Tíminn - 03.04.1996, Side 11
Miövikudagur 3. apríl 1995
Mm
11
ingu Skinneyjar hf., sem nú er
orðiö stórmyndarlegt fyrir-
tæki í sjávarútvegi á Höfn og
gildur þáttur í atvinnulífinu
þar. Nýlega haföi hann dregiö
sig þar út úr stjórnunarstörf-
um og skilað þeim til nýrrar
kynslóðar.
Ásgrími hefðu vafalaust
staðið allar dyr opnar til
áhrifa á landsvísu, ef hann
hefði beitt sér á þeim vett-
vangi. Hann kaus hins vegar
að beita afli sínu til uppbygg-
ingar á Höfn þar sem hann
valdi sér ungur starfsvettvang
og stóð traustum fótum í því
samfélagi og lifði þar lífinu í
tengslum við land og sjó.
Hann var ræktunarmaður og
landbúnaður átti hug hans
ásamt sjónum, svo aö alltaf
hafði hann skepnur, bæði
kindur og hesta. Skógræktar-
maður var hann af lífi og sál.
Hann reisti sér sumarbústaö í
Lóni og átti þar skógivaxinn
unaðsreit.
Ég minnist þess að eitt sinn
vorum við hjónin í heimsókn
í sunrarbústaönum hjá þeim
Guðrúnu og Ásgrími og ég
gekk með lionum á sólskins-
morgni niöur aö girðingunni
þar sem hann haföi hestana
sína. I’egar þeir sáu okkur
nálgast, kornu þeir allir sem
einn ab girðingunni til þess
ab þiggja brauð hjá eiganda
sínurn, sem þeir fengu. „I’að
má aldrei svíkja þá," sagði
hann. Ég hef oft minnst þess-
ara orða og finnst þau vera
táknræn fyrir líf hans. Hann
sveik aldrei uppruna sinn eða
þá hugsjón að leggja alla
krafta sína franr til þess ab
byggja upp undirstöðuna, góð
fyrirtæki sem geröu fólki
kleift að lifa mannsæmandi
lífi. Hann var ávallt á orrustu-
vellinum miðjum.
Það var alls stabar sami
myndarskapurinn hvort sem
var í sumarbústaðnum, heima
fyrir, eða í gróöurhúsinu á
Hvannabrautinni þar sem rós-
irnar hennar Gubrúnar
breiddu úr sér. Nú síðast voru
þau sest aö í sambýlishúsi
aldraöra á Höfn þar sem
Vatnajökul ber við loft í
kvöldsólinni út um eldhús-
gluggann með útsýni allt til
Oræfajökuls. Sú dvöl var
styttri fyrir Ásgrím en efni
stóöu til, en um það tjáir lítt
að sakast við þann sem öllu
ræður.
Með honum er genginn
einn af merkari athafna-
mönnum seinni ára í sjávar-
útvegi. Hann vann í sam-
vinnuhreyfingunni og ein-
staklingsframtakinu og var
jafnvígur í hvoru tveggja.
Framsóknarmenn sakna
hins trausta stuðningsmanns,
sem ávallt var boðinn og bú-
inn ab leggja þaö lið sem
hann mátti, og það munaði
urn hann. Fyrir það vil ég
þakka aö leiðarlokum fyrir
hönd framsóknarmanna á
Austurlandi og ég veit að
framsóknarmenn um allt land
taka undir þær þakkir.
Vib Margrét vottum Guð-
rúnu og fjölskyldunni allri
innilega samúð og erum
þakklát fyrir góba viðkynn-
ingu, sem ekki hefur borið
skugga á.
Jón Kristjánsson
Ásgrímur Halldórsson var
kaupfélagsstjóri Kaupfélags
Austur- Skaftfellinga frá mars
1953 til 1. ágúst 1975, eða í
rúmlega 22 ár. Hann var
einnig, fyrir hönd kaupfélags-
ins, framkvæmdastjóri Fiski-
mjölsverksmiðju Hornafjarðar
frá stofnun 1969 til 1975 og
framkvæmdastjóri Borgeyjar
frá 1953 til 1977. Auk þess
gegndi hann fjölmörgum
trúnaðarstörfum fyrir kaupfé-
lagið.
