Tíminn - 09.12.1995, Blaðsíða 6
Wmtom
6
Laugardagur 9. desember 1995
40 ljósa með spennubreyti kr. 980
80 ljósa með spennubreyti kr. í .759
120 ljósa ameð spennnubreyti kr. 2.690
Vönduð útisería
stærri perur, þarf
engan spennubreyti
kr. 2.990
35 ljósa stærri perur
meiri ljósadýrð
JOLATRH
Salan
er hafin
UTISI'Rlim
INNISERIUR
NÝJAR
BÆKUR
Fararstjórn
hjartans
Bókaútgáfan Setberg hefur
gefiö út bókina „Lát hjartað
ráða för" eftir Susönnu Ta-
maro í þýðingu Thors Vil-
hjálmssonar.
Bókin kom fyrst út í heima-
landi höfundar, Ítalíu, í byrjun
árs 1994 og hefur á átján mán-
uðum selst þar í rúmlega 2
milljónum eintaka. Slíkt hefur
ekki gerst síðan bók Umbertos
Eco, „Nafn rósarinnar", kom
út á sínum tíma. Og sigur-
ganga bókarinnar „Lát hjartað
ráöa för" heldur áfram, því nú
þegar hefur hún verið þýdd á
yfir 20 tungumál og verið er
að ljúka gerð kvikmyndar sem
byggð er á bókinni.
Aðalpersóna bókarinnar,
amman, er dauðvona og tími
uppgjörs er upp runninn. Hún
skrifar bréf til ungrar dóttur-
dóttur sinnar í Ameríku, rifjar
upp liðinn tíma — og leyndar-
mál streyma fram. Hún segir
harmsögu dóttur sinnar, móð-
ur stúlkunnar, frá foreldrahús-
um, hjónabandi — skrifar um
djúpar tilfinningar, sorg og
gleði.
„Lát hjartað ráða för" er saga
konu sem lifað hefur langan
dag — og óskar barnabarni
sínu þeirra heilla, að hjartað
megi ráða för — áður en það
er um seinan.
Thor Vilhjálmsson hefur
þýtt bókina úr frummálinu —
og af þeirri snilld sem lesendur
hans þekkja frá verkum hans.
Þetta er fyrsta bók eftir Su-
sönnu Tamaro sem kemur út á
íslandi.
Bókin er 160 blaösíður og
kostar 1.980 krónur.
Ástarvængir
Bókaútgáfan Setberg hefur
sent frá sér bókina „Vængir ást-
arinnar" eftir Danielle Steel í
þýðingu Skúla Jenssonar.
Cassie er dóttir Pats O'Melly
Jólapakkatilboð Póstsins
Póstur og sími býður viðskiptavinum sínum sérstakt jólapakkatilboð fyrir
jólapakkana innanlands. Skilyrði er að sendingin sé send í sérstökum umbúðum
(sjá mynd). Þegar þú sendir jólagjafirnar með Póstinum í þessum umbúðum,
; ■ ■ i i
greiðir þú aðeins 310 kr. fyrir pakkann, þyngd hans skiptir ekki máli. Þetta
jólapakkatilboð gildir frá 1.-23. desember 1995 og skiptir þá engu hvert þú
sendir pakkann hér irmanlands. Svo lengi sem hann er í þessum umbúðum kostar
sendingin aðeins 310 kr.
Umbúðirnar eru til sölu á öllum póst- og
símstöðvum. Með því að nota jólapakkatilboð
Póstsins hefur þú valið eina fljótlegustu,
öruggustu og ódýrustu leiðina til að senda
jólagjafirnar í ár.
I Umbúðir síaeVð BJ
I (23x31x12 óri,)
I + burðargjald = 310 kr.
I Má senda hvert sem er
I innanlands.
T
I
I
I
I
I