Tíminn - 31.10.1986, Qupperneq 15
Tíminn 15
Föstudagur 31. október 1986
llllllllllllllllllllllllllll MINNING lillllllllllllllllllllllllllillllllllllllllllllllllll
Gústaf Adólf Ágústsson
endurskoðandi
Fæddur 31. maí 1908
Dáinn 30. september 1986
Hann fæddist á Felli á Upsa -
strönd, en fluttist ungur með foreldr-
um sínum að Ystabæ í Hrísey, þar
sem faðir hans var útvegsbóndi og
farnaðist vel.
Við Gústaf vorum skólabræður á
Akureyri og lukum stúdentsprófi
31. maí 1929, á afmælisdegi Gústafs.
Við sjö bekkjarsystkini vorum annar
árgangur Akureyrarstúdenta.
Bekkjardísin okkar, Guðríður
Aðalsteinsdóttir, var fyrsti kvenstú-
dentinn nyrðra.
Strax að loknu prófi léttum við
okkur upp í bílferð út að Bægisá og
fram í Grund. Seinna um vorið
fórum við, ásamt fimmtubekkingum
að norðan og sunnan, í fræðsluferð
til Hornafjarðar á varðskipinu Óðni.
Jónas frá Hriflu, þá kennslumálaráð-
herra, gekkst fyrir ferðinni, en far-
arstjórar voru náttúrufræðikennar-
arnir Pálmi Hannesson og Guð-
mundur G. Bárðarson. En brátt
skyldi lengra haldið. Af okkur sjö
samstúdentum sigldu fimm utan til
háskólanáms í Danmörku og Þýska-
landi.
Haustið 1929 hélt Gústaf til Pýska-
lands og lagði stund á stærðfræði og
eðlisfræði við háskólann í Hamborg.
Gústaf hafði einnig mikinn áhuga á
taflmennsku, hann tefldi mikið í
félagi þýskra stúdenta og gat sér
jafnan góðan orðstír. Frá Hamborg
fór Gústaf til Kaupmannahafnar og
hélt áfram námi þar um hríð, en
bauðst fljótlega atvinna á fslandi,
fyrst við kennslu, en síðar útgerð,
endurskoðun o.fl. Varð endurskoð-
un í Reykjavík aðalstarfssvið hans
lengstaf, og vann hann sér mikið
traust.
Á stórafmælum stúdentsmenn-
skunnar héldum við bekkjarsystkin-
in, ásamt mökum okkar, jafnan
fagnað ýmist á Akureyri eða í
Reykjavík.
Gústaf átti lengi við vanheilsu að
stríða, en var jafnan hress í bragði
og var fjarri honum að kvarta. Býst
ég við að honum hafi verið svipað
innanbrjósts og höfðingjanum sem
bað þess að menn væri glaðir og
reifir í erfi sínu.
Gústaf var tvíkvæntur, vel kvænt-
ur í bæði skiptin, og átti mörg börn.
Starfsævi Gústafs verður sennilega
ýtarlega rakin af öðrum, en ég lýk
spjalli þessu með nokkrum vísum:
Genginn er góður drengur,
glaðbeittur skólabróðir
fyrrum á Akureyri,
út til náms brutumst síðar.
Gústaf var glöggur á tölur,
grundaði skák af snilli.
Krufði oft kaup og sölur,
kapprœddi snjallt á milli.
Unglingar sátum saman
sjö í bekk fyrir löngu.
Foldin geymir nú fjóra,
fallna á lífsins göngu.
Ingólfur Davíðsson
Stefanía
Ósk Valdimarsdóttir
Fædd 14. mars 1904
Dáin 9. október 1986
Mamma hringdi að morgni dags
þann 9. þessa mánaðar og sagði mér
að amma væri dáin. Hún dó í nótt,
blessunin.... Gömul kona sem lifað
hefur sinn dag sofnaði loks örþreytt
að kvöldi, svefninum langa. Liðin
eru sjö ár frá því hún veiktist af
erfiðum sjúkdómi og örlög hennar
voru ráðin.
