Tíminn - 28.04.1993, Side 7
Miðvikudagur 28. apríl 1993 Tíminn 7
Framkvœmdir í miðborginni í sumar vegna endurnýjunar
og nýlagninga torga, gatna og gangstétta.
Á komandi sumri verður ráðist í all viðamiklar framkvæmdir í miðborg Reykjavíkur. Þær miða allar
að því að fegra miðborgina, skapa betri aðstöðu til útivistar, bæta götur og torg, auk þess að sinna
eðlilegu viðhaldi og endurnýjun lagna og gatna.
Við hönnun og framkvæmd þessara breytinga hefur verið lögð áhersla á að halda truflun umferðar í
lágmarki og hraða framkvæmdum. Nefna má nokkur atriði:
•Umferð um Tryggvagötu truflist ekki.
•Umferð Austurstrætis til vesturs hafi eðlilegt flæði með gerð nýrrar tengibrautar við Hafnarstræti.
•Starfsemi strætisvagna verði óhindruð.
Framkvæmdirnar hefjast um mánaðarmótin apríl/maí og
mun þeim ljúka í september/október.
Óhjákvæmilegt er, að af þessum framkvæmdum hljótist
nokkur truflun á umferð gangandi vegfarenda og öku-
tækja, meðan á þeim stendur.
Borgarbúar eru beðnir að sýna þessum framkvæmdum
skilning og gæta sérstakrar varúðar í umferðinni meðan á
breytingum stendur.
TJarnargata.
Vesturbakki Tjarnarinnar endurbyggður meö grænum
svæöum, betri aöstööu fyrir mannlíf og fuglalíf.
Ingólfstorg
(áöur Hallærisplan og Steindórsplan) veröur byggt og fært í
framtíðarhorf meö stórbættri aðstööu til útivistar og umferöar
gangandi fólks. Breytingar verða geröar á umferö úr
Austurstræti í Hafnarstræti.
Gleðilegt sumar!
•Starfsemi Kolaports truflist ekki.
Arnarhóll.
Umhverfi styttu Ingólfs Arnarsonar verður bætt, gras-
svöröur sléttaöur og hitalagnir lagöir í bratta gangstíga.
GBrrsqata
Geirsgata
verður byggö, hækkbö,
breikkuö og færö til noröurs með
endurbótum á Miðbakka. Umferö á
núverandi Tryggvagötu mun færast
þangaö að verulegu leyti aö loknum
framkvæmdum n.k. haust. Við þaö
munu samgöngur viö Vesturborgina
batna til muna.
REYKJAVÍKURBORG
HVÍTA HÚSIÐ / SÍA