Tíminn - 31.03.1989, Qupperneq 12

Tíminn - 31.03.1989, Qupperneq 12
1;2; Tíminn úp,u r íjfSfTS ffj 7‘ Föstudagur 31. mars 1989 FRETTAYFIRLIT SHWEIKEH - ísraelskir hermenn skutu þrjá Palestínu- menn til bana og særðu að minnsta kosti þrjátíu og þrjá á hinum hernumda Vesturbakka og í Gaza. VÍN - OPEC ríkin luku við- ræðum í Vín með þeirri niður- stöðu að halda áfram harðri stjórnun á olíuframleiðslu til að reyna að halda olíuverði í því hámarki sem það hefur verið undanfarna daga. Aðalfram- kvæmdastjóri OPEC sagði að öll þrettán olíuútflutningsríkin hefou verið sammála um þetta og að framleiðslukvótar verði haldnir. WASHINGTON - Ráð gjafar Bush forseta sögðu að vinnan við aö ná upp olíunni sem rann í sjóinn við strendur Alaska og hafa mengað meira en nokkuð annað mengunar- slys í sögu Bandaríkjanna, gengi vel. Vistfræðingar segja að sæotrar, farfuglar, síld og lax séu helstu fórnarlömb olíunnar sem lak úr hinu strandaða olíuskipi Exxon : Valdez á Prins Vilhjálms sundi. | BEIRÚT - Miklir eldar brut- ust út þegar bútangastankur ! sprakk í loft upp í stórskotahríð Sýrlendinga og múslíma á hverfi kristinna manna í Beirút. Að minnsta kosti fjörutíu manns slösuðust í hinni miklu ,sprengingu. Ekkert lát er á stórskotaliðshríðinni þrátt fyrir Ivopnahlé. BRUSSEL - Lögreglan í Belgíu leitar nú morðingja leið- toga belgískra múslíma og að- stoðarmanns hans, en þeir voru myrtir í mosku sinni í fyrrakvöld. Talið er næsta víst að mennirnir hafi verið myrtir þar sem þeir vildu ekki taka undir með Khomeini sem hvatt hefur til morðs á rithöfundinum Salman Rushdie. Ríkisstjórnin er nú að leita leiða til að vernda leiðtoga múslíma í landinu sem flestir eru hófsamir og því skotmörk öfgafullra trúbræora sinna í austri. ÚTLÖND MOSKVA - Sjö bandarísk risafyrirtæki hafa undirritað samning um að fjárfesta í sam- eiginlegum verkefnum með sovéskum fyrirtækjum. Meðal fyrirtækjanna er matvæla- og. tóbaksfyrirtækið JFJ Nabisco og Eastman Kodak fyrirtækið. Fyrirtækin sex skuldbinda sig til að fjárfesta í Sovétríkjunum fyrir 10 milljarða dollara í 25 verkefnum. Samningurinn kveður á um að hluta arðsins megi flytja út úr Sovétríkjunum, en slíkt hefur hingað til verið forboðið, eins og reyndar fjár- festing erlendra fyrirtækja. Hyundaiverksmiðjurnar í Suður-Kóreu: Verkfallsmenn handteknir í hundraðatali Það er hiti í kolunum hjá hafnarverkamönnunum hjá Hyundai verksmiðjunum í Suður-Kóreu, en þeir hafa verið í verkfalli undanfarna þrjá mánuði. í gær börðust þeir við óeirðalögreglu í hafnarborginni Ulsan eftir að lögreglan hafði handtekið um það bil sjöhundruð verk- failsmenn. Hundruð verkamanna börðust við óeirðalögregluna í húsgarði verka- mannablokka þar sem um tvöþús- und verkamenn Hyundai fyrirtækis- ins búa. Verkamennirnir báru eld að lang- ferðabíl í eigu fyrirtækisins og einum lögreglubíl. Rúntlega tíuþúsund óeirðalög- reglumenn voru mættir á svæðið í gærmorgun vopnaðir kylfum og tára- gasi og handtóku hina sjöhundruð verkfallsmenn sem hafa lamað verk- smiðjurnar í nær þrjá mánuði. Verkamennirnir börðust á móti með grjótkasti, bensínsprengjum og kylfum. Rúmlega