Ásgrímur var aðeins 28 ára
gamall þegar hann tók vib
starfi kaupfélagsstjóra hjá
Kaupfélagi Austur-Skaftfell-
inga. Óhætt er að segja ab þá
tók við samfellt tímabil upp-
byggingar og framkvæmda
hjá kaupfélaginu. Á þessum
tíma lagði hann með kjarki og
framsýni grunninn að öflugri
atvinnustarfsemi í héraðinu.
Ásgrímur vissi ab sjávarútveg-
ur og vinnsla sjávarafurða var
nauðsynlegur grundvöllur til
að byggja upp öflugt atvinnu-
líf í héraðinu og tók því strax
til við að efla þessa starfsemi
hjá kaupfélaginu, sem fljót-
lega varð ein af stærstu rekstr-
areiningum þess. Hann bar
einnig hag bænda fyrir brjósti
og stuðlaði að uppbyggingu í
sveitum. I>að var ávallt gott að
leita til Ásgríms um alla hluti
og í starfi sínu veitti hann
mörgum viðskiptamönnum
kaupfélagsins margvíslega fyr-
irgreiðslu og aðstoð með
greiðvikni og skilningi á
málavöxtum.
í kaupfélagsstjóratíö Ás-
gríms var m.a. byggt nýtt hús-
næði fyrir aðalverslun félags-
ins, verslunarhús á Fagurhóls-
mýri og í Skaftafelli, Fiski-
mjölsverksmiðjan í Óslandi,
nýtt mjólkursamlag, veiðar-
færageymslur, kartöflugeymsl-
ur og síbast en ekki síst þá
stóð hann fyrir uppbyggingu
Fiskiðjuversins í Krossey, sem
var á sínum tíma talið eitt hið
glæsilegasta í landinu. Kaup-
félagið stóö á þessum tíma
fyrir meginhlutanum af at-
vinnustarfsemi í Austur-
Skaftafellssýslu og hafði þar
með áhrif, að meira eða
minna leyti, á sérhvert heim-
ili í sýslunni.
Á starfsferli sínum sem
kaupfélagsstjóri hafbi Ásgrím-
ur forystu um miklar fram-
kvæmdir og framfarir í Aust-
ur-Skaftafellssýslu. Starfsemi
kaupfélagsins óx og margfald-
aðist á öllum sviðum og rekst-
ur þess var hagstæður. í kjöl-
far þess fylgdi einnig upp-
bygging til sjávar og sveita.
Kaupfélag Austur-Skaftfell-
inga og félagsmenn þess
standa í ævarandi þakkar-
skuld við Ásgrím Halldórsson,
en hann helgaði félaginu
starfskrafta sína stóran hluta
starfsævi sinnar og skildi eftir
sig spor sem seint munu
hverfa.
Eftirlifandi eiginkonu Ás-
gríms, Guðrúnu Ingólfsdótt-
ur, börnum þeirra og öðrum
aðstandendunr vottum við
innilega samúð okkar.
F.h. Kaupfélags Austur-
Skaftfellinga,
Pálmi Guömundsson
kaupfélagsstjóri,
Orn Bergsson
stjórnarformaður
Frá því ég fyrst man eftir mér
leit ég upp til Ásgríms, þessa
frænda míns sem stýrði stóru
kaupfélagi í Hornafirði og var
þar mikill athafnamaður.
Hann var örlagavaldur í mínu
lífi eins og margra annarra.
Hann útvegaði mér sumar-
dvöl í sveit hjá góðu fólki í
Þórisdal í Lóni, þegar ég var á
níunda árinu. Á hverju vori
og hausti í fimm ár dvaldi ég
á heimili hans og Guðrúnar,
þegar ég var á leið í og úr
sveitinni. Seinna stundaði ég
sjó á hornfirskum báti og
vann sem verkamaður á Höfn
og átti þá alltaf skjól á heimili
þeirra.
Á námsárunum fann ég
hvað hann fylgdist með
hvernig mér reiddi af og
hvatti mig þegar við hittumst.
