Tíminn - 31.10.1986, Side 5
Föstudagur 31. október 1986'
Tíminn 5
Fjárlagaumræðan:
Engin ábyrgðar-
laus yfirboð
í frumvarpinu
- sagði fjármálaráðherra í framsöguræðu sinni
Pálmi Jónsson formaður fjárveitingarnefndar stappar stálinu í Þorstein Pálsson fjármálaráðherra í fjárlagaumræð-
unni. Timamynd: Svemr
Frumvarp til fjárlaga kom til
fyrstu umræðu á Alþingi í gær og var
umræðan í hefðbundnum stíl. Tals-
menn stjórnarflokkanna sögðu
frumvarpið fela í sér bestu lausnina
miðað við ástand efnahagsmála en
stjórnarandstæðingar höfðu þar flest
á hornum sér og töldu frumvarpið
óreiðuplagg.
f framsögu sinni sagði Þorsteinn
Pálsson fjármálaráðherra að horfur
í þjóðmálum væru í flestu tilliti
bjartar um þessar mundir og vel
hefði árað til lands og sjávar. Þjóð-
hagsáætlun fyrir árið 1987 benti
mjög til þess að þjóðin nyti áfram-
haldandi hagvaxtar, ef núverandi
skilyrði breyttust ekki til hins verra.
Heldur myndi þó draga úr hagvexti
og væri spáð 2,2% hagvexti fyrir árið
1987 en 5% fyrir árið í ár. Ljóst er að
landsmenn væru að ná sér upp úr
þeim öldudal sem efnahagurinn féll
í á árunum 1982-1983.
„Ríkisstjórnin setti sér það
pólitíska markmið í vor sem leið að
minnka fjárlagahallann um því sem
næst þriðjung. Það hefði verið bæði
óraunhæft og óskynsamlegt að stíga
í einu stærri skref að því marki að ná
jöfnuði. Þjóðhagsstofnun gerir ráð
fyrir því að með þessu móti megi því
sem næst ná jöfnuði í viðskiptum við
útlönd á næsta ári,“ sagði ráðherra.
Um tekjuhlið frumvarpsins sagði
ráðherra „að tekjur ríkissjóðs væru
áætlaðar um 37 milljarðar, sem er
4,7% hækkun frá yfirstandandi ári.
langstærstur hluti teknanna, rúm
78%, kemur með óbeinum sköttum
og þar af er söluskattur rúmlega
helmingur. Sex hundruð milljónir
eiga þá að koma með álagningu
orkuskattsins. Jafnframt mun innan
tíðar verða lagt fram frumvarp um
tekju- og eignaskjatt, sem mun
minnka skattbyrðina um 300
milljónir.
Fjármálaráðherra sagði áætluð
gjöld ríkissjóðs vera rúmlega 41
milljarð á næsta ári, þar af færi um
43% til launa og reksturs ríkisstofn-
ana.
Varðandi einstaka liði frumvarps-
ins benti ráðherra á aukin framlög til
byggingar grunnskóla sem hækkuðu
um 70 milljónir, úr 115 í 185 milljón-
ir, þreföldun framlags til Kvik-
myndasjóðs, hækkun fjárveitingar
til hafnargerðar úr 74 milljónum í
160 m.kr. og til byggingar sjúkra-
húsa og heilsugæslustöðva úr 82
m.kr. í 120 m.kr.
Þá sagði ráðherra að lánsfjáráætl-
un fæli í sér grynnkun á erlendum
skuldum, tekin erlend Ián verða
2.550 m.kr. en afborganir eldri lána
verða 2.930 m.kr. Heildarlántökur
þjóðarbúsins eru í ár áætlaðar rúm-
lega 10 milljarðar, en verða á næsta
ári rétt rúmlega 8 milljarðar.
Undir lokin ræddi ráðherra kjara-
samningana frá því í febrúar og þær
ráðstafanir, sem ríkissjóður tók að
sér til að standa undir hluta kaup-
máttaraukningar sem af þeim leiddi.
Loks kom hann inn á sölu ríkisfyrir-
AF ÞINGI
tækja og lýsti því að því bæri að
halda áfram.
„Stjórnmálamenn og ríkisstjórnir
verða á endanum dæmdar af verkum
sínum, þessi ríkisstjórn hefur á ferli
sínum gætt aðhalds án þess að reiða
öxina til höggs og þetta frumvarp
endurspeglar þau sjónarmið," voru
lokaorð fjármálaráðherra í framsög-
unni.
