Tíminn - 27.06.1996, Page 5
Fimmtudagur 27. júní 1996
5
Kristófer Már Kristinsson:
Hver á aö veröa forseti?
Nýr forseti verður kosinn
á laugardaginn. Fjórir
eru í kjöri, allt hiö mæt-
asta fólk hvert á sinn hátt. Þjóð-
in hefur undanfarnar vikur veg-
ið og metið frambjóðendurna,
fundið suma léttvæga og aðra
verðuga. Svo sem oft vill verða
þegar fólk skipar sér í fylkingar,
ímyndaðar eða raunverulegar,
kemur upp keppnisandi og
metnaður fyrir hönd þess fram-
bjóðanda sem sérhver velur.
Það er eðlilegt og sjálfsagt. Hins
vegar fer ekki hjá því að stöku
liðsmenn fari offari í stuðningi
sínum og telji jafnvel sínum
frambjóðanda best komið í
embætti ekki í gegnum eigin
verðleika, heldur með því að
gera lítið úr eiginleikum svo-
kallaðra andstæðinga.
Þetta hefur að sönnu alltaf
verið snar liður í undirheima-
starfi stjórnmálaflokka, en er
varla viðeigandi í forsetakosn-
ingum þar sem allir kjósendur
eiga þá sameiginlegu hagsmuni
að sá, sem kjörinn er, sé sá hæf-
asti og um hann sé góöur friður.
Það er eðlilegt að í kosningabar-
áttu þar sem takast á frambjóð-
endur með langan starfsferil að
hann sé rifjaöur upp, fólk
grandskoði hann til að vega og
meta hæfileika frambjóðend-
VETTVANCUR
„Það er þess vegna und-
arlegt að umfjöllun um
ÓlafRagnar Grímsson,
sem lengi hefur verið um-
deildur stjómmálamaður,
skuli allt í einu vera tabu.
Öll umrœða um feril
hans er rógur og illmœlgi,
kannski það segi meira
um feril hans en nokkuð
annað."
anna og hæfni þeirra til að
gegna embættinu.
Það er þess vegna undarlegt
að umfjöllun um Ólaf Ragnar
Grímsson, sem lengi hefur veriö
umdeildur stjórnmálamaður,
skuli allt í einu vera tabu. Öll
umræða um feril hans er rógur
og illmælgi, kannski það segi
meira um feril hans en nokkuö
annað. Það er að sama skapi
undarlegt að Guðrún Agnars-
dóttir, sem sannarlega er hinn
pólitíkusinn í framboði, skuli
allt í einu vera ópólitísk. Látið er
að því liggja að forsetaembættið
sé ópólitískt í öllum skilningi
nema kvennapólitískum. Sitj-
andi forseti lét hafa eftir sér í
viðtali að konur ættu mikinn
tíma óunninn í embættinu,
karlar hafi gegnt því yfirgnæf-
andi meirihluta þeirra ára sem
það hefur verið við lýði. Þetta er
skrítin hugmyndafræði.
Mér dettur ekki í hug aö halda
því fram að valið á laugardaginn
verði þjóðinni auðvelt. Allir
frambjóðendur hafa tiltekinn
boðskap að flytja. Þrír þeirra
ætla að beita sér í kjaramálum,
heimsfriðarmálum, erlendum
viðskiptatengslum og lagasetn-
ingu á Alþingi.
Ekkert af þessu er hlutverk
forsetans. Hann getur að sönnu
beitt sér óbeint fyrir virðingu og
rétti allra til mannsæmandi lífs-
viðurværis sem eðlilegra mann-
réttinda. Það er hins vegar
óhugsandi að forseti grípi inn í
kjarasamninga, hvort heldur er
fyrir hagsmuni ASÍ eða VSÍ. Það
er heldur ekki hans hlutverk að
hafa skoðun á lágmarkslaunum
eöa skikkanlegum útgjöldum
fyrirtækja vegna launakostnað-
ar. Það er hlutverk aðila vinnu-
markaðarins, til þess er þeim
trúað. Forsetinn á ekki einu
sinni að hafa skoðun á árangri
þessara aðila.
Varðandi heimsfrið þá er Ís-
land fullgildur aðili að stærstu
og öflugustu friðarhreyfingu í
heimi, NATO. Það er stefna ís-
lenskra stjórnvalda að þar ætl-
um við að starfa og hafa áhrif.
Forsetinn getur með sönnu haft
áhrif meö staðfastri afstöðu í
þágu mannréttinda og friðar og
í baráttu við vágesti í öllum
embættisverkum erlendis og
innanlands. Hann á hins vegar
að gæta þess að vera alltaf í sam-
ræmi við stefnu ríkisstjórnar á
hverjum tíma, svo fremi hún
gengur ekki í berhögg viö
grundvallaratriði stjórnarskrár-
innar.
