Tíminn - 13.12.1995, Síða 8
8
Wmim»
Mi&vikudagur 13. desember 1995
UTLÖND . . . UTLÖND . .=. UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . .
ÞEIR BREYTTUISLANDSSÖGUNNI
Þingkosningar veröa í Austurríki á sunnudaginn:
Hægrisinnum
spáb miklu fylgi
Vínarborg — Reuter
Jörg Haider, leiðtogi öfgasinnaðra
hægrimanna í Austurríki, segist
munu beita sér fyrir því að vísa
ólöglegum innflytjendum úr landi,
vegna þess aö þeir beri ábyrgö á
fjölgun glæpa og séu að grafa und-
an þjóðfélaginu. Hins vegar tók
hann fram að þeir útlendingar, sem
dveljast í Austurríki á löglegan hátt,
muni áfram njóta allra borgaralegra
réttinda.
„Þab er naubsynlegt að gera fólki
ljóst að það er munur á ólíkum
hópum útlendinga. Vib höfum lög-
lega útlendinga í Austurríki og þeir
... hafa sömu réttindi og Austurrík-
ismenn," sagði Haider. „En við höf-
um sífellt fleiri ólöglega í Austur-
ríki. Þetta fólk ber ábyrgð á glæpun-
um ... og það er nauðsynlegt að
minnka áhrif þeirra og fjarlægja þá
úr landinu, vegna þess að þeir
stofna samfélaginu í hættu."
f skobanakönnunum hefur flokk-
ur Haiders, Frelsisflokkurinn, feng-
ið 25% atkvæða, en í síðustu kosn-
ingum, sem fram fóru í október á
síðasta ári, hlaut hann 22,5% at-
kvæða og 42 sæti af 183 á austur-
ríska þjóðþinginu, sem er meira en
nokkur annar flokkur þjóðernis-
sinna í Evrópu getur státað sig af.
Haider tók við forystu flokksins árið
1986, en þá var flokkurinn meö um
9% fylgi.
Haider hefur verið áberandi í f jöl-
miðlum og lagt áherslu á andstöðu
við útlendinga. Þannig hefur hon-
um tekist að gera Frelsisflokkinn að
Látnir lausir
Belgrad — Reuter
Frönsku herflugmennirnir tveir,
sem verið hafa í haldi Bosníu-Serba
frá því í ágúst, voru afhentir franska
hernum í gær. Þota þeirra var skotin
nibur í árás Nató á Bosníu-Serba
þann 30. ágúst sl., en óvissa hefur
ríkt um örlög þeirra þangað til frétt-
ir bárust af því í fyrradag að Bosníu-
Serbar myndu láta þá lausa.
Að sögn sjónarvotta virtust menn-
irnir nokkub ringlaðir í gær, og ann-
ar þeirra haltrabi nokkuð, en bábir
höfðu þeir meiðst á fótum eftir að
flugvél þeirra var skotin niður. ■
þriðja stærsta flokki landsins, og ár-
angurinn í kosningunum á síðasta
ári varb töluvert áfall fyrir hefð-
bundnu flokkana. Hvorki Jafnaðar-
mannaflokki Vranitzkys, núverandi
kanslara, né hinum íhaldssama
Þjóbarflokki hefur tekist ab stöðva
sigurgöngu Haiders.
Austurrískir stjórnmálaskýrendur
segja að þó nokkur hluti austurr-
ískra kjósenda, sem annars eru
þekktir fyrir að vera vanafastir í
stjórnmálum, muni nota atkvæbi
sitt til ab lýsa óánægju sinni með
stóru flokkana tvo, en samsteypu-
stjórn þeirra lagði upp laupana í
október sl. vegna deilna um fjár-
lagafrumvarpið. Sá, sem nýtur góðs
af ósamlyndi þeirra og óánægju
kjósenda, er ekki síst Jörg Haider og
Frelsisflokkur hans. ■
Reiknaö meö aö Evrópuþingiö samþykki tolla-
bandalag viö Tyrkland:
Horft framhjá
ástandinu
Strasbourg — Reuter
Eftir ab þingnefnd Evrópuþings-
ins samþykkti sl. mánudag að
kosið yrði á Evrópuþinginu í dag
um samning ESB og Tyrklands
um tollabandalag, er talið nokk-
uð öruggt ab samningurinn verbi
samþykktur á þinginu. Tolla-
bandalagið á að ganga í gildi
þann 1. janúar nk. og felur í sér
nánari tengsl en ESB hefur hing-
að til gengið í við nokkurt annað
ríki utan sambandsins.