Ragnar Arnalds (Abl. N.v.) sagði
að þetta fjárlagafrumvarp markaði
ljótasta viðskilnað íslenskrar ríkis-,
stjórnar frá upphafi, fjárlagahalli
þriðja árið í röð, sem næmi a.m.k.
6000 milljónum króna fyrir þessi 3
ár. Það yrði verk komandi ríkis-
stjórnar að leysa þennan vanda með
aðstoð skattgreiðenda.
Þingmaðurinn sagði að engu að
síður mundu stórfyrirtæki og eigna-
rnenn njóta góðs af hriplekum
skattalögum með alls kyns götum og
undanþágum sem skertu tekjur
ríkissjóðs sennilega um svipaða upp-
hæð og hallarekstrinum nemur.
Nóg væri þó til í gæluverkefni
ríkisstjórnarinnar; útibú ÁTVR í
Hagkaupshúsinu fengi 40 m.kr. og
væri það gert til að auka aðsóknina
að húsinu og flugstöðin fengi 500
milljónir króna. Frumvarpið bæri
hins vegar „vond tíðindi" fyrir
marga. Sveitarfélögin væru svipt
300 milljón kr. tekjum, framlag til
Byggingasjóðs lækkuðu um 300 ntill-
jónir líkt og helmings niðurskurður
væri á framlögum til dagvistarstofn-
ana. „1 heild sinni er frumvarpið
andfélagslegt" sagði Ragnar
Arnalds.
„Frumvarpið boðar ekki neina
nýja stefnu, sem horfi til framfara
eða búi í haginn fyrir komandi ár og
þá kjarasamninga sem í vændum
eru,“ sagði Eiður Guðnason aðal-
talsmaður Alþýðuflokksins í um-
ræðunum. Vitnaði hann í Þorvald
Gylfason og sagði að frumvörp til
fjárlaga og láns fjárlaga gætu valdið
þenslu í þjóðarbúskapnum og þar
með vaxandi verðbólgu og viðskipta-
halla á næsta ári.
Eiður sagði að forgangsröð að-
haldsverkefna í frumvarpinu væri
röng og tiltók þar sem dæmi að lagt
væri til að verja hundruðum milljóna
til að styrkja útflutning landbúnaðar
vara og niðurgreiða landbúnaðar-
vörur heima fyrir og í málefnum
landbúnaðarins stefndi sem fyrr í
óefni“. Þetta var að mati hans röng
stefna.
Þá sagði hann að erlendar lántök-
ur myndu ekki lækka því aðeins
opinberar lántökur minnkuðu.
Eiður kvartaði yfir því að margt í
tekjuhlið frumvarpsins væri á huldu
þar sent frumvörp þar að lútandi
hefðu enn ekki komið fram. Kom
þingmaðurinn síðan inn á ýmsa fjár-
lagaliði sem hann krafðist skýringa
á, s.s. 200 m.kr. greiðslu Pósts og
síma til ríkissjóðs, skerðingu á tekj-
unt Framkvæmdasjóðs RÚV, og
Áburðarverksmiðjuna og fyrirhug-
aða hækkun áburðarverðs. Hann
gerði nokkra grein fyrir tillögum
krata í ríkisfjármálum ogsagði undir
lokin „að frumvarpið væri bæði þen-
slufrumvarp og íhaldsfrumvarp
vegna þess að þar vottar ekki fyrir
nýjum hugmyndum enda þótt fjár-
málaráðherra væri ungur maður".
Kristín Halldórsdótiir (Kvl.Rn)
sagði að skattgreiðendur þyrftu að
finna að hagur þeirra væri betri og
jafnframt að vita að vel væri með fé
þeirra farið. Benti hún á nokkur
dæmi um markmiðslausar aukafjár-
veitingar til sanninda um að hagur
skattgreiðenda væri ekki borinn fyrir
brjósti í fjármálaráðuneytinu.
Tiltók Kristín ýmis atriði í frum-
varpinu sem dæmi um brostin loforð
fjármálaráðherra varðandi sparnað
og aðhald í ríkisrekstrinum. Benti
hún í því sambandi á mikla hækkun
á yfirstjórn ráðuneyta og ríkisstofn-
ana m.a. vegna yfirvinnu. Þar hefði
aðhald brugðst. Bruðlað hefði verið
í flugstöðina.
Gagnrýndi þingmaðurinn harð-
lega niðurskurð á framlögum til
dagvistarstofnana og sagði að það
bæri merki um rangt mat á forgangs-
verkefnum. Á sama tíma væri verið
að fjárfesta stórar upphæðir í áfeng-
isverslunum og hjá Bifreiðaeftirliti
ríkisins.
