Tíminn - 31.10.1986, Blaðsíða 3
Föstudagur'31. október 1986
Tíminn 3
Prentsmiðjan Hólar gjaldþrota:
Framboðsmál Framsóknar í Reykjavík:
vegna fjárlaga
Umræðan leiðir í Ijós hvort
fjárveiting fæst til framkvæmda
Dýpkunarskipið Hákur er nú
komið til Ólafsfjarðar, en brýn þörf
er á að dæla verulegu magni uppúr
höfninni þar, en í hana berst alltaf
talsvert af sandi og möl. Hefur af
þeim sökum þurft að dýpka höfnina
á fimm til átta ára fresti.
Að sögn Óskars Þórs Sigurbjörns-
sonar formanns hafnarnefndar á
Ólafsfirði er þó ekki enn ljóst hvort
nokkuð verður hafist handa við
höfnina í haust, það veitur alveg á
hvort fjárveiting fæst á þeim fjárlög-
um sem nú eru til umræðu. Ef vilyrði
fæst fyrir fjármagninu verður jafnvel
reynt að byrja á dælingu úr höfninni
í haust ef tfð leyfir. Áætlað er að
dæla átján þúsund rúmmetrum upp
úr höfn og innsiglingu. Kostnaðar-
áætlun sem gerð er af hafnarmála-
stofnun er upp á átta milljónir króna,
en þá er reiknað með að koma öllu
því efni sem upp úr höfninni kemur
á land upp, en það hyggjast Ólafs-
firðingar nota síðar f uppfyllingu
undir íbúðarhúsabyggð og íþrótta-
svæði.
í sumar hafa loðnuskip oft þurft
að sæta sjávarföllum við að komast
inn til Ólafsfjarðar, einnig er ljóst að
hinn nýi frystitogari Ólafsfirðinga
Merkúr mun tæplega geta legið í
heimahöfn ef einhver ókyrrð er í
höfninni að óbreyttum aðstæðum.
Að sögn Óskars er nú verið að
gera við skemmdir þær sem urðu í
fyrrahaust þegar Skeiðsfoss skip
Éimskipafélags fslands sigldi á
bryggju á Ólafsfirði. Áætlaður
kostnaður við viðgerðina er 1300
þúsund, sem er lítið eitt hærri upp-
hæð en dómkvaddir matsmenn mátu
tjónið á. Enn er hinsvegar ófrágeng-
ið hvað Eimskipafélagið greiðir háa
upphæð vegna skemmdanna, og
virðist samkomulag um það ekki
vera í sjónmáli milli Eimskipafélags-
ins og Ölafsfjarðarbæjar.
Skuldir um 40
Ásta Ragnheiður
gefur kost á sér
- Guðmundur G. ekki ákveðinn
Hákur bíður eftir að fjárlög verði afgreidd.
Mynd: Ö.Þ.
milljónir króna
Nú hafa fjórir aðilar tilkynnt um
þátttöku sína í prófkjöri Fram-
sóknarflokksins í Reykjavík. Þeir
eru: Ásta R. Jóhannesdóttir, sem
skilaði formlega inn gögnum á
skrifstofu flokksins í gærkvöldi, en
hún gefur kost á sér í annað sæti
listans, Finnur Ingólfsson aðstoð-
armaður sjávarútvegsráðherra,
Haraldur Ólafsson alþingismaður
og Helgi S. Guðmundsson
markaðsfulltrúi sem hefur gefið
kost á sér í þriðja sætið.
Mikið hefur verið rætt um hvort
Guðmundur G. Þórarinsson muni
gefa kost á sér til framboðs fyrir
Framsókn fyrir alþingiskosnin-
garnar. Tíminn leitaði til Guð-
mundar og spurði hann. Svaraði
Guðmundur því til að hann ætlaði
sér að hugsa málið yfir helgina. Þá
sagðist hann vita að undirskriftar-
listar væru á ferðinni og hann vildi
bíða og sjá hversu almennur og
mikill sá stuðningur væri áður en
hann tæki endanlega afstöðu til
framboðsmála.
Loks má geta þess að Bolli
Héðinsson hagfræðingur hafði gef-
Dollaralánin of erfiö, segir Þröstur Jónsson
Prentsmiðjan Hólar á Seltjarnar-
nesi, hefur verið tekin til gjaldþrota-
skipta og hefur Hlöðver Kjartans-
son, lögfræðingur verið ráðinn bú-
stjóri til bráðabirgða. Sagði hann, í
viðtali við Tímann í gær, að greiðslu-
stöðvun hefði verið veitt þann 18.
júní til þriggja mánaða. Stjórn
prentsmiðjunnar hefði síðan farið
fram á gjaldþrotaskipti þann 17.
september og rennur frestur til inn-
köllunarkrafnaútþann l.desember.