tuttugu manns meiddust og er að minnsta kosti einn verkamaður í lífshættu á sjúkrahúsi eftir átökin. Hópar verkamanna sem ekki eru í verkfalli aðstoðuðu lögregluna með því að rjúfa með jarðýtum víggirð- ingar sem verkfallsmenn höfðu kom- ið upp með bílum, ýmsum vélum og útskipunarbúnaði. Aðgerðir lögreglunnar komu í kjölfar margítrekaðra aðvarana stjórnvalda. Er ætlunin að óeirða- lögregla verði á staðnum í náinni framtíð og freisti þess að halda starfsemi verksmiðjanna gangandi. Verkamenn og lögregla eiga í átökum í S-Kóreu. Sjöhundruð verkamenn voru handteknir í gær. Talsmenn Hyundai fyrirtækisins segja að um 80% þeirra nítjánþús- und verkamanna sem starfa í verk- smiðjunum í Ulsan vilji hefja vinnu á ný. Þeir segja að fyrirtækið hafi tapað einum milljarði Bandaríkja- dala á verkfallinu sem er það lengsta í sögu Suður-Kóreu. Rúmlega fjögurhundruð manns hafa slasast í átökum tengdum verk- fallinu frá því það byrjaði í desem- bermánuði. Sjálfstæðisflokkurinn í framboð í Ungverjalandi Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að bjóða fram í næstu kosningum í Ungverjalandi. Það er þó ekki hinn íslenski Sjálfstæðisflokkur, cnda ætti hann varla upp á pallborðið í Ung- verjalandi með stefnu sína, heldur er það Sjálfstæðisflokkur þeirra Ungverja. Flokkurinn hefur ekki verið áberandi í Ungverjalandi síð- astliðna fjóra áratugi, enda komni- únistaflokkurinn ráðið þar ríkjum þar til nú. Sjálfstæðisflokkurinn ungverski var á sínum tíma flokkur millistéttar- innar og hlaut hann um 14% at- kvæða í kosningunum 1947. Síðan hafa ekki farið fram frjálsar kosning- ar í Ungverjalandi. Slagorð hans í dag verða „Guð, ættjörðin og einkaeignin '. Flokkurinn var reyndar endur- reistur um skamma stund árið 1956 eftir að kommúnistar höfðu bælt niður alla stjórnmálaflokka eftir þingkosningarnar 1947 með dyggum stuðningi Sovétríkjanna. Hins vegar sáu skriðdrekar sovéska hersins um að kremja flokkinn niður þegar Rauði herinn gerði innrásina í Ung- verjaland 1956 og traðkaði niður frelsishreyfingu Ungverja. Það verður hinn 62 ára gamli Tibor Hornyak sem leiða ntun flokk- inn á endurreisnarfundi sem haldinn verður í Jurta leikhúsinu í Búdapest á sunnudaginn. Hann var kjörinn formaður 1956 og sat í fangelsi sex árin þar á eftir, þökk sé Sovétmönn- um. Hornyak segir að flokkurinn vilji viðhalda sósíalisma í Ungverjalandi. en að hann verði byggður á kristnum grunni. Það er ekki einungis Sjálfstæðis- flokkurinn sem heldur fyrstu ráð- stefnu sína í fjóra áratugi. Nú þegar hafa Jafnaðarmannaflokkurinn og Sjálfstæði sntáeignaflokkurinn hald- ið ráðstefnur sínar. Þessi þróun er liður í áætlun stjórnvalda í Ungverjalandi sem hyggjast koma á fjölflokkakerfi í landinu. Þó verða allir flokkar að viðurkenna Ungverjaland sem sósí- aliskt land. Þá er það einnig að frétta frá Ungverjalandi að Ungverjar hyggj- ast syngja messu í minningu Zitu, síðustu keisaraynju Austurríkis- Ungverjalands. Maður liennar Karl, eða Karoly eins og Ungverjar nefndu hann, var síðasti konungur Ungverjalands, en konungdæmi hafði ríkt þar allt frá því heilagur Stefán kom á fót ríki þar