Tíminn - 28.04.1993, Qupperneq 7

Tíminn - 28.04.1993, Qupperneq 7
Miðvikudagur 28. apríl 1993 Tíminn 7 Framkvœmdir í miðborginni í sumar vegna endurnýjunar og nýlagninga torga, gatna og gangstétta. Á komandi sumri verður ráðist í all viðamiklar framkvæmdir í miðborg Reykjavíkur. Þær miða allar að því að fegra miðborgina, skapa betri aðstöðu til útivistar, bæta götur og torg, auk þess að sinna eðlilegu viðhaldi og endurnýjun lagna og gatna. Við hönnun og framkvæmd þessara breytinga hefur verið lögð áhersla á að halda truflun umferðar í lágmarki og hraða framkvæmdum. Nefna má nokkur atriði: •Umferð um Tryggvagötu truflist ekki. •Umferð Austurstrætis til vesturs hafi eðlilegt flæði með gerð nýrrar tengibrautar við Hafnarstræti. •Starfsemi strætisvagna verði óhindruð. Framkvæmdirnar hefjast um mánaðarmótin apríl/maí og mun þeim ljúka í september/október. Óhjákvæmilegt er, að af þessum framkvæmdum hljótist nokkur truflun á umferð gangandi vegfarenda og öku- tækja, meðan á þeim stendur. Borgarbúar eru beðnir að sýna þessum framkvæmdum skilning og gæta sérstakrar varúðar í umferðinni meðan á breytingum stendur. TJarnargata. Vesturbakki Tjarnarinnar endurbyggður meö grænum svæöum, betri aöstööu fyrir mannlíf og fuglalíf. Ingólfstorg (áöur Hallærisplan og Steindórsplan) veröur byggt og fært í framtíðarhorf meö stórbættri aðstööu til útivistar og umferöar gangandi fólks. Breytingar verða geröar á umferö úr Austurstræti í Hafnarstræti. Gleðilegt sumar! •Starfsemi Kolaports truflist ekki. Arnarhóll. Umhverfi styttu Ingólfs Arnarsonar verður bætt, gras- svöröur sléttaöur og hitalagnir lagöir í bratta gangstíga. GBrrsqata Geirsgata verður byggö, hækkbö, breikkuö og færö til noröurs með endurbótum á Miðbakka. Umferö á núverandi Tryggvagötu mun færast þangaö að verulegu leyti aö loknum framkvæmdum n.k. haust. Við þaö munu samgöngur viö Vesturborgina batna til muna. REYKJAVÍKURBORG HVÍTA HÚSIÐ / SÍA

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.