Pá baðst þú guð að taka þig:
mínu hlutverki er lokið -
en hann svaraði í heilagri brœði:
sá sem vill lifa skal deyja
sá sem vill deyja skal lifa
þú skalt að lokum deyja úr þrá
eftir dauðanum.
Og hann tók Ijósið úr augum þínum
og hljóminn úr eyrum þínum
og þú kúrðir þig niður
eins og visnað blóm
- blómstrið eina.
Hvíldinni fegin hverfur hún á vit
feðranna, „handan yfir djúp pínu og
dauða“. Hlutverki hennar er lokið í
þessu lífi. Hún markaði á langri leið
sinni djúp spor í minningar okkar
sem eftir lifum, í söknuði og trega.
Amma mín heitin, Stefanía Ósk
Valdimarsdóttir, fæddist á Efri-Mýr-
um í Engihlíðarhreppi í Austur
Húnavatnssýslu þann 14.03. 1904.
Foreldrar hennar voru Anna Guð-
mannsdóttir frá Krossanesi á Vatns-
nesi og Valdimar Stefánsson bóndi á
Efri-Mýrum. Hún var elst fjögurra
systkina, þeirra Guðmanns, Ragn-
hildar og Eggerts. Amma ólst upp í
foreldrahúsum til fermingaraldurs,
en fór þá að vinna fyrir sér eins og
títt var um unglinga á þeim tíma,
m.a. á sjúkrahúsinu á Blönduósi.
Hóf hún þar nám í hjúkrun, en varð
frá að hverfa sökum heilsubrests.
Fluttist hún þá suður til Reykjavíkur
og dvaldist þar um nokkurra ára
skeið. f Reykjavík kynntist hún
eftirlifandi eiginmanni sínum, afa
mínum, Agli Geirssyni frá Múla í
Biskupstungum. Oggiftust þauþann
3. október 1930 og hófu búskap í
Múla sama ár. Þar bjó hún samfleytt
í 52 ár. Þeim varð sex barna auðið,
misstu það fyrsta en hin lifa öll;
tvíburarnir Geir og Anna Sigríður,
Guðbjörg, Jónína Margrét og Páll
Haukur.
í Múla hélt amma myndarlegt
heimili sem orð fór af fyrir höfðings-
brag ograusnarskap. Þar var löngum
mikill gestagangur enda Múli í al-
faraleið. Tók hún öllum vel sem
þangað komu og gerði aldrei
mannamun. Börnum sínum var hún
mikið og þótti þeim afar vænt um
hana. Amma var fíngerð, fremur
smávaxin og fríð sýnum. Hreinlynd
var hún og skaprík og með afbrigð-
um hreinskiptin en þó kyrrlát í
viðmóti og eitthvað tigið í fasi henn-
ar og hlýtt. Hún var ekki orðmörg,
hafði gaman af lestri góðra bóka og
var mjög trúuð. Líf eftir dauðann
var henni hugleikið og las hún gjarn-
an bækur um þau efni. Hún var
sérdeilis mannglögg og duldist fátt
fyrir henni af þessum heimi og
öðrum, þangað sem hún er komin.
Og nú veit ég hvar:
í ríkinu sem varð til
er hinn krossfesti gaf upp andann
þar situr þú og spinnur
bláa geisla í sokk.
Jóhanncs úr Kötlum
Við barnabörnin þökkum henni
allt sem hún gaf okkur í guðs friði.
Stefán.
Afmælis- og
minningargreinar
Peim, sem óska birtingar á afmælis- og
eða minningargreinum í blaðinu, er
bent á, að þær þurfa að berast a.m.k.
tveim dögum fyrir birtingardag. Þær
þurfa að vera vélritaðar.
19. flokksþing Framsóknarmanna
Hótel Saga 7-9.nóvember 1986
Dagskrá
Föstudagurinn 7. nóv.
