Tíminn - 31.03.1989, Blaðsíða 20
AUGLYSINGASIMAR: 680001 —686300
RÍKISSKIP
NÚTÍMA FLUTNINGAR
Hatnarhúsinu v/Tryggvogötu,
S 28822
tflBÐBBtfflWBSKim
SAMVINNUBANKANS
SUÐURLANDSBRAUT 18, SlMI: 688568
„LÍFSBJÓRG f
NORDURHðFUM"
Útvegsbankinn Seltj.
Gíró-1990
Gegn náttúruvernd
á villigötum
ÞRQSTUR
685060
VANIR MENN
Tíniiiiii
FÖSTUDAGUR 31. MARS 1989
Innbrotafaraldur á Suðurnesjum. Fimm innbrot á skömmum tíma. Brotist inn í Samkaup aðfaranótt fimmtudags:
Um 800.000 krónum
stolið í Samkaupum
Aðfaranótt fímmtudags var brotist inn í verslunina
Samkaup í Keflavík og höfðu þjófarnir á brott með sér
um 800.000 krónur í peningum og krítarkortanótum. Svo
virðist sem innbrotafaraldur geisi nú á Suðurnesjum, en
þetta er í þriðja skiptið sem brotist er inn í verslanir
Kaupfélags Suðurnesja á skömmum tíma.
Þá varumsíðustuhelgitvívegis vík segir engar handtökur hafa
brotist inn í raftækjavöruverslun-
ina Ljósbogann í Keflavík og aö
sögn rannsóknarlögreglunnar í
Keflavík eru líkur á að tengsl séu
á milli innbrotanna um helgina
og innbrotsins í Samkaup.
Rannsóknarlögreglan i Kefla-
farið fram vegna innbrotanna, en
vildi ekki úttala sig um hvort
einhverjir aðilar lægju undir
grun.
Þjófavarnarkerfi var ekki í
Samkaupum og brutust þjófarnir
inn um dyr á húsinu og spenntu
upp peningaskáp, trúlega með
skrúfjárni, kúbeini og meitli.
Heildarupphæð þess er var stolið ■
nam 800.000 kr. og af því voru
um 300.000 í peningum, en af-
gangur í greiðslunótum krítar-
korta.
Fyrsta innbrot í verslunina
Ljósbogann var aðfaranótt föstu-
dagsins 24. mars og var þá litlu
stolið. Aftur var brotist inn í
Ljósbogann aðfaranótt laugar-
dags og þá stolið töluverðum
verðmætum, s.s. bíltækjum,
vídeótökuvél og geislaspilara.
Samanlagt var verðmæti þýfis
þessara tveggja nátta 180-190
þúsund. Lögreglan í Keflavík
fann allt þýfið á mánudagsmorg-
un s.l. og var það að mestu leyti
óskemmt.
Áður hefur verið brotist inn í
verslanir Kaupfélags Suðurnesja
í tvígang á skömmum tíma. Brot-
ist var inn í útibú kaupfélagsins í
Sandgerði aðfaranótt sunnudags
og stolið þaðan skiptimynt úr
búðarkassa ásamt sælgæti og síg-
arettum. Tjón af völdum inn-
brotsmanna voru þó nokkur og
mmmmmmmm
voru unnar skemmdir á innan-
stokksniunum í búðinni. Þá var
brotis inn í útibú félagsins í
Vogum fyrir skömmu og stolið
þaðan matvælum. Innbrotið í
Samkaup er því þriðja og stærsta
innbrotið í verslanir Kaupfélags
Suðurnesja á stuttum tíma.
Rannsóknarlögreglan vildi ekki
tjá sig um hvort um samhengi
væri að ræða á milli innbrotanna
í verslanir kaupfélagsins.
-ÁG
Skólastjórastaða í Ölduselsskóla
auglýst laus til umsóknar:
Rógsherferð
frá í vor!
Valgeir Guðjónsson og Daníel Ágúst Haraldsson, Danni, fara til Luzern og keppa fyrir íslands hönd.
Tímamynd: Árni Bjarna
Danni til Luzern
Lag Valgeirs Guðjónssonar „Það
sem enginn sér“ sigraði í undan-
úrslitum Söngvakeppni evrópskra
sjónvarpsstöðva á íslandi í gær.
Flytjandi lagsins er Daníel Ágúst
Haraldsson, Danni, söngvari hljóm-
sveitarinnar Ný dönsk. Þeir tveir
fara því til Luzern í Sviss og taka þar
þátt í aðalkeppninni þann sjötta maí
næstkomandi.
