Tíminn - 20.07.1996, Blaðsíða 13
Laugardagur 20. júlí 1996
13
Enn er net yfir torfinu til oð festa þaö.
Athyglisverö nýjung í samþœttingu minjavörslu, náttúruverndar og
ferbamennsku á Hveravöllum:
Eyvindarstofa á Hvera-
völlum opnuð á næstunni
Ákveðið hefur verið að gera
gamla sæluhúsið á Hveravöllum,
sem byggt var árið 1922, að upp-
lýsinga- og fræðslumiðstöð um
náttúrufar og sögu svæðisins.
Verður þetta gamla sæluhús gert
að gestastofu Náttúruverndarráðs
í ætt við það sem gert hefur verið
í Sigríðarstofu við Gullfoss. Dag-
legt eftirlit og umsjón með hús-
inu verður á hendi Ferðafélags ís-
lands og var nýlega undirritaður
samningur þar um. Stefnt er að
því að þessi gestastofa verði tilbú-
in í lok mánaðarins og fái nafnið
„Eyvindarstofa".
Gamla sæluhúsið var byggt sum-
arið 1922, en þá var ekkert afdrep
fyrir menn eða hesta á Hveravöll-
um. Árið 1992 var húsið orðið mjög
illa farið, en það ár hóf Minjavernd
að kanna leiðir til að lagfæra húsið.
Almennt var þó talið að hinn
möguleikinn væri einfaldlega að
rífa það, þrátt fyrir að því hafi lítil-
lega verið haldið við af upprekstrar-
félögum. Það var svo árið 1994 að
sjálfseignarstofnunin Minjavernd
gerði vörslusamning við Svína-
vatnshrepp um yfirtöku stofnunar-
innar á húsinu með endurgerð þess
í huga. í þeim samningi var þegar
gert ráð fyrir því að Ferðafélag ís-
lands og Náttúruverndarráð gætu
tengst málinu á síðari stigum og er
það nú orðið.
Sumrin 1994 og 1995 var unnið
að endurgerð hússins, en veggir
þess voru hlaðnir úr hraungrýti úr
nágrenninu. Upphaflega var efri
hluti vesturgafls þess timburklædd-
ur, en austurgaflinn hlaðinn upp að
mæni. Þakið var klætt bárujárni,
sem neglt var á lektur, og torf yfir. í
húsinu var milliloft yfir um 2/3
hluta gólfflatarins og var þá hægt
að hafa hesta undir, en menn sváfu
uppi. Við endurgerðina hefur nán-
ast alveg verið fylgt upprunalegri
mynd hússins, nema hvað milliloft
hefur aðeins verið hækkað til þess
að manngengt sé um neðri hæðina.
Það eru þeir Þorsteinn Bergsson,
framkvæmdastjóri Minjaverndar,
og Ragnar Kristjánsson hjá Náttúru-
verndarráöi sem skipulagt hafa og
útfært þessa endurreisn gamla sælu-
hússins. Segja þeir þetta tilraun til
að tengja saman ferðamennsku,
náttúruvernd og minjavernd þann-
ig að hvert styðji annað. Nú er unn-
ið að því að koma fyrir spjöldum
með ýmiss konar upplýsingum í
gamla sæluhúsinu og verður text-
inn bæði á íslensku og ensku.
Ragnar Kristjánsson hjá Náttúruverndarrábi á Hveravöllum ífyrradag.
Tímamyndir Rut
Gamla sœluhúsiö á Hveravöllum hefur veriö endurgert meö miklum
glœsibrag og mun hýsa nýja Eyvindarstofu, þar sem feröamenn geta
fengiö upplýsingar um sögu og náttúru svæöisins.
Mikiö um aö vera í Stykkishólmi:
Hákarl, bryggjuball og fjör
Samtökin Efling Stykkishólms,
sem eru samtök fyrirtækja og
einstaklinga í Stykkishólmi,
hafa unnið að kynningarstarfi
af ýmsu tagi fyrir bæjarfélagið.
Meöal þess athyglisverðasta er
tónleikaröð, sem samtökin
hafa staðið fyrir í sumar.
