Tíminn - 10.08.1996, Page 9
Laugardagur 10. ágúst 1996
9
Camli bœrinn á Húsafelli sem
Kristleifur Þorsteinsson hefur gert
upp af miklum myndarskap og
gert ab veitingastab og gistiheim-
ili.
I fyrrasumar gerbi Kristleifur á
Húsafelli landsfrægan íshelli í
Langjökul og nú hefur hann
opnað töfrandi veitingastab og
gistiheimili í næstum níræbu
íbúbarhúsi á Húsafelli, Gamla
bænum sem stabib hefur aubur á
fjórba áratug, en Kristleifur hef-
ur gert húsib upp af miklum
myndarskap. Þannig ab segja má
meb sanni ab ferbaþjónustu-
bóndinn á Húsafelli komi árlega
fram meb nýjungar.
í húsinu em nokkur snotur her-
bergi sem leigb em út til gistingar,
en perlan er óneitanlega veitinga-
staðurinn í kjallara hússins. Þar fer
mabur af frönsku bergi brotinn
með öll völd, Matthías Jóhanns-
son sem jafnframt er hótelstjóri á
stabnum, en hann hefur starfab
hjá franska sendirábinu sem „yfir-
veislumatsveinn," eins og Krist-
leifur orðar það. Einskær og
ánægjuleg tilviljun olli því að
greinarhöfundur fór í „Gamla bæ-
inn" á Húsafelli um Verslunar-
mannahelgina og lenti í veislumat
sem Matthías Jóhannsson töfraði
fram. Maturinn var hreinasta lost-
æti og andinn í þessu gamla húsi
mjög sérstakur, vinalegur og
heimilislegur í bland. Vitneskjan
um staðinn dró óneitanlega fram í
hugskotið myndir af gömlum
gestum sem setið hafa við borð-
stofuborðið í borðstofunni í gamla
bænum og fornum ábúendum á
Húsafelli, ekki síst Snorra. Til þess
að kóróna sérstaklega ánægjulega
kvöldstund kom verðið á matnum
afar þægilega á óvart. Veitinga-
staðurinn er opnaður kl. 19:00 á
kvöldin og matargestir verða að
panta mat af matseðli fyrirfram
sem er í rauninni hið þægilegasta
fyrirkomulag.
Fólk hafði ekki trú á
þessu
„Það hefur nú fólk verið að segja
að það hafi ekki trú á því að það
þýddi að bjóða hérna neinar hót-
elveislur, því fólk sé ekki að hugsa
um slíkt. En ég held að það sé nú
að afsannast," segir Húsafells-
bóndinn og játar því að það sé
orðið töluvert að gera í veitinga-
staðnum. Enda dregur Kristleifur
ekki úr áliti sínu á matsveininum:
„Hann er sko miklu, miklu meira
en matsveinn, elsku karlinn minn.
Hann er stærðfræðingur, heim-
spekingur mikill og smiður ágæt-
ur. Honum er geysimargt til lista
lagt. Hann skipulagði þetta með
mér allt saman, allan veitingastað-
inn og gistinguna. Hann valdi
rúmin með mér og allt dótið.
Hann hefur stutt mig með ráðum
og dáð."
í fyrrahaust hófst Kristleifur
handa við að gera upp gamla bæ-
inn, setti þá innan á kjallarann.
„Að vísu var ég fyrir mörgum ár-
um búinn aö setja miðstöð í
hann." Viðgerðin er búin aö kosta
á milli sex og sjö milljónir en
styrkur sem Kristleifur hefur feng-
ið til verksins nemur um einni og
hálfri milljón króna, en hann
kemur frá Framleiðnisjóði og Hús-
friðunarsjóði. „Svo sótti ég um
styrk hjá Byggðastofnun og Þjóð-
hátíðarsjóði en þeir synjuðu, í
þetta sinn sögðu þeir. Eg þarf nú
að fá meiri styrk, það á eftir að
gera við þakið, það vantar nokkrar
milljónir í það í viðbót."
Þetta er náttúrulega eig-
ingirni
Kristleifur viðurkennir að við-
gerðin og uppbyggingin á gamla
bænum sé fyrst og fremst hug-
sjónavinna hjá sér. „Og svo er þaö
Kristleifur Þorsteinsson Húsofellsbóndi kemur enn fram meö nýjungar i ferbaþjónustu:
Töfrandi veitingastaður
og gistiheimili í níræðu
íbúðarhúsi
Júlíana var í tjaldi úti í skógi og át
heima. Ásgrímur og Jón held ég
hafi gist í bænum."