Ég veit að hann fylgdist með
líkum hætti með fjölda ungs
fólks í Hornafirði, hvatti það
til dáða og studdi til góðra
verka.
Eftir ab námi lauk héldum
við alltaf sambandi. I>á vann
ég m.a. fyrir hann verkefni á
árunum 1984 og '85, þegar
hann var að kanna nýja
möguleika til uppbyggingar
Skinneyjar hf. Það var ekki
síst vegna þess að ég fann að
ég hafði stuðning og traust
Ásgríms aö ég réð mig til
starfa hjá Borgey hf. í maí
1992, þegar sjávarútvegsstarf-
semi KASK var endurskipu-
lögð. Þá fórum vib Ásgrímur
að starfa saman með allt öðr-
um hætti en áður. Við stýrð-
um fyrirtækjum sem áttu í
beinni samkeppni, en áttu
líka í samstarfi. Einnig störf-
uðum við saman í stjórn Ós-
lands hf., fiskimjölsverk-
smiðju, við að byggja fyrir-
tækib upp.
Á fyrstu tveim starfsárum
mínum sem framkvæmda-
stjóri Borgeyjar hf. gekk félag-
ið í gegnum miklar þrenging-
ar. Þessi ár voru erfið, ég fann
til mikillar ábyrgðar sem
stjórnandi Borgeyjar hf., sem
vegna stærðar sinnar er burð-
arás í atvinnulífi í Hornafirði.
Við Ásgrímur vorum ekki allt-
af sammála um hvernig staðið
skyldi að málum, en alltaf gat
ég leitað til hans til að ræða
vandasöm úrlausnarefni sem
ég átti við ab glíma. Það var
ekki síst þá sem ég fann
hversu yfirgripsmikla þekk-
ingu og djúpstæðan skilning
hann hafbi á rekstri fyrir-
tækja.
Það var samt ekki sú þekk-
ing hans sem réð úrslitum fyr-
ir mig, þegar mest á reyndi,
heldur að geta ætíð leitað til
hans og átt trúnað hans þegar
mér fannst álagið verða yfir-
þyrmandi. Þá var gott að geta
létt af sér fargi og geta rætt
hvaða tilfinningar voru að
bærast í brjóstinu. Þá skynjaði
ég hversu mikinn persónuleg-
an styrk Ásgrímur haföi og ég
fór frá honum meb endurnýj-
að baráttuþrek. Ásgrímur bar
hag Borgeyjar hf. ávallt fyrir
brjósti, reyndist mér hollráður
og studdi mig alltaf útávib,
þegar mest á reyndi. Fyrir það
verö ég honum ætíð þakklát-
ur.
Elsku Guðrún, við Tóta
vottum þér og fjölskyldu
þinni okkar dýpstu samúð.
Halldór Ámason
Sænska kon-
ungsfjölskyldan
Frímerkjablokkin á afmœli sœnska konungsins.
Þann 30. apríl í vor verður Karl
XVI. Gústaf Svíakonungur
fimmtugur. Svíþjóð er eitt
þeirra landa, sem eru stolt af
þjóðhöfðingja sínum í þeim
mæli, að þau gefa sífellt út frí-
merki með mynd hans og sér-
stök frínrerki á tyllidögum, eöa
þaö sem er kallað minningarfrí-
merki á íslensku máli. Karl
Gústaf varð krónprins er afi
hans varö konungur árið 1950
(faðir hans fórst í flugslysi þrem
árum fyrr) og konungur 27 ára
ganrall árið 1973. Þá var hann
yngsti þjóðhöfðingi Evrópu og
jafnframt yngsti konungur á
stóli í Svíþjóð í tvö hundruð ár.
„Fyrir Svíþjóð í nútímanum" er
orðtak hans, enda hefir hann
verið afar nútímalegur þjóð-
höfðingi á allan hátt síðan
hann tók viö konungdómi.
