Tíminn - 26.07.1996, Blaðsíða 8
8
Föstudagur 26. júlí 1996
Föstudagur 26. júlí 1996
wWHfWI
9
fOSTy**
oo
tölublaö 1996
STOFNAÐUR
Mi&vikudagut
einari-
skölason
|
MMI
Páll Pétursson félagsmálaráðherra
Ég hef svosem engar skoöanir á
því, því ég er ekki inni í þessari
umræöu og hef ekki fylgst meö
henni neitt nema bara þaö sem
flutt hefur veriö í fjölmiölum.
Ég held aö hugmyndin geti
gengiö upp og mér finnst þetta
í fljótu bragöi álitlegt.
Ég veit ekki hver efnistökin
veröa en vænti þess aö þaö
starfsfólk sem hefur unniö viö
Tímann og Dag aö undanförnu
ráöi viö aö hafa skynsamleg og
góð efnistök. Þetta eru hvoru-
tveggja dágóð blöð og þegar
þetta fólk leggur saman má
reikna með því aö útkoman
veröi góö. Ég lít svo á að það sé
mjög áhugavert að leggja meiri
áherslu á landsbyggöina heldur
en Reykjavíkurblöðin hafa gert.
Ég vil jafnframt vonast eftir aö
þetta blað einskorði sig ekki við
landsbyggðina enda held ég aö
þaö sé ekki meiningin. Það
hlýtur aö flytja fréttir af stjórn-
sýslu, löggjafastarfi og ööru því
sem fram fer í
Reykjavík líka.
Þaö byggist auð-
vitað mjög mik-
ið á stjórn blaðs-
ins, hver velst til
ritstjórnar.
Ég þekki nú
ekki svo nauið
inn á þá tækni,
hvernig þaö
gengur upp
verklega að gefa
blaöið út á
tveimur stöðum.
En tæknin er
orðin ótrúleg og
það er sjálfsagt
margt hægt að
gera. Í útlöndum
eru blöö gefin út
á fleiri en einum
stað stundum.
-ohr
Jón Sigurösson, fyrrv. ritstjóri Tímans
Akureyri, fimrntudagur 27. júni 1996
79.árg.
H9. tölubiað
Mér líst prýðilega á þetta. Það er
hægt að horfa á þetta frá mis-
munandi sjónarhólum. Það er
ekki vafi á því að frá sjónarmiði
Frjálsrar fjölmiölunar hf. er
þetta mjög skynsamlegt og ár-
angursvænlegt skerf. Því þaö
sem þeir gera er að þeir styrkja
sig mjög á þeim hluta markað-
arins sem þeir í rauninni eiga
helst möguleika á því aö styrkja
sig. Frá sjónarmiði Dags er það
varla vafamál að þetta er mikil
efling. Frá sjónarmiði Tímans er
þetta áreiðanlega mjög gott
skref til þess að tryggja framtíð
blaðsins og efla það. En það er
ekki hægt að neita því hins veg-
ar að frá sjónarmiði Tímans
hefði líka mátt fara aðra leið. Þá
er um það að ræða að Tíminn
hefur haft næga útbreiðslu til
þess að hafa veruleg áhrif. Sann-
leikurinn er nefnilega sá að til
þess að hafa veruleg áhrif þarf
dagblað ekki að hafa mikla
fjöldaútbreiðslu. Það þarf aðeins
að hafa rétta útbreiöslu. Ef Tím-
inn hefði valið þann kost að
hafa skipulega útbreiðslu eins
og ég lagði til í stjórn Mótvægis
á sínum tíma, þá nægja fjögur-
til sexþúsund eintök fyllilega til
þess að ná til allra þeirra sem
máli skipta í þjóðfélaginu. Og ef
blað ætlar að hafa áhrif þá þarf
það ekki meiri útbreiðslu. En þá
þarf að velja markhópa og dreif-
ingarstaði o.s.frv. Með öðrum
orðum, ég fagna þessu skrefi, en
eg geri mer grein
fyrir því að það
hefði líka verið
hægt aö fara aðra
leið. Þá á ég við
sjónarmið Tím-
ans sjálfs. Frá
s j ó n a r m i ð i
Frjálsrar fjöl-
miðlunar og frá
sjónarmiði Dags
er þetta alveg
ótvírætt. Frá
sjónarmiði Tím-
ans eru tveir
kostir og þetta er
góður kostur.