Sagði Hlöðver að skv. síðasta
ársreikningi hefðu skammtíma
skuldir fyrirtækisins numið 22,5 mill-
jónum en langtímaskuldir 13,5 mill-
jónum króna. Væri u.þ.b. helming-
urinn í íslenskum krónum og óverð-
tryggt en hinn helmingurinn í verð-
tryggðum lánum eða erlendri mynt.
Átti Hlöðver þó von á að heildar-
skuldir yrðu nokkru hærri, m.a.
vegna starfsmanna. Fyrsti skipta-
fundur yrði síðan haldinn í janúar á
næsta ári.
Þröstur Jónsson, einn af forsvars-
mönnum fyrirtækisins sagði að
Prentsmiðjan Hólar hafi verið stofn-
uð 1942 og hafi þá aðallega séð um
prentun fyrir Mál og menningu. Mál
og menning væri reyndar enn stærsti
einstaki hluthafinn með 22% hluta-
fjáreignar. Starfsmenn ættu hins
vegar um 45% hlutafjár og afgangur-
Ólafsfjörður:
Hákur stopp
inn skiptist milli margra einstak-
linga. Hafi Sigurður Nordal, prófess-
or átt þarna hlut og Halldór Laxness,
rithöfundur einnig auk annarra.
Sagði Þröstur að Hólar hafi verið
leiðandi prentsmiðja á sinni tíð þeg-
ar blýtæknin hafi verið notuð ein-
göngu. Þetta forskot hafi hins vegar
tapast þegar offset prentsmiðjan var
tekin upp. Dollaratryggð lán frá
Iðnlánasjóði hefðu verið tekin 1979
til að stækka verksmiðjuna og kaupa
vélar, en þau hefðu reynst rekstrin-
um ofviða.
Kröfur Iðnlánasjóðs væru nú um
17 milljónir króna og kröfur Lands-
bankans litlu lægri. Heildarkröfur
væru sennilega rúmlega 4o milljónir
kr.
Þröstur sagði að þessa dagana
væri verið að ljúka síðustu verkun-
um sem Hólar kæmu til með að
vinna, fleiri verk kæmu ekki inn.
- phh
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir
hefur gefið kost á sér í annað sætið
fyrir Framsókn í Rcykjavík.
ið kost á sér, en dró það síðan til
baka af persónulegum ástæðum.
-ES
HROGNATAKA
ÁLAXEYRI
Frá Magnúsi Magnússyni, fréttaritara Tímans á
Borgarfírði.
Kreisting er nú langt komin á
klakfiski, hjá Fiskiræktarstöð Vest-
urlands, á Laxeyri.
Þetta haustið verða kreistar um
230 hrygnur, sem fengnar eru með
ádrætti úr 10 ám, á Vesturlandi.
Veiðin á klaklaxinum stendur yfir í
mánuð, frá miðjum september.
Laxinn er tilbúinn til kreistingar
frá miðjum október og þarf fyrir
hverja kreistingu að velja þann fisk,
sem tilbúinn er.
Úr hrygnunum kemur mismikið
af hrognum, allt frá 0,4-1,6 lítrar, og
fer það eftir stærð fisksins. Hrognin
eru frjóvguð með svilum úr 2-3
hængum, af öryggisástæðum, ef ein-
hver hængur reynist ófrjór.
Eftir að búið er að frjóvga
hrognin, eru þau látin standa í
sótthreinsivökva í 2 klst. og þenjast
þau þar út, síðan fara þau í aðra
sótthreinsun og eru þar í 10 mínútur.
Eftir þessa meðferð fara hrognin í
klakrennur, sem þau eru í þar til þau
klekjast út, en klakið tekur mislang-
an tíma, eftir hitastigi vatnsins, sem
rennur um þau.
Héraðsdýralæknirinn, Gunnar
Örn Guðmundsson, er viðstaddur
allar kreistingar á Laxeyri. Gætir
hann þess að öllum heilbrigðisregl-
um sé framfylgt, auk þess tekur
hann sýni af hrognavökva og svilum
hænganna. Auk dýralæknis eru
starfsmenn stöðvarinnar viðstaddir
kreistingar, undir stjórn Bjarna
Áskelssonar stöðvarstjóra á Lax-
eyri.
Lítrinn af hrognum kostar nú
13-14,000 krónur á almennum mark-
aði og er mikil eftirspurn eftir þeim.
Mest af þeim seiðum sem klekjast
upp á Laxeyri, eru alin upp á
stöðinni, í 30-35 gramma stærð og er
öll framleiðsla stöðvarinnar nú þegar
seld. M.M.
AUGLÝSING
UMINNLAUSNARVERÐ
VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RlKISSJÓÐS
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* ÁKR. 100,00
1983-2. fl. 01.11.86-01.05.87 kr. 280,81 .
*lnnlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbót.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs ferfram í afgreiðslu
Seðlabanka (slands, Hafnarstræti 10, og liggja þarjafnframtframmi
nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, október 1986
SEÐLABANKIÍSLANDS