Þann annan október 1993
var gefið út frímerkjahefti með
konungsfjölskyldunni í. Verð
þess var 40 krónur, en frímerk-
in voru að verðgildi krónur
8,00, 10,00 tvö frímerki og eitt
á 12 krónur. Nú kemur út
samskonar blokk meö myndum
af konunginum í ýmsum hlut-
verkum. Þrjú minni frímerkin
eru hvert á 10,00 krónur, en
stærsta frímerkið er að verðgildi
20,00 krónur og kostar því
blokkin með öllum frímerkjun-
um í einu hefti, fimmtíu krón-
ur á fimmtugsafmælinu.
Þrátt fyrir að þetta sé aöeins
nafnverð frímerkjanna, gefur
pósturinn 5,00 krónur af hverri
blokk í sérstakan sjób, „Afmæl-
issjóð konungsins fyrir æskulýö
í Svíþjóö", enn fremur til sjóðs-
ins fyrir vísindi, tækni og um-
hverfisvernd. Skiptist upphæö-
in milli sjóðanna.
FRIMERKI
SIGURÐUR H. ÞORSTEINSSON
Karl Cústaf prins sem ylfingur.
Fjölskyldumyndin, sem er
stærst, er í sömu stærð og
myndirnar á frímerkinu við
krýningu hans voru og einnig
árin 1991 og 1993, eins og áður
segir. Auk fjölskyldumyndar-
innar eru myndir af konungin-
um viö ýmis störf. Sú fyrsta er
frá athöfn í Tyresta-garðinum,
suöaustan Stokkhólms, er hann
var geröur aö þjóögaröi áriö
1993. Næsta mynd er svo í
myndasafní Bernadottefjöl-
skyldunnar í konungshöllinni í
Stokkhólmi. Að baki getur aö
líta mynd Francois Gérard af
Karli XIV. Jóhanni Bernadotte,
sem varö konungur Noregs og
Svíþjóðar árið 1818.
Fjölskyldumyndin var gerð
þegar Viktoría dóttir hans varö
myndug og fór aö taka viö
ýmsurn störfum sem krónprins-
essa. Er hún því á miðri mynd-
inni, með fööur sinn til vinstri
handar, en móöur sína drottn-
inguna til hægri. Systkini
hennar eru svo sitt á hvorum
enda myndarinnar.
Útgáfudagur blokkanna og
heftisins er 30. apríl, sem er af-
mælisdagur konungsins eins og
sagöi í upphafi. Hinar ýmsu
myndir eru teknar af Bertil Eric-
son, Clas Göran Carlsson,
Charles Hammersten og Toni
Sica. Hönnun frímerkjanna er
gerð af Lars Sjöblom, en meist-
ari allra tíma, Czeslaw Slania,
hefir svo grafið hina endanlegu
gerö frímerkjanna. Stálstungan
er prentuö í einum lit, en ofan í
hana er svo litprentaö í fjórum
litum í offset í prentverki Pósts-
ins í Kista í Stokkhólmi.
Eins og áður er sagt, er verö
heftanna 50,00 Skr. Fyrsta dags
bréf kosta 53,00 Skr., en frí-
merkin á sérstöku safnarablaöi
kosta 66,00 Skr.
Þess má svo geta svona í lok-
in, aö Karl XVI. Gústaf hefir
alla ævi starfað sem skáti. Hann
hóf störf sem ylfingur, strax og
hann haföi aldur til þess. Síðan
gekk hann gegnum hin ýmsu
stig skátastarfsins, eins og það
áöur var, allt upp í Róver-skáta,
en nú á seinni árum hefir hann
svo starfaö meö Skt. Georgs-
skátum, eftir aö þeir komu til
sögunnar. Þetta er ef til vill ekki
einstakt um þjóöhöföingja, en
undirritaöur verður aö játa aö
hann þekkir aöeins einn annan
sem hefir slíkan feril að baki. Sá
er þó ekki tekinn viö völdum
enn, enda krónprins í miklu
smærra ríki en Svíþjóö.
Margir hafa viljaö halda því
fram, að skátastarfið, sem hefir
alla tíö veriö konunginum hug-
leikið, sé meöal annars orsök
þess, aö hann hefir svo mikið
látið sig varða náttúru landsins
og umhverfismál. Þetta hefir
einnig verið aðalsmerki hans á
alþjóðlega vísu. ■