Tíminn - 26.08.1989, Side 19
'\ ‘i i r »; * * ><a~ / .
T, »»»»t » »»»»»»»»>*» i »»*»»*»»»»»»***» »* * > » > v" '
*».T.T.T.T.T.T.T.T.^ i”
. ’*"•***.t
. i t V4* V % * 1
Laugardagur 26. ágúst 1989
Tíminn 31
Frá bílasölu í Reykjavík.
Tímamynd: Árni Bjarna
Helmingi færri nýir bilar en í fyrra:
Haugar óseldra
bíla í landinu
Rúmlega helmings samdráttur hefur orðið á sölu nýrra bíla
það sem af er árinu miðað við sama tíma í fyrra. Eftir því sem
næst verður komist eru í landinu um þúsund nýir ótollaf-
greiddir bílar af árgerðunum 1987 til 1989 og er um þriðjungur
þeirra í eigu eins umboðs en þrjú önnur umboð eigi afganginn
að mestu. Ljóst er að stöðugt erfiðara verður fyrir umboðin
að selja þessa bíla sem lengra líður enda eru bílar af 1990
árgerð farnir að berast til Iandsins.
„fað er auðvitað hið versta mál að
lenda í því að sitja uppi með óselda
nýja bíla í allt að tvö ár. Á þá falla
stöðugt geymslugjöld en jafnframt
því verður að lækka á þeim verðið
til þess að freista þess að koma þeim
út. Jafnframt er stórfé bundið fast.
Ef bílaumboð situr uppi með einhver
hundruð óseldra bíla þá gæti það
hæglega riðið því að fullu,“ sagði
sölumaður nýrra bíla hjá einu bíla-
umboðanna í gær.
Nefnt hefur verið að grípa þurfi til
þess að endursenda þessa bíla út til
framleiðenda. Að því er þó ekki
auðhlaupið þar sem það eitt kostar
eftir því sem næst verður komist
minnst fimmtíu þúsund krónur. Því
má telja líklegra að reynt verði að
selja þessa bíla á einhvers konar
sérkjörum og að umboðin muni á
næstunni reyna eftir megni að losna
við þessa bfla með því að lækka á
þeim verðið og semja um afslátt við
framleiðendur. Ljóst má þó vera að
ekki getur orðið um útsölur af því
tagi sem tíðkast t.d. í fataverslunum,
þar sem tollar og gjöld til ríkissjóðs
eru svo stór hluti af verði nýs bíls og
um afslátt af þeim er ekki að ræða.
Samkvæmt tölum frá Bílgreina-
sambandinu um bílainnflutning hafa
selst 4276 nýir bílar frá því í byrjun
árs og til júlíloka en af þessum bílum
voru 4004 fólksbílar.
Seljendur nýrra bíla búast ekki
við að neinn kippur komi í söluna
það sem eftir lifir af árinu og heildar-
salan verði vart meiri en kring um
sex þúsund bílar.
í fyrra seldust á tímabilinu janúar-
júlí 8.634 bílar þannig að um meir
en helmings samdrátt er að ræða.
Langmest hefur það sem af er
árinu selst af Mitsubishi fólksbílum
eða 726 bílar en það er 18,1%.
Önnur vinsælasta tegundin er
Toyota með 478 bíla eða 11,9. og í
þriðja sæti er Lada með 466 bíla eða
11,6%.
Af vörubílum hefur mest selst af
M.A.N eða 13 bílar sem er 23,7%.
Af Scania, Mercedes Benz og Volvo
hafa selst 11 bílar af hverri tegund
sem er 20% markaðshlutdeild hverr-
ar tegundar.
Aðrar tegundir vörubíla sem flust
hafa til landsins á árinu eru; Hino, 3
bílar, DAF og FAUN, tveir af
hvorri tegund og af Tatra og IVECO
hafa flust einn af hvorri tegund.
Bílasalar sem selja notaða bíla
eru ekki sammála um hvort þessi
mikli samdráttur í sölu nýrra bíla
hafi orðið til þess að hleypa fjöri í
viðskipti með notaða bíla. Guðmar
Kristjánsson hjá Bílasölu Alla Rúts
sagði að verðið hefði greinilega
stigið. Guðfinnur Halldórsson hjá
Bílasölu Guðfinns var því algerlega
ósammála:
„Pað er af og frá að verð notaðra
bíla hafi hækkað,“ sagði Guðfinnur.