Það er líka til
annar kostur.
Versti kosturinn
að mínu mati
hefði hins vegar
verið sá að halda
áfram að van-
rækja blaðið. í
því felst ekki
gagnrýni á starfs-
menn blaðsins
því mér finnst þeir allir standa
sig með prýði. -ohr
80. árgangw
P&SSSEÍSS«
Besta mál
abfáleik-
skóla
Bergut K'>xso Dagvistat
b hvort framkvæmdir
hann l>vort .‘ ,„iV..kóla viö
Hsebargatb þott n
mæli íbúa í ' 0 b[e„hast vib
^öer bmb abbregb^ ^
mjög miW>- mndi meb íbú-
halda nokkta ^ bæta
ISSSS
»ab væri enn
milÍvúnú&aabtú»a
u X « (vaiabi hann absputbur
tmhvabíólksatiþessarifranv-
5k° 3« ekki í notkun nema a
sem et n,.<r;r eru 1
þeim tima fö hiB besta
V,nf a-m botgarsamfélag en
mal fym hot»a haía abta
ab°pab, mér finnst petta svoi.t-
ibcinstakt. pólitískt
usSsss
og l»b
infSP——I"d
„oWvoMto'garsta^enn.^W ■]
ramiiifömm
s£SS33@i?*5 sSSB'W-a.i
Laxárstífla v^röiTrTjækkuö^u^^i^metra^ “
Gott fyrir bæði
_virkiunina og lífríi<»
Hvemig líst þeim á nýtt blað sem kem-
ur út úr sameiningu Dags og Tímans?
Of seint aö ger.a,
tfanir pftira
Sigrún Stefánsdóttir fjölm.fræöingur
Hannes Hólmsteinn
Gissurarson
Mér líst mjög vel á að DV
og Morgunblaðið hljóti
mótvægi. Það er allt of
dauflegt yfir íslenskum
fjölmiðlum og samkeppn-
in of lin. Morgunblaðið er
að verða símstöð sem af-
greiðir símtöl manna á
milli, en hefur enga rit-
stjórnarstefnu nema í
áróðri sínum fyrir auð-
lindaskatti, þeirri skoðun
að tíu milljarðar séu betur
komnir í höndum at-
vinnustjórnmálamanna
en athafnafólks úti í at-
vinnulífinu. DV hefur líka
orðið daufara meö tímanum, þó
Jónas Kristjánsson eigi til góða
spretti einkennir geðvonskan allt
of mikið hans skrif. Ég held að það
sé líka hæfilegt fyrir skoðanajafn-
vægið í landinu að nýr fjölmiðill
komi sem verði jafn- hressilegur og
vel skrifaður og sum vinstri blöðin
voru forðum. Því miður hefur Stöð
3 ekki veitt Stöð 2 hina hollu og
æskilegu samkeppni sem þar væri
líka nauðsynleg. Þó að íslenskt fjöl-
miðlafólk tali oft digurbarkalega
um fjölmiðlabyltingu finnst mér
þegar á reynir fjölmiðlarnir oft
bregðast, með nokkrum heiðarleg-
um undantekningum. Þeir eru ekki
nærri því eins gagnrýnir og vand-
aðir og til dæmis breskir fjölmiðlar.
Það kom berlega í ljós í forsetakjör-
inu fyrir nokkrum vikum.
-ohr
Mér líst nú í raun og veru ágætlega
á það. Hins vegar finnst mér
ákveðnir vankantar, eða ég er svo-
lítið hrædd við þessa hringamynd-
un í fjölmiðlaheiminum sem þetta
er óneitanlega hluti af. En mér
finnst það hins vegar af hinu góða
ef við fáum traust blaö einhvers-
staðar annarsstaðar en í Reykjavík.
