Tíminn - 31.03.1989, Qupperneq 3
•' Töstudagur 31. mars 1089
nr.ijji f <\
Timinn
Magnús Guðmundsson kvikmyndagerðarmaður:
„Yfirlýsingin
er bara þrugl“
„Yfirlýsingin er bara þrugl og í
engu samræmi við myndina. Á
blaðamannafundi í Danmörku ný-
lega var þessi yfirlýsing tekin fyrir
og rakin lið fyrir iið og í kjölfar
þess sáu dönsk blöð ekki einu sinni
ástæðu til að birta hana,“ sagði
Magnús Guðmundsson í samtali
við Tímann um yfirlýsingu Green-
peace sem birtist í blaðinu í gær.
Magnús sagði ennfremur að það
væri ljóst að Grcenpeacemenn
hefðu ekki skoðað myndina nægi-
lega vel. Ótti þeirra við myndina
eða slæm samviska gerði það að
verkum að þeir iæsu úr myndinni
ýmislegt sem ekki er sagt í mynd-
inni.
„Það er hrein vitleysa þegar þeir
segjast geta hrakið það sem kemur
fram í myndinni. t>að er sama
hversu margar yfirlýsingar þeir fá
birtar í blöðum það breytir ekki
þeirri staðreynd."
Magnús sagði að dreifing á
myndinni gengi vel og átta sjón-
varpsstöðvar hefðu keypt hana til
sýningar, en að ósk sjónvarps-
stöðvanna væri ekki upplýst fyrir-
fram hvar hún verður sýnd. „Það
eru þegar komnar fjölmargar fyrir-
spurnir frá Bandaríkjunum. en það
er í fyrsta skipti í íslenskri kvik-
myndasögu sem bandarískar sjón-
varpsstöðvar hafa áhuga á ísienskri
mynd. Við getum að miklu leyti
þakkað Greenpeace þennan áhuga
því þeir hafa verið að andskotast í
bandarískum fjöimiðium og hóta
okkur öllu illu og í kjölfar þessara
láta fá fjölmiðlarnir áhuga."
Magnús sagði að sjónvarps-
stöðvarnar fengju yfirlýsingu
Greenpeace senda til hliðsjónar
með skoðunareintökum af mynd-
inni og það að stöðvarnar tækju þá
ákvörðun að sýna myndina þrátt
fyrir yfirlýsinguna væri nóg svar
við fullyrðingum Greenpeace.
SSH
Bylgjan/Stjaman:
1 rej (t im \ gar um
"i m lán a imót tin?
Jón Ólafsson, stjórnarformaður
íslenska útvarpsfélagsins hf., segir
að um mánaðamótin næstu verði
hlustendur Bylgjunnar og Stjörn-
unnar loksins varir við breytingar,
en unnið hafi verið að þeim síðan
stöðvarnar voru sameinaðar 11.
mars sl. í viðtali við Tímann sagði
hann að einhver fækkun yrði á föstu
starfsfólki, en verið væri að vinna að
endurráðningu flest allra starfs-
manna sem sagt var upp í tengslum
við sameininguna og gengju þeir
samningar ágætlega. Hér væri þó
ekki um að ræða lausamenn við
stöðvarnar.
Meðal þess sem til greina kemur í
átt til breytinga, að sögn Jóns Olafs-
sonar, er að Bylgjan og Stjarnan
verði samtengdar einhvern tíma sól-
arhringsins, en það væri þó mál sem
ekki væri enn fast ákveðið. Að öðru
leyti vildi hann ekki tjá sig um í
hverju breytingarnar muni felast,
þar sem margt væri enn ófrágengið,
þótt skammur tími væri til stefnu.
Sagðist hann þó enn geta fullyrt að
áfram yrðu stöðvarnar tvær og muni
þær áfram starfa undir sínum nöfn-
um þótt margt í rekstrinum hafi
verið sameinað. „Stöðvunum hefur
ekki fækkað frekar en rás eitt og rás
tvö eru sama stöðin," sagði Jón.
