Tíminn - 26.08.1989, Blaðsíða 2
2 Tíminn
Laugardagur 26. ágúst 1989
Sorpböggunarstöðin afturáflakk. Verður hún í Gufunesi? GuðmundurÁrni Stefánsson bæjarstjóri í Hafnarfirði:
Höfum lagt í nokkurn
kostnað fyrir stöðina
„Við höfum aldrei verið og erum
ekki í samkeppni um sorpið. Við
leystum sameiginlegan vanda alls
höfuðborgarsvæðisins og fundum
sorpböggunarstöðinni stað á lóð á
iðnaðarsvæði í landi bæjarins þegar
stöðin flæktist úr Árbænum í Kópa-
voginn og út þaðan aftur. Það fannst
engin lausn á því máli fyrr en við
skutum yfir hana skjólshúsi,“ sagði
Guðmundur Árni Stefánsson bæjar-
stjóri í Hafnarfirði.
Guðmundur Árni sagði að Hafn-
firðingar hefðu síður en svo sóst eftir
böggunarstöðinni en brugðist við
með ábyrgum hætti þegar mál voru
komin í óefni enda hefðu þeir haft
heppilega lóð undir stöðina.
Guðmundur Árni sagði að Sorp-
eyðing höfuðborgarsvæðisins ætti
sjálfsagt eftir að skoða sorphreinsun-
armál í samhengi við hinn nýja
urðunarstað í Álfsnesi og hvar
heppilegast verði með tilliti til hans
að koma fyrir böggunarstöðinni. Þá
ætti og eftir að koma í Ijós hvort
íbúar Grafarvogs myndu sætta sig
við stöðina í næsta nágrenni sínu
fremur en íbúar Árbæjarhverfis á
sínum tíma.
Guðmundur Árni sagði að Hafn-
arfjarðarbær hefði verið búinn að
leggja í talsverðan kostnað vegna
sorpböggunarstöðvarinnar. Þeir
hefðu verið búnir að finna henni
stað, Ieggja í talsverða undirbún-
ingsvinnu í stjórnkerfinu pg leggja
veg að staðnum. „Ég held að það sé
sjálfgefið að við fáum þennan kostn-
að greiddan af hálfu Sorpeyðingar-
félagsins," sagði hann að lokum.
Póstþjónusta
hækkarum10%
Þann 1. september hækkar
gjaldskrá fyrir póstþjónustu að
meðaltali um 10%. Síðast hækk-
aði almenn póstþjónusta 16. júlí
1988. Burðargjald fyrir almenn
bréf innanlands og til Norður-
landa í lægsta þyngdarflokki
hækkuðu reyndar síðast 16. okt-
óber í fyrra.
Þrátt fyrir þessa 10% hækkun
hafa gjaldskrár Pósts- og síma
hækkað minna en gert var ráð
fyrir í forsendum fjárlaga fyrir
þetta ár. Með hækkuninni er
ætlunin að tryggja að greiðslu-
jafnvægi verði í árslok.
Sem dæmi um hækkun póst-
burðargjalda má nefna að 20 gr.
bréf innanlands og til Norður-
landa hækkar úr 19 kr. í 21 kr.
Burðargjald til annarra landa í
Evrópu hækkar úr 24 kr. í 26 kr.
Innborgunargíróseðill hækkar úr
30 kr. í 35 kr. Innrituð blöð og
tímarit undir 20 gr. hækka úr 4,60
kr. í 5,10 kr. og undir 100 gr. úr
5,20 kr. í 5,70 kr.
Til samanburðar er póstburð-
argjald fyrir 20 gr. bréf hjá hinum
Norðurlöndunum: Danmörk
25,50 kr., Finnland 26,10 kr.,
Noregur 24,70 kr. og Svíþjóð
21,10 kr. -EÓ
Auglýst eftir lögreglumönnum á Kirkjubæjarklaustur:
V ilja rá ðatv ær
hi éraðsli ögreg llur
Karl Gústaf Svíakonungur gengur út í flugvél Flugtaks, sem flutti hann austur á land. Fremst á myndinni eru Ijórir
flugmenn Flugtaks, en flogið var með konunginn og fylgdarmenn í tveim flugvélum. Tímamynd Ámi Bjara
Svíakonungur er farinn á veiðar
Karl Gústaf, konungur Svíþjóðar
hélt í gærdag austur á land, þar sem
hann mun slást í för með hreindýra-
eftirlitsmanni, en sem kunnugt er
hefur konungurinn fengið leyfi til að
veiða 10 hreindýr. Konungur lagði
af stað um klukkan þrjú í gærdag,
klukkutíma síðar en áætlað var.
Skotveiðimenn hafa sent mennta-
málaráðuneytinu mótmæli vegna
þessara veiða Svíakonungs, á meðan
þegnum landsins sé óheimilt að fella
hreindýr á veiðitímanum. Konung-
urinn og fylgdarmenn hans hafa
aðsetur á Skriðukiaustri á meðan
hann dvelur við veiðar hér á landi og
mun Rúnar Marvinsson sjá um mat-
seld fyrir konunginn. -ABÓ
Barnféllafsvölum
Tæplega eins árs gamalt barn féll
ofanaf svölum á þriðju hæð í
fjölbýlishúsi í Keflavík um tíuleitið
í gærmorgun. Barnið hlaut á tals-
verða höfuðáverka auk annarra
meiðsla og var það flutt á sjúkra-
húsið í Keflavík, en síðan á Land-
spítalann til frekari aðgerða.