Það er eiginlega búið að opna
stabinn tvisvar. „Fyrst var nú
opnab svolítið 8. júlí. Það var af-
mælið hans pabba míns. Svo opn-
aöi ég aftur 1. ágúst," segir Krist-
leifur en hann rekur staðinn sjálf-
ur, en ætlar að skila honum af sér
til Feröaþjónustunnar þegar hann
er orðinn sjálfbær, eins og hann
orðar það. Gamli bærinn verður
opinn allt árið og gerir Kristíeifur
m.a. ráð fyrir að rjúpnaskyttur
komi til með að nýta sér aðstöð-
una í haust.
Arfur Snorra
Hann segir staðinn býsna
merkilegan, fyrir utan sögulega
hefð sem hann hafi frá galdratíð
Snorra sem eitt sinn bjó á Húsa-
felli. Það er ekki frítt við að eitt-
hvað eimi eftir af anda Snorra og
göldrum hans á Húsafelli og aug-
ljóst að Kristleifur hefur erft eitt-
hvað frá forföður sínum. Að
minnsta kosti er uppbyggingar-
starf hans og fjölskyldunnar á
Húsafelli aödáunarvert auk þess
sem hugmyndaauðgi hans og
frumkvæði gerir það að verkum
að hann á ekki margan sinn líka.
Að minnsta kosti er kominn
nýr og spennandi valkostur í veit-
ingahúsaflóru landsmanna.
Kvöldverður í gamla bænum á
Húsafelli er jafn spennandi fyrir
fjölskylduna sem er í sveitaferð og
náttúruskobun í uppsveitum
Borgarfjarðar og ástvinina sem
langar ab eiga saman rómantíska
kvöldstund yfir kvöldverði vib
kertaljós og ganga síðan saman út
í stjörnubjarta haustnóttina í
Húsafellsskógi. -ohr
náttúrulega eigingirni. Allt sem
gert er það er nú helvítis eigin-
girni. Ég var alinn upp í þessu húsi
og hef alltaf verið hér og hafbi til-
hneygingu til að vinna að þessari
rót þarna, þessari fúnu rót," segir
hann.
En þó Kristleifur orði þetta
svona vita þeir sem til þekkja að
aðrar kenndir og göfugri en eigin-
girnin ráða mun meiru um gerðir
hans, enda viðurkennir hann að
menningarsögulegt gildi hússins
sé töluvert. Gamli bærinn sem er
lögbýli, Húsafell 1, var byggður ár-
ið 1908, hlaðinn úr hraungrjóti,
„ég ætla nú ab gera glugga inn í
vegginn í stofunni til ab sýna það.
Þab er meb sérstakri aðferð sem
það var byggt. Helvíti seigt," segir
Kristleifur, en aðkeyptur efniviður
í húsið var fluttur á reiðingi, á
hestum, utan af Akranesi, sem læt-
ur nærri að vera um 100 kílómetra
leið. Skúr var byggður vib húsið ár-
ið eftir, 1909. „Gamla húsið sem
þar áður var byggt var byggt 1875,
það var nú ekki eldra en það. Það
hefur verið 33 ára gamalt," bendir
Kristleifur á. „En það var efni úr
því dálítið í þessu, í skúrnum. Ég
notaði allt sem ég mögulega gat úr
því svona til þess að halda sál-
inni," og það fer ekki fram hjá vib-
mælandanum að Kristleifur hefur
hlýjar taugar til hússins.
Fyrsta túristahótelið -
málararnir setugestir
„Svo breytast tímarnir og þetta
verður fyrsta túristahótelið, eða
meb þeim fyrstu. Á sínum tíma
þegar þetta var þjóðleiðin norður
í land, eini bílvegurinn um Kalda-
dal, þá var þetta náttúrulega alveg
óhjákvæmileg stoppistöð," en
ferbaþjónustu á Húsafelli segir
Kristleifur hafa byrjaö fyrr:
„Málararnir voru setugestir
hérna. Árið 1920 voru saman hér:
Júlíana Sveinsdóttir, Ásgrímur,
Jón Stefánsson og Muggur,
hvorki meira né minna. Þetta
voru gestir hér í gistingu og fæði.
Matthías Jóhannsson, matsveinninn sem töfrar fram lostœti í kjallara Gamla bœjarins á Húsafelli, situr hér á
gömlu kolaeldavélinni sem hefur fengib þann virbingarsess ab vera stofustáss í veitingasalnum. Tímamyndir: ohr