„Það sem enginn sér“ hlaut 68
stig. Tvö lög voru jöfn í öðru sæti,
hlutu 58 stig bæði en það voru lögin
Sóley eftir Gunnar Þórðarson við
texta hans og Toby Herman og lagið.
jfímkbókasnftitö
á Jlkureyri
Alpatwist eftir Geirmund Valtýsson
við texta Hjálmars Jónssonar.
Keppnin var nokkuð tvísýn og til
að byrja með leit allt út fyrir að
annað lag nryndi sigra. Sveinn R.
Einarsson dagskrárstjóri innlendrar
dagskrárgerðar færði Valgeiri hálfa
milljón króna í verðlaun og sagðist
vona að íslendingum tækist að
mjaka sér upp úr sextánda sætinu.
Þetta er í annað sinn sem lag
Valgeirs sigrar í undanúrslitum.
Hann ætti því að vera öllum hnútum
kunnugur varðandi nauðsynlegan
undirbúning hér heima og eftir að til.
Sviss verður komið.
Auk verðlauna Ríkisútvarpsins
fengu sigurvegararnir að gjöf
ákveðna fjárupphæð frá félagi tón-
listarmanna til að létta þeim róður-
inn. Þeirri gjöf fylgdi kaktus scm að
sögn er harðger planta og því vel til
þess fallin að standast álagið sem er
óhjákvæmilegur fylgifiskur frægðar-
innar.
Þá er bara að bíða og sjá hvort
íslendingar eru mosagrónir við sext-
ánda sætið og óska þeim félögum
gæfu og gengis. jkb
„Þetta er rógsherferð sem hófst
síðastliðið vor, þegar mér var veitt
staða skólastjóra við Öldusels-
skóla,“ sagði Sjöfn Sigurbjörnsdóttir
skólastjóri Ölduselsskóla í samtali
við Tímann, en menntamálaráð-
herra hefur ákveðið að auglýsa stöðu
skólastjóra lausa til umsóknar frá og
með 1. ágúst næstkomandi.
Sjöfn sagði að henni hafi orðið
það á að sækja um stöðu sem auglýst
var laus til umsóknar. „Að mínum
dómi hefur skólastarf gengið vel, við
Ölduselsskóla eru 750 nemendur og
55 kennarar. Mér finnst leitt að
menntamálaráðherra skuli beita svo
ódýrum vinnubrögðum, þegar hann
er að reyna að láta starfsmenn sína
bera blak af svo mjög óprúttnum
starfsaðferðum sínum með því að
segja að 17 kennarar af 38 hafi gefið
til kynna með leyniskjali að þeir
muni hætta ef staða skólastjóra verði
ekki auglýst," sagði Sjöfn.
Hún sagði að við skólann væru að
auki 13 aðrir fastir starfsmenn og þar
til viðbótar ræstingarfólk. „Þessa
fólks lætur menntamálaráðherra að
engu getið þegar hann er að reyna
að gera sem mest úr hinum leynilegu
uppsögnum, eða hótunum um
uppsögn,“ sagði Sjöfn.
Sjöfn sagði að sér kæmi þessi
málsmeðferð öll á óvart, því sam-
skiptaerfiðleikar af hennar hálfu
væru ekki til. Hún sagði að enginn
kennari hafi komið til sín og sagt að
hann vildi ekki vinna með sér næsta
vetur og auk þess enginn farið fram
á kennarafund, þar sem þeir hafi
óskað eftir því að staðan yrði auglýst
eða þá það að þeir hafi ekki getað
unnið með henni. „Þannig að þetta
kemur mér mjög á óvart,“ sagði
Sjöfn.
Hún sagði að þessi tímasetning
menntamálaráðherra væri óskiljan-
leg. „Ef ég er svona ófær í mínu
starfi, eins og ráðherra telur, því
auglýsir hann þá ekki stöðuna lausa
strax til umsóknar, en ekki frá og
með 1. ágúst,“ sagði Sjöfn.
Sjöfn sagði að á fundi í Seljahverfi
fyrir skömmu hafið Svavar Gestsson
sagst ætla að verða menntamálaráð-
herra í 15 ár eins og Gylfi Þ.
Gíslason. „Það klappaði enginn.
Gylfi var menntamálaráðherra í 16
ár. Ég spái því að Svavar Gestsson
nái ekki fimmtán mánuðum. Meira
hef ég ekki um málið að segja,“
sagði Sjöfn Sigurbjörnsdóttir skóla-
stjóri Ölduselsskóla. -ABÓ