Tíminn - 26.08.1989, Side 18
30 Tíminn
Laugardagur 26. ágúst 1989
ÍÞRÓTTIR
Mjólkurbikarkeppnin í knattspyrnu:
REYKJAVIKURRISARNIR
BERJAST UM BIKARINN
-30. bikarúrslitaleikur KSÍ á Laugardalsvelli á morgun kl. 14.00
Stórleikur ársins í knattspyrnunni, úrslitaleikur Mjólkur-
bikarkeppninnar verður háður á Laugardalsvelli á morgun kl.
14.00. Leikurinn markar tímamót í keppninni, því hann er sá
30. í röðinni.
Dagskráin á Laugardalsvelli hefst
kl. 12.30 með því að Dixielandsveit
leikur tónlist á vellinum, en kl. 13.15
tekur Lúðrasveitin Svanur við. Kl.
13.50 ganga leikmenn beggja liða
inná völlinn ásamt dómara og lt'n-
uvörðum. Áður en leikurinn hefst
mun Jón Sigurðsson viðskiptaráð-
herra heilsa leikmönnum ásamt Ell-
ert B. Schram formanni KSÍ, en Jón
verður heiðursgestur KSÍ á leiknum.
Að því loknu verður þjóðsöngurinn
leikinn og síðan hefst leikurinn.
Tíu mfn. fyrir leikinn svífa 6
fallhlífastökkvarar til jarðar með
keppnisboltann.
Dómari í ieiknum verður Óli P.
Ólsen úr Þrótti, en línuverðir verða
þeir Gísli Guðmundsson og Gunnar
Ingvarsson. Þeim til aðstoðar utan
vallar verður Egill Már Markússon.
Hér á eftir fara nokkrir fróðleiks-
molar um bikarúrslitaleikina 29 frá
1960 og að auki ýmsir molar um liðin
sem leika til úrslita.
Bikarmeistarar 1960-1988
1960 KR-Fram 2-0
1961 KR-ÍA 4-3
1962 KR-Fram 3-0
1963 KR-ÍA 4-1
1964 KR-ÍA 4-0
1965 Valur-ÍA 5-3
1966 KR-Valur 1-0
1967 KR-Víkingur 3-0
1968 ÍBV-KRb 2-1
1969 ÍBA-fA 1-1
Fram-ÍBV og 3-2
1970 2-1
1971 Víkingur-UBK 1-0
1972 ÍBV-FH 2-0
1973 Fram-ÍBK 2-1
1974 Valur-ÍA 4-1
1975 ÍBK-ÍA 1-0
1976 Vaiur-ÍA 3-0
1977 Valur-Fram 2-1
1978 ÍA-Valur 1-0
1979 Fram-Valur 1-0
1980 Fram-fBV 2-1
1981 ÍBV-Fram 3-2
1982 ÍA-ÍBK 2-1
1983 ÍA-ÍBV 2-1
1984 ÍA-FRAM 2-1
1985 Fram-ÍBK 3-1
1986 ÍA-Fram 2-1
1987 Fram-Víðir 5-0
1988 Valur-ÍBK 1-0
1989 Fram-KR -
Að meðaltali gerir sigurliðið 2,43
mörk í úrslitaleiknum og fær á sig
0,76 mörk.
Úrslit leiksins
Verði jafnt að loknum venjuleg-
um leiktíma í úrslitaleiknum, mun
dómarinn lengja leikinn um 2x15
mínútur. Verði þá enn jafnt, skal
nýr leikur fara fram og hann fram-
lengdur, ef nauðsyn krefur. Fáist
ekki úrslit með þeim hætti í seinni
leiknum, skal fara fram vítaspyrnu-
keppni.
Ef til þess kæmi, að síðari leikur
færi fram, yrði það sennilega mið-
vikudaginn 30. septemberkl. 18.00.
Aðeins einu sinni hefur úrslitaleik
lokið með jafntefli eftir framleng-
ingu og nýr leikur því farið fram
(ÍBA-ÍA árið 1969). Er það merki-
leg staðreynd, þegar þess er gætt, að
keppnin hefur farið fram í 29 ár.