Margræddur málskotsréttur
forsetans felur í sér að forsetinn
getur neitaö aö undirskrifa lög
frá Alþingi, sem fara þá fyrir
dóm þjóðarinnar. Það er alveg
ljóst að forsetinn beitir ekki
þessu valdi, nema til standi að
slíta sundur friðinn í landinu
með löggjöf. Annars hefur for-
setinn ekkert umboð til afskipta
af löggjafarstarfinu. Ef forsetinn
hyggst almennt leggja eitthvert
annaö mat á löggjöf, hvort
heldur siðferðilegt eða annað, er
hann sannarlega á villigötum.
Einn frambjóðendanna hefur
sérstöðu í þessum efnum, Pétur
Hafstein. Hann hefur ekki gefið
önnur kosningaloforð en þau
að sinna embættinu af kost-
gæfni og heiðarleika. Ég þekki
manninn og veit að hann er
þeim hæfileikum búinn sem til
þarf. Ég ætla ekki að kjósa hann
vegna þess að mér líki illa við
hina frambjóðendurna, heldur
vegna þess að Pétur hefur yfir-
burði til að gegna embættinu.
Höfundur er fyrrverandi alþingismabur
fyrir Bandalag jafnabarmanna.
Brautskráning iönnema úr lönskólanum í Reykjavík:
Abeins einn
„Menntun lýkur ekki með út-
skrift úr skóla. Skólinn leggur
aðeins grunninn, síban er það
á ykkar valdi ab mennta ykk-
ur áfram til æviloka. Svo lengi
lærir sem lifir," sagbi Ingvar
Ásmundsson skólastjóri Iðna-
skólans í Reykjavík í ávarpi
sínu vib brautskráningu iðn-
nema í lok sl. mánabar.
Alls voru 215 nemendur
brautskráðir úr Iðnskólanum að
þessu sinni en um sl. jól voru
brautskráðir 125 nemendur. Á
haustönn voru 1650 nemendur
í dagnámi en 316 í kvöldskóla; á
vorönn voru hinsvegar 1551
nemandi í dagskóla en 287
stunduðu nám í kvöldskóla.
Athygli vekur að í vor braut-
skráðist aðeins einn í stálskipa-
smíði. Að öðru leyti skiptist út-
skrift iðnnema þannig eftir
deildum að 7 luku námi í bak-
araiðn, 5 í bifreiðasmíði, 13 í
bifvélavirkjun, 2 í bókbandsiðn
og jafnmargir í gull-og silfur-
smíði, 14 í hárgreiðslu, 4 í hár-
skurði, 14 í húsasmíði, 4 í hús-
gagnasmíði, 5 í kjólasaumi, 6 í
klæðskurði, 3 í ljósmyndun, 13 í
málaraiðn, 2 í múrsmíði og
jafnmargir í persónuljósmynd-
un, 3 í pípulögnum, 4 í prent-
í stálskipasmíöi
smíði, 3 í prentun, 4 í rafeinda-
virkjun, 2 í rafveituvirkjun, 8 í
rafvirkjun, 3 í rafvélavirkjun, 7 í
starfsnámi fataiönaðar, 4 luku
stúdentsprófi af tæknibraut, 15
í tækniteiknun, 8 af tölvufræði-
braut, 3 í veggfóðrun og 5 í vél-
smíði. Þá luku 49 nemendur
meistaranámi í ýmsum iðn-
greinum á skólaárinu.
Hæstu einkunn á burtfara-
prófi hlaut Arnar Már Árnason í
rafeindavirkjun, en Boris Jó-
hann Stanojev fékk hæstu ein-
kunn á stúdentsprófi jafnframt
því sem hann lauk prófi í raf-
virkjun.
í ræðu sinni við skólaslitin gat
skólameistari þeirra breytinga
sem oröið hafa á starfsemi skól-
ans ab undanförnu, en bílgrein-
ar og framhaldsdeild í málm-
iðnaði flytjast í Borgarholts-
skóla og bakaradeildin í
Menntaskólann í Kópavogi. Þá
hófst sl. vetur kennsla á iðn-
hönnunarbraut við Ibnskólann
og verulegar breytingar hafa
verið geröar á námi í bókagerð-
ardeild, auk þess sem iðngreinar
í hárgreiðslu og hárskurði hafa
verið sameinaðar.
En síðast en ekki síst ræddi
skólameistari um lestrarátakið
sem gert hefur verib vib skólann
á undanförnum árum. Sam-
kvæmt því fá allir nemendur
sem taka grunnáfanga í íslensku
markvissa þjálfun í lestri og við
það hefur bæði lesharði og
skilningur aukist. Ef nemendur
eiga við skyntruflanir að etja fá
þeir sérstaka aðstoð þar sem
m.a. er notast við tækni sem
nefnist „lesið eftir litum." Lestr-
arátakið hefur þegar sannað sig
þar sem þó nokkrir sem áttu við
lestrarörðugleika að glíma í
upphafi náms, hafa útskrifast
með sóma frá Iðnskólanum.