Dagur hefur verið að sækja sig og
ég hef fylgst dálítið með því, því ég
hef farið norður á hverju hausti og
horft á þetta blað blómstra frá ári
til árs og vona sannarlega að þetta
fái áfram að vera svona aðeins
ööruvísi blað, að það verði ekki
bara sett inn í þennan ramma sem
er hérna sunnanlands, mér finnst
alveg nóg af því. Ég vildi voðalega
gjarnan sjá þetta blað þróast áfram
sem norðlenskt blað og þá er mjög
spennandi að sjá hvernig þetta
funkerar allt saman saman, hvor
póllinn fær að ráða. Mér finnst það
löngu tímabært að fá traust blað
einhversstaðar annarsstaöar heldur
en í Reykjavík. Mér er málið skylt
og kært vegna þess að þetta er
minn heimabær og blað sem mað-
ur er búinn að vaxa upp með, svo-‘
leiðis að þetta eru svona plúsar og
mínusar.
Það verður sjálfsagt flókið að
reka blað á tveimur stöðum og ég
held að það eigi eftir að sjást hvort
það gengur upp. Ég spái því að það
verði erfitt. Það verði þarna tvennir
ólíkir hagsmunir sem eigi eftir að
rekast svolítið á. Ef ég þekki mína
menn fyrir norðan rétt þá vilja þeir
halda blaðinu dálítið líku því og
það hefur verið og ég er ekki farin
að sjá það að Tímafólkið sé þá til-
búið að gefa sitt alveg eftir. Þannig
að ég hugsa að það verði
ábyggilega árekstrar til að
byrja með allavega og ég
spái því að þetta þróist
þannig að þetta fari allt á
einn stað. Eg sé það þróast
þannig að þetta verði ekki
tveir pólar, því ég held að
ef maður ætlar að skapa
blað sem á að hafa góðan
markað fyrir norðan að þá
vilji norðlendingar hafa
mikinn fókus á Noröur-
landi en ekki fá sömu
fréttir og þeir eru að fá í
Mogganum. Kannski þró-
ast þetta bara þannig að
Tíminn sér um Reykjavík-
ursíðu eins og Morgun-
blaðið um Akureyrarsíðu á
Akureyri, hver veit, það er
ein lausnin. En ég held að
það skipti voða miklu máli hvernig
fólkið á ritstjórninni hérna fyrir
sunnan tekur á hlutunum og hvort
það getur séð svolítiö út fyrir Ell-
iðaárnar í efnistökum og tengt þá
Reykjavík betur landsbyggðinni
sem ég held að hafi nú oft verið
mjög mikil þörf á. En ég held að
útgangspunkturinn í uppbyggingu
frétta og annars þurfi að vera
landsbyggðin. -ohr
Guðrún Helgadóttir, fyrrv.
alþingismaður
Satt að segja getur sameining
Dags og Tímans verið ágæt.
Hver maður hlýtur hinsvegar
að hafa áhyggjur af því hversu
rekstur blaða er að komast á fá-
ar hendur. Þetta eru örfáir risar
sem stjórna öllu. Það held ég að
kunni ekki góðri lukku að
stýra. Að öðru leyti held ég að
ágætt sé að sameina blöðin.
Ég er hrædd um að það hefði
verið nær ef félagshyggjufólk
hefði getað sameinast um út-
gáfu blaðs. Það er enginn sér-
stakur kostur fyrir lýðræðið í
landinu að þessir fjölmiðlarisar
leggi þetta allt undir sig. Þeim
er allavega mikill vandi á hönd-
um ef þeir ætla að gera þetta
vel.
Það hefði verið gaman að sjá
blað verða til sem væri með
meiri fréttaskýringar, heldur en
íslensk blöð hafa. Þetta yrði að
vera töluvert öðruvísi en nú, til
að geta skákað Morgunblaðinu.
Ég held hinsvegar að það sé
löngu kominn tíma á blað sem
er meira upplýsandi og skil-
greinandi, en þau blöð sem við
höfum fyrir augunum.