-ABÓ
Settur sýslumaður Vestur-Skafta-
fellssýslu, Friðjón Guðröðarson hef-
ur auglýst eftir tveim héraðslögregl-
umönnum til starfa austan Mýrdals-
sands, með aðsetur á Kirkjubæjar-
klaustri eða nágrenni, frá og með 1.
september nk.
Enginn héraðslögreglumaður hef-
ur verið starfandi á Kirkjubæjar-
klaústri frá því í vor og hefur
lögreglan í Vík haft með þennan
hluta sýslunnar að gera í sumar, en
tæplega klukkutíma akstur er milli
þessara tveggja þéttbýliskjarna.
Þegar auglýst var eftir héraðslög-
reglumanna í vor, sótti enginn um,
en á sl. miðvikudag var sent út bréf
til íbúa á Kirkjubæjarklaustri og á
bæi í nágrenninu þar sem auglýst var
eftir tveim héraðslögreglumönnum
til starfa. „Við auglýsum eftir tveim-
ur mönnum til þess að þeir geti
unnið, annars vegar saman varðandi
dansleikjavörslu og hins vegar til að
menn geti þá brugðið sér frá til
skiptis og sami maður þurfi ekki
alltaf að vera tiltækur,“ sagði Frið-
jón Guðröðarson settur sýslumaður.
Hann sagði að bæði störfin væru
hugsuð sem héraðslögregia, en ekki
sem hálft eða fullt starf fyrir lög-
reglumann. „Við ætlum að sjá
hvernig þetta kemur út og meta þá
eftir kannski þrjá mánuði að lagt
verði til að ráðið verði í hlutastarf.
Það er alfarið í hendi ráðuneytis að
gera slíkt,“ sagði Friðjón.
Hann sagði vegalengdina milli
Víkur og Kirkjubæjarklaustur vera
of mikla til að kalla á lögreglumann,
þegar mikið lægi við. Aðspurður
sagði Friðjón að viðbragða við aug-
lýsingunni yrði varla að vænta fyrr
en eftir helgi, þar sem hún hefði
verði send út sl. miðvikudag af
Hönnu Hjartardóttur oddvita.
-ABÓ
Þýsk-íslenska höfðar mál vegna lokunaraðgerða fjármálaráðherra fyrr í sumar:
Vill endurheimta greidd en
niðurfelld gjöld og skatta
Þýsk-íslenska h.f. hefur stefnt
fjármálaráðherra fyrir hönd ríkis-
sjóðs vegna lokunar fyrirtækisins
fyrr í sumar en Þýsk-íslenska var
innsiglað vegna vangoldins sölu-
skatts fyrr í sumar.
Um er að ræða átta og hálfa
milljón króna sem ríkissjóður taldi
sig eiga útistandandi hjá fyrirtækinu
en í stefnunni er þess krafist að
ríkissjóður greiði þá upphæð til
baka en greiði auk þess skaðabætur
vegna tjóns sem lokunin olli og
nema samanlagðar kröfur rúmlega
20 milljónum króna.
Forráðamenn Þýsk-íslenska
viðurkenna ekki að skulda ríkissjóði
þessar átta og hálfu milljón sem
fjármálaráðuneytið krafðist fyrr í
sumar og lokað var út af.
Upphæðin er hluti af álagningu
sem fyrrverandi skattrannsókna-
stjóri lagði á fyrirtækið árið 1986
vegna þá undangenginna ára. Þýsk-
íslenska kærði þessa álagningu á
sínum tíma til ríkisskattstjóra sem
vísaði kærunni á bug og lét álagning-
una standa.
Fyrirtækið kærði þá álagninguna
til ríkisskattanefndar sem felldi
álagningu skattrannsóknastjóra úr
gildi með úrskurði sem kveðinn var
upp snemma á þessu ári. Hins vegar
hefur innheimta þessara niðurfelldu
gjalda ekki verið afturkölluð af hálfu
fjármálaráðuneytisins. Þar sem inn-
heimtumenn ríkissjóðs taka ekki við
fyrirmælum frá neinum nema ríkis-
skattstjóra þá virðist ekki nóg fyrir
þá að fá í hendur úrskurð ríkisskatta-
nefndar heldur er gangur mála sá að
ríkisskattstjóri skal gefa fyrirmæli
um að úrskurði ríkisskattanefndar
skuli framfylgt. Ríkisskattstjóri hef-
ur ekki gefið Gjaldheimtunni fyrir-
mæli um að hætta innheimtu þessara
gjalda hjá Þýsk-íslenska í samræmi
við úrskurð ríkisskattanefndar.
Því hafa forráðamenn Þýsk-ís-
lenska stefnt fjármálaráðherra fyrir
Bæjarþing Reykjavíkur og krafist
að ríkissjóður endurgreiði þessi
niðurfelldu en greiddu gjöld og
greiði fyrirtækinu jafnframt skaða-
bætur. Málið verður tekið fyrir 7.
september n.k. -sá