Tíminn - 26.08.1989, Side 11

Tíminn - 26.08.1989, Side 11
Laugardagur 26. ágúst 1989 Tíminn 23 Afvegaleiddir vöðvadýrkendur: Æ algengara a ð skólakrakkar neyti hormóna Ógnvekjandi afleiðing langvarandi líkamsþjálfunar er nú æ betur að koma í Ijós. Læknar kvarta undan aukinni notkun skólanemenda á hormónalyfjum. Málið er þegar í brennidepli í Bandaríkjunum og umræður um það hafnar í Þýskalandi „Líkamsrækt er ný menning“ Það glampar á stuttklippt ljósa hárið í ljóma flúrljósanna. Brjóst- kassinn er myndarlega hvelfdur. Dýrslegt öskur fylgir því þegar unglingurinn með norræna útlitið grípur um járnstöngina með lóðun- um. Þetta er augnablikið sem Uwe, 19 ára verslunarmaður frá Lippstadt, finnst hann vera karl í krapinu. Hann fullyrðir að regluleg þjálfun í kraftlyftingum hafi gert hann að öðrum manni. „Líkams- rækt er ekki lengur ein grein íþrótta, hún er orðin að nýrri menningu," segir hann. Lærin of feit Þar sem honum hafði fundist lærin á sér einfaldlega of feit féll Uwe fyrir töfrum „líkamsarkitekt- úrs“ þegar hann var 15 ára. Skóla- strákurinn gat fljótlega glaðst yfir auknum vexti vöðva á upphand- leggjum og lærum. Þegar dró úr vaxtarhraðanum fann Uwe til löngunar til að hjálpa aðeins upp á sakirnar sjálfur. Hann vandi sig á að sprauta sig daglega með hormónalyfjum. Vöðva- hlunkarnir héldu áfram að bæta við sig. Uwe þyngdist úr 70 kílóum í 106 og ummál læranna náði 70 sentimetrum. Slík nokkuð öfugsnúin afreka- hugsjón er stður en svo óalgeng. Könnun á vegum heilbrigðisupp- eldisstofnunar háskólans í Pennsyl- vaniu gaf til kynna að 226 af 3403 útskrifaðra nemenda höfðu þegar a.m.k. einu sinni gripið til vöðva- aukandi efna. Með stuðningi þess- arar skýrslu var komist að þeirri niðurstöðu að í Bandaríkjunum öllum mætti reikna með því að 250.000 til 500.000 skólanemendur neyttu þessara hormónagjafa. Nú er mikið rætt um þessar hormónatökur skólakrakka í Vest- ur-Þýskalandi. „Við verðum að venja okkur við þá tilhugsun að með fíkninni í hormóna sé byrjuð tíska sem á næstu 5 árum á eftir að taka mikið af tíma okkar og kröftum,“ segir dr. Wilfried Huck, yfirmaður eiturlyfjadeildarinnar við Sálfræðistofnun æskunnar í Westfalen. „ömurleg vansæld" Huck hefur leitað að ástæðum þess hvers vegna fólk sækist eftir að að byggja upp líkama í yfirstærð og fundið þar líkar forsendur og fyrir annars konar fíkn. Að baki þessari ofurþjálfun líkamans leyn- ist, eins og t.d. í hinni algengu megrunarfíkn sem líka er algeng meðal æskufólks, „ömurleg vansæld". Hún sé afleiðing hinnar árangurslausu eftirsóknar eftir ör- yggi sem unglingarnir finni ekki hjá foreldrum sem séu á sífelldum spretti eftir efnislegum verðmæt- um. í hormónafíkninni komi fram yfirdrifin leit að glataðri skynsemi varðandi líkamann. Uwe lýsir sín- um tilgangi svo: Maður fær aðra meðvitund um sjálfan sig þegar maður finnur að maður getur mót- að líkama sinn eins og maður sjálfur vill.“ Sálfræðingar segja að æskufólk líti á líkamann sem „miðlunarlíf- færi“, það gegni hlutverki auglýs- ingasúlu sem plaggöt eru fest á. Til að geta tekið sér glæsilega stöðu byggja unglingarnir upp gífurlega möguleika á að vinna afrek. Þeir ganga viljalausir á vald kraftlyft- ingatækjunum. Margir unghngar vilja allt til vinna að líkjast þessum vöðvatröllum, í því skyni neyta þeir hormóna, sérstakra fæðuefna og stunda þjálf- un með Iyftingartæki og Ióð. Fyrr eða síðar upphefst vítahringurinn með hormónana Hinir hnykluðu vöðvar í upp- handleggjum og lærum skila samt ekki nema yfirborðslegum árangri fyrir allt erfiðið. „Á endanum lítur hann kannski vel út en er áfram einmana náungi,“ segir Huck. í vöðvaæði gerir líkamsræktarmað- urinn líkama sinn eingöngu að markaði, þar sem hann er fleginn miskunnarlaust af eggjahvítuefna- framleiðendum, kraftlyftingasöl- um og lyfjasölum. „Fyrr eða síðar upphefst víta- hringurinn með hormónana,“ tek- ur Manfred Seide, verslunarstjóri í Duisburg sem selur næringarvörur fyrir íþróttafólk, við. Jafnskjótt og fólk veitir því athygli að það verður linara, grípur það aftur til sömu ráða. „Það er keðjuverkun sem aldrei hættir,“ segir hann. Hið gífurlega magn þeirra lyfja sem álitið er að auki á vöðvarækt- ina og tekið er inn