um það leyti sem íslendingar tóku kristni. Hann lést árið 1038. George Bush forseti Bandaríkjanna: Gorbatsjov beiti sér fyrir friði í Níkaragva George Bush forseti Banda- ríkjanna hefur sent Mikhaíl Gor- batsjov leiðtoga Sovétríkjanna skeyti þar sem hann skorar á Gorbatsjov að taka þátt í viðleitni Bandaríkjamanna að koma á friði í Níkaragva. - Bush vill gjarnan sjá Sovét- ríkin beita áhrifum sínum í Ník- aragva til að koma á friði í landinu, sagði Marlin Fitzwater talsmaður Hvíta hússins er hann skýrði frá skeyti Bush. - Við vildum gjarnan sjá Sovét- ríkin láta af birgðaflutningum og stuðningi sínum við Níkaragva. Við viljum gjarnan sjá Gorba- tsjov forseta taka virkan þátt í framkvæmd þessara atriða, sagði Fitzwater. Þessi tímasetning skeytis Bush er ekki tilviljun því hann mun halda í opinbera heimsókn til Kúbu á sunnudaginn til að ræða við Fidel Castro. Bandaríkja- menn hafa sakað Sovétmenn um að nota aðstöðu sína á Kúbu til að auka áhrif sín í Rómönsku Ameríku. Dan Quayle varaforseti Bandaríkjanna sem nú gerir allt til að hasla sér völl sem sérstakur og ábyrgur varaforseti beindi því til Gorbatsjovs í fyrradag, að Sovétmenn létu af stuðningi sín- um við Kúbu. Ekki er þó líklegt að ummæli hans hafi orðið til þess að Sovétmenn hyggjast ekki endurnýja samninga um efna- hagsaðstoð við Kúbu, en sendi- herra Sovétríkjanna í Bandaríkj- unum skýrði frá þeirri ákvörðun í gær. Enn átök í Angóla Þrátt fyrir samkomulag um frið í Angóla og brottflutning kúbanskra hermanna þaðan heyja skæruliðar Unitahrey.fingarinnar áfram baráttu við marxistastjórnina í Luanda. Stjórnarherinn staðhæfir nú að her- sveitir þeirra hafi drepið sjötíu og einn skæruliða Unita og tekið fimm til fanga í aðgerðum í sex héruðum landsins. í yfirlýsingu stjórnarhersins segir að hersveitir hafi lagt til atlögu gegn skæruliðum í Huambo, Cuando Cu- bango, Moxico, Benguela og Ma- lange í vikunni til að hefna árása skæruliða þar sem fjörutíu og sjö saklausir borgarar voru drepnir og þrjátíu og fjórir særðir. Kólumbía: Ekkert lát á morðum Ekkert lát er á morðum í Kól- umbíu. í gær voru sex myrtir Víðs vegar um landið og er jafnvel talið að nú séu eiturlyfjabarónar lands- ins að hefja herferð gegn andstæð- ingum sínum. Lögfræðingur sem rannsakaði morð á þekktum ritstjóra, sem myrtur var árið 1986, var skotinn til bana er hann stöðvaði bifreið sína á umferðarljósum í Bogóta. Morðingjarnir sem voru tveir kom- ust undan á vélhjóli. Lögfræðingurinn, Galvez að nafni, hefur skrifað greinar um verkalýðsmál um nokkurt skeið. Hann var að rannsaka morðið á Guiellermo Cano ritstjóra dag- blaðsins E1 Espectador, en hann gagnrýndi ntjög eiturlyfjabaróna landsins og hvatti til baráttu gegn þeim. Er talið næsta víst að eitur- lyfjabarónarnir hafi komið honum fyrir kattarnef. Þá var vellauðugur bílasali myrt- ur í Bogóta þegar hann streittist á móti vopnuðum mönnum sem hugðust ræna dóttur hans sem var í bíl með honum. 1 Monteria var lögreglumaður og kona hans myrt og í hinni illræmdu borg Medellin var verka- lýðsleiðtogi skotinn til bana.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.