Mjólkurbikarinn verðlaun
Knattspyrnusamband fslands og
Mjólkurdagsnefnd gerðu snemma
árs 1986 með sér samning um það að
Bikarkeppni KSÍ í meistaraflokki
karla yrði háð undir heitinu „Mjólk-
urbikarinn/Bikarkeppni KSÍ“.
Þetta samstarf hefur haldið áfram
síðan og hefur Mjólkurdagsnefnd
styrkt KSÍ með mjög rausnarlegum
hætti.
Bikarinn sem keppt er um; Mjólk-
urbikarinn svokallaði, er glæsilegur
„gull“bikar gefinn af Félagi íslenskra
gullsmiða til að hvetja íslenska
knattspyrnumenn til dáða og vekja
athygli á íslenskri gullsmíði.
Mjólkurbikarinn er 66 cm á hæð,
húðaður 22 karata gulli, og talinn að
verðmæti um 350.000 krónur. Ber
hann smiðum sínum fagurt vitni og
er allur hinn glæsilegasti.
Félagið sem sigrar fær að varð-
veita bikarinn í eit tár og fær nafn
sitt letrað á gullhúðaða plötu á
bikarinn.
Evrópukeppni bikarhafa
Leikmenn beggja liða fá að sjálf-
sögðu verðlaunapeninga frá KSÍ til
eignar og ekki má gleyma því, að
sigurvegarinn hlýtur rétt til þátttöku
í Evrópukeppni bikarhafa 1990/
1991.
Lið Fram í bikarúrslitaleiknum
gegn KR verður valið úr hópi þess-
ara leikmanná:
Leikir Lands-
ímfl. ieikir
AldurFram A
1. Birkir Kristinsson 25 53 2
2. Steinn Guöjónsson 25 139 -
3. Kristján Jónsson 25 74 10
4. Pétur Ormslev 31 232 31
5. Viðar Þorkelsson 26 221 24
6. Kristinn R. Jónsson 25 195 2
7. Pétur Arnþórsson 24 79 24
8. Guöm. Steinsson 29 242 19
9. Ragnar Margeirsson 27 38 37
10. JónSveinsson 24 114 _
13. ÓmarTorfason 30 68 37
12. Brynjar Jóhannesson 25 2 -
11. Helgi Bjarnason 20 27 -
14. Arnljótur Davíösson 20 38 3
15. RíkharðurDaðason 17 11 -
16. SteinarGuðgeirsson 18 13 -
17. Helgi Björgvinsson 19 9 -
Fyrirliði: Pétur Ormslev.
Þjálfari: Ásgeir Elíasson.
Liðsstjórar: Vilhjálmur Hjörleifsson
og Ástþór Óskarsson.
Formaður meistaraflokksráðs: Eyj-
ólfur Bergþórsson.
Þorsteinn í leikbanni
Þorsteinn Þorsteinsson, tvöfaldur
bikarmeistari, getur ekki leikið með
Fram í úrslitaleiknum gegn KR, þar
sem aganefnd KSÍ hefur úrskurðað
hann í leikbann vegna 4 gulra
spjalda.
Gestir
Hólmbert Friðjónsson og kona
hans Dagmar verða gestir Fram og
KR á úrslitaleiknum. Hólmbert ann-
aðist þjálfun Framliðsins í 3 ár og
síðan KR liðsins í önnur 3 ár. Hann
mun eini þjálfarinn sem starfað hef-
ur fyrir bæði félögin.
Bikarúrslit 1989
Laugardalsvöllur
Úrslitaleikir í Bikarkeppni KSf
hafa farið fram á Laugardalsvelli frá
árinu 1973, en áður voru leikirnir á
Melavelli, enda leikið seinna á árinu.
Einar Vilhjálmsson afhendir Þresti Olafssyni framkvæmdastjóra Kaupstaðar/Miklagarðs áritað spjót í þakklætisskyni
fyrir þann stuðning sem fyrirtækiö hefur veitt honum.