Það er kostnaðarsamt,
það þarf aö hafa mik-
inn og góðan starfs-
kraft og vanda vel til
vinnubragða. Eins og
þetta er núna þá er all-
ur fréttaflutningur af-
skaplega yfirborðslegur
og ógagnrýninn. Þann-
ig að aðhald gagnvart
stjórnvöldum er ekki
mikiö í pressunni.
Hinsvegar hefur mér
fundist Tíminn alveg
boölegt blað núna á
síðustu misserum, en ef
það á að verða eitthvað
stórveldi þá þarf meira
til. Nýja blaðið verður
því fyrst og fremst að
vera öðruvísi. En ég sé
hinsvegar ekki alveg í
hendi mér að þeir aðil-
ar sem standa á bak við
sameininguna muni
hvetja til þess.
-sh
Tíminn hafði sam-
band viö nokkra val-
inkunna einstaklinga
til ab kanna viöbrögö
þeirra viö nýju blabi,
sem brátt lítur dagsins
Ijós og veröur til viö
sameiningu Dags á
Akureyri og Tímans.
Hér á opnunni gefur
aö líta þeirra svör.
Hrafn Jökulsson, rit-
stjóri Alþýöublaösins
Mér líst að mörgu leyti
vel á það, hinsvegar er
margt óljóst við út-
færsluna og grunnhug-
myndina. Þaö er a.m.k.
ekki búið að segja þeim
sem ekki eru innvígðir
á þessi blöð nákvæm-
lega hvað blaðið á að
standa fyrir. Tíminn og
Dagur eru ólíkari blöð
en virðist við fyrstu
sýn. Tíminn er hressi-
legt fréttablað með
sínu framsóknarívafi,
en Dagur hefur ein-
vörðungu höfðað til
Norðlendinga. Ég held
hinsvegar að ef búin
verður til góð grunn-
hugmynd og hæfir
stjórnendur ráönir sem
viti hvað þeir eru að
gera, þá ætti þetta að
geta orðið öflugt blað.
Hörður Blöndal frkv.stj. Dags
hefur sagt að „hógvær lands-
byggðarstefna" verði ríkjandi.
Ég veit ekki hvað hann ræður
miklu um ritstjórnarstefnuna,
en þessi stefna hljómar nú ekki
mjög spennandi. Mér finnst út
í hött að undirstrika einhverja
ímyndaða skiptingu milli
landsbyggöar og höfuðborgar
og ganga útfrá því að það þurfi
að skrifa öðruvísi fyrir fólk sem
býr út á landi. Ef þetta verður
uppi á teningnum þá held ég
að það sé kolvitlaus ákvörðun.
Ég held að menn ættu að stefna
að því að gera þetta að hressi-
legu og vönduðu blaði, sem fer
aðrar leiðir en hinn örþreytti
og hugmyndasnauði Moggi. Þá
ætti þetta blað að geta höggvið
skörð í veldi Morgunblaðsins
ekkert síður á höfuðborgar-
svæðinu en úti á landi. Ég er
sannfærður um að það er mark-
aður fyrir slíkt blað vegna þess
að þó margt megi gott um
Morgunblaðið segja þá er það
ákaflega staðnað blað og og
nýtt blað sem hefur fjárhags-
legt bolmagn ætti ekkert síður
að geta einbeitt sér að höfuð-
borgarsvæðinu, en því að skrifa
sérstaklega fyrir landsbyggðina.
Ef það er rétt að þungamiðjan
eigi að vera á Akureyri og örlít-
ið útibú í Reykjavík og áhersl-
urnar lagðar á landsbyggðina,
þá er einfaldlega verið að drepa
Tímann í núverandi mynd og
efla Dag.
Útgefendur þessa blaðs og
eigendur eru nú ekki þekktir
fyrir að vera mjög vinstrisinn-
aðir. Þeir hafa íýst því yfir að
þetta eigi að vera „frjálst og
óháð". Þetta er ekki upphaf að
einhverri vinstri sameiningu,
heldur fyrst og fremst peninga-
menn í matadori að byggja upp
fjölmiðlaveldi sitt.
-sh
I