KB
Fjöldi gesta kom í Bústaðakirkju í gær að samgleðjast sr. Ólafi Skúlasyni, verðandi biskupi íslands, cftir afgerandi
kjör. Meðal þeirra var biskup kaþólskra manna á Islandi, Alfred Jolson. Timamynd Pjetur
Sr. Ólafur Skúlason, vígslubiskup, tekur við
embætti biskups íslands 25. júní á prestastefnu:
Þjóðkirkjan þarf
aukið sjálfstæði
Ólafur Skúlason, vígslubiskup hlaut ótvíræðan meirihluta
í biskupsvali þjóðkirkjunnar og hefur því orðið fyrir valinu
sem næsti biskup íslands. „Ég held að allt stefni í það að
þjóðkirkjan öðlist meira sjálfstæði um sín innri mál, meira
fjárhagslegt sjálfstæði og sjálfstæði um söfnuði og mörk
þeirra,“ sagði Ólafur er Tíminn spurði hann hvaða breytingar
væru í vændum innan kirkjunnar á næstu árum.
er honum varð ljóst að hann þyrfti
að láta þar af störfum sem sóknar-
prestur eftir 25 ára gæfuríkt safnað-
arstarf.
Þegar Tíminn hafði óskað Ólafi til
Sagðist hann ekki geta neitað því
að hafa orðið hrærður er hann og
kona hans, frú Ebba Sigurðardóttir,
gehgu inn í Bústaðakirkju til að taka
á móti gestum á þessum tímamótum,
Hálfdán Kristjánsson fyrrverandi sparisjóðsstjóri segir frétt Tímans í fyrradag um málefni Sparisjóðs Súðavíkur vera að mestu:
„Rógburður og skítkast“
„Lokagrein fréttar Tímans um Sparisjóð Súðavíkur er saman-
safn grófra ærumeiðinga og skitkasts. Þeir sem þar eru kallaðir
mínir viðhlæjendur og vinir bæru örugglega verulega skarðan hlut
frá borði ef farið yrði vandlega ofan í lánveitingar sjóðsins þann
tíma sem ég veitti honum forstöðu,“ sagði Hálfdán Kristjánsson
á Súðavík við Tímann í gær.
Hann sagði að sér þætti fullmikið
upp í sig tekið það sem haft er eftir
viðmælendum Tímans fyrir vestan
að öll starfsemi sjóðsins hafi verið
á mörkum hins löglega. Sann-
leikurinn væri sá að Bankaeftirlitið
hefði aldrei gert athugasemdir við
eðli rekstursins, fyrr en í svoköll-
uðu bílamáli. Síðan sagði Hálfdán:
„í lokagrein fréttarinnar er talað
um annars vegar þá sem reka vilji
sjóðinn á hinum þrönga vegi
dyggðarinnar, en hins vegar okkur
feðgana og vini okkar.
Þar er svo langt gengið að spurn-
ing er um hvort ekki sé ástæða til
að höfða mál. Það er bara vonandi
að þetta lesi ekki of margir því
þarna er gengið svo langt í ófræg-
ingarherferð að ekki tekur nokkru
tali.
Það er ekki rétt eftir mér haft að
ég hafi sagt að skipta mætti deilu-
aðilum upp í Frost og Tog,“ sagði
Hálfdán, „ég talaði um Frostatog.
Tog hf. er meirihlutaaðili í Frosta
hf. og þeir stjóma saman öllu
batteríinu. Ef þeir væru farnir að
rífast innbyrðis, þá væri nú moldin
farin að rjúka í logninu," sagði
Hálfdán Kristjánsson.
Þá gerði Hálfdán athugasemdir
við frétt blaðsins í fyrradag af
hörðum flokkadráttum á Súðavík
þar sem Sparisjóður Súðavíkur og
atvinnufyrirtækin á staðnum eru
bitbein.
Hálfdán sagði að hér væri um að
ræða það sem nefna mætti Frost-
toghópinn annars vegar, en hins
vegar aðra hluthafa eða stofnendur
sjóðsins. Þá sagði hann að Banka-
eftirlitið hefði ekki haldið neinn
fund með stjórnendum sjóðsins
eftir aðalfund hans 1988 umfram
venjubundna árlega athugun.
Hann sagðist ekki átta sig á f
hverju „amstur“ Bankaeftirlitsinsv
ætti að vera fólgið fyrir utan það að
koma vestur út af bílamálinu og
hlaupareikningsmálinu snemma
árs 1987. Eftir því sem hann þekkti
til hefðu ekki neinir sérstakir fund-
ir verið haldnir síðan.
„Ég held að þessi mál séu nú
ekkert stórkostleg í sjálfu sér þar
sem eftirlitið skoðar hvert einasta
smáatriði í svona litlum stofnun-
um. Atriði sem þeir aldrei komast
yfir í stóru bönkunum," sagði
Hálfdán.