Leikur Fram og KR næstkomandi
sunnudag verður fyrsti úrslitaleikur
KR-inga á aðalleikvanginum í Laug-
ardal, enda hefur KR ekki leikið til
úrslita í keppninni síðan 1968!
Forsala aðgöngumiða
Á Laugardalsvelli verður selt
laugardag kl. 10 til 16 og á leikdegi
frá kl. 10.
Tekið er við greiðslukortum VIS A
og EURO í forsölu.
Miðaverð:
- 900 krónur stúkusæti
- 600 krónur stæði (fullorðnir)
- 250 krónur stæði (börn)
Tólf orrustur
KR og Fram í Bikarnum
Líklega hafa ekki önnur félög mæst
oftar í Bikarkeppni KSÍ en KR og
Fram. Á þeim 29 árum sem hún
hefur farið fram hafa félögin dregist
saman 12 sinnum. Sex sinnum hafa
KR-ingar farið með sigurinn af
hólmi og sex sinnum hafa það verið
Framarar. Á meðal þessara leikja
voru tveir úrslitaleikir, sá fyrsti og sá
þriðji, og í bæði skiptin var það KR
sem hreppti bikarinn.
1960 var Bikarkeppni KSÍ hleypt
af stokkunum. Hugmyndin var sótt til
Englands eins og svo oft í knatt-
spyrnunni. Reykjavíkurfélögin KR
og Fram kepptu til úrslita. KR var
þá tvímælalaust með besta knatt-
spyrnu lið Iandsins. Það kom því
engum á óvart þegar bikarinn hafn-
aði verðskuldað hjá Vesturbænum
eftir 2-0 sigur KR í spennandi og
skemmtilegum leik. Sveinn Jónsson,
sem nú er formaður KR, skoraði
fyrsta bikarmark KR gegn Fram og
Þórólfur Beck bætti öðru marki við.
1961 fengu Framarar strax tæki-
færi til að snúa dæminu við í undan-
úrslitunum. Leikurinn var æsispenn-
andi og ekkert gefið eftir. Að lokn-
um venjulegum leiktíma var staðan
jöfn 1-1. f framlengingunni tókst
Gunnari Felixsyni að bæta við marki
fyrir nýbakaða íslandsmeistra KR
og tryggja þeim sigurinn. KR hirti
síðan bikarinn með sigri á ÍA, 4-3.
1962 eða þriðja árið í röð mættu
Framarar KR í bikarkeppninni og
öðru sinni í úrslitaleiknum. Mót-
spyrna Fram var þó minni núna og
KR vann öruggan sigur, 3-0. Ellert
B. Schram núverandi formaður KSÍ
skoraði tvívegis og Gunnar Felixson
bætti því þriðja við.
1967 eða fimm árum síðar fengu
Framarar næsta tækifæri til að jafna
metin, þegar félögin drógust saman
í undanúrslitunum. KR náði strax
forystunni þegar Ellert B. Schram
„hnoðaði boltanum í netið“ á 5.
mín. Helgi Númason skoraði fyrir
léikhlé úr aukaspyrnu og endurtók
það stuttu eftir hlé og gaf Fram
forystuna. Það dugði stutt fyrir KR
þegar Eyleifur Hafsteinsson jafnaði,
því að Helgi lauk við þrennuna 10.
mín. fyrir leikslok. Það stefndi allt í
sigur Fram þegar mark ársins kom.
Sjálft Rauða ljónið, Bjarni Felixson,
skallaði óverjandi í stöng og inn rétt
fyrir leikslok, og skoraði sitt eina
mark á löngum ferli með meistara-
flokki KR. í framlengingunni var
ekkert mark skorað svo að liðin
þurftu að mætast að nýju. Eyleifur
tryggði þá KR sigurinn, 1-0, með
meistaralegu skoti, óverjandi fyrir
Þorberg Atlason markvörð Fram.
KR vann síðan bikarinn í 7. skiptið
á átta árum með sigri á Víkingi en
síðan hefur bikarinn ekki komið í
Vesturbæinn.
1970 var loks komið að því að
dæmið snerist við. KR og Fram
drógust saman í undanúrslitunum.
