Tíminn - 31.03.1989, Qupperneq 10
10 Tíminn
Föstudagur 31. mars 1989
llllllllllllllllllllllllllll ÍÞRÓTTIR llll'r ilillllF1' .Llillll'r' .iilllll1 Mllll!' .Iillllil1!1 ililllH' i'lill'li ,!.llll!l;!' ■iil!llll!i hllllllT i.lll|!|:| iillll'1, lill!''' .|;IF Jlll'l'1' iill'1" ~ll'r'' .........................................................................................................................................................................................................................................................................................IIIIIIIIHIHIIIII
Körfuknattleikur:
Njarðvík vann bikarinn með
einu stigi eftir framlengingu
Æsispennandi lokamínútur og
framlenging í úrslitaleik bikarkcppn-
innar í körfuknattleik karla ■ Laugar-
dalshöllinni í gærkvöld lauk með
sigri Njarðvíkinga 78-77, gegn ÍR-
ingum. Njarðvíkingar hafa því unnið
bikarinn þriðja árið í röð.
Njarðvíkingar hófu leikinn af
krafti og voru yfir mest allan fyrri
hálfleikinn. Lítið var skorað og bæði
liðin léku pressuvörn. í leikhléi var
staðan 42-33 fyrir Njarðvík og sá
munur hélst allt fram á lokamínútur
lciksins að ÍR-ingar fóru að saxa á
muninn.
Lokamínúturnar voru gífurlega
spennandi og Vigni Hilmarssyni ÍR-
ingi tókst að jafna metin á síðustu
sekúndunni með skoti af stuttu færi.
Staðan var 71-71 og framlengingar
var þörf.
Njarðvík gerði fyrstu 4 stigin í
framlenginunni, en ÍR-ingar gáfust
ekki upp. Villuvandræði voru orðin
gífurleg í báðum liðunum og til
marks um það fóru 5 leikmenn hjá
ÍR út af með 5 villur, þar að auki
voru 2 leikmenn inná með 4 villur.
Þegar um ein og hálf mínúta var
til leiksloka skoraði ísak Tómasson
úr vítaskoti fyrir Njarðvíkinga og
kom þeim 78-76 yfir. Þegar nokkrar
sekúndur voru eftir fékk Jón Örn
Guðmundsson vítaskot fyrir ÍR,
hann hitti úr fyrra skotinu og mis-
tókst í því síðara. Þar með runnu
möguleikar ÍR út í sandinn og Njarð-
vík vann bikarinn 78-77.
Leikurinn var mjög skemmtilegur
og gríðarlega spennandi. Áhorfend-
ur stóðu á öndinni af spenningi og
fengu mikið fyrir aurana sína.
Helgi Rafnsson, ísak Tómasson
og Teitur Örlygsson voru atkvæða-
mestir í liði Njarðvíkinga, en hjá ÍR
var Björn Steffensen bestur, Ragnar
Torfason, Jón Örn Guðmundsson
og Sturla Örlygsson stóðu sig einnig
vel. ' BL
Njarðvíkingar bikarmeistarar í körfuknattleik karla 1989.
Lið ÍBK sem vann bikarinn í kvennaflokki með því að vinna ÍR 78-69, eftir að staðan í leikhléi
var 42-36. Tímamyndir Pjetur
Hreiðar Hreiðarsson og fsak Tómasson Njarðvíkingar hampa bikarnum eftir sigurinn í gærkvöld
* ’JV/l > ;>vPP ' Wjgk . jg ^ 1
fljpc A .