Hann sagði ekki vera um það
deilt að þessi bílaviðskipti voru
ólögleg en öll stjórnin hefði tekið
ákvörðun um þau á sínum tíma
utan einn sem sat hjá.
„Það vantaði einn aðila inn í
dæmið líka og það átti bara að selja
skuldabréf með afföllum og þá var
ekki hægt að gera neitt, þá var
þetta orðið fullkomlega löglegt."
Hálfdán sagði að fram hefði
komið í blöðum að hagnaður af
bílaviðskiptunum svokölluðu hefði
verið 300 þúsund. Sparisjóðurinn
hefði verið eigandi tveggja bíla af
þeim fjórum sem um var aö ræöa.
Þannig hefði nú ekki verið um
stórkostlegar fjárhæðir að ræða og
það ætti blaðamaður að geta viður-
kennt.
Hann sagði að deilurnar um
hlutkestið væru sprottnar af mis-
munandi túlkun á anda samþykkt-
anna og sjálfur væri hann ekki
tilbúinn að viðurkenna túlkun
Bankaeftirlitsins rétta.
„Þrátt fyrir að í samþykktunum
segi að varpa eigi hlutkesti, þá eru
deildar meiningar um hvenær á að
gera það. Það er eðlilegt að ná
fram úrslitum með kosningu og ef
þess er kostur þá á að gera það.
Náist ekki fram úrslit með kosn-
ingu þá er eðlilegt að varpa hlut-
kesti og þetta hefur verið gert. Það
var kosið á fundinum í fyrra og það
fengust úrslit,“ sagði Hálfdán
Kristjánsson fyrrverandi spari-
sjóðsstjóri á Súðavík. -sá
Athugasemd
Varðandi upphaf viðtalsins verð-
ur Hálfdán að eiga það við flokks-
félaga sína fyrir vestan, hvað eru
ærumeiðingar og skítkast í málinu.
Fréttastj.
hamingju með úrslitin, var hann
spurður um hvort von væri á áherslu-
breytingum á stóli biskups íslands.
„Auðvitað fylgja einhverjar breyt-
ingar mannaskiptunum, en ég á ekki
von á neinum grundvallarbreyting-
um. Éger nú búinn að vera starfandi
innan kirkjunnar í fjölda ára, þannig
að það er ekki eins og ég sé að koma
inn á framandi stað.“ Sagðist hann
halda að innri mál kirkjunnar, sjálf-
stæði hennar og gott samstarf við
ríkisvaldið verði afar þýðingarmiklir
þættir í starfi næsta biskups. „Þjóð-
kirkjan verður að öðlast meira sjálf-
stæði um mál sín og það er bráð-
nauðsynlegt. Ég held að ríkisvaldið
sé á sömu skoðun. Við megum
aldrei gleyma því að þetta er þjóð-
kirkja með yfir 90% landsmanna
innan sinna vébanda. Okkur ber að
hugsa um þá alla, en ekki aðeins þá
sem e;u virkir innan safnaða kirkj-
unnar. Þannig ber okkur að reyna að
fá sem flesta til að átta sig á því hvað
kirkjan hefur að bjóða.
Ég er auðvitað mjög þakklátur
yfir niðurstöðu biskupsvalsins og því
að kosningabaráttan var látlaus og í
góðu gengi. Þar að auki er ég
auðmjúkur því þetta er mikið em-
bætti og ég held að enginn maður
finni sig þess umkominn að gegna
því. Ég finn mikla vankanta á sjálf-
um mér þar sem ég þekki til em-
bættisins í gegnum þau störf sem ég
hef gegnt um lengri og skemmri tíma
innan kirkjunnar og innan biskups-
stofu," sagði sr. Ólafur. „Með Guðs
hjálp ætla ég þó að reyna hvað ég
get.“
Sr. Ólafur Skúlason, hefur þegar
hlotið biskupsvígslu sem vígslu-
biskup, þannig að ekki liggur annað
fyrir en innsetning í embætti biskups
íslands. Gert er ráð fyrir að það geti
orðið 25. júní n.k. við upphaf þeirra
prestastefnu, sem verður sú síðasta
er fráfarandi biskupv herra Pétur
Sigurgeirsson, mun stýra.
„Það verður bara erfitt að fara
héðan úr Bústaðakirkju, því hér er
yndislegt fólk sem búið er að bera
mig á örmum sér síðan ég og kona
mín komum hingaðárið 1964,“ sagði
hinn verðandi biskup að skilnaði.
KB