Tíminn - 27.06.1996, Page 11
Fimmtudagur 27. júní 1996
WfWWM
n
Ekki mörg börn státa afþví ab vera skírö íhöfuöib á aöaiáhuqamáii föbur síns. Þaö qerir hins veqar lett.
sonur Travolta.
Lagfærði göngulagiö
Grease-æöið virtist lengi vel ætla
að setja óafmáanlegt mark á leik-
feril afturbatastjörnunnar John
Travolta. Sökum rómaðs göngu-
lags og gífurlegra vinsælda á átt-
unda áratugnum fékk hann árum
saman ekkert að gera viö sitt fag.
En stjörnuhrap getur fengið
skjótan endi og ekki alltaf fyrirsjá-
anlegan. Þannig var uppstigning
Travoltas með ólíkindum þegar
hann sló í gegn í mynd Tarantin-
os, Pulp Fiction. Sól hans reis á ný
á einni nóttu og framleiðendur
neyddust til að taka hann alvar-
legar en aflóga dansfífl.
„Ég verð að játa að skömmu áð-
ur en mér var boðið hlutverk í
Pulp Fiction þá var mér að verða
ljóst að frami minn var að hruni
kominn. Ég missti ekki trúna á
sjálfan mig eða mína hæfileika,
en ég sá það betur með hverjum
deginum að leikferillinn hafði
orðið fyrir óbætanlegum skaða og
ég yrði að fara að leita inn á aðrar
brautir.
En nú veit ég að maður á aldrei
að gefast upp. Þess vegna ætla ég
nú á þessu öðm blómaskeiði lífs
míns að leggja mig 100% í starfið
án þess að hika einu sinni við að
draga andann."
Travolta fékk fremur litla
summu, á mælikvarða sem okkur
íslendingum er ekki tamt að nota,
fyrir leik sinn í myndinni Pulp
Fiction og kom nánast út í mínus
þegar greitt hafði verið fyrir uppi-
hald og gistingu fjölskyldu hans
og starfsliðs nálægt tökustaðnum.
Það þykir ekki normalt í Vestur-
heimi stjarnanna. Nú veit hann
hins vegar að þessum peningum
var vel varið, ekki vegna þess að
konan og barnið horuðust ekki
niður, heldur vegna þess að þar
með fjárfesti hann aftur í stjörnu-
himninum.
Meðan starfsframinn var að
sökkva í ólgusjó kvikmyndanna
komst einkalíf dansstjörnunnar
aftur á móti á fast land. Árið 1991
giftist Travolta leikkonunni Kelly
Preston í París og eiga þau nú fjög-
urra ára gamlan son, sem heitir
Jett í höfuðið á flugdellu föðurins.
„Kelly er það besta sem fyrir
mig hefur komið. Hún elskar mig
nákvæmlega jafnmikið og ég
elska hana — og ég elska hana
mikið. Ég held að ást okkar muni
endast allt okkar líf." Svona er
Travolta lukkulegur. ■
Syninum veröur líklega innrœtt
áhugamái fööurins.
Travolta vill ekki missa af upp-
eldi sonarins og er hann því allt-
af meö foreldrum sínum á
flandri þeirra um heiminn.
í SPEGLI
TÍIVIANS
Líkt og önnur leikhjón kynntust
þau viö tökur. Myndin hét The
Experts og leiddi til rómantísks
miönæturbrúökaups í París.
Sœlan skín af svipnum, enda
karlinn kominn úr krappanum
og oröinn heitur í Hollívúdd.
Framsóknarflokkurinn
Sumartími á
f I o kkss kr if stof u n n i
Frá og me& 15. maí og tram til 15. september verbur opib á skrifstofu flokksins a&
Hafnarstræti 20 alla virka daga frá kl. 8.00 til 16.00.
Skrifstofa Framsóknarflokksins
Framsóknarmenn Subur-
landi og aörir göngugarpar!
■ Fimmvör&uháls — Þórsmörk!
Efnt ver&ur til göngu- og fjölskyldufer&ar laugardaginn 1B. júlí n.k.
Tveir möguleikar ver&a á fer&inni:
1. Ekið ver&ur a& skála á Fimmvör&uhálsi og gengi& í Þórsmörk.
2. Ekib ver&ur í Þórsmörk og dvalib þar vi& göngu og leik.
Hóparnir hittast sí°is, þá verbur grillab, sungib, dansab og leikib. Eki& heim a&
kveldi.
Fer&in ver&ur nánar auglýst sí&ar. Framsóknarmenn Suburiandi
Sumarferö framsóknarfélag-
anna í Reykjavík
verbur farin þann 17. ágúst n.k. Farib ver&ur á Snæfellsnes. Nánar auglýst síbar.
Framsóknarfélögin í Reykjavík
Gunnlaugur
Vestfiröingar
Verb á fer&inni á eftirtöldum stöbum í júní og júlí:
JÚNÍ:
Norðurfjör&ur-Drangsnes-Hólmavík 26. til 29. júní
JÚLÍ:
Hólmavík-Djúp 24. og 25. júlí
Óska eftir ab hitta sem flesta til skrafs og rá&ager&a.
Fylgist me& auglýsingum á hverjum stab fyrir sig þegar nær
dregur.
Gunnlaugur M. Sigmundsson alþingismabur
ÍT
Astkær eiginmaöur minn, faðir, tengdafaðir og afi
Björn Guðmundsson
forstjóri,
Lálandi 1, Reykjavík
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju föstudaginn 28. júní kl. 1 3.30. Blóm
og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hans er
bent á aö láta líknarstofnanir njóta þess.
Ólafía Ásbjarnardóttir
Ásbjörn Björnsson Helga Einarsdóttir
Ásta Friðrika Björnsdóttir
Guðmundur Karl Björnsson
Gunnlaugur Rafn Björnsson
Ólafur Björn Björnsson
og barnabörn
Linda Björk Ingadóttir
íj“
Innilegar þakkir færum við öllum þeim er sýndu okk-
ur samúð og hlýhug vib andlát og útför elskulegs
föbur okkar, afa, langafa og langalangafa
Guðmundar Jóhannessonar
fyrrum bónda í Króki í Grafningi
Ljósheimum 4, Reykjavík
Egill Guðmundsson
Áslaug Gubmundsdóttir
Jóhannes Þ. Guðmundsson
Sæunn Guðmundsdóttir
Jóhanna Gubmundsdóttir
Elfa Guðmundsdóttir
Erlingur Guðmundsson
Margrét Emilsdóttir
Sigurður Mar
Ólafur Sveinbjörnsson
Gylfi Gubjónsson
barnabörn og barnabarnabörn
Þökkum öllum þeim fjölmörgu sem sýndu okkur samúb og hlýhug vib
andlát og útför eiginmanns míns, föbur okkar, tengdaföbur, afa og lang-
afa
Sigurðar Brandssonar
Sérstakar þakkirfærum vib starfsfólki St. Franskiskusspítala, Stykkishólmi,
fyrirfrábæra umönnun, einstaka góðvild og hlýhug.
Margrét H. Magnúsdóttir,
börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn
....- in‘‘