Kl. 10:00 Þingsetning
Kosning þingforseta (2 menn)
Kosning þingritara (4 menn)
Kosning kjörbréfanefndar (5 menn)
Kosning dagskrárnefndar (3 menn)
Kl. 10:15 Yfirlitsræða formanns
Kl. 11:15 Skýrsla ritara
Kl. 11:30 Skýrsla gjaldkera
Kl. 11:45 Kosning kjörnefndar (8 menn)
Kosning kjörstjórnar (7 menn)
Kosning málefnanefnda (5 menn)
Kl. 12:00 Matarhlé
Kl. 13:15 Mál lögð fyrir þingið
Kl. 14:30 Almennar umræður
Kl. 16:00 Þinghlé
Kl. 16:30 Nefndarstörf
Laugardagur 8. nóvember
Kl. 9:00 Nefndarstörf
Kl. 10:00 Almennar umræður frh.
Kl. 12:00 Matarhlé
Kl. 13:30 Kosning 25 aðalmanna í miðstjórn
Kl. 14:00 Afgreiðsla mála - umræður
Kl. 16:00 Þinghlé
Kl. 16.15 Nefndarstörf-starfshópar - undirnefndir
Kvöldið frjálst
Sunnudagur 9. nóvember
Kl. 10:00 Afgreiðsla mála - umræður
Kl. 12:00 Matarhlé
Kl. 13:30 Kosning 25 varamanna í miðstjórn
Kl. 14:00 Aðrar kosningar skv. lögum
Kl. 14:30 Afgreiðsla mála og þingslit að dagskrá
tæmdri (um kl. 16:00)
Kl. 19:30 Kvöldverðarhóf í Súlnasal
Frá Framsóknarfélagi Mýrasýslu
Aðalfundur verður haldinn mánudaginn 3. nóv. kl. 21 í Snorrabúð í
Borgarnesi.
Venjuleg aðalfundarstörf, kosning fulltrúa á flokksþing. Þingmennirnir
Alexander Stefánsson og Davíð Aðalsteinsson koma á fundinn.
Mætið vel.
Stjórnin.
Árshátíð
Árshátíð Framsóknarfélags Húsavíkur verður haldin laugardaginn 1.
nóvember n.k. kl. 19.30. Borðhald hefst kl. 20.00.
Veislustjóri: Níels Árni Lund, ritstjóri.
Ávarp: Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra.
Söngur, glens og gaman.
Hljómsveitin Víbrar leikur fyrir dansi.
Þátttaka tilkynnist fyrir fimmtudagskvöld í síma: 41510 - Sigurgeir og
41585 - Ingibjörg.
Framsóknarfélag Húsavíkur.
Skoðanakönnun á Vestfjörðum
Skoðanakönnun um röðun á framboðslista framsóknarmanna í
Vestfjarðakjördæmi fyrir næstu þingkosningar, fer fram dagana
6.-7. desember 1986.
Hér með er auglýst eftir framboðum í skoðanakönnunina.
Skila skal framboðum til formanns kjördæmissambandsins Sigurðar
Viggóssonar Sigtúni 5, 450 Patreksfirði, ásamt meðmælum stjórnar
framsóknarfélags eða 20 félagsbundinna framsóknarmanna á Vest-
fjörðum fyrir 9. nóvember 1986.
Skoðanakönnunin er opin öllum heimilisföstum Vestfirðingum, sem
lýsa yfir því að þeir séu fæddir fyrir 1. janúar 1972 (þ.e. verða 16 ára
á kosningaári), að þeir séu ekki félagar í öðrum stjórnmálaflokki og
þeir styðji stefnu Framsóknarflokksins.
Allar nánari upplýsingar gefur Sigurður Viggósson í símum 1389
(heima) eða 1466 og 1477
Stjórn Kjördæmissambands framsóknarmanna á Vestfjörðum
70 ára afmælisfagnaður
Framsóknarflokksins 6 nóv. ’86
verður haldinn í Háskólabíói fimmtudaginn 6. nóvember og hefst kl.
20.30.
Dagskrá auglýst síðar.