af áhugasömum iðkendum, er þó ekki endilega aðalvandamál heimsmeistaranna. Það eru krakkarnir sem reyna að líkjast vöðvatröllinu Árnold Schwarzenegger sem eru aðal- vandamálið. „Hinir raunverulegu kraftlyftingamenn taka miklu minna af þessu,“ segir Andreas Bredenkamp, fyrrum Þýskalands- meistari í kraftlyftingum, sem ferð- ast milli líkamsræktarstöðva í Þýskalandi og heldur fyrirlestra um þjálfun, næringu og hormóna. Hann segir sanna kraftlyftinga- menn líka upplýstari en *þá sem sprauta sig vegna þess að þeir vilja líta betur út í sundlauginni". Hann segir að í mörgum búðum séu „jafnvel börn oft hreinlega eyði- lögð.“ Rudolf Mang, sem á sínum tíma var þekktur sem sterki „björninn frá Bellenberg" getur ekki annað en hrist höfuðið yfir afvegaleiddum vöðvadýrkendum. „Meðan ég keppti var ég þá þegar skelfingu lostinn þegar ég hafði tekið eitt- hvað inn. En nú hellir hver sem er hverju sem er í sig,“ segir maður- inn sem var silfurverðlaunahafi í Ólympíúleikunum 1972 í lyftingum og rekur nú fjölmarga íþróttasali. Hormónalyf eru þannig að verða daglegt brauð margra. „Hingað kemur oft fólk sem aldrei hefur haldið á lóði og byrjar á því að spyrja um lyf,“ segir íþróttasalar- eigandi í Datteln. „Ef lyfjaiðnaðurinn hætti að græða fé á því sem ekkert læknar... “ Og fyrirhöfnin er ekki alltaf árangurslaus. Héraðslæknirinn í Bochum ásakar vöðvaræktarstöðv- amar um að koma á fót dansi á rakvélarblaðsegg með stjórnlausri dreifingu hormónaauðugra lyfja. Formaður kraftlyftingasam- bandsins þýska, Albert Busek, sem gerir sér grein fyrir því að orðstír greinarinnar er í veði, hefur til- kynnt strangar aðgerðir, „þar sem annars verður ekki hægt að stöðva hraunskriðuna". Hann vill hins vegar meina að skæðasta óvininn sé að finna utan iþróttasalanna. „Ef ekki væru til samviskulausir seljendur, ef lyfjaiðnaðurinn hætti að græða fé á sviðum sem eiga ekki lengur hið minnsta skylt við lækn- ingarmátt, þyrftum við ekki að hafa neinar áhyggjur," segir hann. Huck læknir segir að unglingar kasti sér yfir allt sem er nýtt af mikilli áfergju. „í hormónunum leynist þegar ailt kemur til alls sami máttur og heróini. Munurinn er bara sá að heróínið drepur aðeins hraðar.“ 3® RIKISSPITALAR Sjúkraliðar Barnaspítali Hringsins Sjúkraliðar óskast á barnadeild 4, ungbarnadeild og á vökudeild, gjörgæslu nýbura Góður aðlögunartími með reyndum starfsmanni. Þægileg vinnuaðstaða. Þriðja hver helgi unnin. Leitið upplýsinga. Hertha W. Jónsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, sími 60 1033, 60 1000. Lyfjadeildir Sjúkraliðar óskast á næturvaktir og allar vaktir á lyfjadeildum. Upplýsingar gefur Laufey Aðalsteinsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri \ síma 60 1290 eða 60 1300. Öldrunarlækningadeild Sjúkraliðar óskast. Um er að ræða vaktavinnu frá 1. september. Starfshlutfall eftir samkomulagi. Upplýsingar gefur Guðrún Karlsdóttir, hjúkrunar- framkvæmdastjóri í síma 60 2266. Reykjavík 27. ágúst 1989 RÍKISSPÍTALAR LANDSPITALINN Borðstofa Landspítala Aðstoðarráðskona óskast í fullt starf. Vinnutími erfrá kl. 7.30 til kl. 14.30 og kl. 11.00 til kl. 20.00. Einnig vantar starfsmann í fullt starf. Vinnutími er frá kl. 7.30 til kl. 14.30 og kl. 11.00 til kl. 20.00. Upplýsingar um ofangreindar stöður gefur Guð- laug Jónsdóttir í síma 60 1547. Eldhús Landspítala Starfsmenn óskast til frambúðar í 50 og 100% störf. Vinnutími er annars vegar frá kl. 7.00 til kl. 15.30 og hins vegar frá kl. 16.00 til kl. 20.00. Upplýsingar gefur Olga Gunnarsdóttir í síma 60 1542. Umsóknir sendist Olgu Gunnarsdóttur eldhúsi Landspítalans. Reykjavík 27. ágúst 1989 RÍKISSPÍTALAR IÐNSKÓLINN f REYKJAVfK Skólinn verður settur mánudaginn 4. september kl. 11.00 í Hallgrímskirkju Eftir skólasetningu verða stundaskrár og bókalistar afhentir sem hér segir: 1. Nýnemum strax að lokinni setningu. 2. öðrum nemendum kl. 14.00 til 16.00. 3. Nemendum Meistaraskóla og öldungadeild kl. 17.00. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 5. september. Deiidarstjórafundur verður haldinn kl. 9.30 föstu- daginn 1. september og kennarafundur kl. 11.00 sama dag. Iðnskólinn í Reykjavík.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.