-grh
Fótboltabull
Til þess að eyða öllum misskiln-
ingi tek ég fram strax í upphafi
að ég hef mikla ánægju af bein-
um sjónvarpsútsendingum frá
knattspyrnukappleikjum, hvort
sem er hér heima eba erlendis.
Þetta á líka við þótt dagskrá
riölist frá því sem venjulegt er, ef
þab hefur verið auglýst með
nægum fyrirvara.
Þótt aðalatriði útsendingar
svona efnis sé það sem er að ger-
ast á vellinum, heyrist ævinlega í
íslenskum íþróttafréttamanni og
þar er misjafn sauður í mörgu fé.
Ég hef áður vakið á því athygli
og geri það enn hversu miklu
heildarútkoma svona útsendinga
skiptir. Áhorfandinn fylgist með
af áhuga og nokkurri innsýn í
það sem er að gerast, umhverfis-
hljóðin eru hluti af stemmning-
unni, en svo kemur íslenski þul-
urinn, sem er oftast alveg jafn
fjarri leiknum sjálfum og hver
annar sjónvarpsáhorfandi. Hann
ætti því að láta sem minnst fyrir
sér fara.
Þab hefur eyðilagt fyrir mér
hálfa þá ágætu skemmtun sem ég
hefði annars notið, þegar tveir
tilteknir íþróttafréttamenn sjón-
varpsins hafa setið í hljóðstofu
og látið Ijós sitt skína. Ánnar er
hinn mesti bullukollur, en hinn
öskrar hátt þegar honum finnst
gaman, gleymir hlutverki sínu og
verbur nánast þátttakandi eða
boðflenna í leiknum.
Bullarinn vakti mig reyndar
sjálfur til umhugsunar og efa-
semda um hæfni sína þegar
hann talaði um að leikmaður
sem var að plata annan væri að
fifla hann. Samkvæmt orðabók-
inni getur vel verið að þessi mál-
notkun standist, en alls ekki ef
miðab er vib notkun hugtaksins.
Frá
mínum
bæjar-
dyrum
LEÓ E. LÖVE
Ég fór því ab leggja við hlustir
þótt ég reyndi annars að leiða
bullib hjá mér.
Það var ekki eitt, það var nán-
ast allt, sem kom brenglað út úr
blessuðum manninum.
Æ ofan í æ sagbi hann „góð
sending" með hrifningu í rödd-
inni þegar spyrnt var, en andar-
taki síðar leiðrétti hann sig, því
sendingin reyndist slæm þegar
boltinn lenti.
Þetta er Evrópukeppni og þar
koma heimsþekktir leikmenn
fram fyrir hönd þjóða sinna.
Samt gat vesalings maðurinn
ekki nema í annað hvert skipti
hitt á að nefna rétt nafn þegar
leikmaður fékk boltann, nefndi
jafnvel mann sem farinn var af
leikvelli. Einu sinni var skipt um
leikmann og þá ruglaðist hann
enn eða þekkti ekki hinn ný-
komna. Ég vorkenndi vesalings
manninum þó mest þegar hann
sagbi meb feginleika í röddinni
að það væri svo gott með Þjóð-
verjana, þeir lékju svo skipulega
að maður vissi hver væri hvar.
Þegar þessi vesalings íþrótta-
fréttamaður hættir sér út á þann
hála ís að reikna út hvað mikið sé
eftir af leiknum eftir ab upplýs-
ingar koma á skjáinn um hvaö
mikið sé búið, er það eins, stress-
ið er svo mikiö að hann getur
ekki reiknað rétt.
Ég er alveg sannfærður Um að í
einkafyrirtæki hefði þessum
manni og áhorfendum um leið
verið gerður sá greiöi að færa
hann til í starfi. En þetta er ríkis-
útvarp og þar virðast slík sjónar-
mið ekki gilda.
Fátt er þó svo meb öllu illt ...:
Bjarni Fel. hefur komið að út-
sendingum þessum. Þar fer mað-
ur sem kann sitt fag og tekur fullt
tillit til áhorfandans. Hann hefur
meira að segja sýnt sig svo nær-
gætinn að láta alveg vera að
koma fram í treyju sem merkt
hefur verið framleiðandanum í
auglýsingaskyni, en þannig
klæddust félagar hans á íþrótta-
deildinni í vetur.
Það væri reyndar fróðlegt að
frétta af því hvort hafi verið um
einkaframtak þeirra launþeg-
anna ab ræða eða óbeina auglýs-
ingu með samþykki stjórnenda
sjónvarpsins? ■