Um viðhorf Framsóknarflokksins
til fjárlagafrumvarpsins má lesa í
ræðu Guðmundar Bjarnasonar
(F.N.e.) við umræðuna sem birt er
annars staðar í blaðinu.
Bankakerfið:
Vextir banka og spari-
sjóða gefnir frjálsir
- frá og með morgundeginum
Með vaxtafrelsi því sem bankar
og sparisjóðir fá frá og með morg-
undeginum verður viðmiðunin:
„Hæstu lögleyfðu vextir Seðla-
bankans á hverjum tíma“ ekki
lengur til. Hvaða vextir verða því
framvegis reiknaðir af þeim þús-
undum skuldabréfa sem nú inni-
halda slíkt vaxtaákvæði er því
óljóst.
Seðlabankinn bendir einungis á
í þessu sambandi að æskilegt sé að
eigendur slíkra bréfa og þeir sem
skulda þau geri með sér samkomu-
lag um nýja viðmiðun þar sem því
verði við komið. Með tilliti til þess
að fyrri vaxtaákvarðanir Seðla-
bankans hafi haft almennt gildi,
mæiir bankinn með því að miðað
verði við það meðaltal
skuldabréfavaxta, sem hann mun
framvegis birta mánaðarlega. En
stjórnendur bankans telja þó að
allt eins geti komið til greina að
túlka „hæstu lögleyfðu vexti" sem
hæstu skuldabréfavexti sem ein-
hver bankanna tekur á hverjum
tíma, þ.e. sá banki sem tekur
hæstu vextina. En auk meðalvaxt-
anna mun Seðlabankinn mánaðar-
lega auglýsa hæstu og lægstu
skuldabréfavexti eins og þeir eru
21. dag hvers mánaðar.
f skuldabréfum sem gengið verð-
ur frá eftir 1. nóvember verður
hins vegar nauðsynlegt að skilgre-
ina nákvæmlega við hvað skuli
miðað ef vextir eiga að vera breyti-
legir, t.d. vexti ákveðins banka,
eða auglýsta meðalvexti. Seðl-
abankinn bendir þó á að séu aðilar
að lánssamningi sammála um
hvaða raunvexti lán skuli bera,
komist þeir næst því marki með
fullri verðtryggingu og föstum
vöxtum.
Að allir vextir verði framvegis
ákveðnir af bankaráðum eða
bankastjórnum hvers banka fyrir
sig breytir til muna hlutverki Seðla-
bankans. Sú er þó undantekningin,
að hann mun áfram ákveða dráttar-
vexti sem gilda bæði innan innláns-
stofnana og utan. Ráðgerir hann
að endurskoða þá mánaðarlega og
tengja þá almennum útlánsvöxt-
um, þannig að þeir verði sérstakt
álag á meðalvexti nýrra almennra
skuldabréfa þann 21. hvers mánað-
ar, en þeir gilda svo frá 1. degi
næsta mánaðar. Almennir dráttar-
vextir verða áfram 27% á ári nú í
nóvembermánuði.
Þá hefur Seðlabankinn einnig
vald til, með samþykki ráðherra,
að takmarka vaxtatöku banka-
stofnana, þ.e. ef þeir ætla að
krefjast hærri raunvaxta en gilda
að jafnaði í viðskiptalöndum
íslands, eða ef þeir ætla sér óhæfi-
legan mun milli innláns- og útláns-
vaxta. Ennfremur mun bankinn
áfram hafa með höndum upplýs-
ingastarfsemi um vexti bankanna á
hverjum tíma.
Bankastjórar Seðlabankans
kváðust ekki eiga von á verulegum
breytingum á almennum vöxtum
nú alveg á næstunni. Hins vegar
mætti búast við að t.d. breytingar
á verðbólgustigi hafi fyrr áhrif á
vextina en verið hefur.
- HEI
FUF Reykjavík
Almennur fundur vegna kjörs fulltrúa á flokksþing
verður haldinn á Rauðarárstíg 18,
laugardaginn 1. nóvember kl. 13.00.
Stjórnin
ALLT AÐI11V/J] AFSLATTUR
AF FUAVARNARAEFNUM
ALLT AÐ
AFSLATTUR
AFMALNINGU
OPIÐ
KL. 8-18 VIRKA DAGA
KL. 10 - 16 LAUGARDAGA
2 góðar byggingavöruverslanir.
Austast og vestast í borginni
Stórhöfða, sími 671100
v/Hringbraut, simi 28600.