í frétt frá samtökunum segir að
lífib verði í föstum skoröum í
Stykkishólmi um verslunar-
mannahelgina og margt að gera
fyrir ferðamanninn. Bent er á ab
staðurinn hefur verib í þjóðbraut
frá landnámi og gestagangur
mikill síðan land byggbist. Eyja-
ferðir bjóbi óviðjafnanlegar
skemmtisiglingar um Breiðafjarð-
areyjar, sem eru einstök náttúru-
perla. Einnig sé hægt að skreppa
með Breiðafjarðarferjunni Baldri
til Flateyjar, skoða staðinn og
komast í skemmtisiglingu þaðan
til að horfast í augu við lundann.
Golfvöllurinn í Stykkishólmi
verði opinn alla helgina, sem og
sundlaugin, en tjaldstæðið er á
friðsælum og fallegum stað og
býður gesti velkomna. Hestaleiga
sé á næstu grösum og Hildibrand-
ur í Bjarnarhöfn taki á móti gest-
um, sýni þeim hákarlaverkun og
bjóði þeim að bragða. Þeir, sem
vilji fara út á lífið, skelli sér á
hlaðborð og Ragga Bjarna á Hótel
Stykkishólmi eða út að borða og á
barinn á Knudsen.
„Danskir dagar" hafa verið í
Stykkishólmi undanfarin ár og
verða þeir haldnir þriðju helgina
í ágúst, þann 16.-18. þess mánað-
ar í sumar. Nafnið vísar til þess
tíma er danskir versluðu í Stykk-
ishólmi, en staðurinn hefur verið
verslunarstaður öldum saman.
Áhrifa Dana gætti langt fram á
þessa öld og raunar fram á þenn-
an dag og segja gárungarnir að
Stykkishólmur sé svo danskur
enn, að þar sé danska ævinlega
töluð á sunnudögum, eins og seg-
ir í frétt frá Eflingu Stykkishólms.
Á fyrsta degi hátíðarinnar
„Danskra daga" verða opnaðar
listsýningar, grillað, sungið við
varðeld niðri við höfnina og stig-
inn dans á Stykkishólmsbryggju
á eftir. Kvöldið endar á flugelda-
sýningu á Súgandisey. Veitinga-
hús staðarins munu ekki láta sitt
eftir liggja og hafa vandaðar
skemmtanir ásamt því að hafa á
boðstólum „flæskesteg og
rodkál" ásamt fleira dönsku góð-
gæti.
Á laugardegi verður líka margt
til skemmtunar fyrir alla aldurs-
hópa: dorgkeppni, skátaþrautir
og fleiri leiktæki fyrir börn,
gönguferö um bæinn undir leið-
sögn Einars Karlssonar, markaðs-
tjald með veglegum sölu- og
kynningarbásum frá fyrirtækjum
staðarins og heimilisiðnaði bæj-
arbúa, ennfremur verða þar ýms-
ar uppákomur, ekki síst hin fræga
og árvissa „áksjón" Lionsmanna.
Sumir enda svo daginn á veit-
ingahúsunum í fínum mat og
skemmtunum. Síðan taka þeir
snúning, en unglingarnir verba á
útiballi.
Sunnudagurinn hefst með sigl-
ingu á slóðir danskra kaupmanna
og heimsókn til Hildibrands í
Bjarnarhöfn og síðan verður
gengið um álfabyggðir Stykkis-
hólms undir leiðsögn Erlu Stef-
ánsdóttur. Tjaldið verður þéttset-
ið þennan dag, veitingar og
skemmtiatriði fram eftir degi og
dagskráin endar á tónleikum í
Stykkishólmskirkju. Þar leika þær
Eydís Franzdóttir og Brynhildur
Ásgeirsdóttir ljúfa tónlist fyrir
óbó og píanó, meðal annars verk
eftir danska tónsnillinginn Gade.
Danskir dagar munu hafa sína
eigin útvarpsstöð á FM 104,5.
Einnig verður póstafgreiðsla með
gamla laginu og mun póstmeist-
ari afgreiða með stimpli hátíðar-
innar, sem er prýddur svaninum
og tákni fyrir Súgandisey. -ohr