Tíminn - 31.03.1989, Side 7

Tíminn - 31.03.1989, Side 7
Tíminn 7 Grétar Árnason og Magnús Bjarnason á Kára Jóhannssyni frá Keflavík voru að greiða úr netadræsu sem flæksl hafði. Þeir sögðust hafa verið nvbúnir að leggia netin. en þá hefði komið hræla „p þvi for sem for. Þetta ersjotta net þeirra félaga sem fer svo illa í brælu. P „mio hræla og limum>ndir l'jetur Keflavíkurbær verður 40 ára þann 1. apríl og halda Keflvíkingar daginn hátíðlegan: Listaverkið af Stjána bláa verður aibjúpað á sjálfan afmælisdaginn, 1. apríl. Listaverkið gerði Erlingur Jónsson. Þann 2. apríl verður júdómót á vegum júdódeildar UMFK og fer það fram í íþróttahúsinu í Keflavík og hefst kl. 10.(10. Síðar unt daginn verður brúðuleikhúsið með sýningar ' í Félagsbíói, sem hefjast kl. 14.00og 16.00. í Félagsbíói verður Leikfélag Keflavíkur með sýningar á rcvíunni „Við kynntumst fyrst í Keflavík!" og verða sýningar dagana 7. til 11. apríl. Á vegum Tónlistarfélags Kefla- víkur verða einsöngstónleikar Hlífar Káradóttur sópran og hefjast þeir í Félagsbíói kl.20.30. Undirleikari verður Lára Rafnsdóttir. \ Gunnar Þórðarson, Rúnar Julí- usson, Jóhann Helgason og fléiri hljómlistarmenn frá Keflavík koma fram á tónlistarhátíð sem verður í íþróttahúsinu laugardaginn 8. apríl og hefst hún kl. 16.00. Þá verður Fimleikafélag Keflavík- ur með innanfélagsmót sunnudaginn 9. apríl í íþróttahúsi Keflavíkur og stendur það frá 10.00 til 17.00. Þann 10. apríl verða kennaratón- leikar Tónlistarskóla Keflavíkur í Tónlistarskólanum við Austurgötu og hefjast þeir kl. 20.30. -ABÓ í íslandsmeistaramótinu fyrir skömmu. Þá höfum við einnig góðan fjölbrautaskóla, þannig að við erum sjálfum okkur nóg á flcstum sviöum," sagði bæjarstjórinn. Guðfinnur sagðist telja að fram- tíðin væri björt, bæjarfélagið væri í alfaraleið, hvað snertir alþjóðasam- göngur. „Menn hafa vcrið að ræða þá mögulcika sem hafa skapast við þaö að Flying Tigers cru farnir að koma hérna við og jafnvel að það væri möguleiki að koma á fót toll- frjálsunt iðnaði," sagði Guðfinnur. Hann sagðist vona að festa og ró yrði yfir hlutunum í Kcflavík í framtíð- inni og að fólkið gæti búið við atvinnuöryggi og góða lífsafkomu. Fjölbreytt hátíðardagskrá í tilefni afmælisins verður vegleg hátíðardagskrá á sjálfan afmælisdag- inn. Dagskráin hefst með hátíðar- fundi bæjarstjórnar Keflavíkur og byrjar fundurinn klukkan tíu í Flughótelinu. Þar verður m.a. heið- ursborgari Keflavíkur tilnefndur. Afmælishátíðin hefst síðan klukk- an 14.00 á því að listaverkið af Stjána bláa við Hafnargötu veröur aflijúpað, cn að því loknu, eða um 15.00 hefst hátíðardagskrá í íþrótta- húsinu. Hciðursgestur dagsins verð- ur frú Vigdís Finnbogadóttir forseti íslands og mun hún flytja ávarp. Þá munu Jóhanna Sigurðardóttir félags- málaráðherra, Anna Margrét Guðmundsdóttir forseti bæjar- stjórnar Keflavíkur og Guðfinnur Sigurvinsson bæjarstjóri Keflavíkur einnig flytja ávörp. Börn úr Myllu- bakkaskóla sýna leikþátt, Einar Júl- íusson og Ólöf Einarsdóttir syngja og atriði verða sýnd úr Gömlu Keflavík í umsjá Leikfélags Kefla- víkur. Þá mun Karlakór Keflavíkur syngja, Fimleikafélag Keflavíkur vera með fimleikasýningu og dans- sýning á vegum Auðar Haralds. Að lokinni dagskrá, verða bornar fram veitingar í nýja íþróttasalnum. „Maður ólst upp við það, að höfnin hér var full af bátum og hér fyrir neðan var fískhús í hverju húsi, sem nú er búið að rífa,“ sagði Guðfínnur Sigurvinsson bæjarstjóri og bendir út um gluggann á skrifstofu sinni í átt að gömlu bryggjunni. þjónustugrcinar bæst við, eins og t.d. tvö ný hótel, Flughótelið og Hótcl Keflavík. Hann sagði að til- koma hótelanna heföi mælst mjög vel fyrir og væru þau mjög vel nýtt, bæði af íslendingum og útlending- um. með þessu hefur bæjarbragur- inn einnig tekið miklum breytingum að mati bæjarstjórans. „Hér er ein- nig mikið af góðum iðnaðarmönnum og það hefur drýgt svolítið að þeir hafa vinnu af flugvellinum, þó svo aö hún sé sveiflukennd," sagði Guö- finnur. „Ég held ég megi segja að samfé- lagið hérna sé notalegt, þaö heyrist á fólki sem flytur hingað að þaö unir sér vel. Hér er mikið og gott félags-, tónlistar-, og íþróttalíf, og er skemmst að minnast frækilegs sigurs körfuknattleiksliðs ÍBK á KR-ingum Keflvíkingar minnast þess um þessar mundir að 40 ár eru Iiðin frá því að Keflavíkurbær öðlaðist kaupstaðarréttindi, en þau hlaut hann 1. apríl árið 1949. Margt hefur breyst á þessu tímabili, bæði hvað atvinnumál og fólksfjölda varðar. Guðfinnur Sigurvinsson bæjar- stjóri Keflavíkur sagði í samtali við Tímann að fólksfjöldi í bæjarfélag- inu hefði vaxið jafnt og þétt miðað við landsmeðaltal síðustu áratugi og teldi Keflavík nú um 7400 íbúa. Ungt fólk sagði hann að héldi tryggð við staðinn og lítið væri um að fólk flytti frá svæðinu, en bætti því jafn- framt við að töluverð hreyfing væri á fólki innan svæðisins, út í Garð og Sandgerði, enda væri þetta að verða eitt atvinnusvæði. Hann sagði að ástand í atvinnu- málum á staðnum væri yfirleitt gott nema við sjávarútveginn. „Það hefur verið varnarbarátta með útgerðina. Hraðfrystihús Keflavíkur varð að láta tvo togara ogtakaeinn í staðinn. eins og menn muna, auk þess sem fleiri skip hafa verið seld frá staðnum. Þannig að það er erfið barátta hér í sambandi við sjávarút- veginn, en bæjarfélagið hefur reynt að gera það sem það getur til að styrkja menn og félög í þessum slag," sagði Guðfinnur. Lítið er orðið eftir af vertíðarbátum, 70 til 100 tonna, en mikill fjöldi smábáta bæst í flotann. Guðfinnur sagði að atvinnuástand væri að öðru leyti gott og nýjar Kaupstaður í 40 ár

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.