyni; Ingimar,
f. 1930, búsettur á Akureyri, kona
hans er Ósk Óskarsdóttir. Þóra var
um skeið í unglingaskólanum á
Sauðárkróki, en veturinn 1937-38
var hún á Héraðsskólanum á Reykj-
um í Hrútafirði. Eftir það vann hún
einn vetur á saumastofu í Reykjavík
hjá Dýrleifu Ármann. Árið 1941
giftist hún Halldóri Benediktssyni á
Fjalli í Sœmundarhlíð í Skagafirði.
Þau bjuggu fjögur ár í Varmahlíð og
störfuðu á vegum Varmahlíðarfé-
lagsins, en settust síðan að á Fjalli
og bjuggu þar í hálfan fjórða áratug.
Þau tóku að sér kjördótturina Mar-
gréti Sigurbjörgu (f. 1946, d. 1992).
Margrét var gift Ölafi Þ. Ólafssyni
vélstjóra og eignuðust þau þrjú böm,
þau Þóru Halldóru, Bryndísi og Jak-
ob Benedikt. Á Fjalli ólst einnig upp
systursonur Halldórs, Grétar Bene-
diktsson (f. 1942), sem búsettur er á
Akureyri. Kona hans er Ema
Bjamadóttir og eiga þau tvö böm,
þau Benedikt og Sigurlaugu.
Árið 1980 brugðu þau Þóra og
Halldór búi og fluttu í Vammhlíð.
Halldór lést árið 1990. Síðasta ára-
tuginn dvaldi Þóra á Sjúkrahúsi
Skagfirðinga og þar lést hún þann
21. nóvember síðastliðinn.
Þóra á Fjalli er nú látin eftir
langvarandi veikindi. Fyrir tæp-
um 40 árum kom ég að Fjalli til
sumardvalar hjá þeim Þóru og
Halldóri frænda mínum. Margrét
dóttir þeirra var þá 10 ára, litlu
eldri en ég, og Grétar frændi Hall-
dórs 14 ára. Hann hafði komið
nýfæddur að Fjalli til ömmu sinn-
ar, Sigurlaugar, eftir að móöir
hans lést. Sigurlaug var enn á
heimilinu þegar hér var komiö,
en Halldór og Þóra löngu tekin
við búrekstri. A sumrin var jafnan
nokkur fjöldi barna á Fjalli sem
„send höfðu verið í sveitina". Ef
ég man rétt, voru stundum hjá
Þóru aðkomubörn að vetrinum
einnig. Hún átti erfitt með að
neita kunningjum um greiða og
mun jafnvel hafa boðist til að
létta undir með fólki, ef hún vissi
aö erfiðleikar voru fyrir og börnin
þurftu að fá örugga vist um skeið.
Sumrin hjá þeim Halldóri og
Þóru áttu eftir að verða fleiri, og
þarna kynntist ég skagfirsku
sveitalífi eins og það gerðist upp
úr miðri þessari öld. Gamli tím-
inn var ennþá nálægur. Kýrnar
voru handmjólkaðar, enda raf-
magniö ekki komið, og dáðist ég
að því hvað Þóra var fljót að
mjólka og hve vel freyddi í föt-
t MINNING
unni hjá henni. Hrífan var ennþá
mikilvægt verkfæri í heyskapnum
og minnisstætt er mér hve rösk-
lega Þóra beitti henni. Hún var
dugnaðarforkur utanhúss sem
innan og þoldi enga leti og logn-
■mollu í kringum sig. Oft verður
mér hugsaö til uppeldisaðferða
hennar. Hún átti það til að spyrja,
þegar kúasmalinn kom inn í bæ,
hvað hann hefði nú verið að gera.
Ef vel hafði verið unnið og jafn-
vel hugkvæmni beitt, gat maður
verið viss um að fá hrósyrði. Það
stóö t.d. ekki á lofi þegar kúasmali
sagðist eitt sinn hafa endurnýjað
halaböndin í fjósinu. Aftur á móti
fannst Þóru minna til þess koma
þegar við Grétar lágum undir
bæjarvegg á sólríkum degi og
tefldum. „Það er aldeilis vita
voðalegt hvernig þú spillir
drengnum," sagði hún og beindi
orðum sínum til Grétars. Þó hún
gæti verið hvöss í orðum í amstri
dagsins, var stutt í gamansemina
og hún gat gert góðlátlegt grín að
sjálfri sér og öðrum. Reyndar var
hún afar næm á hagi annarra.
Berdreymin virtist hún vera, og
mér fannst stundum sem hún sæi
gegnum holt og hæðir. Hitt er
víst að hún fylgdist vel með öll-
um hræringum sem í sjónmáli
voru. Þannig var vissara að bera
sig vel í göngulagi, þó maður væri
staddur langt suður á túni.