Fjöldi þingmanna hefur mán-
ubum saman hótað því að samn-
ingnum verði frestað eða jafnvel
að neita ab staðfesta hann vegna
þess að ástand mannréttinda-
mála í Tyrklandi er ekki meb
þeim hætti sem þeir geta sætt sig
vib. Síðustu daga hafa þeir mátt
glíma við samvisku sína og virb-
ast hafa komist ab þeirri niður-
stöðu að áhættan af því að ein-
angra Tyrkland sé það mikil, ab
áhyggjur af mannréttindamálum
verði að bíða um stund.
„Við gerum okkur fulla grein
fyrir landfræðilegu mikilvægi
Tyrklands," sagði Pauline Green,
leiðtogi sósíalista á Evrópuþing-
inu. „Auðvitað erum við ekki
ánægb með mannréttinda-
ástandib og lýðræðið í Tyrklandi
— og er þá raunar tekið vægt til
orða. Vib höfum gífurlega miklar
áhyggjur," bætti hún viö.
Samningurinn felur það í sér
að báðir aöilar afnema tolla af
iðnvarningi hvors annars. Reikn-
að er með að útflutningur tyrk-
neskra vefnaðarvara tvöfaldist í
kjölfarið, en hann nemur nú
meira en 300 milljörðum ísl.
króna og er helsta uppspretta
gjaldeyristekna í Tyrklandi,
ásamt ferbaþjónustu. Hins vegar
gæti þurft ab fækka starfsfólki í
sumum greinum, svo sem bif-
reiðaframleiðslu, sem njóta sér-
stakrar tollaverndar og ríkis-
styrkja. ■
Eftir Vilhjálm Hjálmarsson
fyrrverandi menntamálaráðherra
Metsöluhöfundinum Vilhjálmi Hjálmarssyni
er einkar vel lagið að segja frá eins og al-
kunna er. Hann hefur nú tekið saman tvo afar
athyglisverða þætti um efni sem of lengi hafa
bgið í þagnargildi:
Orlagaatburði um miðja öldina. Þegar bjargarleysi vofði
yfir og botnlaus ófæro lokaði leiðum gripu vaskir menn
tjl nýira ráða...
Árabátaútgerð vinaþjóðar okkar, Færeyinga, héðan.
Færeysku sjómennirnir komu áratugum saman sunnan
yfir sæinn og höfðu sumardvöl við einhvern fjörðinn
eða víkina...
Fróðleg og skemmtileg bók
- eins og Vilhjálms er vandi. ÆSKAN
Ábúöarfullir stuöningsmenn hlýöa á boöskap leiötoga rússneska Kommúnistaflokksins ígær.
Reuter
Kommúnistar
sigurstrangleg-
ir í Rússlandi
Moskva — Reuter
„Við höfum aukið fylgi okkar
verulega, sérstaklega meðal
ungs fólks," sagði Gennadí
Sjúganov, leiðtogi rússneska
Kommúnistaflokksins, við
fréttamenn í gær og hélt því
fram að á síðustu sex mánuðum
heföu 700.000 nýir meðlimir
gengið í flokkinn. í skoðana-
könnunum hefur flokkurinn
komið vel út, með allt að 20%
fylgi, og hefur því meira fylgi en
nokkur annar flokkur sem býð-
ur fram í þingkosningunum
sem haldnar verða á sunnudag-
inn. Alls eru 43 flokkar í fram-
boði.
Sjúganov spáði því að fimm
eða sex aðrir flokkar myndu ná
yfir fimm prósenta múrinn sem
er nauðsynlegt til þess að hljóta
þingsæti í Dúmunni, neðri
deild þjóðþingsins. „Enginn á
eftir að vinna yfirburðasigur,"
sagði hann og sagðist gera sér
vonir um að mynduð yrði sam-
steypustjórn þar sem kommún-
istar gegndu mikilvægu hlut-
verki. „Þið hafið kannski tekið
eftir því að enginn hefur sýnt
neinum ókurteisi í kosningabar-
áttunni."
BRÖXOFIÆX:
-Mestseldn 5
bi
andl:
Aratuga reynsla á Islandi
" innandyra sem utan í
“ skólum,
H fyrirtækjum,
m stofnunumog
m heimilum.
■ Broxoflex burstamott-
m urnareruþægilegarí
■ meðförum, hægt að rúlla þeim upp.
■ Broxoflex burstamotturnar eru ís-
■ lensk framleiðsla. Þær hreinsa vel
■ jafnt fínmunstraða sem grófmunstr-
■ aðaskósóla.
■ Broxoflex burtsamotturnar eru
■ framleiddar með svörtum, rauðum,
“ bláum, gulum eða grænum burstum
m ístærðumeftiróskumviðskiptavina.
« T*KHI0M.PAft|t
Smiðshöfða 9
Sími 587 5699
132 Reykjavík
Fax 567 4699
«
♦