KR náði forystunni með góðu marki
Sigþórs Sigurjónssonar undir lok
fyrri hálfleiks, en Fram svaraði fyrir
sig með vítaspyrnu Marteins Geirs-
sonar og Kristinn Jörundsson bætti
um betur. Á síðustu mínútunni fékk
KR dæmda vítaspyrnu. Ellert B.
Schram, sem ætlaði að leggja skóna
á hilluna eftir keppnistímabilið,
brást þó illa bogalistin. Hörður
Helgason varði laust skot hans ör-
ugglega og Framarar fögnuðu sigri.
Fram vann síðan bikarinn í fyrsta
skipti eftir 2-1 sigur á Vestmanney-
ingum. Ellert átti hins vegar eftir að
draga fram skóna að nýju og bjarga
KR frá falli ári síðar.
1971drógust félögin enn saman og
nú í sextán liða úrslitum. Framarar
voru komnir með mjög gott lið, en
KR hafði staðið f erfiðri fallbaráttu
um sumarið, enda fóru leikar svo að
þeir bláklæddu unnu ungt lið KR
auðveldlega 4-1.
1972 drógust liðin saman í þriðja
skiptið á þrem árum í 16-liða úrslit-
um. Nú voru það KR-ingar sem fóru
með sigur af hólmi og slógu nýbak-
aða fslandsmeistara Fram út, með
2-1 sigri. Þetta var fyrsti og eini
ósigur fram á árinu gegn íslensku liði
en eini sigur KR í bikarkeppninni
það árið.
1975 mættust liðin í 16 liða úrslit-
um og í 6 skiptið af 8 var það KR
sem fór með sigur af hólmi, 2-0. KR
komst síðan í undanúrslit í fyrsta
skipti í 5 ár en tapaði þar naumlega
fyrir Keflavík.
1977 Framarar náðu sínum þriðja
bikarsigri gegn fallliði KR sumarið
1977 með öruggum sigri 2-0 í átta
liða úrslitum. Framarar fóru alla leið
í úrslitaleikinn en töpuðu þar 0-2
fyrir sterku liði Vals.
1981 mættust liðin í 16 liða úrslit-
um. Lélegum leiklauk með jafntefli,
1-1,og var það Elías Guðmundsson
sem jafnaði fyrir KR skömmu fyrir
leikslok. En það dugði skammt.
Framarar unnu örugglega þegar liðin
mættust að nýju 10 dögum seinna,
4-1.
1984 drógust KR og Fram saman
í undanúrslitunum. Bæði liðin höfðu
átt í fallbaráttu lengst af sumri, en
fengu nú tækifæri til að bæta fyrir
það. Skemmtilegum og spennandi
leik lauk með sigri Fram, 3-1, sem
sneri þar við taflinu, því að KR hafði
þrem dögum áður unnið mikilvægan
leik í deildinni. f úrslitum urðu
Framarar að lúta lægra haldi gegn
Skagamönnum, en Evrópusætið
fengu þeir, því að Skaginn vann
tvöfalt þetta ár.
1986 mættust félögin síðan í bik-
arnum og þá í átta liða úrslitum.
Leikurinn var hörkuspennandi eins
og flestir bikarleikir milli þessara
félaga. KR náði tveggja marka for-
ystu með mörkum Björns Rafnsson-
ar og Ásbjörns Björnssonar. Fram-
arar náðu að minnka muninn um
miðjan seinni hálfleik og jafna með
marki Kristins R. Jónssonar7 mínút-
um fyrir leikslok. í framlengingunni
var bara eitt lið á leikvellinum og
það var í bláum búningum. Þegar
upp var staðið hafði Fram bætt við
fjórum mörkum og vann þvf 6-2,
sem er mesti munur í leik þessara
félaga í bikarkeppni. Framarar kom-
ust í úrslit en töpuðu fyrir Skaganum
1-2. Það var núverandi fyrirliði KR,
Pétur Pétursson, sem tryggði Skaga-
mönnum sigurinn með tveimur
glæsilegum mörkum.