En glettni Þóru og hvassar gáfur
gerðu það að verkum að margir
vildu sækja hana og þau hjónin
heim, enda Halldór öðlingsmað-
ur og ljúfmenni; gestrisni þeirra
var einstök. Þóra.hafði sérstakt
lag á að tala við fólk og finna um-
ræöuefni við hæfi. Oft komu gest-
ir langt að og virtist þeim líða vel
í litlu vistarverunum á Fjalli, þó
þeir ættu að venjast stórum söl-
um. Þar má nefna Vestur-íslend-
inginn og frænda Þóru, Soffanías
Þorkelsson, og enska stangveiði-
manninn Fortesque, en hann
kom á hverju sumri í Sæmundar-
hlíbina og fékk m.a. að steikja
sveppina sína á kokseldavélinni
hennar Þóru. Best virtist Þóra
njóta sín þegar eldhúsið var orðið
fullt af gestum, sem eins og fyrir
tilviljun hafði borið að garði: sr.
Gunnar í Glaumbæ á bláa Land-
róvernum sínum, Benni á Vatns-
skarbi á Skjóna, Pála á Skarðsá á
Rauð og Dúddi á Skörðugili á
þeim leirljósa. Þá þraut nú ekki
umræðuefnið. Mér hefur komið í
hug að Þóru hefði fallið vel að
vera nær þjóðbrautinni en raunin
varð á. Ekkert hefbi hún heldur
haft á móti því að feröast meira.
. Víst er a.m.k. að hún skemmti sér
vel þegar hún fór í bændaferð til
Kanada árið 1975 og heimsótti
m.a. gamla kúarektorinn sinn í
Winnipeg. Hann hafði víst ekki
dreymt um það í sveitinni í gamla
daga að sá dagur kæmi ab hann
færi með Þóru á Fjalli í dýragarð í
Ameríku og drykki með henni á
eftir krús af öli á gamalli indíána-
krá.
„Það er nógur tími til að sofa í
gröfinni," sagði Þóra eitt sinn
þegar henni þótti illa ganga að
vekja fjósamann. Þab er eins og
mig minni að þessi athugasemd
hafi hrifið fljótt og vel og satt að
segja hefur hún oftsinnis síðan
drýgt morgunverkin, þegar freist-
andi hefði verið að snúa sér upp
ab vegg og halda áfram að sofa.
Ég er þakklátur fyrir að hafa
kynnst Þóru og öllu því fólki sem
var á Fjalli. Þar minnist ég meðal
annarra móður Þóru, merkiskon-
unnar Unu Gunnlaugsdóttur,
sem kom á hverju sumri til dóttur
sinnar og dvaldi hjá henni um
skeið. Erfið voru síðustu árin hjá
Þóru og sárt var að þurfa skömmu
eftir lát Halldórs að sjá einnig á
bak dótturinni Margréti, sem
hafði reynst henni og þeim hjón-
unum svo vel.
Ég votta ættingjum og vensla-
fólki Þóru á Fjalli samúb mína.
Baldur Hafstað
Cullsmíöastofan Tímadjásn 17 ára:
Flutt í nýtt húsnæði
Eigendur fyrirtœkisins gáfu sér tíma fyrir myndatöku á meban verib var
ab standsetja nýja húsnœbib.
Gullsmíðastofan Tímadjásn var
stofnub þann 11. nóvember 1978.
í 17 ár hefur starfsemin veriö í
litlu, en notalegu húsnæði í versl-
unarmiðstöðinni Grímsbæ í Foss-
vogi. Það er Kristinn Sigurðsson,
gull- og silfursmíðameistari, og fjöl-
skylda hans sem reka Tímadjásn, en
þar starfa í dag 2 gullsmiðir, 2 gull-
smíðanemar og 2 í verslun.
Laugardaginn 11. nóvember sl.
var haldið upp á þennan áfanga
með því ab flytja versiunina í nýtt
og rúmbetra húsnæði, 10 metrum
frá því gamla á nebri hæðinni í
Grímsbæ.
Að sögn Kristins Sigurðssonar er
fyrirtækið þekkt fyrir hagstætt verb
og mikib vöruval, sem aldrei hefur
verið eins fjölbreytt og nú þegar
flutt er á nýja staðinn. „Við smíð-
um skartgripi og bjóbum ennfrem-
ur úrval af skírnargjöfum, úrum og
klukkum. Einnig veitum við við-
gerðarþjónustu. Þetta húsnæði var
löngu orðið of lítib og aðeins um 40
fermetrar að stærð," sagbi Kristján.