„Það segir sig sjálft að ef lítil sala er
í nýjum bílum þá er það vegna þess
að fólk hefur ekki fé handbært. í>á
hækkar verð notaðra bíla auðvitað
ekkert og þaðan af síður hækkar það
þegar umboðin eru stöðugt að gera
kaupendum alls konar sértilboð.
Sannleikurinn er því nefnilega sá að
alltaf haldast í hendur mikil sala
nýrra bíla og mikil sala notaðra
bíla,“ sagði Guðfinnur.
Guðfinnur benti einnig á að verð
á nýjum bílum væri hagstætt þessa
stundina og ef verð notaðra bíla
hækkaði, þá gæfi það augaleið að
fólk hlyti að hugsa sig um tvisvar og
kaupa nýjan bíl á hagstæðu verði
fremur en notaðan dýran bíl. Þess
vegna væru fullyrðingar um hækk-
andi verð á notuðum bílum einfald-
lega órökréttar og auk þess rangar.
Guðfinnur sagði að salan væri
jöfn þessa dagana og úr sögunni
væru að miklu leyti sveiflur fyrri
tíma þegar salan var langmest fyrir
verslunarmannahelgi. Obbinn af bíl-
um til sölu væru af árgerðunum 1986
til 1988. Hins vegar vantaði í sölu
góða bíla af árgerðum frá 1981 til
1985 á verðbilinu 200-400 þúsund
krónur. Eftir slíkum bílum væri nú
mest eftirspurn. - sá
-ekkl/-í
þarjjM -
hepF1' VJJ
Laugardagur kl.13:55
34. LEIKVIKA- 26. ágúst 1989 1 11! 121
Leikur 1 Arsenal - Wimbledon
Leikur 2 Aston Villa - Charlton
Leikur 3 Chelsea - Sheff. Wed.
Leikur 4 C. Palace - Coventry
Leikur 5 Derby - Man. Utd.
Leikur 6 Everton - Southampton
Leikur 7 Luton - Liverpool
Leikur 8 Man. City - Tottenham
Leikur 9 Millwall - Nott. For.
Leikur 10 Norwich - Q.P.R.
Leikur 11 Leeds - Blackburn
Leikur 12 Leicester - Newcastle
Símsvari hjá getraunum er 91-84590 og -84464.
LUKKULINAN s. 991002
Enska knattspyrnai n !!
RÍKISSPÍTALAR
Þroskaþjálfar
Nokkrar stöður þroskaþjálfa eru lausar á vinnu-
stofum Kópavogshælis. Um er að ræða skipu-
lagningu og framkvæmd þjálfunar í hæfingu
og/eða verkstjórn og viðhald þjálfunar í vinnusal.
Ásamt góðri vinnuaðstöðu og hagstæðum vinnu-
tíma frá kl. 9.30 til kl. 15.30 eða eftir samkomulagi
bjóðum við gott mötuneyti, möguleika á plássi á
skemmtilega faglega reknu dagheimili. Einnig eru
möguleikar á ýmsum námskeiðum á vegum Ríkis-
spítala ásamt fleiri hlunnindum.
Upplýsingar gefur yfirþroskaþjálfi á vinnustofum í
síma 45130 eða 602700
Reykjavík 27. ágúst 1989
RÍKISSPÍTALAR
Félagsmálastofnun
í á Reykjavíkurborgar
MF Húsvörður
Húsvörður óskast í fullt starf fyrir sambýlishús.
Aðeins umgengnisgott og reglusamt fólk kemur til
greina. Húsvörður annast minni háttar viðhald og
hefur umsjón með framfylgni húsreglna. Góð íbúð
fylgir starfinu.
Nánari upplýsingar gefur Birgir Ottósson hús-
næðisfulltrúi í síma 680980. Umsóknarfrestur er
til 3. september. Umsóknum ber að skila til
starfsmannahalds Reykjavíkurborgar Pósthús-
stræti 9 á sérstökum eyðublöðum sem þar fást.
Fósturheimili
Félagsmálastofnun Selfoss óskar eftir fósturheimili
fyrir 13 ára dreng. Allar nánari upplýsingar eru veitt-
ará Félagsmálastofnun Selfoss í síma98-21408.
Félagsmálastofnun Selfoss
Miðstöðvarketill
Til sölu lofthitunar olíuketill 200.000 B.T.U.
Upplýsingar í síma 92-12638.